Dagur - 06.10.1992, Blaðsíða 9

Dagur - 06.10.1992, Blaðsíða 9
Þriðjudagur 6. október 1992 - DAGUR - 9 ENSKA KNATTSPYRNAN Þorleifur Ananíasson Kananfuglaveísla á Ewood Park - reyttir, sviðnir og etnir af gráðugum leikmönnum Blackburn Alan Shearer no. 9 er aðalmaðurinn í liði nýliða Blackburn sem nú hafa tekið efsta sætið af Norwich. Úrslit Úrvalsdeildin Arsenal-Chelsea 2:1 Blackburn-Norwich 7:1 Coventry-Crystal Palace 2:2 Ipswich-Leeds Utd. 4:2 Liverpool-Sheffield Wed. 1:0 Manchester City-Nottingham For. 2:2 Middlesbrough-Manchester Utd. 1:1 Q.P.R.-Tottenham 4:1 Sheffield Utd.-Southampton 2:0 Wimbledon-Aston Villa 2:3 Oldham-Everton 1:0 1. deild Brentford-Newcastle 1:2 Bristol Rovers-Notts County 3:3 Cambridge-Derby 1:3 Charlton-Southend 1:1 Grimsby-Peterborough 1:3 Leicestcr-Bamsley 2:1 Luton-Portsmouth 1:4 Oxford-Bimiingham' 0:0 Sunderland-Millwall 2:0 Swindon-Watford 3:1 Tranmere-Bristol City 3:0 Wolves-West Ham 0:0 Úrslit í vikunni: Úrvalsdeildin Arsenal-Manchester City 1:0 1. deild Swindon-Grimsby 1:0 Tranmere-Notts County 3:1 Watford-Sunderland 2:1 Staðan Úrvalsdeildin Blackburn 11 7-3-1 25: 8 24 Norwich 117-2-220:19 23 Coventry 116-3-214:10 21 QPR 115-5-117:10 20 Aston Villa 115-4-2 20:1419 Man. Utd. 115-4-212: 819 Arsenal 115-2-414:1217 Ipswich 11 3-7-116:14 16 Middlesbrough 10 4-3-318:1515 Leeds 113-5-319:1814 Oldham 113-5-319:1914 Chelsea 11 3-4-4 14:13 13 Man. City 113-3-513:1312 Everton 113-3-510:1312 Sheíf. Wed. 113-3-512:1612 Liverpool 113-3-514:1812 Sheff. Utd. 113-3-511:1612 Southampton 1124-5 9:14 10 Tottenham 1124-5 9:1910 Crystal Palace 111-6415:14 9 Wimbledon 112-3-614:18 9 Nottingham Forest 101-3-610:21 6 1. deild Newcastle 9 9-0-0 22: 627 Charlton 10 6-4-0 14: 3 22 Wolves 10 5-5-0 19: 7 20 Tranmere 9 5-3-1 16: 8 18 Swindon 10 5-3-2 20:15 18 Leicester 10 5-3-213:1118 West Ham 9 5-2-2 13: 7 17 Birmingham 9 4-3-2 9:10 15 Millwall 9 3-4-2 13: 8 13 Peterborough 9 4-14 12:1313 Sunderland 9 3-2412:1411 Portsmouth 9 3-2-410:1311 Bristol City 9 3-2413:2111 Watford 10 3-2-5 15:19 11 Oxford United 9 24-3 10:1010 Grimsby 9 2-3412:14 9 Derby 10 2-34 13:13 9 Notts County 102-3-513:21 9 Brentford 9 2-2-510:12 8 Southend 9 2-2-5 8:12 8 Cambridge United 10 2-2-6 6:18 8 Luton 9144 8:16 7 Bristoi Rovers 10 1-3-6 15:24 6 Barnsley 91-2-6 7:11 5 Það urðu miklar sviptingar í Úrvalsdeildinni um helgina og segja má að þetta hafi verið helgi nýliðanna. Liðin þrjú sem komu upp úr 2. deild í fyrra hafa öll byrjað mjög vel og nú situr eitt þeirra, Black- burn í efsta sætinu eftir glæsi- legan sigur og hin tvö, Ipswich og Middlesbrough brugðu fæti fyrir stórliðin Leeds Utd. og Manchester Utd. Já knatt- spyrnan er óútreiknanleg, en lítum aðeins á leiki helgarinn- ar. ■ Efsta liðið í úrvalsdeildinni Norwich var heldur betur tekið til bæna af leikmönnum Black- burn sem sigruðu í leiknum 7:1. Það skipti engu máli fyrir Black- burn þó í lið þeirra vantaði Mike Newell, David May og Tony Dobson. Roy Wegerle sem lék nú sinn fyrsta heila leik í vetur skoraði tvívegis og lagði Alan Shearer upp bæði mörk hans. Tim Sherwood sem keyptur var frá Norwich skoraði einnig gégn sínum gömlu félögum áður en Rob Newman lagaði stöðuna fyr- ir Norwich í 3:1 áður en flautað var til leikhlés. Shearer bætti síð- an fjórða marki Blackburn við stuttu eftir hlé og Gordon | Cowans því fimmta með skoti úr aukaspyrnu í stöngina og inn. Stuart Ripley gerði mark númer sex eftir sendingu Shearer sem skoraði sjálfur lokamarkið eftir sendingu Alan Wright. Alan Shearer átti sannkallaðan stór- leik fyrir Blackburn, enda mikils af honum vænst og má geta þess að hann hefur meira í laun en all- ir leikmenn Norwich samanlagt. Sigur Blackburn hefði hæglega getað orðið