Dagur - 30.04.1992, Qupperneq 8
8 - DAGUR - Fimmtudagur 30. apríl 1992
Viðamikil rannsókn hafm á lífríki sjávar í Eyjafirði:
„Tilgangurinn að kanna
möguleika á þorskeldi“
- segir Steingrímur Jónsson haffræðingur hjá
Hafrannsóknastofnun sem stjórnar rannsóknunum
Nú eru að hefjast umfangs-
miklar líffræðirannsóknir á
lífríki sjávarins í Eyjafirði.
Sýnatakan stendur yfír í allt
sumar og unnið verður úr sýn-
unum jafnharðan hér á Akur-
eyri og í Reykjavík. Sá sem
stjórnar þessum rannsóknum
heitir Steingrímur Jónsson og
er haffræðingur og starfsmað-
ur hjá Hafrannsóknastofnun
og Háskólanum á Akureyri.
Að vísu blés ekki sérlega byr-
lega hjá Steingrími og félaga
hans, norska sjávarlíffræðingn-
um Öivind Kaasa, þegar þeir ætl-
uðu að hefja sýnatökuna á mánu-
daginn var. Þá átti samkvæmt
almanakinu að vera komið sumar
en veðurguðirnir voru ekki á því
og létu dólgslega. Þeir ætla að
stunda sýnatökuna á tíu tonna
trillu frá Hauganesi og til þess að
tryggja vísindalega nákvæmni
verður sjór að vera stilltur.
Sýnataka í sumar
- En hvað ætla þeir að rannsaka
og hver er tilgangurinn með
þessu?
„Við ætlum að mæla hita, seltu
og ljómun sjávar, taka sýni af
þörungum, dýrasvifi og fiskseið-
um og kanna næringarefni og
súrefni í sjónum. Einnig munum
við taka sýni af botnleðjunni og
sjá hvaða lífverur þrífast þar.
Þetta er ætlunin að gera 5-6 sinn-
um í sumar. Við verðum að í
nokkra daga í senn og sýni verða
tekin á mörgum stöðum í firðin-
um, allt frá Oddeyri út fyrir
Gjögur. Úrvinnslan verður svo
hér í Glerárgötu 36 og hjá Haf-
rannsóknastofnun fyrir sunnan.
Tilgangurinn með þessum
rannsóknum er að kanna lífríkið
í firðinum, tengsl þess og samspii
við umhverfisþætti. Niðurstöð-
urnar verður síðan hægt að nýta
þegar og ef hafist verður handa
við hafbeit á þorski hér í Eyja-
firði.“
Steingrímur Jónsson haffræðingur.
Myndir: Golli
- Hvernig er þessi rannsókn til
komin?
„Hugmyndin er komin frá
nefnd sem fyrrverandi sjávar-
útvegsráðherra skipaði á sínum
tíma til að kanna möguleika á
eldi sjávardýra hér við land.
Sjávarútvegsráðuneytið tók síð-
an ákvörðun um að hefja rann-
sóknir og fól Hafrannsóknastofn-
un og Háskólanum á Akureyri að
annast þær. Verkefnið nýtur
stuðnings frá fyrirtækjum og
hagsmunaaðilum í sjávarútvegi
sem hafa lagt fram fé til þess.“
Norskar tilraunir lofa góðu
- Hvert verður svo framhaldið á
þessu? Má búast við því að hafið
verði þorskeldi í stórum stíl hér í
firðinum?
„Um það er of snemmt að
segja. En það er búið að ráða tvo
sérfræðinga í tfmabundið verk-
efni og eiga þeir að kynna sér
möguleika á því að hefja þorsk-
eldi hér við land. Þau munu
væntanlega kynna sér hvað gert
hefur verið erlendis á þessu sviði.
Verði niðurstöður þeirra jákvæð-
ar verður hafist handa sem fyrst,
strax næsta vetur. Ef ráðist verð-
ur í þetta tilraunaverkefni er gert
ráð fyrir að það standi yfir í a.m.k.
tíu ár því það er ekki hægt að
veiða þorskinn fyrr en hann er
orðinn 4-5 ára gamall.
Svona athugun hefur aldrei
verið gerð á íslandi en í Noregi
hafa menn kannað hvort hægt sé
að auka fiskigengd í sjó með
seiðasleppingum. Þær tilraunir
hafa gefið nokkuð góða raun,
einkum þær sem gerðar hafa ver-
ið inni á fjörðum. Þessar tilraunir
hafa staðið yfir í áratug eða svo
og Norðmenn hafa ákveðið að
ráðast í stærri tilraunir.
Við fylgjumst með þeim til-
raunum og ef þær benda til þess
að þetta sé mögulegt munum við
hefjast handa. En auðvitað koma
fleiri þættir inn í þetta en sá líf-
fræðilegi, þetta er til dæmis
spurning um kostnað við að ala
upp seiði og hve vel þau skila sér
í auknum afla. Hugmyndin er sú
að klekja út þorskseiðum og ala
þau upp í nokkurra sentimetra
stærð áður en þeim er sleppt.“
Steingrímur og Ellert Kárason skipstjóri um borð í Gunnari Níelssyni EA.
Eyjafjörður hentar vel
- Hvers vegna varð Eyjafjörður
fyrir valinu?
