Dagur - 10.04.1992, Page 6
6 - DAGUR - Föstudagur 10. apríl 1992
Hvaðeraðgerast?
Fundir -
Ráðstefnur
Akureyri:
Kynningá
Alþýðuflokkum
Ungir jafnaðarmenn í sam-
vinnu við Fræðsluráð
Alþýðuflokksins efna til
ráðstefnu á morgun, laug-
ardag, í Reynishúsinu
Furuvöllum 1 á Akureyri
frá kl. 10 til 19. Ráðstefnan
verður öllum opin og án
endurgjalds. Áhersla verð-
ur lögð á að kynna stefnu-
mál og starfsemi Alþýðu-
flokksins.
Ráðstefnan hefst með
setningu Sigurðar Arnórs-
sonar, formanns Alþýðu-
flokksfélags Akureyrar, en
síðan flytja erindi Sigurður
Pétursson, formaður S.U.J.,
Sigurður T. Björgvinsson,
framkvæmdastjóri Alþýðu-
flokksins, Gísi Bragi Hjart-
arson, bæjarfuiltrúi á Akur-
eyri, Össur Skarphéðins-
son, formaður þingflokks
Alþýðuflokksins og Sig-
björn Gunnarsson, alþing-
ismaður.
Húsavík:
Ráðstefna
um skólamál
Skólanefndir framhalds-
skólanna á Laugum og
Húsavík standa fyrir ráð-
stefnu um skólamál í Félags-
heimili Húsavíkur í dag,
föstudaginn 10. apríl, og
hefst ráðstefnan kl. 13.30
með ávarpi menntamála-
ráðherra og er áætlað að
henni ljúki kl. 18.
Meðal frummælenda
verða skólameistarar Fram-
haldsskólans á Húsavík og
Laugaskóla, formenn hér-
aðsnefnda Eyjafjarðar, S-
Þingeyjarsýslu og N-Þing-
eyjarsýslu, formenn
nemendafélaga á Húsavík
og Laugum, alþingismenn
kjördæmisins og fulltrúar
menntamálaráðuneytis.
Ráðstefnan er öllum opin
sem áhuga hafa á skólamál-
um.
Akureyri:
Magnús sýnir
í GaUeríi
AllraHanda
Nú stendur yfir sýning
Magnúsar Kjartanssonar,
myndlistarmanns, í Gallerí
AllraHanda á Akureyri.
Myndröðina, sem Magnús
sýnir að þessu sinni, nefnir
hann Kristur í kaffibollan-
um.
Siglufjörður:
Sýning Brynju
í Ráðhúsinu
Brynja Árnadóttir opnar í
dag, föstudaginn 10. apríl,
sýningu á pennateikningum
í sýningarsal í Ráðhúsi
Siglufjarðar.
Brynja er fædd og uppal-
in á Siglufirði og er þetta
fyrsta sýning hennar þar.
Þetta er fjórða einkasýning
Brynju og hefur hún einnig
tekið þátt í einni samsýn-
ingu. Brynja sýndi síðast í
Hafnarborg, menningar- og
listastofnun Hafnarfjarðar,
í októlx. 1991.
Lyningin stendur til mið-
vikudagsins 15. apríl og er
opin kl. 14-19.
Skemmtistaðir
- Veitingahús
1929-Uppinn
Hljómsveitin Sálin hans
Jóns míns sér um fjörið á
skemmtistaðnum 1929 á
Akureyri í kvöld, föstu-
dagskvöld, og annað kvöld.
Fyrstu 150 gestirnir fá frítt
öl annað kvöld, laugardags-
kvöld.
Veitingastaðurinn Upp-
inn minnir á hini. vinsæla
austurlenska mat. Borða-
pantanir í síma 24199.
Hótel KEA
Sveiflukóngurinn Geir--
mundur Valtýsson og hljóm-
sveit sjá um fjörið á Hótel
KEA á Akureyri annað
kvöld, laugardaginn 11.
apríl.
Hótel KEA minnir á
glæsilegan matseðil auk
sértilboðs fyrir leikhúsgesti.
Dropinn
Haraldur Davíðsson sér um
að töfra fram lifandi tónlist
í kvöld, föstudagskvöld, og
annað kvöld, laugardags-
kvöld, á veitingastaðnum
Dropanum á Akureyri.
Dropinn minnir á ókeyp-
is heimsendingarþjónustu á
pizzum. Síminn er 22525.