stærri og nú vænta margir þess að leiðin liggi niður hjá Norwich, en hins vegar gæti Blckburn blandað sér af alvöru í baráttuna um meistaratitilinn í vor. ■ Leikmenn Leeds Utd. virtust úti á þekju í leik sínum gegn Ipswich sem sýndur var í sjón- varpinu og nýliðarnir sigruðu verðskuldað 4:2 í fjörugum leik. Það var sem Leeds Utd. væri að spila æfingaleik þar sem áhersla væri lögð á að láta John Lukic hafa sem mest að gera í markinu, svo slakur var varnarleikur liðs- í vikunni voru leiknir síðari leikirnir í fyrstu umferð Evrópukeppnanna í knatt- spyrnu. Af ensku liðunum eru Liverpool og Sheffield Wed. örugglega komin í aðra umferð, en Manchester Utd. og Cardiff City úr leik. Það er hins vegar ekki Ijóst hver örlög Leeds Utd. verða þrátt fyrir tvo leiki gegn Stuttgart. Eftir að hafa tapað 3:0 í fyrri leiknum í Þýskalandi átti Leeds Utd. frábæran leik í vikunni á Elland Road og sigraði 4:1 með mörkum Gary Speed, Gary McAllister úr víti, Eric Cantona og Lee Chapman. Samkvæmt þessum úrslitum var Leeds Utd. úr leik þar sem þeir fengu á sig mark á heimavelli, en í ljós kom að undir lok síðari leiksins er spennan var að gera út af við þjálfara Stuttgart skipti hann inná leikmanni sem ekki mátti leika með og leikurinn því kærður. Leeds Utd. fór fram á að Stutt- gart yrði vikið úr keppni, en ins. En eflaust hefur setið þreyta í liðinu eftir Evrópuleikinn gegn Stuttgart í vikunni auk þess sem leikmenn hafa haft hugann við fundinn mikilvæga hjá Evrópu- knattspyrnusambandinu þá um daginn. Ipswich hafði yfir 3:0 í hálfleik, Chris Kiwomya með skalla óvaldaður eftir hornspyrnu skoraði fyrsta markið á 25. mín. Gamla kempan John Wark gerði síðan tvö mörk í röð, úr auka- spyrnu á 36. mín. með lúmsku skoti sem Lukic hafði hönd á og sfðan skoraði hann úr vítaspyrnu á 44. mín. eftir mjög klaufalegt brot David Batty á Paul Goddard í teignum. Meistararnir voru þó ekki alveg búnir að vera og Mike Stockwell aðþrengdur af Lee Chapman skoraði sjálfsmark á 55. mín. og Gary Speed bætti öðru við, glæsilegu skalla marki eftir hornspyrnu 10 mín. síðar. Jason Dozzell gerði síðan endanlega út um leikinn fyrir Ipswich með hörkuskalla á 70. mín. og Ipswich hefði hæglega geta aukið muninn undir lokin, en besti maður Leeds Utd., markvörðurinn John Lukic hélt liðinu á floti. ■ Arsenal sigraði í nágranna- slagnum gegn Chelsea og náði forystu snemma leiks með marki frá Paul Merson. Liðið fékk síð- an fjölda góðra færa til að auka muninn t.d. misnotaði Lee Dixon vítaspyrnu, en Dennis Wise náði þess í stað að jafna fyrir Chelsea. Stuttgart fór fram á að úrslitin stæðu og töldu jafnframt að Leeds Utd. hefði einnig verið með ólöglegt lið. Á laugardag var síðan dæmt í málinu þannig að liðin yrðu að leika þriðja leikinn. Leslie Silver formaður Leeds Utd. var óánægður með dóminn og taldi að með honum væri gefið Lee Chapman skallaði inn fjórða mark Leeds LJtd. gegn Stuttgart þrátt fyrir stranga gæslu Guido Buchwald. Það var síðan 5 mín. fyrir leiks- lok að Anders Limpar kom inná hjá Arsenal sem varamaður í stað Marson og með sinni fyrstu snertingu lagði hann upp sigur- mark Arsenal fyrir Ian Wright. ■ Jafnteflið í leik Middlesbrough og Manchester Utd. var sann- gjarnt þrátt fyrir að leikmenn Man. Utd. teldu sig eiga að fá vítaspyrnu í síðari hálfleik sem dómarinn sleppti. Markið sem Utd. skoraði í leiknum kom þó úr vítaspyrnu eftir að brotið var á Dennis Irwin á 44. mín. og Steve Bruce skoraði úr spyrnunni. Bernie Slaven jafnaði fyrir Middlesbrough í síðari hálfleik og þar við sat. ■ Liverpool vann kærkominn sigur er liðið lagði Sheffield Wed. að velli með eina marki leiksins. Er 10 mín. voru til leiksloka skoraði Don Hutchison sigur- mark liðsins með misheppnuðu