Dagur - 17.11.1992, Síða 4
4 - DAGUR - Þriðjudagur 17. nóvember 1992
ÚTGEFANDI: DAGSPRENT HF.
SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31,
PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI, SÍMI: 96-24222
ÁSKRIFT KR. 1200 Á MÁNUÐI
LAUSASÖLUVERÐ KR. 110
GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMNETRA 765 KR.
RITSTJÓRI: BRAGI V. BERGMANN (ÁBM.)
FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON
BLAÐAMENN:
GEIR A. GUÐSTEINSSON, HALLDÓR ARINBJARNARSON (iþróttir),
INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 96-41585),
JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON,
ÓLI G. JÓHANNSSON, ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON,
SIGRÍÐUR ÞORGRÍMSDÓTTIR (Sauöárkróki vs. 95-35960, fax 95-36130),
STEFÁN SÆMUNDSSON, ÞÓRÐUR INGIMARSSON
LJÓSMYNDARI: ROBYN ANNE REDMAN
PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN
ÚTLITSHÖNNUN: RÍKARÐUR B. JÓNASSON
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON
DREIFINGARSTJÓRI:
HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL
PRENTVINNSLA: DAGSPRENT HF.
SÍMFAX: 96-27639
Án vaxtalækkunar
verður ekki samið
Atvinnumálanefnd ríkisins og aðilar vinnu-
markaðarins hafa haldið marga fundi að
undanförnu til að reyna að komast að sam-
komulagi um sameiginlegar tillögur í
atvinnu- og efnahagsmálum. Síðustu daga
hefur viðræðunum miðað hægt og snurða
hlaupið á þráðinn. Þar ber hæst að Guðmund-
ur J. Guðmundsson, formaður Dagsbrúnar í
Reykjavík og fyrrum formaður Verkamanna-
sambands íslands, ákvað um helgina að
segja skilið við starfið í atvinnumálanefndinni
og hætta þar með þáttöku í viðræðunum.
Gagnrýni Guðmundar J. og annarra Dags-
brúnarmanna beinist aðallega að grunnhug-
myndinni í viðræðunum, þ.e. að færa kostnað
frá atvinnurekstrinum yfir á almenning. Þeir
sætta sig ekki við þá leið. Eins gagnrýna þeir
vinnubrögð fulltrúa Alþýðusambandsins í
nefndinni harðlega.
Gagnrýni Dagsbrúnarmanna á störf og
stefnu atvinnumálanefndarinnar er í senn
skiljanleg og rökrétt. Þeir hafa bent á vaxandi
skuldsetningu heimilanna og sagt að ef ná
eigi þjóðarsamstöðu um aðgerðir í efnahags-
og atvinnumálum verði hún að byggja á for-
sendum sem launafólk geti sætt sig við.
í ályktun sem trúnaðarráð Dagsbrúnar
samþykkti í síðustu viku er skorað á ríkis-
stjórnina að standa við gefin fyrirheit um að
lækka vexti, efla skatteftirlit og bæta atvinnu-
ástand. Sú áskorun sýnir glöggt hve bilið,
sem þarf að brúa, er í raun breitt. Guðmundur
J. Guðmundsson hefur til dæmis bent á að
það þurfi beinlínis hugmyndaflug til að ræða
um að færa nokkurra milljarða króna kostnað
frá atvinnulífinu yfir á launþega, án þess að
minnast einu orði á vaxtalækkun. Undir þau
orð Guðmundar J. skal tekið. Það er ótrúlegt
en satt að hvorki formaður Vinnuveitenda-
sambandsins né ráðherrar ríkisstjórnarinnar
hafa nefnt lækkun vaxta sem forgangsverk-
efni í efnahagsmálunum. Vaxtalækkun er
ekki inni í myndinni, að því er virðist. Þó ætti
öllum að vera ljóst að raunvextir hér á landi
eru allt of háir og þyrftu að lækka um 3-4% án
tafar. Hvorki atvinnulífið né heimilin í landinu
standa undir þeim okurvöxtum sem nú eru í
boði.
Atvinnumálanefnd ríkisstjórnarinnar verð-
ur að snúa við blaðinu og boða umtalsverða
vaxtalækkun sem eitt meginvopnið í barátt-
unni sem framundan er. Ef hún gerir það ekki
eru boðaðar aðgerðir í efnahags- og atvinnu-
málum unnar fyrir gýg. Þær yrðu dæmdar til
að mistakast því án vaxtalækkunar verður
ekki samið um nokkurn skapaðan hlut. BB.
