Dagur - 02.06.1992, Side 13
Þriðjudagur 2. júní 1992 - DAGUR - 13
Umdæinisstjórn Inner-wheel á íslandi, færði barnadeild FSA, sjónvarp og myndbandstæki að gjöf nýlega. Inner-
wheel er félagsskapur eiginkvenna Rotary-manna og eru 8 slíkir klúbbar starfandi í landinu. A myndinni eru f.v.
Geir Friðgeirsson, barnalæknir, Vignir Sveinsson, aðstoðarframkvæmdastjóri FSA, Valgerður Valgarðsdóttir,
deildarstjóri barnadeildar, Halldóra Ingimarsdóttir, umdæmisstjóri Inner-wheel, Guðrún Helgadóttir, Baldur
Jónsson, yfirlæknir barnadeildar og Sólveig Axelsdóttir. Mynd: Golli
Tónlist___________________
Fyrsta píanóhátíðin
Þá er henni lokið, fyrstu píanó-
hátíðinni, sem haldin hefur verið
á íslandi. Hún stóð dagana 23. til
25. maí og fór fram í hinu glæsi-
lega húsnæði Safnaðarheimilis
Akureyrarkirkju.
Akureyrarbær hefur mikið að
þakka öllu því góða fólki, sem
lagði hönd á plóginn til þess að
koma þessari hátíð á. Það hefur
unnið mikið starf og óeigin-
gjarnt, en þannig vinna þeir, sem
hugsjón hafa. Hennar er þörf,
GLERÁRGÖTU 36
SÍMI 11500
Á söluskrá:
Smárahlíð:
Gullfalleg 3ja herb. íbúð á 2.
hæð, ca. 84 fm. Laus (júlí.
Smárahlíð:
4ra herb. íbúð á 3. hæð, ca. 94
fm. Eignin er í mjög góðu lagi.
Laus eftir samkomulagi.
Sólvellir:
4ra herb. efri hæð í tvíbýli, tæpl.
140 fm. Laus eftir samkomulagi.
Birkiiundur:
6 herb. einbýlishús ásamt góð-
um bílskúr og geymsluplássi,
samtals tæpl. 200 fm. Eignin er í
mjög góðu lagi. Skipti á 4ra herb.
eign á Brekkunni koma til greina.
Vestursíða:
Raðhús á tveimur hæðum ásamt
bílskúr, samtals ca. 164 fm. Úr-
valseign. Laus eftir samkomulagi.
Steinahlíð:
Mjög fallegt raðhús á tveimur
hæðum, 5 herb., ca. 136 fm.
Laust (júní.
- lokaorð
þegar ráðist er í verkefni sem
þetta. Enginn má hugsa til fullra
launa fyrir framlag sitt. Umbunin
felst í starfinu. Slík umbun er
meira virði en fé og verður jafn-
vel ekki metin til peninga.
Fjöldamargir tónleikar voru á
píanóhátíðinni. Þar komu fram
ýmsir af fremstu píanóleikurum
íandsins og einnig mörg þau ung-
menni, sem eru að hefja för sína
eftir grýttum slóðum listarinnar.
Því miður komst undirritaður
ekki á tónleika Guðríðar St. Sig-
urðardóttur og ekki heldur á
flutning Svítu úr íslandsklukk-
unni eftir Jón Hlöðver Áskelsson
sakir annarra verkefna. Tónleik-
ar þeir, sem undirritaður sótti
tókust allir vel og ekki síður öll
framkvæmd þeirra og skipulagn-
ing af hendi aðstandenda.
Píanóhátíðin á Akureyri var
vel sótt. Það var hins vegar nokk-
urt undrunarefni, hve fáir bæjar-
búar voru á meðal áheyrenda,
sem langflestir voru utanbæjar-
menn og margir langt að komnir.
Svo virðist, sem Akureyringar
hafi ekki gert sér svo ljóst sem
skyldi, hve stórkostlegur atburð-
ur var að gerast í bænum.
Þá daga, sem píanóhátíðin
Vinningstölur laugardaginn (i8)(| 30. maí '92
3) - (19)
VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA
1. 5al5 a o 2.434741,-
2. 4*5< írr 423.193,-
3. 4af5 80 9.125.-
4. 3af 5 3.110 547,-
Heildarvinningsupphæð þessa viku: 5.289.104.-
í Æ & umy
upPLÝsiNGAnslMSVARi91 -681511 lukkul!na991002
stóð, var Akureyri miðpunktur
tónlistarlífsins í landinu. Hana
sóttu mörg helstu tónskáld þjóð-
arinnar og margir af fremstu
píanóleikurum hennar. Á henni
voru frumflutt verk fyrir píanó og
hún var fyrsta hátíðin haldin hér
á landi, sem helguð er einu hljóð-
færi. Því má með réttu segja, að
með því að efna til hátíðarinnar
hafi Akureyri markað sér sess og,
hann ævarandi, í tónlistarsögu
þjóðarinnar. Píanóhátíðin verð-
ur væntanlega hvati svipaðra
atburða, sem helgaðir verða öðr-
um hljóðfærum, en upphafið var
á Akureyri. Slíkt er ekki mark-
leysa, heldur ber þess vitni, að
hér starfar fólk, sem hefur til að
bera þann anda og það þor, sem
til þarf til þess að brjóta upp á
gagnlegum nýjungum og hrinda
hugmyndum sínum í
framkvæmd.
