Dagur - 06.10.1992, Side 14
14 - DAGUR - Þriðjudagur 6. október 1992
Minning
Ý Jóhann Kristjánsson
Fæddur 3. september 1909 - Dáinn 7. september 1992
Alfaðir gefi þér allatíð styrk
einkum efbrautin þín finnst þér svo myrk
leiði þig seinast í Ijósanna-höll
lífsins við enda. - Par sjáumst við öll.
Ljóðmæli eftir Kristján Jónsson langafa.
Haustið er komið og elsku afi
okkar hefur kvatt okkur öll. Eins
og haustið með aila sína liti átti
afi litríka ævi við gleði og sorg.
Viljum við minnast hans og
þakka fyrir allar ánægjulegu
stundirnar sem við áttum með
honum.
Afi okkar var fæddur í Svein-
bjarnargerði á Svalbarðsströnd.
Foreldrar hans voru Kristján
Jónsson og Rannveig Jóhannes-
dóttir. Systkini hans voru Hjalti
sem lést ungur, Jón og Guðfinna
sem enn eru á lífi.
Afi bjó á Svalbarðsströnd til
ársins 1963. Hann byggði húsið
Sæborg á Svalbarðseyri ásamt
konu sinni Svövu Einarsdóttur og
eignuðust þau saman tvö börn,
Trausta og Sóleyju. Þau fengu
fljótt að finna fyrir sorginni, því
farsæl ár þeirra saman urðu ekki
mörg, þar sem ástkær eiginkona
og móðir hvarf á braut. Blessuð
sé minning hennar.
Eftir það voru ráðskonur afa
innan handar og hjálpuðu honum
með börnin, en þau dvöldust
einnig hjá ættingjum og vinum.
Afi iagði hart að sér við vinnu
Uppboð
Uppboð munu byrja
á skrifstofu embættisins
að Hafnarstræti 107, 3. hæð, Akureyri,
sem hér segir á eftirfarandi eignum:
Lokastígur2, íb. 101, Dalvík, þingl.
eig. Hannes Sveinbergsson, gerð-
arbeiðendur Húsnæðisstofnun
ríkisins og innheimtumaður rfkis-
sjóðs, 9. október 1992 kl. 13.45.
Rauðamýri 22, Akureyri, þingl. eig.
Halldór Bachman, gerðarbeiðandi
Búnaðarbanki íslands, Geislagötu
5, 9. október 1992 kl. 13.15.
Ránargata 10 b, Akureyri, þingl.
eig. Eyfirsk matvæli hf., gerðarbeið-
endur Lífeyrissjóður verslunar-
manna og Vátryggingarfélag ís-
lands hf., 9. október 1992 kl. 14.00.
Sandskeið 10-12, Dalvík, þingl. eig.
Hallgrímur Antonsson, gerðarbeið-
andi Sjóvá-Almennar hf., 9. október
1992 kl. 13.15.
Sunnuhlíð 21 d, Akureyri, þingl. eig.
Aðalheiður B. Vilheimsdóttir og Ein-
ar Viðarsson, gerðarbeiðandi Veð-
deild (slandsbanka hf., 9. október
1992 kl. 14.00.
Tungusíða 6, Akureyri, þingl. eig.
Rögnvaldur Sigurðsson, gerðar-
beiðandi innheimtumaður ríkis-
sjóðs, 9. október 1992 kl. 13.45.
Ægisgata 8, Akureyri, þinal. eig.
Heiður Jóhannesdóttir og Áki Sig-
urðsson, gerðarbeiðendur inn-
heimtumaður ríkissjóðs, Vátrygg-
ingarfélag íslands hf. og (slands-
banki hf„ 9. október 1992 kl. 13.45.
Sýslumaðurinn á Akureyri
5. október 1992.
og var hann mikið við smíðar á
ströndinni og eru þau ófá hand-
tökin eftir hann þar.
Árið 1963 fluttust þau til Akur-
eyrar, bjó afi þar hjá pabba
okkar, Trausta og hans fjöl-
skyldu.
Þar átti Jói afi margar góðar
stundir með okkur systkinunum í
Einholtinu. Hann var einnig
iðinn við að benda okkur á ef við
vorum að gera eitthvað sem við
áttum ekki að gera.
Afa var mjög annt um okkur
og vildi að við værum stillt og
hlýðin börn.
