Dagur - 06.10.1992, Blaðsíða 1

Dagur - 06.10.1992, Blaðsíða 1
 ] I í Skagaflörður: Mikill mannfjöldi við Laufskálarétt - í sól og sumaryl á laugardaginn jöldi manna og hrossa var í hafi mætt er um 750 hross voru góðu skapi og sumir ýttu undir linni frægu stóðrétt að Lauf- dregin sundur í Laufskálarétt það með gangnapelanum góða. kálum í Hjaltadal sl. laugar- nú á laugardag. Sólin skein eins . . . .. . . . lag í blíðskaparveðri. og vera ber og hlýtt var í lofti. fÞefr a !eið mattl heyra skaS' 8 V Þarna mætti fólk á öllum aldri, flr kai? rcttarsong ems og hann Talið er að um 2000 manns bæði heimamenn og aðrir, allir í ®e ur es ur or 1 • SP Öxarfjörður og Núpasveit: MeðalfaJlþungí allt að þremur kílóum minni Hólasandur: Vinnuvél í björtu báli Stór vinnuvél brann á Hóla- sandi aöfaranótt sunnudags og gjöreyðilagðist. Lögreglunni á Húsavík barst tilkynning kl. 0.45 um nóttina um að vinnuvél, grafa, stæði í björtu báli á Hólasandi. Er lögreglan kom á staðinn var brunnið svo til allt sem brunnið gat af vélinni. Vélin hafði verið flutt á staðinn fyrr um kvöldið og talið var að kviknað hefði í henni út frá raf- magni. Eigandi vélarinnar er Arnarfell í Skagafirði. IM Hrísey: Nýr togari aflientur í aprfl nk. Fjölveiðiskip, sem er í smíðum í Portúgal fyrir Birgir Sigur- jónsson útgerðarmann Borgar hf. í Hrísey, verður afhent eig- anda 19. apríl í vor samkvæmt verksamningi en skipið er síð- an væntanlegt til heimahafnar um mánaðamótin apríl/maí 1993. Skipið er 150 brúttólestir að stærð, tæpir 26 metrar að lengd og 7,9 metrar að breidd og er sérstaklega útbúið til saltfiskvinnslu. Hugmyndir voru uppi um að það árið 1989 að lengja skipið í 37 metra en það hlaut ekki náð fyrir augum viðskiptabanka Borgar hf. eða Fiskveiðasjóðs og því er skipið smíðað samkvæmt upphaflegri teikningu. Ásborg EÁ sem er í eigu Borgar hf. hef- ur verið auglýst til sölu, en skipið er með vinnsluleyfi og útbúið tækjum til salfiskvinnslu. Ásborg EA verður seld kvótalaus en skipið er nú á rækjuveiðum og landar aflanum á Blönduósi til vinnslu hjá Særúnu hf. Nýja skip- ið fær kvóta Eyborgar EA en auk þess á Borg hf. kvóta ísborgar hf. en samtals er þessi kvóti um 1000 þorskígildi en ekki er ennþá afráðið hvort allur sá kvóti fer á nýja skipið. GG Eyjaijarðarsveit: Réttindalaus á biflijóli Laust eftir hádegið á laugardag varð árekstur milli létts bifhjóls (skellinöðru) og bifreiðar á Eyjafjarðarbraut móts við Blómaskálann Vín en þar er hámarkshraði 50 km/klst. Ökumaður bifhjólsins er aðeins þrettán ára gamall og því rétt- indalaus og það sama gilti um ökutækið hans því það hafði ekki verið farið með það í lögboðna skoðun. Drengurinn var fluttur á sjúkrahús vegna meiðsla á fæti og mjöðm. GG Meðaivigt dilka á Kópaskeri er tæp 14 kg en var 15,3 kg á sama tíma í fyrra. Dæmi eru um það að lömb frá bæjum í Öxarfirði og Núpasveit séu allt að þrem kg léttari en lömb frá þessum sömu bæjum voru í fyrrahaust. Garðar Eggertsson, fram- kvæmdastjóri Fjallalambs hf. á Kópaskeri, segir að lítið eða ekk- ert af umframkjöti verði til staðar í haust og að bændur ætli að ala smálömb í vetur og koma þeir væntanlega með nýja markaðs- vöru á næsta ári, páskalömb og sumarlömb. Garðar sagði að nokkrir bænd- ur næðu því ekki að eiga kjöt upp í fullvirðisréttinn, en næðu því kannski að eiga 80% af honum. „Mér kæmi ekki á óvart þó það yrði 30-40 tonnum minna af kjöti hér á húsinu hjá okkur milli ára. Það þýðir minnkandi umsetningu og bitnar á afkomunni,“ sagði Garðar í samtali við Dag. Hann sagði að fastur kostnaður væri sá sami og lambafjöldi svipaður þrátt fyrir mikið minna kjötmagn. Hann sagði að slátur- kostnaður væri ekki að sama skapi minni þó lömbin væru létt- ari. Kjötið flokkast mikið í undir- flokka, í annan og þriðja flokk, en lítið af því fer í fituflokka. Slátrun hefur gengið sam- kvæmt áætlun, lömbum verður slátrað út þessa viku og fullorðnu fé í næstu viku. Áætlað er að slátrun ljúki 14.