Dagur - 21.08.1992, Síða 1
75. árgangur
Akureyri, föstudagur 21. ágúst 1992
Dýpkunarframkvæmdir í Húsavíkurhöfn:
Ekkert til ráða
nema að sprengja
- stöðug fundahöld vegna málsins
Skíöakrakkarnir lögðu af stað frá Akureyri í gær og munu una sér á skíðum á Snæfellsjökli um helgina. Mynd: Goiii
Skíðakrakkar frá Akureyri:
Æfa á Snæfellsjökli inn helgina
í gær var fundur í hafnarstjórn
Húsavíkurkaupstaðar þar sem
dýpkunarframkvæmdir í Húsa-
víkurhöfn voru ræddar í Ijósi
þeirra rannsókna er gerðar
voru daginn áður. „Menn telja
nú að botninn se ógræfur að
stórum hluta með þeim tækj-
um sem eru á staðnum og eru í
eigu undirverktakans Dýpkun-
ar hf. Talið er að ekkert sé
annað til ráða en að sprengja
til að ná því efni sem þarf að
fjarlægja,“ segir Einar Njáls-
son, bæjarstjóri Húsavíkur.
Éinar segir að 75% af svæðinu,
sem fyrirhugað var að dýpka, sé
óvinnandi vegna hörku. 25% er
hægt að grafa að einhverju
Útgerðarfélag
Akureyringa hf.:
Vilhelm Þor-
steinsson lætur
af störfiim sem
framkvæmdastjóri
Vilhelm Þorsteinsson, annar
framkvæmdastjóra Utgerðar-
félags Akureyringa hf., lætur af
störfum vegna heilsufars-
ástæðna þann 1. september.
Vilhelm hefur starfað hjá
Ú.A. allar götur síðan í sept-
ember 1947, en þá hóf hann
störf sem háseti um borð í
Kaldbaki EA.
„Fjörutíu og fimm ár er langur
starfsaldur. Arið 1950 var Vil-
helm kominn yfir á Harðbak og
tók við skipstjórn árið 1954. Um
áramót 1964/1965 hætti Vilhelm
sjósókn og réðst til starfa sem
annar framkvæmdastjóra félags-
ins. Þann 10. ágúst lá fyrir stjórn-
arfundi uppsagnarbréf þar sem
heilsufarsástæður voru tilgreind-
ar. Ekkert hefur verið rætt um
ráðningu nýs framkvæmdastjóra
og það mál verður ekki á dagskrá
stjórnar fyrr en í næsta mánuði,“
sagði Sverrir Leósson, stjórnar-
formaður. ój
Vilhelm Þorsteinsson.
marki, en hvergi er hægt að fara
niður á það dýpi sem fyrirhugað
var með greftrinum.
„Af skýrslum jarðfræðinga var
vitað að í Húsavíkurhöfn gæti
verið erfiður botn, en á óvart
kemur að hörðu berglögin skuli
vera svo ofarlega.
í dag kl. 8,30 á ég fund með
starfsmönnum Vita- og hafna-
málaskrifstofu. Þar munum við
fara yfir öll gögn. í framhaldi við-
ræðna vænti ég þess að lagðar
verði fram tillögur eða yfirlit yfir
þá valkosti sem við höfum í stöð-
unni. Síðar í dag mun ég kynna
samgönguráðherra stöðu málsins
í ljósi tillagna starfsmanna Vita-
og hafnamálaskrifstofu," sagði
Einar Njálsson og bætti við:
„Húsvíkingar telja að upplýsing-
ar um botninn hefðu getað legið
fyrir fyrr, ef að þau tæki sem áttu
að vinna verkið hefðu verið í lagi
í upphafi verks. Ekki viljum við
hleypa illsku í málið, en miklu
hefði munað fyrir Húsavíkur-
kaupstað, ef fengnar upplýsingar
hefðu legið fyrir í júnímánuði, en
ekki nú í lok ágúst. Af hálfu
hafnarstjórnar er lögð mjög þung
áhersla á að í haust verði haldið
áfram með verkið, því dýpkun
ræður úrslitum um notagildi
hafnarinnar." ój
Frá og með 1. september næst-
komandi mun nýmjólk, sem
hefur hærri frumutölu en 750
þúsund verða verðfelld til
framleiðenda samkvæmt
ákvæðum reglugerðar um
mjólk og mjólkurvörur.
Ákveðið er að þessi regla gildi
í tvö ár en frá og með árinu
1994 verða viðmiðunarmörkin
lækkuð í 600 þúsund. Mjólk
sem hefur lægri frumutölu en
750 þúsund telst vera fyrsta
flokks mjólk, mjólk með
frumutölu á biíinu 750 þúsund
til einnar milljónar teist annars
flokks mjólk og þegar frumu-
talan fer yfir eina milljón er
um þriðja flokks mjólk að
ræða og telst mjólkin þá ekki
hæf til sölu sem neysluvara og
ber að vinna úr henni þær vör-
ur sem mögulegt er miðað við
hráefnið.
