Dagur - 30.04.1992, Side 15
Fimmtudagur 30. apríl 1992 - DAGUR - 15
ÍÞRÓTTIR
Jón Haukur Brynjólfsson
Golf:
Þrír Akureyringar keppa
á skólamóti á St. Andrews
Þrír ungir kylfíngar frá Akur-
eyri, þeir Sigurpáll Sveinsson,
Orn Arnarson og Ríkarður
Ríkarðsson halda til Skotlands
um miðjan maí þar sem þeir
taka þátt í alþjóðlegri skóla-
JMJ-mótið:
Jafiit hjá
Þór og Magna
JMJ-mótið í knattspyrnu
hófst á Akureyri á þriðju-
dagskvöldið en þá gerðu
Þór og Magni jafntefli, 1:1.
Leikurínn fór fram á Sana-
vellinum og skoraði Axel
Vatnsdal fyrir Þór í fyrri hálf-
leik en Olafur Þorbergsson
jafnaði fyrir Magna skömmu
fyrir leikslok. KA og Dalvík
áttu að mætast í gær en úrslit
lágu ekki fyrir þegar blaðið fór
í prentun.
Næstu leikir í mótinu verða
á sunnudaginn kl. 16 en þá
mætast Þór og Völsungur á
Þórsvellinum og Magni og
Dalvík á KA-vellinum.
~ BÍökí
íslandsmót
öldunga á
Siglufirði
í dag hefst á Siglufírði
íslandsmót öldunga í blaki.
42 lið alls staðar að af land-
inu mæta til leiks og verða
keppendur um 370 talsins.
Mótið, sem hefst í dag kl.
14, er það 17. í röðinni.
Keppni lýkur seinni partinn á
laugardag og um kvöldið verð-
ur lokahóf á Hótel Höfn.
Keppt verður í tveimur
flokkum, öldungaflokki 30-40
ára sem verður deildaskiptur
og öðlingaflokki 40 ára og
eldri. 5 lið mæta frá Siglufirði
og 37 önnur víðs vegar að.
„Þetta eru geysilega
skemmtileg mót og eru ekki
síst hugsuð til að fólk komi
saman og kynnist. Því er ekki
að neita að veislan á Hótel
Höfn er stór þáttur af mótinu
og það er hætt við að þar verði
þröng á þingi og mikið fjör,“
sagði Runólfur Birgisson,
„öldungur“ mótsins eða móts-
stjóri með öðrum orðum.
Víðavangshlaup
UMSE 2. maí
Hið árlega Víðavangshlaup
UMSE verður haldið laug-
ardaginn 2. maí kl. 14.
Umf. Reynir sér um mótið
og eru keppendur beðnir að
mæta til skráningar við skóla-
húsið í Árskógi ekki seinna en
kl. 13.30. Tekið verður tillit til
frammistöðu keppenda í
hlaupinu þegar valdir verða
keppendur á Víðavangshlaup
íslands sem fram fer í Hafnar-
firði 9. maí.
Keppt verður í flokkum 10
ára og yngri 11-12 ára og 13-14
ára af báðum kynjum, 15 ára
og eldri kvenna, 15-18 ára
drengja og 19 ára og eldri
karla. Frjálsíþróttanefnd vill
koma á framfæri áskorun til
félaga að mæta með öflug lið
til leiks.
keppni í golfi. Þeir félagar,
sem keppa fyrir Verkmennta-
skólann á Akureyri, tryggðu
sér þátttökurétt sem fuiltrúar
Islands með góðri frammi-
stöðu í skólamóti á íslandi sl.
haust. Keppnin fer fram á hin-
um heimsfræga St. Andrews
golfvelli.
Þeir félagar hafa æft stíft í all-
an vetur í Golfbæ Davids á Akur-
eyri en David Barnwell verður
fararstjóri þeirra í Skotlandsferð-
inni. Lið frá 16 þjóðum taka þátt
í mótinu og segjast strákarnir
stefna að því að hafna í einu af
fimm efstu sætunum. Það yrði
frábær árangur því geysilega
sterk lið verða meðal keppenda á
mótinu og segjast þeir búast við
að þau sterkustu komi frá Sví-
þjóð og Ástralíu. Fjölmargir
keppendur á mótinu eru með í
kringum 0 í forgjöf en Sigurpáll
og Orn hafa 4 í forgjöf og Rík-
arður 7.