Árið 1981 flutti afi svo í sveit-
ina til Sóleyjar dóttur sinnar. í
sveitinni var Jói afi sæll, þar
sinnti hann ýmsum léttum
verkum, því hann var mikill
athafnamaður og vildi alltaf hafa
eitthvað fyrir stafni. Hann las
mikið af bókum og voru það
aðallega ævisögur og heimildarit,
einnig hlustaði hann mikið á
útvarp og hafði mjög gaman af
fallegum söng.
Þegar við eldri systkinin uxum
úr grasi og stofnuðum okkar eig-
in heimili fylgdist afi alltaf vel
með því hvað við höfðum fyrir
stafni.
Þegar við komum í heimsókn í
Garðshorn stóð afi oftast úti á
tröppum með bros á vör og opinn
faðminn og tók á móti okkur.
Oft fórum við í berjamó hjá
þeim og kom afi þá ætíð með upp
í móa, einhverja stund. Síðan
fengum við kaffi og kökur og
vildi afi þá frétta eitt og annað af
okkur í fjölskyldunni.
Sólrún Inga sem er yngst af
okkur systkinunum varð oft eftir
í sveitinni og naut hún þá, ásamt
frændsystkinum sínum, samvist-
anna við afa.
Afi var mikið til sjós og hafði
alltaf áhuga fyrir sjómennsku.
Pabbi okkar er einnig fyrir sjó-
sókn og er mikið á sjó. Mikki Jói
og Þyrí voru oft með pabba. Afi
hringdi þá reglulega til Þyríar á
Dalvík þar sem hún bjó um tíma,
til að spyrja hvernig hefði gengið,
svo talaði hann um hvernig
veðurspáin ætti að vera. Hann
vildi taka þátt í þessu með okkur
þótt hann væri ekki á staðnum.
Hann afi okkar var mjög lag-
inn við að yrkja ljóð og hafði
gaman af að setja saman falleg
ljóð til barnabarna sinna þegar
honum fannst tilefni til.
Það var líka mjög gaman að fá
kort frá afa, sem hann færði okk-
ur við ýmis hátíðleg tækifæri,
hann komst svo fallega að orði og
stundum var skemmtilegum ljóð-
um bætt við, sem andinn blés
honum í brjóst.
Með þessum orðum kveðjum
við Jóa afa með söknuði og þökk-
um fyrir samverustundirnar sem
við áttum með honum.
Far þú í friði.
Friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Þyrí Margrét,
Anna Svava,
Mikael Jóhann
og Sólrún Inga.
SERVAS-samtökin:
Alþjóðleg samtök
ferðalanga
„SERVAS-samtökin eru alþjóð-
leg samtök fólks, sem vill stuðla
að auknum skilningi milli ein-
staklinga og þjóða, styrkja tengsl
og vinna gegn hleypidómum og
vanþekkingu. SERVAS er borið
uppi af fjölda einstaklinga, sem
með opnum huga leitast við að
hjálpa og miðla upplýsingum til
erlendra gesta er að garði ber.
SERVAS-meðlimir bjóða að-
stoð og fyrirgreiðslu, þar á meðal
gistingu á eigin heimilum, ef
aðstaða er til þess. Þessi fyrir-
greiðsla er að jafnaði gagnkvæm.
SERVAS-meðlimur liðsinnir
með því að mæta fólkinu, ræða
við það og veita því upplýsingar
og þannig auðvelda því að kynn-
ast menningu þjóðarinnar og
umhverfinu, sem við hrærumst í.
Viðkomandi öðlast um leið kynni
af menningu og viðhorfum
gestsins. Kynnin og ánægjan
verða gagnkvæm.
SERVAS-meðlimir eru skráðir
hjá samtökunum í viðkomandi
landi. Það býður upp á mikla
möguleika fyrir ferðafólk til að
kynnast öðrum, vítt um heims-
byggðina, en SERVAS starfar í
flestum löndum heims. SERVAS
hefir ráðgefandi stöðu og viður-
kenningu sem alþjóðlegur félags-
skapur hjá Félagsmálaráði Sam-
einuðu þjóðanna (UN Economic
and Social Counsel).
Á íslandi eru nú starfandi fjór-
ir meðlimir, tveir á Reykjavíkur-
svæðinu og tveir norðanlands.
Við viljum vekja athygli á þessu
Hótel Harpa:
ísberg kynnir
ýmsan búnað
Fyrirtækið ísberg er með sýn-
ingu á búnaði fyrir hótel, veit-
ingahús og mötuneyti á Hótel
Hörpu á Akureyri um þessar
mundir. I gær var sýning fyrir
félagsmenn í Sambandi veit-
inga- og gistihúsa.