Að hátíðinni lokinni er næst að
horfa til framtíðar. Sú reynsla,
sem hefur fengist af píanóhátíð-
inni, er verðmæt og hún er nú orð-
in til í Akureyrarbæ. Almanna-
rómur þeirra, sem sóttu hátíðina,
virtist vera sá, að vel hafi tekist
og veglega í alla staði.
Með reynsluna í farteskinu og
góða róma gesta til hvatningar er
sjálfsagt að stefna hiklaust að
næstu hátíð. Það er gleðiefni, að
einmitt það virðist vera ætlunin
af orðum Valgerðar Hrólfsdótt-
ur, formanns skólanefndar Tón-
listarskólans á Akureyri að
dæma, en starfsliði hans á ýmsum
sviðum ber væntanlega stærsti
hluti lofs fyrir góðan framgang
hátíðarinnar.
í lokaorðum sínum við slit
fyrstu píanóhátíðarinnar sagði
Valgerður: „Áfram skal haldið.“
Þessi orð gætu verið einkunnar-
orð allra þeirra, sem vilja veg
Akureyrar sem mestan og þá
ekki síst þeirra, sem vilja sjá
Akureyri sem þann menningar-
bæ, sem hann gjarnan er kallaður
á hátíðarstundum. Látum þau
verða að áhrínisorðum í tónlist-
arefnum og á sem flestum öðrum
sviðum.
Haukur Ágústsson.
FASTÐGNA& fj
skipasalaSSI
NORÐURLANDS íl
Glerárgötu 36, sími 11500
Opið virka daga kl. 13-17 og á
morgnana eftir samkomulagi.
Sölustjóri:
Pétur Jósefsson
Lögmaður:
Benedikt Ólafsson hdl.
Þökkum auðsýnda samúð við andlát og jarðarför,
GUÐRÚNAR SNORRADÓTTUR,
frá Vestaralandi ( Öxarfirði,
Smárahlíð 12 d, Akureyri.
Aðstandendur.
Skólastjórastaða
Skófastjórastaða við Grunnskólann í Skútu-
staðahreppi er laus til umsóknar.
Umsóknarfrestur er til 15. júní.
Upplýsingar veitir formaður skólanefndar,
Stefán Þórhallsson í síma 96-44285 og 96-44181,
vinnusími.
FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSIÐ
Á AKUREYRI
Staða sérfræðings
við Röntgendeild
Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri er laus til
umsóknar.
Staðan veitist frá 1. október 1992 eða eftir sam-
komulagi.
Umsóknarfrestur er til 1. ágúst 1992.
Umsóknir ásamt upplýsingum um nám og fyrri störf
sendist framkvæmdastjóra sjúkrahússins, Inga
Björnssyni.
Nánari upplýsingar veitir Pedro Riba, yfirlæknir, í
síma 96-22100.
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri.
Söngvarar
Leikfélag Akureyrar auglýsir eftir söngvurum
vegna fyrirhugaðrar uppfærslu á óperettunni
Leðurblökunni næsta vor.
Reiknað er með að leikæfingar hefjist 1. feb. 1993
og frumsýning verði 26. mars. Kóræfingar gætu haf-
ist fyrr. Auglýst er bæði eftir söngvurum í kór og ein-
söngshlutverk. Prufusöngur verður í Samkomuhús-
inu laugardaginn 13. júní.
Nánari upplýsingar veita Signý Pálsdóttir, leikhús-
stjóri, (s. 25073) og Roar Kvam, hljómsveitarstjóri,
(s. 24769).
Leikfélag Akureyrar..
Sölu- og markaðsstjóri
Óskum að ráða sölu- og markaðsstjóra til starfa hjá
útflutningsfyrirtæki á Norðurlandi.
Fyrirtækið var stofnað 1987. Starfsemi fyrirtækisins
samanstendur af rekstri uppboðsmarkaðar og
útflutningi á ferskum og unnum sjávarafurðum.
Starfssvið sölustjóra:
★ Dagleg stjórnun, skipulagning og framkvæmd
sölu.
★ Markaðsathuganir og gerð áætlana um markaðs-
setningu.
★ Þátttaka í vöruþróun og gæðastjórnun.
★ Skipulagning og þátttaka í vörusýningum. Efla
tengsl við núverandi viðskiptavini og afla nýrra.
★ Sölu- og markaðsstjóri er staðgengill fram-
kvæmdastjóra.
Við leitum að manni með reynslu af sjálfstæðum og
skipulögðum vinnubrögðum. Þekking á sölu- og
markaðsmálum nauðsynleg. Þekking á sjávarútvegi
og fiskvinnslu æskileg. Mjög góð enskukunnátta
nauðsynleg.
Nánari upplýsingar veitir Þórir Þorvarðarson.
Vinsamlegast sendið skriflegar umsóknir til Ráðn-
ingarþjónustu Hagvangs hf., merktar: „Sölu- og
markaðsstjóri 200“ fyrir 13. júní nk.
Hagva ngurhf
Grensásvegi 13 Reykjavík 1 Sími 83666 Ráðningarþjónusta Rekstrarráðgjöf Skoðanakannanir