Fyrirkomulagið á keppninni
verður þannig að hver keppandi
leikur 36 holur og síðan er árang-
urinn lagður saman. Eins og fyrr
segir fer keppnin fram á St.
Andrews golfvellinum þar sem
allar aðstæður eru ólíkar því sem
þekkist hérlendis. Strákarnir
viðurkenna að það muni há þeim
að þeir geta lítið spilað úti á vet-
urna og því megi búast við að
önnur lið komi betur undirbúin.
Hins vegar eru Örn og Sigurpáll
nýkomnir heim úr æfingaferð til
Englands sem eflaust á eftir að
koma þeim til góða þegar á hólm-
inn verður komið.
Strákarnir þurfa sjálfir að
standa undir kostnaði við flug-
ferðirnar en þegar á staðinn verð-
ur komið verður allt greitt fyrir
þá. Verkmenntaskólinn á Akur-
eyri og fyrirtæki í bænum hafa
heitið þeim stuðningi. Þeir félag-
ar vildu koma á framfæri þakk-
læti til þessara aðila. SS/JHB
Milan Rozaneck og Ivan Jonas hafa lokið störfum sínum fyrir Tindastól.
Köríuknattleikur:
Ivan og Milan ekki
áfram hjá Tindastól
- Valur til Bahamaevja í haust
Öruggt er að Ivan Jonas leikur
ekki áfram með körfuknatt-
leiksliði Tindastóls á næsta
keppnistímabili. Þá er einnig
Ijóst að Milan Rozaneck verð-
ur ekki áfram hjá Tindastól en
hann þjálfaði liðið ásamt Val
Ingmundarsyni á síðasta tíma-
bili.
Þórarinn Thorlacius, formaður
körfuknattleiksdeildar Tinda-
stóls, sagði í samtali við Dag að
fenginn yrði erlendur leikmaður í
stað Ivans en ekkert yrði gert í
þeim málum fyrr en ljóst væri
hvort Pétur Guðmundsson yrði
áfram hjá liðinu. „Það eru svona
50% líkur á því og þá er líklegt
að Einar Einarsson verði einnig
áfram hjá okkur,“ sagði Þórar-
inn. Tindastóll hefur framlengt
samning sinn við Val Ingimund-
arson og mun hann því þjálfa og
leika áfram með liðinu.
Af Val er það að frétta að hann
sigraði í troðslukeppni í Njarðvík
um síðustu helgi þegar fram fór
afmælisleikur milli UMFN og
landsliðsins. Valur lék með
Njarðvíkingum í leiknum sem
lögðu landsliðið með eins stigs
mun eftir framlengdan leik. Um
leið fór fram keppni í troðslum
og 3 stiga skotum og sigraði Val-
ur í troðslukeppninni og Birgir
Mikaelsson í 3 stiga keppninni.
Að launum hlutu þeir ferð á
mikla körfuknattleikshátíð á
Bahamaeyjum í haust þar sem
haldið verður upp á 100 ára
afmæli körfuknattleiksins. Þar
verða allir bestu körfuknattleiks-
menn heimsins samankomnir og
munu Bandaríkjamenn leika
gegn heimsliðinu sem m.a. verð-
ur með Teit Örlygsson innan
sinnan raða. Þá keppir Valur í
troðslukeppni og Birgir í 3 stiga
skotkeppni.
Um síðustu helgi fór fram upp-
skeruhátíð yngri flokka hjá
Tindastól þar sem haldið var upp
á frábæran árangur félagsins í
vetur, m.a. íslands- og bikar-
meistaratitil í stúlknaflokki. Sagt
verður frá hátíðinni síðar.
