Dagur - 21.08.1992, Page 13
I
Föstudagur 21. ágúst 1992 - DAGUR - 13
Nýtt kítti í túpum
frá Málningu
Málning hf. hefur sett á markað
nýtt kítti í fjórum tegundum til
notkunar í iðnaði og til heimilis-
nota. Þéttiefnið heitir Kraft kítti
og fæst í 310 ml. túpum eins og
annað hefðbundið kítti á mark-
aðnum.
Kraft kíttið er í fjórum mis-
munandi gerðum. Kraft Akrýl og
Kraft Sílikon annars vegar sem
eru í plasttúpum og hins vegar
úreþan efnin Kraft Úreþan S-20
og Kraft Úreþan S-40 sem er sér-
staklega sterkt og ætlað til meiri
átaka, sprunguviðgerða í stein
o.fl. Þau eru í áltúpum.
Kraft kíttinu er ætlað að keppa
við dýrari kítti á markaðnum,
enda hér á ferðinni hágæða vara,
þaulprófuð og reynd hérlendis og
erlendis. Að sögn Hjartar
Bergstað sölustjóra hjá Málningu
er ætlað að Kraft kíttið verði á
betra verði en mörg sambærileg
þéttiefni á okkar markaði.
Erling Erlingsson auglýsinga-
teiknari hannaði umbúðirnar sem
um margt eru frábrugðnar öðrum
kíttistúpum. Hönnunin er nýstár-
Erling Erlingsson hönnuður umbúðanna og Hjörtur Bergstað sölustjóri hjá
Málningu mcð sýnishorn af framleiðslunni.
leg, létt og einföld, með áherslu á
letur og texta, sem eru einkenni
umbúðanna. Allar eru túpurnar
hvítar en stórt vöruheiti í lit skil-
ur á milli þeirra. Túpurnar eru
með viðeigandi varúðarmerkjum
og nauðsynlegum notkunarleið-
beiningum auk strikamerkis.
Hjörtur segist binda miklar
vonir við þetta nýja kítti og eiga
von á góðum viðbrögðum frá iðn-
aðarmönnum sem kunna gott að
meta. Kraft kíttið fæst í öllum
helstu byggingavöruverslunum í
fimm litum hver tegund, en litirn-
ir eru: glært, hvítt, grátt svart og
brúnt. Notkunarleiðbeiningar
liggja frammi á sölustöðum.
Sókn í stað samdráttar
aðgerðir í atvnmumálnm
- ályktun þingflokks og landsstjórnar framsóknarmanna
Þingflokkur og landsstjórn
Framsóknarflokksins hélt sam-
eiginlegan fund á Egilsstöðum
þann 14. ágúst sl. Á fundinum
var m.a. samþykkt ályktun sú
sem hér fer á eftir:
„Meiri átök eru nú framundan
í íslenskum stjórnmálum en verið
hafa um langan tíma. Þau stafa af
þeirri samdráttar- og gjaldþrota-
stefnu sem ríkisstjórn Alþýðu-
flokks og Sjálfstæðisflokks rekur.
Þessi stefna hefur nú þegar leitt
til stöðnunar, samdráttar og
gjaldþrota margra fyrirtækja.
Almennt atvinnuleysi er ört vax-
andi í fyrsta sinn í marga áratugi
með þeim alvarlegu afleiðingum
sem það hefur í för með sér.
Ábyrgðar- og úrræðaleysi
Ríkisstjórnin neitar að horfast í
augu við þá erfiðleika sem hún
hefur skapað og leggur allt sitt
traust á bjargráð erlendis frá með
samningum um Evrópskt efna-
hagsvæði. Allt einkennist þetta af
ábyrgðar- og úrræðaleysi. Ef
starfsskilyrði íslensks atvinnulífs
verða ekki leiðrétt, verður eng-
inn hagur af opnari markaði í
Evrópu. Þingflokkur og Lands-
stjórn framsóknarmanna telur
mikilvægt að eiga gott samstarf
við aðrar Evrópuþjóðir. Fundur-
inn áréttar þau skilyrði sem mið-
stjórn Framsóknarflokksins sam-
þykkti sl. vor fyrir stuðningi við
samninginn um Evrópskt efna-
hagssvæði.
