Dagur - 30.04.1992, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 30. apríl 1992 - DAGUR - 3
Fréttir
Pjóðlífsmálið:
Mótmælalistar aflientir dómsmálaráðherra í gær
OALVIK
Dalvík:
Bæjarmála-
punktar
■ Erna Rós Ingvarsdóttir
hefur verið ráðin í 50% starf
við leikskólann, Kristín Gunn-
þórsdóttir í 100% starf og Jó-
hanna Sigtryggsdóttir í
afleysingar fyrir hádegi.
■ Vísindanefnd Háskólans á
Akureyri hefur gert tillögu til
Dalvíkurbæjar um smölun
hugmynda og úrvinnslu þeirra
á Dalvík. Bæjarráð samþykkti
á fundi sínum nýverið að
leggja í þetta verk og var
kostnaði vegna þess vísað til
endurskoðunar fjárhagsátlun-
ar. Pá samþykkti bæjarráð að
óska eftir því við atvinnumála-
nefnd að hún hefji undirbún-
ing að þátttöku í verkefninu.
■ Á fundi bæjarráðs 22. apríl
sl. voru tekin fyrir tvö leigutil-
boð í Víkurröst, annars vcgar
frá Lúbamum hf. á Dalvík og
hins vegar Júlíusi Snorrasyni á
Dalvík. Á þeim fundi var mál-
inu frestað og ákveðið að boða
tilboðsgjafa til viðræðna um
málið. A fundi bæjarráðs síðar
þann dag var rætt við tilboðs-
gjafa og ákveðið síðan að vísa
málinu til ákvörðunar bæjar-
stjórnar. Á bæjarstjórnarfundi
sl. þriðjudag var síðan sam-
þykkt eftirfarandi bókun með
4 atkvæðum gegn 3: „Með til-
liti til framkominna efasemda
um að rétt hafi verið staðið að
ákvörðun um auglýsingu á
útleigu Víkurrastar og upplýs-
ingum um að leigutaki hafi
þegar ráðstafað húsinu, beinir
bæjarstjórn því til bæjarráðs
að taka málið upp að nýju.“
■ Á fundi Hússtjórnar Ráð-
hússins 9. apríl kom fram að
heildarkostnaður við endur-
skipulagningu lóðar Ráðhúss-
ins varð tæpar 12,8 milljónir
króna, en kostnaðaráætlun f
mars 1991 gerði ráð fyrir
kostnaði upp á 8,6 milljónir
króna.
■ Á fundi bæjarstjórnar sl.
þriðjudag var samþykkt að
heimila breytingu á gildandi
aðalskipulagi þannig að leyft
verði að byggja einbýlishús á
opnu eða grænu svæði við
Öldugötu. Fram höfðu komið
mótmæli eiganda og íbúa
hússins nr. 5 við Öldugötu við
að á þessu svæði yrði byggt
einbýlishús og bent á að það sé
opið eða grænt svæði sam-
kvæmt aðalskipulagi.
■ Á fundi umhverfisnefndar
9. apríl var tekið fyrir bréf frá
Lionsklúbbi Dalvíkur þar sem
óskað er eftir að fá að planta
trjám og runnum meðfram
þjóðveginum á Hrísum.
Umhverfisnefnd lýsti ánægju
sinni með erindið og fól Hall-
dóri Jóhannssyni að gera til-
lögu að gróðursetningu á
svæðinu.
Þorsteini Pálssyni, dómsmál-
aráðherra, voru í gær afhentir
undirskriftalistar þúsunda
Islendinga þar sem skorað er á
hann að stöðva innheimtuað-
gerðir gegn 74 ára gamalli
konu á Akureyri vegna
Alls bárust 14 fyrirspurnir og
þar af sjö formlegar umsóknir
um rekstur Hótel Norðurljóss
á Raufarhöfn, en Raufarhafn-
arhreppur auglýsti rekstur
hótelsins til leigu í sumar. Að
sögn Guðmundar Guðmunds-
sonar, sveitarstjóra, standa nú
yfir viðræður við þessa aðila og
Ijóst er að sveitarfélagið mun
leigja reksturinn út í sumar.
„Rekstur hótelsins í sumar er
nánast í höfn en við erum líka að
Kaldbakur EA:
Tækni- og skoð-
unarmenn frá
Iioyds kanna
titring og háv-
aða frá skrúfii
Kaldbakur EA fór til veiða í
gær, en daginn áður fór togar-
inn í siglingu með tækni- og
skoðunarmenn frá Lloyds.
