Dagur - 10.04.1992, Page 13
Föstudagur 10. apríl 1992 - DAGUR - 13
i i Akureyrarprestakall:
Fermingarguðsþjónusta
verður í Akureyrarkirkju
nk. sunnudag kl. 10.30.
Sálniar: 504 - 258 - Leið
oss ljúfi faðir - Blessun yfir barna-
hjörð.
Fermingarguðsþjónusta verður í
Akureyrarkirkju nk. sunnudag kl.
13.30. Sálmar: 504 - 258 - Leið oss
ljúfi faðir - Blessun yfir barnahjörð.
Altarisgöngumessa verður í Akur-
eyrarkirkju nk. mánudagskvöld kl.
19.30.
Sóknarprestar.
Glerárkirkja:
Helgihald í kyrruviku og á
páskadag.
Kirkjuskólinn laugardag kl. 11.
12. apríl, Pálmasunnudagur:
Ferming kl. 10.30.
Ferming kl. 14.00.
Sr. Gunnlaugur Garðarsson.
Möðruvallaprestakall:
Barna- og fjölskylduguðsþjónusta
verður í Möðruvallakirkju á pálma-
sunnudag, 12. apríl, og hefst íd. 14.
Barnakórinn mun hjálpa ti! við
athöfnina, auk organistans Birgis
Helgasonar.
Eru foreldrar og aðrir aðstandendur
hvattir til að mæta með börnum
sínum.
Sóknarprestur.
Minningarkort Landssamtaka
hjartasjúklinga fást í öllum bóka-
búðum á Akureyri.
Minningarspjöld Minningarsjóðs
Kvenfélagsins Hlífar fást í Bókabúð
Jónasar, Möppudýrinu Sunnuhlíð,
Blómabúðinni Akri og símaaf-
greiðslu F.S.A.
Minningarspjöld Sambands
íslenskra kristniboðsfélaga fást hjá:
Pedromyndum Hafnarstræti 98,
Hönnu Stefánsdóttur Víðilundi 24
og Guðrúnu Hörgdal Skarðshlíð 17.
BORGARBÍÓ
Salur A
Föstudagur
Kl. 9.00 The Commitments
Kl. 11.00 Dutch
Laugardagur
Kl. 9.00 The Commitments
Kl. 11.00 Dutch
Salur B
Föstudagur
Kl. 9.00 Eldur, ís og dínamit
Kl. 11.00 Baráttan við K2
Laugardagur
Kl. 9.00 Eldur, is og dínamit
Kl. 11.00 Baráttan við K2
BORGARBÍO
S 23500
Ómar Ragnarsson, Pálmi
og Mannakorn í Sjallanum
í kvöld leikur Mannakorn í Sjall-
anum með Pálma Gunnarsson í
broddi fylkingar. Mannakorn eru
að ljúka við nýja plötu sem kem-
ur út í sumar og koma þeir félag-
ar til með að leika lög af þeirri
Kvikmyndin „Ævintýri á
norðurslóð“ verðlaunuð
Kvikmyndin „Ævintýri á norð-
urslóð“ hefur hlotið viður-
kenningu EUREKA audio-
visuel, sem er samstarfsverk-
efni Evrópuþjóða á sviði kvik-
mynda og sjónvarps.
Kvikmyndin „Ævintýri á
norðurslóð" er fyrsta íslenska
verkefnið sem hlýtur slíka viður-
kenningu. Byggir viðurkenningin
á því að hér sé um sérstaklega
markvert samstarfsverkefni Is-
lendinga, Færeyinga og Græn-
lendinga að ræða sem undirstrik-
ar menningarleg sérkenni þessara
þjóða í útjaðri Evrópu og lýsir
með skemmtilegum hætti hugar-
heimi barna í þessum löndum.
Samvinnuferðir-Landsýn:
Um eitt þúsund manns í
hópferðum erlendis um páskana
Um eitt þúsund manns verða á
ferðalagi erlendis í hópferðum á
vegum Samvinnuferða-Landsýn-
ar um páskana. Mikil eftirspurn
hefur verið eftir ferðum til sólar-
stranda og vinsældir höfuðborgar
írlands, Dublin, réna ekki.
