Dagur - 10.04.1992, Qupperneq 2
2 - DAGUR - Föstudagur 10. apríl 1992
Fréttir
Þjónusta íslandsbanka við húsfélög:
Fimintíu húsfélög á
Akureyri komin í viðskipti
í mars fyrir rúmu ári bauð
Akureyrarútibú íslandsbanka
húsfélögum fjölbýlishúsa sér-
staka greiðslu- og bókhalds-
þjónustu. Af bankans hálfu
var ákveðið að þjónustan yrði
einskorðuð við útibúið við
Hrísalund. Geir Þórðarson
fulltrúi hjá íslandsbanka í
Reykjavík segir að Akureyrar-
útibúið hafi náð einstökum
árangri á því ári sem liðið er.
„Fimmtíu húsfélög eru komin í
viðskipti á Akureyri og þeim
fjölgar dag frá degi. Aukning
þessarar þjónustu innan Is-
landsbanka er hvergi meiri en
á Akureyri.“
Aðalheiður Alfreðsdóttir, full-
trúi í íslandsbanka við Hrísa-
lund, segist hafa fylgst með þeirri
þjónustu er íslandsbanki veitti
húsfélögum í Reykjavík og sér
hefði orðið ljóst strax að slíkri
þjónustu yrði að koma á á Akur-
eyri.
„Tölvuútbúnaður mjög full-
kominn var keyptur og þjónustan
boðin í mars á liðnu ári. Strax í
upphafi fengum við góð við-
brögð. Stjórnir húsfélaga sáu
strax þá kosti sem þjónustan veit-
ir. Við spörum gjaldkerum hús-
félaga mörg sporin jafnframt sem
allt öryggi eykst til muna í öllu er
lýtur að peningavafstri húsfélaga.
Mánaðarlega fá húsfélögin út-
skrift á færslum og ársreikningur
er yfirgripsmikill og aðgengileg-
ur. Þjónusta þessi er íslands-
banki veitir er ekki kostnaðar-
söm. Mánaðargjald er fast og
miðast við fjölda íbúða í fjölbýl-
ishúsinu. Þannig er gjaldið
550,00 krónur fyrir eins til níu
íbúða húsfélag, 1100,00 krónur
fyrir tíu til tuttugu íbúða húsfélag
og séu íbúðirnar fleiri en tuttugu
þá er gjaldið 1650,00 krónur.
Auk þessa kostar hver gíróseðill
sem sendur er út krónur 65,00,“
sagði Aðalheiður Alfreðsdóttir
og hún bætti við: „íslandsbanki
býður nú húsfélögum á Akureyri,
sem ekki eru í viðskiptum, fría
þjónustu til reynslu fram í júlí.
Þeir sem nú þegar eru komnir í
viðskipti eru ánægðir og ekki síð-
ur við sem vinnum að þessum
málum í bankanum. Undirtekt-
irnar hafa verið á einn veg,
góðar.“ ój
Stjórnsýslumiðstöð á Sauðárkróki:
Kauptilboð í gömlu kjörbúðina
- beðið eftir ákvörðun Byggðastofnunar
Gert hefur verið uppkast að
kauptilboði í gömlu kjörbúð-
ina á Sauðárkróki, með það
fyrir augum að fasteigninni
verði breytt í stjórnsýslumið-
stöð. Bæjarstjórn Sauðárkróks
og Héraðsnefnd Skagfirðinga
hafa hvor fyrir sig samþykkt að
gera tilboð í húsið, en beðið er
eftir ákvörðun Byggðastofnun-
ar um þátttöku.
Samkvæmt því uppkasti að
kauptilboði sem þessir þrír aðilar
hafa gert, er reiknað með að
eignarhlutföll verði þau, að
Byggðastofnun eigi 40%, Sauð-
árkróksbær 30% og Héraðsnefnd
Skagfirðinga 30%. Tilboðið sjálft
hljóðar upp á 23,5 milljónir
króna, en reiknað er með að
verja þurfi allt 47 milljónum
króna til endurbóta og breytinga
á húsinu.