skoti sem kom Chris Woods markverði Sheff. Wed. á óvart. Sigur Liverpool var þó sanngjarn og liðið fékk mun fleiri tækifæri en gestirnir, en sjálfstraustið er ekki það sama og fyrr hjá leik- mönnum Liverpool og Woods í marki Sheff. Wed. átti mjög góð- an leik. Sigurinn er mikill léttir fyrir liðið, en sjúkralistinn lengd- ist enn er Paul Stewart varð að yfirgefa völlinn. Hins vegar er þess að geta að Hutchison hefði ekki leikið með ef allir hefðu ver- ið heilir. fordæmi þannig að tekið yrði vægt á öllum brotum á lögum keppninnar í framtíðinni. Leeds Utd. íhugar nú að áfrýja úrskurðinum og hefur til þess tíma fram á þriðjudag, en þriðji leikur verður sennilega leikinn í Rotterdam um næstu helgi og mun gefa báðum félögum mikið í aðra hönd fjárhagslega. Stuttgart fékk einnig fjársekt fyrir að reyna að bera Leeds Utd. röngum sök- um fyrir réttinum. Þessi úrskurður sýnir að ensku liðin sitja ekki við sama borð og aðrir í þessu Evrópurugli. Ég er ekki í nokkrum vafa um að ef Leeds Utd. hefði verið í sporum Stuttgart þá hefði þeim verið sparkað hið snarasta úr keppn- inni. Það er einmitt það sem á að gera við Stuttgart, en undirlægju- háttur og hlutdrægni þessara forkólfa er slíkur að sumum leyf- ist að brjóta reglur sem settar eru, en öðrum er refsað harðlega og vísað úr keppni jafnvel árum saman eins og gert var við ensku liðin á sínum tíma. Þ.L.A. ■ Tottenham hafði hins vegar ekki sama láni að fagna og Liverpool þrátt fyrir að hafa yfir í hálfleik gegn Q.P.R. á útivelli með marki Teddy Sheringham. Q.P.R. sneri leiknum sér í hag í síðari hálfleik og Andy Sinton var arkitektinn að fjórum mörk- um liðsins á 19 mín. kafla. Ian Holloway gerði fyrsta markið, síðan Ray Wilkins með skalla og að lokum bætti Gary Penrice tveim við. ■ Aston Villa heldur áfram mjög athyglisverðri sigurgöngu sinni sem gæti hæglega enda með meistaratitli. Nú voru fórnar- lömbin frá Wimbledon sem þó höfðu heimavöllinn sér í hag. Dean Saunders kom Villa í 2:0 með góðum mörkum, en hann var óstöðvandi fyrir framan mark andstæðinganna eftir að hann losnaði frá Liverpool. Paul Miller lagaði stöðuna fyrir Wimbledon sem hafði undirtökin langtímum saman í síðari hálfleik. En þó kom mark leiksins, Dalian Atkin- son vann boltann á eigin vallar- helmingi, lék áfram framhjá hverjum vamarmanni Wimbledon á fætur öðrum áður en hann sendi boltann framhjá Hans Segers í marki Wimbledon, glæsilegt mark. Andy Clarke náði að laga stöðuna fyrir Wimbledon með marki undir lok ieiksins, en sigur Villa var í höfn. ■ Coventry varð að sætta sig við 2:2 jafntefli á heimavelli gegn Crystal Palace eftir að hafa tví- vegis náð forystu í leiknum með mörkum Andy Pearce og Kevin Gallacher. Palace liðið barðist vel og náði sér í stig með mörk- um Chris Coleman og Eddie McGoldrick og voru öll mörkin skoruð í fyrri hálfleik. ■ Annað 2:2 jafntefli var í viðureign Manchester City gegn Nottingham For. þar sem Stuart Pearce jafnaði fyrir Forest undir lok leiksins. Rick Holden og Fitzroy Simpson gerðu mörkin fyrir City, en auk Pearce skoraði Ray McKinnon fyrir Forest. ■ Sheffield Utd. sigraði Sout- hampton 2:0 á heimavelli með mörkum þeirra Dane Whitehouse og Adrian Littlejohn. ■ Á sunnudag sigraði Oldham lið Everton 1:0 og skoraði Richard Jobson sigurmark Oldham strax á 8. mín. Margir fyrrum leik- menn Everton leika með Oldham og hafa þeir Everton menn stundum nefnt Oldham varaliðið sitt. Liverpool menn hafa aldrei viljað vera minni, seldu því nokkra menn til Aston Villa til að geta kallað það sitt varalið, en nú hafa afkvæmin vaxið foreldr- unum yfir höfuð og eiga í fullu tré við þau eins og dæmin sanna. Þ.L.A. Evrópumafian söm við sig

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.