Hvað er parkinsonssjúkdómur?
Boð til vöðvanna um að hreyfast, myndast í heila. Boðin berast gegnum bas-
ai ganglía til vöðvanna, með hjálp dópamíns sem myndast í substantía nígra.
Stjórnun vöðvahreyfinga og þar
með hreyfinga útlimanna er hluti
af starfi heilans. Jafnvel einföld-
ustu hreyfingar krefjast flókins
samstarfs heila og vöðva, og til-
tölulega litlar skemmdir í heila
geta valdið hreyfitruflunum. í
parkinsonssjúkdómi skerðist
meðal annars geta heilans til að
koma hreyfingu af stað. Djúpt
inni í heilahvelunum er staðsett-
ur fjöldi taugafruma, sem nefnast
einu nafni basal ganglía. Neðsti
hluti þessa svæðis er dökkbrúnn
að lit og nefnist substantía nígra
(sortuvefur). Við vitum að í
parkinsonssjúkdómi eru það
þessar dökkbrúnu taugafrumur
sem eru sjúkar.
í þessum taugafrumum mynd-
ast við eðlilegar aðstæður efni,
sem nefnist dópamín. Þetta efni
er nauðsynlegt til að taugafrum-
an geti starfað á eðlilegan máta,
þannig að boð, sem henni berast
frá annarri taugafrumu, geti bor-
ist áfram rétta leið (sjá mynd 2).
Vanti dópamín í heilann koma
fram truflanir í vöðvahreyfingum
svipaðar og við parkinsonssjúk-
dóm.
Astæða þessarar truflunar í
myndun dópamíns er óþekkt.
Það er á hinn bóginn mögulegt,
með gjöf lyfja, að koma starfsemi
hinna sjúku taugafruma í nær
eðlilegt horf á ný, en að því verð-
ur vikið hér á eftir.
Engir tveir sjúklingar með
parkinsonssjúkdóm hafa
nákvæmlega sömu sjúkdóms-
einkenni, en það eru þó viss ein-
kenni sem flestir þessara sjúkl-
inga hafa.
Flestum sjúklingum finnst
hreyfihömlunin vera það ein-
kenni, sem mestum óþægindum
veldur. Engar lamanir eru, en
mjög erfitt getur verið að hefja
hreyfingar.
Þetta kemur til dæmis í Ijós
þegar sjúklingurinn stendur upp
úr stól, hneppir hnappi, borðar
með hníf og gaffli eða klæðist.
Sjúklingurinn getur fram-
kvæmt hreyfinguna en ákaflega
hægt og treglega. Þessi hreyfi-
tregða er mjög óþægileg fyrir
sjúklinginn, en þó ekki eingöngu
hann, því heilbrigður maki getur
þurft að sýna mikla þolinmæði
þegar einföld hreyfing tekur
langan tíma.
Auk hreyfitregðunnar finnur
sjúklingurinn fyrir stirðleika í
vöðvum og jafnframt skjálfta,
einkum í höndum. Þessi skjálfti
er verstur þegar sjúklingurinn sit-
ur og hvílist en minnkar stundum
við hreyfingu. Sumum sjúkling-
um finnst skjálftinn óþægilegasta
einkennið.
Talörðugleikar eru enn eitt
einkennið, röddin verður veik og
blæbrigðalítil. Með tímanum
geta bæst við gangtruflanir, sjúkl-
ingurinn verður smástígur, hok-
inn og göngulagið hikandi. Jafn-
fram getur sjúklingurinn orðið
dettinn. Dettnin orsakast af bilun
í brautum í heilanum, sem við
eðlilegar aðstæður sjá til þess að
við höldum jafnvægi, en þessar
brautir eru háðar taugafrumum
þeim í basal ganglía sem áður var
minnst á.
Venjulega er sjúkdómurinn
mjög vægur í upphafi, en getur
síðan versnað með árunum, og
þá oft hægt og sígandi. Auk þess
getur ástandið verið mjög breyti-
legt, bæði frá degi til dags, en
einnig geta komið löng tímabil
þegar sjúklingnum líður sérstak-
lega vel eða illa. Jafnframt geta
orðið umtalsverðar sveiflur á ein-
um og sama degi.