„í fyrrasumar voru fram-
kvæmdar miklar breytingar á tog-
aranum Kaldbak EA. Meðal
annars var settur skrúfuhringur á
skipið. Að frumkvæði Útgerðar-
félagsmanna voru tækni- og
skoðunarmenn frá Lloyds fengnir
til Akureyrar til að kanna óeðli-
legan titring og hávaða sem borið
hefur á frá því að skipið kom úr
slipp. Togkraftur togarans hefur
ekki reynst sem áætlað var og
olíunotkun meiri. Á þriðjudag-
inn var farið í tilraunasiglingu
vestur af Grímsey og þar var
kastað. í ljós kom að óeðlileg
loftbólumyndun frá skrúfu veldur
hávaða og titringi. Erlendu tækni-
mennirnir munu gera tillögur að
lagfæringum og koma trúlega síð-
ar til nýrra mælinga,“ sagði
Gunnar Larsen hjá Útgerðar-
félagi Akureyringa hf. ój
S-Þing:
Kona slasast
í bflveltu
Lítill fólksbfll valt út af veginum
skammt neðan við Kvíaból í
Kinn á mánudagsmorgun. Ein
kona var í bflnum og meiddist
hún á höfði og í baki og var
flutt á Sjúkrahúsið á Húsavík.
Bíllinn er mikið skemmdur,
enda valt hann yfir skurð. Krapa-
sull var á veginum er óhappið átti
sér stað. im
áskrifta af tímaritinu Þjóðlífi.
Jafnframt var skorað á ráð-
herrann að rétta að fullu hlut
konunnar og annarra sem orð-
ið hafi fyrir fjárhagslegu tjóni
vegna sams konar innheimtu-
aðgerða.
horfa Iengra fram í tímann og
aðilar í Pingeyjarsýslum eru að
vinna að markaðssetningu og
uppbyggingu ferðaþjónustu í
sýslunum. Við ætlum að fylgjast
með þessari þróun og í framhaldi
af því skoða vandlega hvernig
rekstri Hótel Norðurljóss verður
háttað í framtíðinni," sagði Guð-
mundur.
Töluverðar skemmdir urðu á
hótelinu um miðjan mars þegar
vatnsrör sprakk og vatn flæddi
um gólf. Ekki hefur verið ráðist í
lagfæringar en Guðmundur sagði
að það yrði gert innan tíðar því
nú væri að koma niðurstaða úr
tryggingunum. Hann sagði að
Raufarhafnarhreppur yrði ekki
fyrir fjárhagslegu tjóni þar sem
hótelið var tryggt gegn áföllum af
þessu tagi.
„Við höfum verið að bíða eftir
lokaniðurstöðum frá trygginga-
félaginu og maímánuður verður
tími framkvæmda á hótelinu,“
sagði Guðmundur. SS
Þeir sem skrifa sig fyrir þessum
listum eru aðgerðahópar um
félagslegt misrétti. Á listunum
stendur:
„Við undirrituð mótmælum
aðgerðum bæjarfógetans á Akur-
eyri í innheimtuaðgerðum gegn
74 ára gamalli konu á Akureyri.
Konan var ranglega látin greiða
kr. 50.813 21. febrúar sl. án þess
að um væri að ræða neina raun-
verulega skuld. Innheimtufyrir-
tækið sem kom af stað þessari til-
búnu og staðlausu kröfu hefur nú
enn sent sömu konu rúmlega 18
þúsund króna reikning sem er
byggður á sömu rangindum og
fyrri krafan. Málavöxtum er lýst
á skilmerkilegan hátt í meðfylgj-
andi grein sem rituð er af for-
manni Neytendafélags Akureyr-
ar og nágrennis, Vilhjálmi Inga
Árnasyni. Grein þessi birtist í
Morgunblaðinu sunnudaginn 15.
mars sl.
Við undirrituð skorum á dóms-
málaráðherra að stöðva þessar
aðfarir og rétta að fullu hlut þess-
arar öldruðu konu, svo og þeirra
fjölmörgu annarra sem orðið
hafa fyrir fjárhagslegu tjóni að
ósekju vegna innheimtuaðgerða
sömu aðila. Jafnframt beiti
dómsmálaráðherra sér þegar í
stað fyrir löggjöf sem komi í veg
fyrir að innheimtufyrirtæki eða
opinbert vald geti beitt saklaust
fólk misrétti, svo sem hér hefur
átt sér stað og í mörgum hlið-
stæðum málum.“ JÓH
n 1
■ !5j* W VX'>
\i ____
í- II •• 1 t
AjS * m-
wlHH, 'N
:M' .
\ \
Veganesti við Hörgárbraut
Tilboð vikunnar:
Lambasaltkjöt .... 499 kr. kg, áður 624
Salsburgerpylsa .. 541 kr. kg, áður 693
Jólakaka .......... 196
<S.
Orvílleí%denbacher& Örbylgjupopp 29 kr.
Nú er hagkvæmt að versla í Veganesti
Mjólk ★ Brauð ★ Kjöt ★ Nýlenduvörur
Opið fró kl. 8.00-23.30 virka daga. Opið frá kl. 09.00-04.00 um helgar.
Veganesti við Hörgárbraut
Hótel Norðurljós:
Sjö aðilar sóttu um
leigu á rekstrinum
- lagfæringar eftir vatnstjón framundan