Þannig verða um 450 manns á
Mallorka og Benidorm í tvær
vikur, en bæta þurfti við auka-
ferð þangað vegna mikillar eftir-
spurnar. Stór hópur frá Sam-
vinnuferðum-Landsýn er á Kanarí-
eyjum.
Sömu sögu er að segja um
Dublin, tvær ferðir verða farnar
þangað um páskana með um 300
manns. Þar eru á ferðinni starfs-
mannahópar og félagasamtök og
töluverður fjöldi farþega.
Hópur nema í Samvinnuhá-
skólanum í Bifröst heldur til New
York og víðar, íþróttamenn eru í
Belgíu og Hollandi og kylfingar
úr Golfferðaklúbbi S-L á nokkr-
um þekktum golfvöllum erlendis.
m
FRAMSÓKNARMENN
AKUREYRl
IHI
Bæjarmálafundur
Bæjarmálafundur verður haldinn að Hafnarstræti 90,
mánudaginn 13. apríl, kl. 20.30.
Rætt um dagskrá næsta bæjarstjórnarfundar.
Þeir sem sitja í nefndum hjá Akureyrarbæ á vegum Fram-
sóknarflokksins eru eindregið hvattir til að mæta og einnig
varamenn.
Stjórn Framsóknarfélags Akureyrar.
Skilafrestur
auglýsinga!
Síðasta blað fyrir páska kemur út
fimmtudaginn 16. aprfl, skírdag, og
verður það í helgarblaðsbúningi. Skila-
frestur auglýsinga f það blað er til kl.
14.00 þriðjudaginn 14. apríl.
Fimmtudaginn 23. apríl, sumardaginn
fyrsta, kemur út blað með sumarkveðj-
um, þeir sem vilja senda sumarkveðju í
því blaði en ekki hefur verið haft sam-
band við, vinsamlega hafi samband
við afgreiðslu Dags fyrir kl. 11.00 þriðju-
daginn 21. apríl.
auglýsingadeild, sími 24222.
plötu svo og eldra efni.
Á laugardagskvöldið kemur
Ómar Ragnarsson í heimsókn og
flytur Sjallagestum glænýja
skemmtidagskrá sem hann hefur
verið að hnoða saman síðustu
misseri. Honum til aðstoðar
verða Haukur Heiðar, Pálmi
Gunnarsson og Mannakorn.
Boðið verður upp á þriggja rétta
kvöldverð, skemmtun og dans-
leik með Mannakornum fyrir kr.
2.900,-
Sölufólk óskast!
Traust fyrirtæki.
Góð vara, næg vinna, góð sölulaun.
Umsóknir leggist inn á afgreiðslu Dags merkt:
„Vinna“.
Heilsugæslustöðin á Kópaskeri
Hjúkrunarforstjóri óskast
til starfa við Heilsugæslustöðina á Kópaskeri frá
1. júlí nk.
Frítt húsnæði - Staðarsamningur.
Nánari upplýsingar gefa Helga Jónsdóttir, hjúkrun-
arforstjóri, heimasími 96-52176, vinnusími 96-
52109 og Iðunn Antonsdóttir, stjórnarformaður, sími
91-812712.
Grunnskóli Skútustaðahrepps augiýsir:
Staða skólastjóra og
leikfimikennara
Grunnskóla Skútustaðahrepps eru lausar til
umsóknar.
Umsóknarfrestur er til 25. apríl.
Upplýsingar veitir formaður skólanefndar, Stefán
Þórhallsson, sími 96-44285, heima og í síma 96-
44181, vinnusími.
SIALLINN
Starfskraftur óskast
í vinnu í eldhúsi
Upplýsingar gefur Kolbeinn eftir kl. 13.00, ekki í
gegnum síma.
Þökkum innilega samúð og vinarhug við andlát og útför systur
okkar og mágkonu,
GUÐRÚNAR HALLDÓRSDÓTTUR.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki í Seli hjúkrunardeild
F.S.A.
Ingibjörg Halldórsdóttir, Magnús Bjarnason,
Lára Halldórsdóttir, Kristfn Eggertsdóttir.