Dagur - 26.08.1992, Side 6

Dagur - 26.08.1992, Side 6
6 - DAGUR - Miðvikudagur 26. ágúst 1992 Spurning vikunnar Heldurðu að sumri sé lokið og að haustið sé gengið í garð? Loftur Magnússon: „Ja, ágústmánuði er að Ijúka og þá fer að hausta á þessu landi og ég held að sumrinu sé að mestu lokið enda finnur maður það á sér.“ Óli Guðmarsson: „Ætli það fari ekki að líða að því. Þegar 1. september er kominn á dagatalið er komið haust. Það bregst ekki.“ Leifur Brynjólfsson: „Ég vona bara það að eitthvað sé eftir af sumrinu. Það er hins vegar bara óskhyggja en ekki byggt á einu eða neinu og ekki veðrinu í dag sem er fremur svalt" Sigrún Aðalgeirsdóttir: „Já, því það er svo kalt úti núna. Ég held að það hlýni ekk- ert að gagni eftir þennan tírna." Sigurlaug Njálsdóttir: „Sumarið er búið í bili en það kemur aftur í nóvember með hlýindakafla. Það hefur reyndar gerst áður og þannig verður það þetta árið,“ Þjóðleg ferðaþjónusta - og endurbygging gamalla húsa Hofsós lætur ekki mikið yfir sér við fyrstu sýn. Þar búa um 250 manns í dæmigerðu íslensku þorpi. Ef fcrðamaður- inn skoðar sig betur um og leggur leið sína niður bratta brekku niður að fjöruborði þá getur að líta þyrpingu gamalla húsa í misgóðu ástandi. Þetta er gamli kjarninn á Hofsósi, hjarta bæjarins. Menn töldu þessi hús til fárra hluta nýtilega annars en niðurrifs. En það voru ekki allir á þeirri skoðun. Valgeir Þorvaldsson bóndi og trésmiður barðist fyrir endur- byggingu nokkurra húsa og hefur fengið menn á sitt band. Þegar er búið að endurbyggja tvö merkileg hús og árangur- inn lætur ekki á sér standa. Ferðamenn hafa komið í þús- unda tali í sumar til Hofsóss sem áður var ekki inni á korti ferðaskrifstofa. Gömlu húsin hafa sannað gildi sitt. Valgeir bóndi á Vatni er róleg- ur og afslappaður, þrátt fyrir öll þau járn sem hann hefur í eldin- um. Á Vatni reka hann og kona hans Guðrún Þorvaldsdóttir ferðaþjónustu. Þau eru með fjög- ur sumarhús í útleigu, auk þess sem boðið er upp á silungsveiði, báta- og hestaleigu. Þessi rekstur mæðir mest á Guðrúnu því Valgeir hefur í mörgu öðru að snúast. Reyndar ætlaði hann í hefðbundinn sauðfjárbúskap í upphafi. En hann skipti um skoðun: „Ég hef alltaf haft skömm á því að vera að fram- leiða eitthvað sem ekki nýtist.“ Auk ferðaþjónustunnar á Vatni rekur Valgeir lítið fyrirtæki á Hofsósi sem heitir Smíðastofan sf. og er trésmíðafyrirtæki. Hefur það m.a. sinnt viðgerðum á húsum. „Ég hef áhuga á öllu sem að getur nýst okkur til framdrátt- ar í ferðamannaþjónustunni og einnig hvernig forfeðurnir lifðu og þessi hús segja okkur margt um það. Það fer ekki hjá því að maður hafi áhuga á byggingarlist og byggingarstíl þegar maður starfar við smíðar,“ segir Valgeir aðspurður um kveikjuna að áhuga hans á endurbyeaineu Hofsósshúsanna. Það var löngun til að rífa Hofsós upp úr ládeyð- unni. Ferðamenn hafa ekki lagt leið sína til Hofsóss og að mati Valgeirs hafa íbúar Hofshrepps fengið að gjalda þeirrar nei- kvæðu umræðu sem varð þegar hreppurinn varð gjaldþrota fyrir nokkrum árum. Þessi neikvæða umræða hafi verið ósanngjörn þar sem álíka illa hafi verið kom- ið fyrir mörgum öðrum sveitar- félögum. Valgeir sneri sér fyrst að gamla pakkhúsinu. Það er mjög merki- legt hús, byggt 1777. Ekki leist mönnum á í fyrstu að ráðast í viðgerðir en það var þó samþykkt. Viðgerð hófst í júní á síðasta ári og lauk í febrúar s.l. Valgeir hafði yfirumsjón með endurbyggingunni. Þeir sem sjá þetta hús nú geta ekki annað en dáðst að því og andað léttar yfir því að það hafi sloppið við niður- rif. Á neðri hæðinni er Byggða- safn Skagfirðinga með sýningu á munum tengdum Drangeyjarút- gerð, þ.e. fugla- og eggjatöku í Drangey. Á efri hæð (risi) er stór salur og þar er boðið upp á kvöldvökur og sýnishorn af íslenskum mat. Valgeir sér sjálf- ur um þessa hlið mála, með dyggri aðstoð heimamanna. íslenskur matur, s.s. súrmatur, sviðasulta, bringukollur, magáll, hangikjöt, hrútspungar, harðfisk- ur, hákarl og fleira er borið fram Athafnamaðurinn Valgeir Þorvaldsson á Vatni. Gamla pakkhúsið, eitt af elstu húsum landsins, byggt 1777. Allt að 700 flatkökur á dag - stórbisniss í bakstrinum hjá Diddu á Bakka Kristín Ingibjörg Lárusdóttir á Bakka í Vatnsdal, Didda á Bakka eins og hún er venju- lega kölluð, lætur ekki deigan síga þó skorið sé niður í land- búnaði. Hún og Jón Bjarnason maður hennar urðu fyrir því að fé þeirra var skorið niður vegna riðu. Alltaf er verið að hvetja bændafólk til að finna nýjar búgreinar og Didda not- ar það sem hún kann; að baka brauð. Brauðið hennar er mjög vinsælt og hún hefur vart undan til að anna eftirspurn. Það er ekki óalgengt að hús- mæður til sveita baki og selji, en Didda bakar sennilega á stærri mælikvarða en flestar aðrar og bökunaraðstaðan hennar hefur stimpil frá heil- brigðisfulltrúanum. Blaðamaður Dags leit við á Bakka um verslunarmannahelg- ina og átti spjall við Diddu yfir kaffibolla og hinu og öðru góð- gæti úr bakstrinum hennar. En hvernig stóð á því að baksturinn er orðinn að meiri háttar rekstri? Að sögn Diddu byrjaði það fyrir u.þ.b. 5 árum þegar hún fór að baka flatbrauð til að selja í Kaup- félaginu á Blönduósi. Deildar- stjóri Kaupfélagsins hvatti hana til að baka meira og síðan fór starfsemin vaxandi. Didda bætti við kleinum, ástapungum, pört- um (sem sumir kalla soðið brauð) og loks rúgbrauði. Hún hefur aðstöðu í litlu herbergi, en þarf heldur ekki svo mikið til. Tvær hellur til að hita á, því ekkert er bakað í ofni nema rúgbrauðið. Didda hefur verið að færa út kvíarnar. Nú bakar hún fyrir togarana á Skagaströnd og Blönduósi auk Kaupfélagsins á Hvammstanga, Blönduósi og í Varmahlíð. Hún hefur líka selt á útimarkaðnum á Blönduósi um helgar. Svo tekur hún pantanir,

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.