-15. október. Slátururhúsballið verður haldið 10. október. Lögreglan stöðvaði bifreið við Einarsstaði í Kræklingahlíð um sexleytið sl. laugardag, en bif- reiðin mældist á 160 km hraða. Aðstæður voru mjög slæmar til aksturs, niðadimm þoka og skuggsýnt. Ökumaður var sviptur ökuleyfi og má búast við þungum viðurlögum vegna þessa gáleysislega akstursmáta. Nokkrir fleiri ökumenn voru stöðvaðir vegna hraðaksturs. Bifreið ók út af veginum við Höfn á Svalbarðsströnd síðdegis á föstudag og valt. Ökumaður og farþegi voru fluttir á sjúkrahús til rannsóknar en bifreiðin flutt burtu með kranabifreið. Allmikil ölvun var í miðbæ Akureyrar aðfaranótt laugardags og þurfti lögreglan að hafa Garðar sagði að slátursala hefði verið talsverð en mætti vera meiri, þar væri um hagstæð mat- arinnkaup að ræða. Hann sagði að fjallskil væru léttari nú þegar ræst hefði úr veðri eftir langvar- andi ótíð. IM afskipti af átökum sem flest má rekja til ölvunar. Nokkrir fengu að gista fangageymslur lögregl- unnar. Á laugardagskvöldið var til- kynnt að tvær 10 ára gamlar stúlk- ur sem fóru í gönguferð upp í Hlíðarfjall fyrr um daginn hefðu ekki skilað sér fyrir myrkur, en ættingjar fundu þær áður en hjálparsveit mætti á staðinn en sveitinni hafði verið gert viðvart. Eggjárn var notað til að skemma lakk á bifreiðum sem stóðu við Hjarðarlund og Eyrar- landsveg. Málið er óupplýst. Brotist var inn í Samkomuhús- ið um helgina og brotin upp hurð á skrifstofu Leikfélags Akureyr- ar. Einskis er saknað en óupplýst er hver þar var á ferðinni. GG Fyrsta beina flugið frá Dyflinni: „Verslunin hjá fólkinu mjög eðlileg“ - segir yfirtollvörður Engar vörur voru geröar upp- tækar hjá farþegum sem komu í beinu flugi frá Dyflinni til Akureyrar aðfaranótt sunnu- dags. Flestir reyndust hafa haldið sig innan tilskilinna marka hvað vörukaup varðar en þeir sem fóru yfir strikið greiddu iögboðin gjöld af því sem var umfram heimildir. Tollgæslan á Akureyri hafði boðað hertar aðgerðir í sambandi við beina flugið til Dyflinnar og Edinborgar og að sögn Sigurðar Pálssonar, yfirtollvarðar, hefur þessi viðvörun greinilega skilað árangri. „Þetta var nánast allt eins og það átti að vera og undantekn- ingartilfellin fá. Það voru nokkrir sem greiddu af áfengi ef það var of mikið og ef þeir höfðu keypt vörur fyrir meira en leyfilegt er. í það heila var verslunin hjá fólk- inu mjög eðlileg og ástandið mik- ið betra en verið hefur. Aðvörun- in hefur því greinilega skilað sér,“ sagði Sigurður. Hann sagði að allt hefði farið fram eins og best væri á kosið við tollskoðun og ekkert gert upp- tækt hjá fólki. Hann vonaðist til að þetta myndi áfram ganga svona vel en framundan eru all- nokkrar ferðir til áðurnefndra borga á írlandi og Skotlandi. „Byrjunin lofar góðu og okkur sýnist að fólk hafi tekið mark á þessum aðvörunum og verslar bara innan skynsamlegra marka til að eiga ekki á hættu að lenda í neinu klandri,“ sagði Sigurður. ________________________SS Treg loðnu- og sfldveiði - mest verið landað á Siglufirði Sex loðnubátar þeir Albert, Víkurberg, Bergur, Öm, Hilmir og Björg Jónsdóttir lönduðu 2681 tonni hjá Sfldar- verksmiðjum ríkisins á Siglu- fírði um sl. helgi og er Siglu- fjörður nú orðinn hæsta lönd- unarhöfnin með alls 21323 tonn að meðtöldum afla Sjáv- arborgar sem landaði 650 tonnum um hádegi á mánudag. Á laugardag landaði Guð- mundur Olafur 213 tonnnum í Krossanesi og í gær kom Þórður Jónasson með 300 tonn. Nokkrir bátar hafa fengið slatta en hyggj- ast bíða og reyna að fá meira í sig. Veiði hefur verið mjög treg en veður allgott fram á aðfara- nótt mánudagsins en þá kaldaði nokkuð. Þórshamar landaði 70 tonnum af síld á Neskaupstað í gær sem fékkst í Berufjarðarál og einnig fékk Hólmaborg um 500 tonn á svipuðum slóðum og Háberg um 200 tonn. Síldin er mjög dreifð og köstin því yfirleitt smá. GG Akureyri: Stöðvaður á 160 km hraða - allmikil ölvun í miðbæ Akureyrar

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.