Dagur - 10.04.1992, Blaðsíða 3

Dagur - 10.04.1992, Blaðsíða 3
Föstudagur 10. apríl 1992 - DAGUR - 3 Fréttir Smásagnasamkeppni Dags og MENOR: Úrslit kunngerð á sunnudaginn - verðlaun og viðurkenning afhent í Gamla Lundi Dómnefnd í smásagnakeppni dagblaðsins Dags á Akureyri og Menningarsamtaka Norð- lendinga, MENOR, lauk störf- um og skilaði af sér þriðjudag- inn 7. aprfl. Formaður dóm- nefndarinnar er Sigurður Jóns- son, íslenskukennari við Fjöl- brautaskóla Norðurlands vestra á Sauðárkróki, en meðnefndarmenn eru Þórdís Jónsdóttir, íslenskukennari við Vcrkmenntaskólann á Akur- eyri, og Stefán Sæmundsson, blaðamaður við dagblaðið Dag. Þessi smásagnakeppni var önn- ur keppnin sinnar tegundar, sem Dagur og MENOR hafa sam- vinnu um. Á síðasta ári var efnt til ljóðasamkeppni og gert er ráð fyrir því að slík keppni verði samstarfsverkefni Dags og MEN- OR að ári. Þátttaka í smásagnakeppninni að þessu sinni var að vonum. í hana bárust fimmtíu og tvær smásögur. Þær komu víðs vegar af landinu, en flestar þó úr Norð- lendingafjórðungi. Dómnefnd hefur valið sögu til verðlauna og aðra til viðurkenn- ingar. Niðurstöður nefndarinnar verða gerðar opinberar við athöfn í Gamla Lundi á Akureyri sunnudaginn 12. apríl og þá verða einnig verðlaun og viður- kenning afhent. Athöfnin hefst kl. 16. Formað- ur dómnefndar mun gera grein fyrir störfum dómnefndar, en for- maður MENOR afhendir verð- launin. Athöfnin er opin þeim, sem áhuga hafa. F.h. Dags og MENOR, Haukur Ágústsson. Hjálparlínan stofnuð á Akureyri: Leitast við að liðsinna fólki í erfiðleikum Stofnaður hefur verið áhuga- hópur um svokallaða hjálpar- línu á Akureyri sem er að mörgu leyti hliðstæður neyðar- - tengist símaþjónustu Rauða kross hússins sími og vinalínan í Reykjavík. Tilgangurinn með stofnun hjálparlínunnar er að leiðbeina og liðsinna fólki sem á í ýmsum Leikflokkurinn Hvammstanga: Ættarmótið fmmsýnt „Þetta er búið að ganga mjög vel, en auðvitað hefur þetta verið erfitt og í nógu að snúast,“ segir Sigurlaug Þor- leifsdóttir, formaður Leik- flokksins Hvammstanga, en leikflokkurinn frumsýnir á sunnudag Ættarmótið eftir Böðvar Guðmundsson í leik- stjórn Fmils Gunnars Guð- mundssonar. Að sögn Sigurlaugar verður farið í leikför á Snæfellsnes með verkið, en áður verða þó haldnar nokkrar sýningar heima fyrir í félagsheimilinu á Hvammstanga. Næstu sýningar eftir frumsýningu eru fyrirhugaðar fimmtudaginn 16. apríl, laugardaginn 18. og síðasta vetrardag verður sýning og slegið upp balli að henni lok- inni. „Við ætlum að drífa okkur á Snæfellsnesið eftir að við höfum sýnt nokkrum sinnum hérna heima og sýna í Ólafsvík og Stykkishólmi. Það verður eflaust gaman, því við höfum aldrei farið þarna vestur áður með leikrit," segir Sigurlaug Þorleifsdóttir. SRG erfiðleikum og verður þjón- usta hjálparlínunnar opin allan sólarhringinn. Faglært fólk mun veita öllum sem nýta sér þjónustu hjálparlín- unnar þá aðstoð sem viðkomandi þarf á að halda hverju sinni. Hjálparlínan verður tengd síma- þjónustu Rauða kross hússins í Reykjavík svo og síma hjá öðr- um aðilum sem láta sér velferð annarra varða. „Þjónustan er byggð á algjör- um trúnaði milli þess aðila sem hringir inn og viðmælandans. Nafnleynd er algjör og þarf við- komandi ekki að gefa upp nafn sitt né hvaðan hann hringir nema hann kjósi það sjálfur. Með til- komu hjálparlínunnar, og þess samstarfs sem hún verður með við símaþjónustu Rauða kross hússins í Reykjavík og faglært starfsfólk þar, opnast enn frekari leið fyrir þá aðila sem leita vilja sér hjálpar í erfiðleikum sínum,“ segir í tilkynningu frá áhuga- mannahópnum. Sem fyrr segir verður sími hjálparlínunnar opinn allan sól- arhringinn og númerið er 96- 12122. Hjálparlínan er ætluð fólki á öllum aldri og er fólk hvatt til að hringja í nauðum sínum og finna samkennd, skilning og kær- leika. SS

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.