Sigurpáll Sveinsson, Örn Arnarson og Ríkarður Ríkarðsson. Mynd: Golli
íþróttir fatlaðra:
10. Hængsmótið um helgina
Hængsmótiö 1992, það 10. í
röðinni, verður haldið í íþrótta-
höllinni á Akureyri á föstudag
og laugardag. Mótið er fyrir
fatlaða íþróttamenn og verður
keppt í boccia, borðtennis,
bogfími og lyftingum. 118
keppendur mæta til leiks.
Mótið verður sett á morgun kl.
13, kl. 13.30 hefst sveitakeppni í
boccia og kl. 16 einstaklings-
keppni. Á laugardagsmorgun
hefst dagskráin með keppni í
undanúrslitum sveitakeppni í
boccia kl. 9 og hálftíma síðar
undanúrslitum í einstaklings-
keppni. Lyftingar hefjast kl. 11,
bogfimi kl. 12, borðtennis kl. 13
og úrslit í boccia kl. 14.
Gunnlaugur Björnsson, for-
maður mótsnefndar, segir mun
meira verða lagt í mótið en
venjulega vegna 10 ára afmælis-
ins. „Lionsklúbburinn Hængur
mun t.d. gefa 10 veglega farand-
bikara sem veittir verða sigurveg-
urum í öllum flokkum í öllum
greinum og íslenskur skinnaiðn-
aður hf. gefur stóran bikar sem
stigahæsta félagið hlýtur. Allir
mótsgestir verða leystir út með
gjöfum og um kvöldið verður
lokahóf sem verður óvenjuveg-
legt. Þar verður Ellert B.
Schram, forseti ÍSÍ, heiðursgest-
ur og flytur hann hátíðarræðu
kvöldsins. í tilefni afmælisins var
einnig hannað sérstakt merki og
nú notum við í fyrsta sinn tölvu
til að draga til keppni og skrá
úrslit í boccia.“
Gunnlaugur segir að klúbbfé-
lagar leggi gífurlega vinnu í
undirbúning mótsins en hún sé
mjög gefandi. „Og það er rétt að
fram komi að fleiri leggja hönd á
plóginn því kraftlyftingamenn
hafa séð um dómgæslu í lyfting-
unum allt frá upphafi og fyrirtæk-
in sem auglýsa í mótaskránni
hafa flest verið með frá upphafi.
Þessir aðilar eiga þakkir skildar,"
sagði Gunnlaugur.
Þrjú félög verða nú með í mót-
inu í fyrsta sinn, þ.á m. Gáski úr
Skagafirði sem er nýstofnað og
sendir 14-15 keppendur.
Innanhússmeistaramótið í sundi:
Ágætt hjá Óðinsmönnum
Óðinsmenn frá Akureyri náðu
ágætum árangri á Innanhúss-
meistaramóti íslands í sundi
sem fram fór í Vestmannaeyj-
um fyrr í mánuðinum. Rut
Sverrisdóttir setti m.a. þrjú
íslandsmet í flokki sjónskertra
og Ómar Árnason var valinn
efnilegasti sundmaður
mótsins.
Rut setti þrjú met, ekki tvö
eins og áður hefur verið sagt,
synti 200 m baksund á 2:54,87,
100 m baksund á 1:20,33 og 400
m fjórsund á 6:08,30. Athygl-
isvert er að hún komst í 8 manna
úrslit í þessum greinum þar sem
hún keppti við ófatlað sundfólk.
Þorgerður Benediktsdóttir
setti sex Akureyrarmet kvenna
og stúlkna í þremur greinum,
synti 400 m fjórsund á 5:25,21,50
m skriðsund á 29,22 og 200 m
skriðsund á 2:15,00. Þorgerður
hlaut silfurverðlaun í 400 m fjór-
sundinu. Þá setti Baldur Már
Helgason Akureyrarmet karla og
pilta þegar hann hafnaði í 3. sæti
í 200 m baksundi á 2:21,65 en
þetta eru fyrstu verðlaun hans á
meistaramóti.
Ómar Árnason var kjörinn
efnilegasti sundmaður mótsins en
hann hafnaði m.a. í 4. sæti í
þremur greinum.