I dag kl. 17 hefst sýning fyrir
aðra veitingamenn, starfsmenn í
mötuneytum og fleiri í þessu fagi
á Norðurlandi eystra.
Sýning á söluvörum ísbergs er
í tengslum við þing Sambands
veitinga- og gistihúsa. SS
starfi. Starfið laðar að, veitir
ánægju, skapar kynni, leiðir til
vináttutengsla og það virkar
gagnkvæmt. Þeir sem láta í té
aðstoð geta notið aðstoðar fyrri
gistivina og annarra meðlima
samtakanna, vítt um veröldina.
Frekari upplýsingar um sam-
tökin veitir Jóhann Jakobsson,
Pósth. 1164, 121 Reykjavík.
S. 91-22848/652170.“
(Fréttatilkynning)
Frá fyrsta fundi nýkjörins starfsmenntaráðs félagsmálaráðuneytisins 17.
september sl. Fv. Halldór Grönvold skrifstofustjóri, Erling Aspelund starfs-
mannastjóri, Sjöfn Ingólfsdóttir, formaður starfsmannafélags Reykjavíkur-
borgar, Gylfi Kristinsson, deildarstjóri í félagsmálaráðuneytinu, Bolli Árna-
son rekstrartæknifræðingur og Halldóra J. Rafnar menntamálafulltrúi.
Ljósmynd: Róbert Ágústsson.
Félagsmálaráðherra skipar starfs-
menntaráð félagsmálaráðimeytísins
Félagsmálaráðherra, Jóhanna
Sigurðardóttir, hefur skipað
starfsmenntaráð félagsmálaráðu-
neytisins til næstu tveggja ára.
Skipun ráðsins er í samræmi við
ný lög sem samþykkt voru í maí
sl. um starfsmenntun í atvinnulíf-
inu, nr. 19/1992. í starfsmennta-
ráði félagsmálaráðuneytisins eiga
sæti:
Fulltrúar Alþýðusambands
íslands: Guðmundur Gunnars-
son, formaður Félags ísl. raf-
virkja og Halldór Grönvold skrif-
stofustjóri Landssambands iðn-
verkafólks. Fulltrúi Bandalags
starfsmanna ríkis og bæja: Sjöfn
Ingólfsdóttir, formaður Starfs-
mannafélags Reykjavíkurborgar.
Fulltrúi Vinnumálasambands
samvinnufélaganna: Erling
Aspelund starfsmannastjóri.
Fulltrúar Vinnuveitendasam-
bands íslands: Bolli Árnason
rekstrartæknifræðingur og H^ll-
dóra J. Rafnar menntamálafull-
trúi.
Fulltrúi félagsmálaráðherra í
starfsmenntaráðinu er Gylfi
Kristinsson, deildarstjóri í félags-
málaráðuneytinu. Á fyrsta fundi
nýskipaðs starfsmenntaráðs var
hann kosinn formaður þess til
eins árs.
Verkefni starfsmenntaráðs
félagsmálaráðs er m.a. að úthluta
styrkjum til starfsmenntunar og
vera stjórnvöldum til ráðuneytis
um stefnumótun og aðgerðir á
sviði starfsmenntunar. Ráðið
skal hafa samráð við og efla
frumkvæði fræðslunefnda
atvinnulífsins.
Félagsmálaráðuneytið auglýsti
í ágúst sl. í fyrsta skipti eftir
umsóknum um stuðning við verk-
efni á sviði starfsmenntunar í
atvinnulífinu sbr. framangreind
lög. Umsóknarfrestur rann út 10.
september sl. Samtals bárust
umsóknir um stuðning við 75 við-
fangsefni frá 44 aðilum. Sótt var
um stuðning að upphæð samtals
um 120 milljónir króna. Sam-
kvæmt fjárlögum er gert ráð fyrir
að verja 48 milljónum til starfs-
menntunar á vegum félagsmála-
ráðuneytisins. Það er tæplega
fjórföldun frá árinu 1991.
F élagsmálaráðuneytið,
22. september 1992.
MENOR kynna Aðalstein Svan
Hér má sjá myndlistarmanninn
Aðalsteín Svan Sigfússon á
Súlnabergi og er eitt verka hans í
bakgrunni. Menningarsamtök
Norðlendinga hafa endurvakið
listkynningar sem voru áður í
samvinnu við Alþýðubankann á
Akureyri en verða nú í samvinnu
við Súlnaberg og Byggðastofnun
á Akureyri. Aðalsteinn Svanur
sýnir 11 málverk á Súlnabergi og
8 í húsnæði Byggðastofnunar.