Dagur - 16.07.1992, Blaðsíða 14
14 - DAGUR - Fimmtudagur 16. júlí 1992
MlNNING
«4f= Bjöm
U PoprlHiir
Ottó Kristinsson
Fæddur 1. október 1918 - Dáinn 29. júní 1992
Ég tel það gæfu hvers manns að
kynnast góðu fólki. Sjálfur hef ég
notið þeirrar gæfu að hafa kynnst
mörgu góðu fólki og þar í hópi er
tengdafaðir minn Björn Ottó
Kristinsson. Hann dó 29. júní
ÁSTAND VEGA
síðastliðinn eftir langvarandi
veikindi. Þegar fólk á besta aldri
veikist svo mikið að það missir
starfsþrek og er síðan undir
umsjá ættingja og hjúkrunarfólks
árum saman, er hætt við því að
það gleymist. Svo var ekki um
Bjössa Kristins. Það sýndi sig vel
við jarðarför hans þann 3. júlí,
því þar var fjölmenni. Það sýndi
sig líka á blómum og samúðar-
skeytum sem streymdu til fjöl-
Condilion of mountain tracks
J/eglr á skyggftum svsfium eru lokaöir allri
umterö þar tll annaö veröur auglýst
Tracks in the shaded areas are dosea.\
tor ali traflic until further notice
Published July 16th 1992
Thit rrmp é tha Ust ona m ttnts
[Ubísfttd in tha yar 1092 ,
Thota mho intend to Iraval
*> araas that ara ihadad
Vögíigofö rfkisins .imi »i.
Public Roads Administratipn oram ™
Náttúruverndarráb— Trr89?
NaturegonservatíonCouncit j. -"3
Eins og sjá má á þessu hálendisvegakorti Vegagerðarinnar eru allir hálendisvegir landsins nú orðnir færir ef undan
er skilinn vegspotti sunnan Langjökuls. Samkvæmt upplýsingum Vegaeftirlitsins er ástand fjallveganna almennt
gott, enda voraði snemma þetta árið, og töluverður straumur ferðafólks um hálendisvegina.
HRÍSALUNDUR
Eldorado nibursoðnir
gulrótarteningar 400 g
49
Gulrætur og grænar
baunir 400 g
49 kr
Nýtt
korta-
tímabil
Allir út ab grilla!
Lamba-
kótilettur
649
kr.kg
Einnota
grill
329
kr.
Kjúklinga-
hlutar
299
kr.kg
Sselkeraverslun ú
störmarkadsverði
skyldunnar eftir andlát hans. Það
sýndi sig einnig í þeim hlýhug
sem gamlir vinir sýndu fjölskyld-
unni á þeirri stundu. Þetta var
vegna þess að þetta fólk þekkti
Bjössa Kristins og mat hann
mikils. Annað var ekki hægt, því
hann var góður maður. Margir
höfðu í gegnum tíðina leitað til
hans í vandræðum sínum með
ýmis verk sem þeir réðu ekki við.
Það þurfti nefnilega sérstakrar
handlagni og útsjónarsemi við.
Hana var að finna hjá Bjössa.
Sjálfur leitaði ég oft til hans ef ég
þurfti á aðstoð að halda. Það var
nánast sama hvað það var, Bjössi
gat leiðbeint, lagað eða smíðað
það sem með þurfti. Alltaf, -
undantekningalaust alltaf, - var
hann tilbúinn að veita mér
aðstoð. Það þurfti stundum að
ditta að gömlu Volkswagen-bíl-
unum okkar Elsu. „Blessaður
kauptu þér Renault, hann bilar
aldrei,“ sagði Bjössi og hló dátt
eins og honum var einum lagið.
Hann var einstakur aðdáandi
frönsku Renault-bílanna og átti
nokkra slíka um ævina.
Það sem mér þótti einkenna
Björn Kristinsson allt frá því ég
kynntist honum fyrir um tuttugu
árum var hversu hlýr hann var og
góður og hjálpsemi hans var ein-
stök. Ekki má gleyma þeim hæfi-
leika hans að sjá björtu hliðarnar
á öllum málum. Þetta eru eigin-
leikar sem því miður eru of sjald-
gæfir í þjóðfélagi okkar. Hann
hafði yndi af börnum og af því að
umgangast fólk og hann hafði
yndi af því að hjálpa öðrum. Ég
er viss um að það eiga margir
hluti í kringum sig sem voru við-
gerðir eða smíðaðir af honum.
Dóttir mín 19 ára gömul á ennþá
skíðasleða sem afi Bjössi smíðaði
handa mömmu hennar þegar hún
var barn. Vopnfirðingar eiga
sumir bæjarhlið sem hann smíð-
aði fyrir þá. Þetta er aðeins lítið
af því sem hægt væri að telja upp.