Umrædd fasteign, Skagfirð-
ingabraut 21, er í eigu Kaupfé-
lags Skagfirðinga og í fyrstu stóð
til að kaupfélagið myndi áfram
eiga hlut í húsinu ef af kaupunum
yrði. Nú hefur hinsvegar verið
ákveðið að eignaraðilar verði
einungis þrír og hafa Héraðs-
nefnd Skagfirðinga og bæjar-
stjórn Sauðárkróks samþykkt að
gera kauptilboð samkvæmt upp-
kastinu. Stjórn Byggðastofnunar
frestaði aftur á móti ákvörðunar-
töku um eignaraðild í stjórn-
sýslumiðstöðinni á fundi sínum í
vikunni. Guðmundur Malmquist,
forstjóri Byggðastofnunar, segir
að ákvörðun muni þó liggja fljót-
lega fyrir, enda er, í tilboðsupp-
kastinu, gert ráð fyrir að fasteign-
in verði afhent nýjum eigendum
þann 1. maí nk. SBG
Starfsmenn Kjörmarkaðs KEA í Hrísalundi hafa komið fyrir þessu risa
páskaeggi í versluninni. Fjóra menn þurfti til þess að koma páskaegginu upp
á stallinn. Ungu mennirnir á myndinni sýndu egginu greinilega mikinn áhuga
og víst er að fleiri eiga eftir að gera það einnig. Mynd:Goiii
Miðlun með landbúnaðarvélar:
Þórshamar hf. býður bændum að
skrá notuð tæki til sölu
- fáum talsvert að fyrirspurnum, segir Ágúst Hilmarsson
h
Undirbúningur er hafínn aö
miðlun með notaðar landbún-
aðarvélar á Akureyri. Fyrir-
tækið Þórshamar hf. hefur nú
sent út fyrirspurnir til bænda á
Akureyri:
Tvö innbrot framin í fyrrinótt
Tvö innbrot voru framin á
Akureyri í fyrrinótt. Minni
háttar skemmdir voru unnar á
báðum stöðum og nokkrum
þúsundum króna í peningum
stolið.
Að sögn Árna Magnússonar,
varðstjóra í Akureyrarlögregl-
unni, barst tilkynning um inn-
brotin í gærmorgun en ekki er
vitað nákvæmlega hvenær þau
voru framin. Um er að ræða inn-
Innheimtumál í Þingeyjarsýslu:
Hvergi verið lokað ennþá
„Það er ekki búið að loka
neinsstaðar ennþá, en aðgerðir
eru í gangi. Við getum ekki
Beiðni um
gjaldþrot P0B
Gunnar Sólnes, lögfræðingur
Landsbanka ísíands, lagði í
gær fram beiðni til bæjar-
fógetaembættisins á Akureyri
um gjaldþrotaskipti Prent-
verks Odds Björnssonar.
Ekki var búið að taka afstöðu
til beiðninnar síðdegis í gær, en
búist er við að það verði g$rt í
dag. óþh
sinnt því að hóta öllum í einu,
en við vorum í gær á Raufar-
höfn og Þórshöfn,“ sagði Hall-
dór Kristinsson, sýslumaður
Þingeyinga, aðspurður um inn-
heimtuaðgerir vegna ógreidds
virðisaukaskatts og staðgreiðslu
hjá embættinu í gær.
Sýslumaður sagði að þegar
hefðu 20-30 fyrirtæki fengið hót-
anir um lokun, þar á meðal fyrir-
tæki á Húsavík, þessar aðgerðir
væru yfirstandandi og eftir væri
að fara í nokkur sveitarfélög í
sýslunni. „Þessar aðgerðir okkar
hafa borið verulegan árangur,“
sagði Halldór, en aðspurður um
upphæðir skuldanna sagði hann
þær bæði vera stórar og smáar.
IM
brot í Glerárskóla og hins vegar í
Hvammshlíðarskóla. í báðum til-
fellum fóru þjófarnir inn um
glugga og unnu minni háttar
skemmdir. Á öðrum staðnum
höfðu þeir 4000 kr. upp úr krafs-
inu og 2500 kr. á hinum.