Þjóðarsáttin rofín
Þjóðarsáttin milli aðila vinnu-
markaðsins og ríkisvaldsins, sem
ríkisstjórn undir forystu Fram-
sóknarflokksins kom á við gerð
kjarasamninga árið 1990,
skilaði þjóðinni stöðugleika í
efnahagsmálum og nánast engri
verðbólgu.
Ríkisstjórn Davíðs Oddssonar
hefur rofið þessa þjóðarsátt með
stefnu sinni í efnahags- og kjara-
málum. Hún byggir á því að ráða
kjörunum með atvinnuleysi og
nota gjaldþrotin til stórfelldrar
eignatilfærslu í þjóðfélaginu.
Þessum stjórnarháttum hafnar
Framsóknarflokkurinn algjörlega
og lýsir ábyrgð á hendur þeim
stjórnmálaflokkum sem þannig
starfa. Þegar Alþingi kemur sam-
an mun þingflokkur framsókn-
armanna berjast gegn þessari
samdráttar- og stöðnunarstefnu
ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks og
Alþýðuflokks.
Þingflokkur og Landsstjórn
framsóknarmanna hvetja til
sóknar í stað samdráttar. Sam-
stillt átak ríkisvalds, atvinnurek-
enda og launþega þarf til þess að
þjóðin megi vinna sig út úr þeim
vanda sem að steðjar og hefja
nýja framfarasókn.
Nauðsynlegar aðgerðir
Eftirfarandi aðgerðir eru því
nauðsynlegar sem fyrsta skref í
þeirri framfarasókn:
• Starfsskilyrði atvinnuveganna
verði lagfærð með fjárhagslegri
endurskipulagningu. Tryggt verði
að raungengi krónunnar sé skráð
í samræmi við getu útflutnings-
atvinnuveganna. Raungengi þarf
að lagfæra með lækkun kpstnað-
ar.
• Raunvextir lækki til samræmis
við það sem algengast er í helstu
viðskiptalöndum okkar.
• Dregið verði úr kostnaði
atvinnulífsins. Þar gangi stjórn-
völd á undan með því t.d. að fella
niður aðstöðugjald og önnur
kostnaðartengd gjöld.
• Þeim skattaálögum sem ríkis-
stjórn Davíðs Oddssonar hefur
lagt á atvinnulífið verið aflétt.
• Aflaheimildum Hagræðingar-
sjóðs verði deilt út án endur-
gjalds til stuðnings þeim byggðar-
lögum sem verða fyrir mestri
skerðingu á þorskveiðiheimild-
um.
• Eytt verði þeirri óvissu sem
ríkisstjórn Davíðs Oddssonar
hefur skapað í sjávarútvegi.
Framsóknarflokkurinn hafnar
gjörbreyttu fyrirkomulagi við
stjórnun fiskveiða, m.a. upptöku
veiðileyfagjalds.
• Nú þegar verði dregið úr
atvinnuleysi. Stjórnvöld beiti
opinberum aðgerðum til að draga
úr sveiflum í hagkerfinu. Við
núverandi aðstæður ber að flýta
framkvæmdum sem hagkvæmt er
að ráðast í.
• Ekki verði gengið lengra í
niðurskurði í landbúnaði en orð-
ið er.
• Opinbert fjármagn verði lagt
fram til að örva framkvæmdir í
nýjum atvinnugreinum og rann-
sóknir og þróunarstarf í því
skyni.
Með þessum aðgerðum yrði
stigið fyrsta skrefið til að losa
þjóðina út úr þeim vítahring
stöðnunar og afturhalds sem
ríkisstjórn Alþýðuflokks og
Sjálfstæðisflokks hefur leitt hana
í. Öflugt og samstillt átak ríkis-
valds, atvinnurekenda og laun-
þega er undirstaða þess að hér
takist að hefja nýja framfarasókn
á öllum sviðum þjóðlífsins og
rjúfa þá kyrrstöðu, sem nú ríkir í
efnahags- og atvinnumálum. Þá
sókn er Framsóknarflokkurinn
tilbúinn að leiða.“
Frá afhendingu happdrættisbfls Fornbílaklúbbs íslands. Örn Sigurðsson
framkvæmdastjóri happdrættisins (til vinstri) afhcndir vinningshafanum
Ársæli Árnasyni, lyklana að hinni 33 ára gömlu glæsikerru Chevrolet
Impala.