Greiflnn
Veitingahúsið Greifinn
minnir á hádegistilboð alla
daga. Öllum aðalréttum og
pizzum fylgir súpa og
salatbar ásamt nýbökuðum
brauðum. Greifinn er með
ókeypis heimsendingar-
þjónustu allan daginn. Sím-
inn er 26690.
Kvikmyndahús
Borgarbíó
Borgarbíó á Akureyri sýnir
um helgina kl. 21 nýjustu
mynd Alans Parkers, The
Commitments, og grín- og
ævintýramyndina Eld, ís og
dínamít. Klukkan 23 sýnir
Borgarbíó grínmyndina
Dutch og spennumyndina
Baráttuna við K2, sem fjall-
ar um fjallaklifur. Á barna-
sýningum nk. sunnudag kl.
15 verða sýndar myndirnar
Lukku Láki og Galdra-
nornin.
Leikfélag Akureyrar:
Tvær sýningar
á íslands-
klukkunní
Leikfélag Akureyrar verð-
ur með tvær sýningar á
íslandsklukkunni um helg-
ina. Fyrri sýningin verður í
kvöld, föstudagskvöld, og
sú síðari annað kvöld. Báð-
ar sýningarnar hefjast kl.
20.30.
Næstu sýningar á þessu
vinsæla verki verða nk. mið-
vikudag, fimmtudag (skír-
dag), laugardaginn 18. apríl
og annan í páskum, mánu-
daginn 20. apríl. Allar sýn-
ingarnar hefjast kl. 20.30.
Hvammstangi:
Frumsýningá
Ættarmótinu
Vestur-Húnvetningar geta
brugðið sér í leikhús uiy
helgina, án þess að fara
langt, því Leikflokkurinn
Hvammstanga frumsýnir á
sunnudag kl. 21, leikritið
Ættarmótið eftir Böðvar
Guðmundsson. Undanfarn-
ar vikur hafa staðið yfir
æfingar á verkinu undir
leikstjórn Emils Gunnars
Guðmundssonar, en nú er
komið að frumsýningunni.
Freyvangsleikhúsið:
Tvær sýningar
á Messíasi
Freyvangsleikhúsið verður
með tvær sýningar á Messí-
asi Mannssyni um helgina.
Þessi vinsæla rokkópera
verður sýnd í kvöld, föstu-
daginn 10. apríl, kl. 20.30
og annað kvöld, laugardag-
inn 11. apríl, kl. 20.30.
Mikil aðsókn hefur verið
á Messías Mannsson og
leikhúsgestir koma víða að
af landinu.
Ýmislegt
Akureyri:
Páskabasar að
Laxagötu 5
Kvenfélagið Hjálpin (
Eyjafjarðarsveit heldur
páskabasar að Laxagötu 5 á
Akureyri á morgun kl 14.
Selt verður handunnið
páskaskraut, skreyttar
tertur, tertubotnar og
fleira.
Akureyri:
Páskabasar
Glerárkirlgu
Kvenfélagið Baldursbrá í
Glerárhverfi heldur páska-
basar í væntanlegum safn-
aðarsal Glerárkirkju á
morgun, laugardaginn 11.
apríl, kl. 15. Selt verður
úrval af páskavörum sem
konurnar hafa útbúið svo
og kökum og tertum. Allur
ágóði rennur í lokaáfanga
kirkjubyggingarinnar og til
líknarmála.
Félagsvist í
Freyjulundi
Félagsvist verður haldin í
Freyjulundi í kvöld, föstu-
daginn 10. apríl, og hefst
hún kl. 21.
Akureyri:
Portið opið
á morgun
Að venju verður Portið í
nýju slökkvistöðinni við
Árstíg opið á morgun, laug-
ardaginn 11. apríl kl. 11-16.
Á boðstólum verða m.a.
dúkkuföt, prjónuð barna-
föt, spil, bækur, plötur,
myndir, lax, brauð, lakkrís,
postulínsvörur, keramik,
vegg- og gólfkertastjakar,
kartöflur o.fl.
Sauðárkrókur:
Byssusýning
í Safnahúsinu
Byssuglaðir Skagfirðingar
fá eitthvað við sitt hæfi um
helgina, því Skotveiðifélag-
ið Ösmann heldur byssusýn-
ingu í Safnahúsinu á Sauð-
árkróki. Á sýningunni verða
framhlaðningar, haglabyss-
ur, rifflar, skammbyssur og
fallbyssa svo nokkuð sé
nefnt og eru sýningargripir
um 100 talsins. Sýningin
verður opin laugardag frá
kl. 10 til 20 og sunnudag frá
kl. 10 til 17.