Samkvæmt upplýsingum Árna
síðdegis í gær var ekki upplýst
hverjir voru að verki en hann átti
von á að málið gæti skýrst von
bráðar. Árni sagði lögregluna
ekki hafa vissu fyrir að um sömu
aðila hafi verið að ræða í báðum
innbrotunum. JÓH
á Bílasölu Þórshamars
Eyjafjarðarsvæðinu um hvort
þeir hafí áhuga á að selja not-
aðar vélar og tæki og kjósi að
notfæra sér þá þjónustu sem
boðið er upp á. Einnig er
áformað að senda fyrirspurnir
til bænda í Þingeyjarsýslu og
jafnvel er mögulegt að miðlun-
in nái einnig að einhverju leyti
til Skagafjarðar. Starfsemi af
þessu tagi er nú þegar fyrir
hendi á Hvammstanga og einnig
er hafín miðlun með landbún-
aðartæki á Suðurlandi.
Ágúst Hilmarsson, hjá Bíla-
sölu Þórshamars, sagði að kveikj-
an að þessari starfsemi væri fyrir-
spurnir sem borist hefðu um not-
aðár landbúnaðarvélar og tæki á
síðasta sumri. Þórshamar hf.
annaðist sölu á nýjum landbún-
aðarvélum og því hefðu menn
sett sig í samband við fyrirtækið
varðandi notuð tæki. Ágúst sagði
að um tilraun væri að ræða.
Starfsemin væri fyrst og fremst
hugsuð sem miðlun. Vélar og
tæki yrðu skráð hjá Þórshamri,
sem siðan vísaði á viðkomandi
eigendur tækjanna í sveitum en
ekki væri áformað að taka notað-
ar landbúnaðarvélar í umboðs-
sölu eins og þegar um bíla er að
ræða, að minnsta kosti ekki fyrst
um sinn. Ágúst sagði að hvers-
konar landbúnaðatæki yrðu tekin
á skrá og engu minni áhersla lögð
á minni tæki, til dæmis heyvinnu-
vélar, heldur en stærri vélar á
borð við dráttarvélar. Hann benti
á að tölverður markaður væri fyr-
ir notaðar landbúnaðarvélar.
Bæði hefðu frístundabændur og
hestamenn áhuga fyrir að kaupa
vélar sem væru í sæmilegu ásig-
komulagi og einnig hefðu margir
bændur áhuga fyrir slíku. Ágúst
sagði að skammt væri síðan að
fyrstu fyrirspurnirnar varðandi
notuð tæki til sölu hefðu verið
sendar til bænda og enn væri ver-
ið að senda þær út þannig að
marktæk viðbrögð væru ekki
komin fram en þó hefðu nokkri
bændur þegar haft samband við
Þórshamar vegna þessara mála.
ÞI
íþróttafélagið Þór:
Aðstaðan í Hamri er fyrir alla
Aðalsteinn Sigurgeirsson, for-
maður íþróttafélagsins Þórs
hafði samband við Dag vegna
fréttar í Degi í gær um kaup
félagsins á líkamsrækarstöð
Stjörnuræktarinnar. Þar var
m.a. haft eftir honum að einn
liður í kaupunum væri sú við-
leitni að skapa sem besta
æfíngaaðstöðu fyrir keppnis-
fólk félagsins.
Aðalsteinn sagði mistökin vera
sín en til að fyrirbyggja misskiln-
ing sem greinilega hefði komið
upp, vildi hann árétta, að aðstað-
an í Hamri væri fyrir alla félags-
menn, svo og aðra þá sem áhuga
hafa á því að nýta sér aðstöðuna.
„Við erum að koma upp mjög
góðri aðstöðu í Hamri og er
stefnt að því að hún verði tilbú-
in 6. júní nk. á afmælisdegi
félagsins. Auk líkamsræktar-
stöðvarinnar verða þarna heitir
pottar, gufubað og ljósalampar
og geta allir sem áhuga hafa nýtt
sér þá aðstöðu sem í boði
verður,“ sagði Aðalsteinn. -KK