„Fyrir því eru ýmsar ástæður,
en mestu réð að fjörðurinn er
einn sá lokaðasti af stærri fjörð-
um hér við land og rannsókna-
svæðið því afmarkað og ekki of
stórt. Fjörðurinn hentar því vel
fyrir tilraunaverkefnið. Einnig
má svo bæta því við að hér í firð-
inum og raunar fyrir öllu
Norðurlandi eru helstu uppeldis-
stöðvar ungs þorsks. Þó svo að
hrygningin eigi sér stað fyrir
sunnan og þorskurinn því flökku-
dýr hafa merkingar bent til þess
að ekki sé fjarri lagi að ætla að
einhver hluti stofnsins sé stað-
bundinn hér fyrir norðan. Hér
hefur oft fengist fiskur sem kom-
inn er að hrygningu. Ef ráðist
verður í þorskeldi munum við
eflaust reyna að hafa upp á slík-
um fiski.“
- Sérðu fyrir þér að þetta sé
framtíðin í íslenskum sjávar-
útvegi?
„Um það vil ég engu spá, en
það gæti verið. Eins og menn vita
hefur nýliðun þorskstofnsins ekki
verið góð á síðustu árum hér við
land. Það er hugsanlega hægt að
hafa áhrif á það með þessum
hætti. Það er langtímamarkmiðið
með þessu verkefni,“ segir
Steingrímur Jónsson haffræðing-
ur. -ÞH
Verkmenntaskólinn á Akureyri:
Vegleg Mínerva komin út
- skopmyndir af nemendum og kennurum
Mínerva 1992 er komin út,
stærri en nokkru sinni fyrr.
Þetta er sem kunnugt er vand-
að heimildarrit útskriftar-
nemenda í Verkmenntaskólan-
um á Akureyri og hefur komið
út frá því skólinn hóf að út-
skrifa nemendur.
Mínerva hefur stækkað ár frá
ári og er 387 blaðsíður að þessu
sinni. Nemendur á fjórða ári sjá
sjálfir um útgáfuna en í bókinni
VMA.
eru skopmyndir af öllum útskrift-
arnemendum skólans og kennur-
um þeirra.
Hverjum og einum er fylgt úr
hlaði með gamansömum texta
þar sem helstu „afrek“ viðkom-
andi koma fram svo og áhugamál
og framtíðaráform. í þessum
pistlum er slegið á létta strengi
eins og vera ber en um leið eru
þetta fyrstu æviminningar
margra.
Um skólameistara VMA,
Bernharð Haraldsson, segir þetta
í Mínervu:
„Verkmenntaskólinn á Akur-
eyri hefur borið gæfu til þess að
njóta starfskrafta Bernharðs
Haraldssonar. Hann er skóla-
meistari og hefur auk þess lyft
langþreyttum anda 4. bekkinga á
hærra svið með því að kenna
þeim Geos Grafis. Hann er rögg-
samur, frjálslyndur og léttur í
fasi, með ægilegan áhuga á
félagslífi skólans. Áhugi hans á
fyrirhuguðum niðurskurði stjórn-
valda í skólakerfinu er mikill og
því er nemendum bannað að sofa
í tímum, geispa, rugga sér á stól-
unum og notar hann aðeins Vw af
töflunni við kennslu. Bernharð er
ekki bara kennari og skólameist-
Kápa Mínervu, fræðiríts
menntaskólans á Akureyrí.
Verk-
ari heldur einnig heimsborgari og
rithöfundur góður. „Litla kverið
hans“ hefur reynst með eindæm-
um vel og þykir eitt hið besta í
sögu íslenska menntakerfisins.
Heyrst í tíma: Ég splæsi kók á
línuna.
Einkunnarorð: Þetta er jafn-
fáránlegt og köttur á kirkjuturni.
Framtíðaráform: Gera „Opna
daga“ að langri danskri kennslu-
viku.
P.S. Auk þess er hann giptur
en ekki giftur."
Mínverva verður til sölu í
Verkmenntaskólanum og senni-
lega nokkrum bókaverslunum
einnig. SS
Heilabilun - eiliglöp
- Félag aðstandenda Alzheimersjúklinga á Akureyri
og nágrenni heldur fræðslufund á laugardag
Stofnað hefur veríð félag áhuga-
fólks og aðstandenda sjúklinga
með Alzheimersjúkdóm og
skylda sjúkdóma á Akureyri
og nágrenni. Skammstöfun
félagsins er FAASAN.
Hlutverk félagsins er:
1. Að gæta hagsmuna skjól-
stæðinga sinna, þ.e. sjúklinga
með Alzheimersjúkdóm og
skylda sjúkdóma.
2. Að efla samvinnu og sam-
heldni aðstandenda ofangreindra
sjúklinga, m.a. með fræðslufund-
um, útgáfustarfsemi o.s.frv.
3. Að auka skilning stjórn-
valda, heilbrigðisstétta og
almennings á þeim vandamálum,
sem sjúklingar og aðstandendur
þeirra eiga við að etja.
4. Að sjúklingar með Alz-
heimersjúkdóm og skylda sjúk-
dóma fái þá hjúkrun og félags-
lega aðstoð sem nauðsyn er á í
nútímaþjóðfélagi.
Fimm manns skipa stjórn
FAASAN: Formaður er Guðrún
Haraldsdóttir, Akureyri;
varaformaður Anna Bára Hjalta-
dóttir, Dalvík; gjaldkeri er Ingunn
Baldursdóttir, Ákureyri; ritari er
Kristinn Eyjólfsson, Ákureyri og
meðstjórnandi Valgerður Jóns-
dóttir, Akureyri.
Fræðslufundur verður haldinn
laugardaginn 2. maí nk. f Hlíð kl.
14.00. Þar segir Þóra Arnfinns-
dóttir, geðhjúkrunarfræðingur,
frá umönnun og aðhlynningu
heilabilaðra sjúklinga í Hlíðabæ í
Reykjavík.
Vonast er til þess að allir þeir
sem áhuga hafa á þessum málum,
komi á fundinn.