Tónleikar
Akureyri-Húsavík:
Unglingalúðra-
sveit Hjálp-
ræðishersins
í Noregi
Ein af unglingalúðrasveit-
um Hjálpræðishersins í
Noregi, Templet junior-
hornorkester, sækir Norð-
lendinga heim um helgina.
Um er að ræða 30 manna
hóp. Fararstjórar eru major
Einar Höyland frá Noregi
og major Daníel Óskars-
son. Lúðrasveitin heldur
tónleika nk. sunnudag, 12.
apríl, kl. 20 í húsnæði
Hjálpræðishersins á Akur-
eyri að Hvannavöllum 10.
A þeim tónleikum taka
einnig þátt „Guðný og
drengirnir“, sem er tríó frá
Reykjavík skipað þeim
Guðnýju Einarsdóttur,
söngkonu, Páli Pálssyni,
bassaleikara og Óskari Ein-
arssyni, píanóleikara.
Á mánudag fer lúðra-
sveitin til Húsavíkur og
heldur þar tónleika í Húsa-
vfkurkirkju kl. 20.30.
Ef veður leyfir nk. þriðju-
dag munu norsku ung-
mennin leika í göngugöt-
unni á Akureyri kl. 16. Á
þriðjudagskvöld kl. 20.30
halda þau síðan tónleika að
Hvannavöllum 10 á Akur-
eyri og tekur Lúðrasveit
Ákureyrar þátt í þcim.
Heimir í
Hlíðarbæ
og Ýdölum
Karlakórinn Heimir í
Skagafirði verður austan
við Öxnadalsheiði um helg-
ina. Á laugardag heldur
kórinn tónleika í félags-
heimilinu Hlíðarbæ kl. 15
og að kvöldi Iaugardagsins
verða þeir Heimismenn í
Ýdölum þar sem tónleik-
arnir hefjast kl. 21. Söng-
stjóri Heimis er Stefán R.
Gíslason og undirleikari
Tómas Higgerson. Ein-
söngvarar með kórnum
eru: Björn Sveinsson, Ein-
ar Halldórsson, Pétur Pét-
ursson og Sigfús Pétursson
og óhætt er að fullyrða að
efnisskrá kórsins er mjög
fjölbreytt og skemmtileg.
MiðQörður:
Arleg söng-
skTmmtun
í Ásbyrgi
Karlakórinn Lóuþrælar og
Kvennakórinn Sandlóurnar
undir stjórn Ólafar Páls-
dóttur gangast fyrir árlegri
söngskemmtun í Ásbyrgi í
Miðfirði annað kvöld, laug-
ardaginn 11. apríl, kl. 21.
Elínborg Sigurgeirsdóttir*
leikur undir á píanó. Gestir
verða Galgopar frá Akur-
eyri.
Akureyri:
„Guðný og
drengírnir“ í
Hvítasunnu-
kirkjunni
í kvöld, föstudaginn 10.
apríl, kl. 20.30 verður
hljómsveitin „Guðný og
drengirnir" ásamt Hafliða
Kristinssyni, forstöðu-
manni Fíladelfíusafnaðar-
ins í Reykjavík, með sam-
komu í Hvítasunnukirkj-
unni við Skarðshlíð á Akur-
eyri. Næstkomandi sunnu-
dag, 12. apríl, kl. 15.30.
mun hluti af hljómsveitinni
ásamt Hafliða taka þátt í
samkomunni.
Hljómsveitina skipa Guð-
ný Einarsdóttir, söngkona,
Oskar Einarsson, hljóm-
borðsleikari og Páll
Pálsson; bassaleikari. Þau
munu flytja kristilega
söngva og syngja gamla
sálma í léttum dúr.
Skák
Skákfélag Akureyrar:
Síðasta
stigamótíð
Sjöunda og síðasta 15 mín-
útna stigamót Skákfélags
Akureyrar verður haldið
sunnudaginn 12. apríl nk.
kl. 14. Þá kemur f ljós
hverjir raða sér í verð-
launasætin þrjú.
Skákæfingar fyrir börn
og unglinga verða sem fyrr
kl. 13.30 á laugardaginn í
skákheimilinu.
Ákveðið hefur verið að
halda helgarskákmót á
Akureyri og hefst það á
sumardaginn fyrsta. Nánar
verður greint frá því síðar.