Dagur - 30.04.1992, Side 7
Fimmtudagur 30. apríl 1992 - DAGUR - 7
Tónlist
Tónleikar Kirkjukórs Dalvíkur
Sunnudaginn 26. apríl hélt Kirkju-
kór Dalvíkur undir stjórn Hlínar
Torfadóttur tónleika í Dalvík-
urkirkju. Einsöngvarar á tón-
leikunum voru Sólveig Hjálmars-
dóttir, sópran, og Michael Jón
Clarke, baritón. Undirleikari á
orgel og píanó var Juliet Faulkner.
I fyrri hluta tónleikanna flutti
kórinn Alta trinita, ítalskt lag frá
16. öld, Locus iste eftir Anton
Bruckner og Ave verum corpus
eftir Mozart. Flutningur kórsins
var fallegur og felldur og bar vott
góðri æfingu og aga. Vel hefði þó
mátt beita heldur meiri ákveðni.
Flutningur var nokkuð daufleg-
ur, einkum í Ave verum corpus,
en það var endurtekið sem auka-
lag í tónleikalok og þá með miklu
líflegri og ákveðnari brag.
í sama hluta tónleikanna flutti
Michael Jón Clarke Panis Angel-
icus eftir Cesar Franck. Svo var
að heyra, sem nokkur þreyta væri
í rödd söngvarans í þessu lagi.
Hinu sama brá fyrir í Lord God
of Abraham eftir Felix Mendel-
sohn. Þessi vanstilling raddarinn-
ar hvarf hins vegar alveg í flutn-
ingi Sing God a Simple Song úr
Mass eftir Leonard Bernstein, en
það verk flutti söngvarinn af hríf-
andi innlifun, svo að unun var á
að hlýða.
í fyrri hluta tónleikanna söng
Sólveig Hjálmarsdóttir Laudate
Dominum eftir Mozart. Því mið-
ur virtist söngkonan ekki hafa
fullnægjandi tök á flutningi þessa
verks. Rödd hennar var óstyrk og
fyrir kom jafnvel, að hún var
ekki í rétti tónhæð.
Seinni hluti efnisskrárinnar var
flutningur Requiems, eða Sálu-
messu, eftir Gabriel Fauré.
Verkið er í sjö þáttum og skrifað
fyrir kór, einsöngvara og litla
hljómsveit. Kór Dalvíkurkirkju
flutti verkið við undirleik orgels.
Requiem Gabriels Faurés er
slungið verk og viðkvæmt, en
Kór Dalvíkurkirkju hafði í heild-
ina tekið aðdáunarvert vald á
flutningi þess. í nokkrum hlutum
verksins stóð hann sig hreint frá-
bærlega. Svo var til dæmis í Introit
et kyrie, Sanctus, þar sem sér-
staklega lokin voru vel af hendi
leyst, seinní hluta Agnus Dei,
kórhluta Libera me og í loka-
þættinum, In Paradisum. í þess-
um hlutum komu vel fram ýmsir
bestu eiginleikar kórsins, svo sem
ánægjulega tær tónn í sópran, all-
góð fylling í milliröddum, ekki
síst í alt, og talsvert traustur
grundvöllur í bassa. Einnig kom
fram góður agi kórsins og þau að
jafnaði góðu tök, sem hann hefur
náð á ýmsum mikilvægum túlk-
unartengdum þáttum. Inokkrum
tilfellum gætti reyndar nokkurs
hiks og óákveðni í flutningi.
Þetta átti einna helst við um
tenór, sem reyndar er heldur fá-
liðaður, en býr yfir góðum tóni,
þegar hann beitir sér. Einnig
komu fyrir ýmsir smágallar í
hljómmyndun, innkomum og af-
Heilræði
"Hnífur og skæri -
ekki barna meðfæri"
slætti, en þeir voru næsta óveru-
legir.
Sólveig Hjálmarsdóttir söng
einsöng í þættinum Pie Jesu og
gerði mun betur en framar á tón-
leikunum. Michael Jón Clarke
söng einsöng í öðrum þætti,
Offertoire, og í næstsíðasta
þætti, Libera me. Flutningur
Michaels Jóns einkenndist af
innileika og næmri tilfinningu
ásamt með natinni og yfirvegaðri
raddbeitingu.
Undirleikur Julietar Faulkner
bæði á orgel og píanó var örugg-
ur og fumlaus. Hún veitti kórn-
um og einsöngvurum fullan
stuðning og gaf auk þess flutn-
ingnum Iit við hæfi.
Það, að til þess að gera fáliðað-
ur áhugamannakór skuli geta
flutt verk á borð við Requiem
Gabriels Faurés og komist frá því
með fullum sóma, er nánast
ótrúlegt. Það gerði Kirkjukór
Dalvíkur. Það sýnir, hvers menn
eru megnugir undir leiðsögn hæfs
stjórnanda. Hann hafa dalvískir
söngmenn greinilega í söngstjóra
sínum og organista, Hlín Torfa-
dóttur.
Haukur Ágústsson.
PORTIÐ
nýju slökkvistöðinni við Árstíg
Broddur-minjagripirog veggplattar, brenndir
- prjónuð barnaföt - spil - bækur - plötur
- myndir - lax - brauð - lakkrís
- postulínsvörur- keramik- kartöflur o.fl. o.fl.
Komið og skoðið
Söluaðilar
Opið laugardaga frá kl. 11-16
SUNNUHUÐ
VERSUJNARMIÐSTÖÐ
Munið laugardagsopnun
Notaðar overlockvélar
Töskur undir overlockvélar
Mikið úrval af garni
Qerum við allar tegundir saumavéla
Verið velkomin
Saumavélaþjónustan
TILBOÐ
Kjúklingur, franskar, kokteilsósa
og hrásalat á aðeins kr. 940
Qrillum fimmtudag og laugardag
Eigum mikið úrval rétta á útigrillið
Kjörbúð KEA uál ,
^rDKArri háí^
C L A U D E
BODYUNE
Ynja s. 25977 - Slétt og fellt s. 27224 - Ljósmyndabúðin s. 11030 - Samson s. 27044 - Tónabúðin s. 22111
Rafland s. 25010 - Pálína s. 27177 - HABRÓ s. 11119 - Trygging s. 21844 - M. H. Lyngdal s. 26399
Möppudýrið s. 26368 - Brauðbúð Kristjáns s. 25904 - Vaggan s. 27586 - Saumavélaþjónustan s. 11484
Blómabúðin Laufás s. 26250 - Búnaðarbanki íslands s. 27600 - Kjörbúð KEA s. 30387
Allt undír eínvi þakí