Enginn getur skýrt þessar
sveiflur en flestir sjúklingar með
parkinsonssjúkdóm þekkja þær
af eigin raun. Greinilegt er að
geðrænt ástand hefur mikil áhrif
á einkenni sjúklingsins. Þetta
þýðir þó ekki að um geðsjúkdóm
sé að ræða, því það er jú vitað að
sjúkdómurinn orsakast af truflun
í efnaskiptum heilans svo sem að
framan er getið.
Vegna svipbrigðaleysis og lágr-
ar hikandi raddar, virðast sumir
parkinsonssjúklingar treggreindir
eða andlega skertir. Sýni maður
þolinmæði kemur þó oft í ljós að
maður getur náð mjög góðu sam-
bandi við sjúklinginn auk þess
sem í ljós kemur að andlegt
ástand er alveg eðlilegt. Þó er
þess að geta að langt genginn
parkinsonssjúkdómur getur haft í
för með sér minnistruflanir.
Félag parkinsonssjúklinga
á Akureyri og nágrenni.
Greinin er unnin upp úr fræðsluriti Park-
insonssamtakanna á íslandi.
Greinaröð um
parkmsonssjúkdómiim
Félag parkinsonssjúklinga á Akureyri og nágrenni efnir til
fræðslu- og kynningarfundar í Glerárkirkju næstkomandi laug-
ardag. Af því tilefni munu nú í vikunni birtast þrjár greinar í
Degi frá félaginu um parkinsonssjúkdóminn og læknismeðferð
til að stemma stigu við honum.
Fyrsta greinin birtist hér að ofan en hinar tvær síðar í vikunni.
Ritstj.
Almennt námskeið um kristið
líf og kristinn vitnisburð
í marsmánuði í vetur mun hinn
frægi bandaríski prédikari Billy
Graham halda kristilegar sam-
komur í Essen í Þýskalandi.
Hann hefur haldið slíkar sam-
komur víða út um heim og hefur
ætíð fylgt þeim mikil trúarvakn-
ing. Efni frá fimm samkomum í
Essen, 17.-21. mars, mun verða
sent til allra Evrópulanda um
gervihnött. Ráðgert er að taka
við þessum sendingum á nokkr-
um stöðum á íslandi, þar á meðal
á Akureyri, og verður efninu
varpað á skerm þannig að sem
flestir geti notið þess sem þarna
fer fram. Mun allt efnið vera
túlkað á íslensku.
Væntanlega verða samkom-
urnar á Akureyri í Glerárkirkju.
Það eru kristilegir söfnuðir og
hópar sem standa að því að
undirbúa þessa samkomuröð hér
á landi, svo sem ýmsir þjóð-
kirkjusöfnuðir, kristilegir hópar
eins og Hjálpræðisherinn,
KFUM og KFUK, Kristniboðs-
hreyfingin svo og Hvítasunnu-
söfnuðurinn og Sjónarhæðastarf-
ið á Akureyri. I undirbúnings-
nefnd á Akureyri eru: Bjarni E.
Guðleifson, Gunnlaugur Garð-
arsson, Jogvan Purkhus, Jón
Oddgeir Guðmundsson, Niels
Jakob Erlingsson, Ólafur Dan
Snorrason og Vörður Trausta-
son.
í frétt frá undirbúningsnefnd
segir m.a.:
„Enn eru nokkrir mánuðir í
þennan viðburð, en undirbúning-
ur er þegar hafinn, og ætla
aðstandendur sjónvarpsmóttök-
unnar hér að undirbúa þetta
Ivandlega. Þess vegna verður nú
boðið upp á námskeið fjögur
næstu miðvikudagskvöld. Nám-
skeiðin eru öllum opin, sem vilja
fræðast um kristið trúarlíf og
kristinn vitnisburð. Er námskeið-
ið hugsað sem upphitun og undir-
búningur fyrir hinn mikla við-
burð í mars, en þess er vænst að
mikill fjöldi sæki sjónvarps-
útsendingarnar. Allir eru vel-
komnir á námskeiðið, en fyrsta
samverustundin hefst kl. 20.30 í
húsi KFUM og KFUK í verslun-
armiðsöðinni í Sunnuhlíð mið-
vikudaginn 18. nóvember. Næstu
námskeiðskvöld verða svo í
Hvítasunnukirkjunni miðviku-
daginn 25. nóvember, Hjálpræðis-
hernum 2. desember og á Sjónar-
hæð 9. desember. Kennari verð-
ur Bjarni E. Guðleifsson.“