Það var nefnilega hægt að leita til
þessa manns. Það var því engin
lilviljun að leitað var til hans þeg-
ar ákveðið var að stofna deild
Vélskóla íslands á Akureyri. Við
ótrúlega erfið og frumstæð skil-
yrði og aðstæður kom hann á fót
vélskóladeildinni og þar var hann
við stjórn þar til hún var samein-
uð hinum nýja Verkmenntaskóla
á Akureyri. Ég minnist þess að
Bjössa var það mikið mál að
þessi deild kæmist á og fengi að
dafna. Hann þurfti oft að eiga við
kerfiskarla í ráðuneytum í
Reykjavík sem unnu hægara en
honum þótti eðlilegt. En með
seiglu og þolinmæði, - sem mér
þótti einstök, - höfðust málin í
gegn. Það þýddi lítið að bjóða
skólafólki í dag þau húsakynni
sem Vélskólinn crg nemendur
hans þurftu að búa við fyrstu árin
á Akureyri. En Bjössi vissi að
það var ekki hægt að fá allt upp í
hendurnar strax í byrjun. Því var
betra að þrauka um stund.
Hann bar alltaf hlýjan hug til
æskustöðva sinna, hvort sem það
voru Fljótin, - þar sem hann var
fæddur, - Ólafsfjörður eða Hrís-
ey þar sem hann bjó með foreldr-
um sínum og systkinum. Sérstak-
ar taugar hafði hann alltaf til
Hríseyjar og sagði okkur margar
skemmtilegar sögur þaðan. Eftir
fullnaðarpróf úr Hrísey og nám í
Laugaskóla hóf hann nám í vél-
virkjun á Akureyri og tók
sveinspróf í iðninni 1944.
Skömmu áður kynntist hann
eftirlifandi konu sinni Halldóru
Gunnlaugsdóttur frá Vopnafirði
og giftust þau 6. júlí 1946. Þau
eignuðust þrjú börn sem eru
Gunnlaugur sem er deildarstjóri
við Verkmenntaskólann á Akur-
eyri, Elsa hárgreiðslumeistari og
Björn Kristinn offsetljósmynd-
ari. Þessi fjölskylda bjó í litlu,
fallegu einbýlishúsi að Hríseyj-
argötu 20 á Akureyri. Þó húsið
væri ekki stórt var gestkvæmt hjá
Birni og Dóru og voru allir alltaf
velkomnir og fengu mat og gist-
ingu meðan pláss var í húsinu.
Þarna bjó fjölskyldan þar til
börnin fluttu að heiman og stofn-
uðu sín heimili. í byrjun árs 1990
voru veikindi Björns orðin það
alvarleg að hann gat ekki lengur
dvalið heima og fékk því skjól á
Dvalarheimilinu Hlíð. Dóra
kona hans býr nú ein í litla hús-
inu við Hríseyjargötu.
Það er með mikilli virðingu
sem ég kveð þennan góða mann
sem var fæddur frostaveturinn
mikla 1918. Björn Ottó Kristins-
son hafði þá híýju til að bera sem
brætt gæti stóran íslenskan jökul.
Kveðja frá tengdasyni,
Gestur Einar Jónasson.
Húsavík-Reykjahlíð-Akureyri:
Þrír Danir á sumar-
tónleikum um helgina
Suniartónlcikar á Norðurlandi
halda þriðju tónleikaröð sína
helgina 17. til 19. júlí. Það
verða dönsku sópransöngkon-
urnar Bodil Kvaran og Birgittc
Rutkær Ewerlöf ásamt Lasse
Ewerlöf, orgelleikara, sem
halda tónleika í Húsavíkur-
kirkju föstudaginn 17. júlí kl.
20.30, Reykjahlíðarkirkju
laugardaginn 18. júlí kl. 20.30
og í Akureyrarkirkju sunnu-
daginn 19. júlí kl. 17.
Tónlistarmennirnir eru allir
starfandi í Kaupmannahöfn.
Bodil Kvaran í Konunglega
leikhúsinu og einnig er Birgitte
R. Ewerlöf í óperukórnum í
sama leikhúsi. Lasse Ewerlöf er
organisti í Kastelkirkjunni og
dósent við Konunglega Tónlistar-
háskólann.
A efnisskránni verða m.a.
dönsk þjóðlög, negrasálmar,
verk eftir H. Purcell, C. Nielsen,
P. E. Lange-Möller og T. Kingo.
Aðgangur er ókeypis á alla
sumartónleikana.