Dagur - 06.10.1992, Blaðsíða 6

Dagur - 06.10.1992, Blaðsíða 6
6 - DAGUR - Þriðjudagur 6. október 1992 Mannlíf Myndir: Ingibjörg Magnúsdóttir Dagur í Limdúnum Norðlendingar sem aðrir lands- menn munu á næstu vikum streyma til borga á Bretlands- eyjum. London er kjörinn staður fyrir áhugasama mann- lífsskoðara og myndirnar hér á síðunni eru teknar er blaða- maður Dags var þar á ferð á dögunum. Þessa helgi stóð yfír karnival í Notting Hill sem mun vera stærsta og þekktasta karnival í Evrópu. Þar var saman komið fólk af fjölda kynþátta, bæði sem þátttak- endur og áhorfendur, en meðal hópanna í skrúðgöngunnivoru Bahá’íar sem gengu undir yfír- skrift um að allir kynþættir væru stjörnur á sama himnin- um. Fjöldi fuglategunda þiggur brauðmola úr pokum þeirra er fá sér gönguferð í St. James Park. Þar eru einnig íkornar sem borða úr lófum þeirra sem gefa þeim og grafa síðan gjafirnar sem vetrar- forða með einstaklega skemmti- legum tilþrifum. Aftan frá séð minna þeir helst á norðlenskar húsfreyjur sem eru að stinga slát- urkeppum í frystikistu. Garður- inn er rétt við Buckingham höll, og þangað er upplagt að rölta eft- ir að ferðamaðurinn hefur fylgst með lífvarðaskiptunum, en vörð- ur í rauðum jakka og með bjarn- arskinnshúfu er nokkurs konar tákn borgarinnar. Dýragarðurinn er í horni Regents Park. Þar er hægt að kíkja á aðra hliðina á risapönd- unum og koma síðan daginn eftir til að athuga hvort þær hafi snúið sér við. Dýragarðurinn hefur ver- ið mikið í umræðunni í sumar og forsvarsmenn hanns hótuðu lok- un vegna fjársveltis, hótunin hafði ekki áhrif til aukins fram- lags frá opinberum aðilum en almenningur þyrptist í garðinn til að sýna áhuga sinn og fjársterkir aðilar hlupu undir bagga. Dag- stund í dýragarðinum býður upp á veru á ágætu útivistarsvæði og jafnframt skepnuskoðuninni er tilvalið að kíkja á mannlífið. Dagur í London getur orðið ágæt perla á minningabandinu. IM Já, þeir eru þarna enn. Hvernig kemur hún ísnum gegnum blæjuna? Bahá’íar í karnivaii. Með fugla frá toppi til táar. Þær koma að austan, vestan, norðan og sunnan - og hittast í Lundúnum Sex nunnur, appclsína og önd. Ber er hver að baki og svo framvegis.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.