Fornbflaklúbbur íslands:
Dregið í afinælishappdrættinu
Þann 10. ágúst sl. var dregið í
afmælishappdrætti Fornbíla-
klúbbs íslands. Vinningur féll
á miða nr. 156, en eigandi hans
reyndist vera Ársæll Árnason.
í vinning var bifreið að gerð-
inni Chevrolet Impala árgerð
1959. Bfll þessi var keyptur frá
Bandaríkjunum, sérstaklega
fyrir happdrættið, af uppruna-
legum eiganda. Hafði bflnum
einungis veriö ekið 35 þúsund
mflur, eða rúmlega 50 þúsund
km, frá upphafi. Um er að
ræða dýrustu útgáfu þessarar
gerðar, 4ra dyra sport hardtop.
Sá óvenjulegi atburður átti sér
stað við framkvæmd happdrættis-
ins, að allir útgefnir miðar, 1000
að tölu, seldust upp á einungis
tveimur mánuðum og það tveim-
ur mánuðum fyrir áætlaðan drátt-
ardag. Ákveðið var því að fá leyfi
til að flýta happdrættinu til 10.
ágúst og er það í fyrsta sinn sem
slíkt gerist á íslandi.
Ágóði af happdrættinu rennur
til áframhaldandi uppbyggingar
innan Fornbílaklúbbsins, en næg
verkefni eru fyrir hendi í hinum
ört vaxandi félagsskap, sem nú
telur rúmlega 500 félagsmenn.
Markmið Fornbílaklúbbsins er
að vernda gamla bíla og sögu
þeirra hérlendis. Árlega bætast
við bílar í flota klúbbfélaga og
eru hópferðir klúbbsins orðinn
árviss ánægjuauki fyrir alla
landsmenn. Vikulega á þriðju-
dagskvöldum eru haldnir fundir í
félagsheimili klúbbsins að Skeif-
unni 4 í Reykjavík og eru allir
áhugamenn um gamla bíla vel-
komnir þangað.
Toyota Landcruiser bensín ’88,
3 d., blár, ek. 60.000.
Verð 1.400.000 stgr.
Daihatsu Charade IS ’86, 3 d., blár,
ek. 77.000. Verð 290.000 stgr.
Daihatsu Feroza EL II ’89, 3 d.
svart./grá., ek. 33.000.
Verð 890.000 stgr.
MMC Lancer GLX ’84. Gull sans.
sjálfsk., ek. 65.000.
Verð 350.000 stgr.
Daihatsu Charade CXFi 4WD ’91,
5 d., rauður, ek. 8.000 km.
Verð 800.000 stgr.
★
Ch. Blaser SL 10 árg. '87, sjálfsk.
Verð 1.350.000 stgr. skipti niður
í bíl á 6-700.000.
★
Lada Sport árg. ’87, 5 gíra,
ek. 47.000. Góður bíll.
Verð 375.000 stgr.
★
Subaru stc. 1800 m/saml. 4x4
árg. ’85, 5 gíra, rauður,
ek. 74.000. Verð 780.000 stgr.,
skipti niður.
Subaru stc. 1800 4x4 árg. ’85,
5 gíra, vínrauður, ek. 160.000.
Verð 500.000 stgr., skipti niður.
Bæjarins besta útisvæði.
Vantar bíla á staðinn.
ÖRUGG BÍLASALA
ÞÓRSHAHIAR HF.
BÍLASALA
Glerárgötu 36, simi 11036 og 30470
Fax 96-27635.
Gróðrarstöðin Réttarhóll
Svalbarðseyri, sími 11660
Höfum plöntur í garðinn
og sumarbústaðalandið
Opið laugard. og sunnud. frá kl. 10-18.
Mánud.-föstud. Frá kr. 20-22.