Auk verðfellingar vegna hárrar
frumutölu í mjólk verður einnig
tekin upp verðfelling eftir magni
hitaþolinna og kuldakærra gerla í
nýmjólk fyrsta september næst
komandi. Ólafur Jónsson, dýra-
læknir hjá Mjólkursamlagi Kaup-
félags Eyfirðinga, sagði að slíkar
mælingar hafi verið gerðar á
mjólk hjá mjólkursamlaginu
Það eru kannski ekki margir
sem eru með hugann við skíði
þessa stundina þó svo að farið
sé að halla í haustið. í gær
lagði þó 40-50 manna hópur af
stað á Snæfellsnes með það
fyrir augum að fara á skíði á
Snæfellsjökli.
undanfarin sjö ár þótt verðfelling
hafi ekki komið til framkvæmda
fyrr en nú og séu bændur á fram-
leiðslusvæði þess því vel kunnug-
ir niðurstöðum þeirra mælinga.
Hvað verðfellingu af völdum
frumutölu varðar sagði Ólafur
Jónsson að bændur væru einnig
vel undirbúnir að takast á við það
viðfangsefni. Að undanförnu
hefði verið unnið af hálfu mjólk-
ursamlagsins að úrbótum með
þeim framleiðendum, sem átt
hefðu í erfiðleikum vegna hárrar
frumutölu í mjólk og nú væru
aðeins um 4% framleiðenda á
framleiðslusvæði mjólkursam-
lagsins með of háa frumutölu og
væri framleiðslumagn þeirra
aðeins um 2% af heildarfram-
leiðslunni. Ólafur Jónsson kvaðst
gera ráð fyrir að unnt yrði að
lækka frumutöluna hjá fleiri
bændum og með góðu eftirliti
mætti halda henni innan viðmið-
unarmarka hjá flestum fram-
leiðendum. Meðaltal frumutölu í
nýmjólk á samlagssvæði Kaupfé-
lags Eyfirðinga hefur fallið um
11% á síðustu sjö mánuðum og
ef síðastliðnir þrír mánuðir eru
athugaðir þá hefur meðaltals
frumutalan lækkað um allt að
21%.
Frumutala í nýmjólk er í raun
fjöldi hvítra blóðkorna í mjólk-
Hópurinn sem um er að ræða
er á vegum Skíðaráðs Akureyrar
en 24 krakkar 13 ára og eldri ætla
að renna sér á skíðum um helg-
ina. „Ætli þetta verði ekki sam-
tals á bilinu 40-50 manns. Við för-
um á einkabílum o^það eru for-
eldrar og aðrir aðstandendur
ásamt nokkrum skíðaráðsmönn-
um sem að fylgja krökkunum,"
inni og stafar óeðlilegur fjöldi
þeirra fyrst og fremst af júgur-
bólgu sem oft getur verið dulin.
Ólafur Jónsson sagði að lands-
meðaltal frumutölu í nýmjólk sé
um 470 þúsund hér á landi sem sé
nokkuð hátt hlutfall. Ástæður
þess séu ekki að öllu leyti kunnar
en að einhverjum hluta megi
rekja þær til íslenska kúakynsins.
Samkvæmt mjólkurreglugerð-
Aðalfundur Landssambands
sauðfjárbænda verður haldinn
á Flúðum dagana 24.-25. ágúst
næstkomandi. Efst á baugi
verða sölu- og markaðsmál í
ljósi breyttra skilyrða sem hinn
nýi búvörusamningur hefur í
för með sér. Sauðfjárbændur
verða nú sjálfír að taka ábyrgð
á birgða- og sölumálum fram-
leiðslunnar.
Afnám útflutningsbóta og sam-
dráttur í framleiðslu verða í
brennidepli ásamt minnkandi
sölu á lambakjöti síðustu mán-
uði.
sagði Magnús Gíslason einn
þriggja fararstjóra.
Ætlunin er að krakkarnir æfi
sig í þrjá daga á jöklinum. Fyrr í
sumar var sett upp lítil lyfta fyrir
skíðafólk en einnig verður notast
við vélsleða. „Ef við verðum
þokkalega heppin með veður get-
ur þetta orðið stórkostleg ferð,“
sagði Magnús. KR
inni ber að líta á næstu mjólkur-
sendingar frá framleiðanda sem
lent hefur með framleiðslu sína í
öðrum eða þriðja flokki sem var-
hugaverðar og flokka þær sam-
kvæmt því þar til mjólkin upp-
fyllir á ný kröfur um fyrsta flokks
mjólk. Verðfall vegna of hárrar
frumutölu getur hæst orðið 32%
eða því sem svarar til launaliðar
bóndans. ÞI
Einnig verður greint frá athug-
un á heimsmarkaðsverði á gærum
og það borið saman við það verð
sem íslenskir bændur hafa fengið
fyrir sínar gærur.
Unnið hefur verið að endur-
skoðun samstarfssamnings Fram-
leiðsluráðs og Landssamtaka
sláturleyfishafa um verkaskipt-
ingu milli sláturleyfishafa og ýms-
ar vinnureglur vegna slátrunar.
Einnig er verið að undirbúa sam-
starf afurðastöðva og bænda um
útflutning á dilkakjöti. Þessi mál
munu koma til umræðu á fundin-
um. SS
Breytingar á mjólkurreglugerð 1. september:
Verðfelling vegna of hárrar frumutölu í mjólk
- eyfirskir bændur vel undir þetta búnir, segir Ólafur Jónsson, dýralæknir
Landssamband sauðprbænda:
Heit mál á aðalfimdi
- samdráttur og afnám útflutningsbóta