Dagur - 17.11.1992, Page 7
Þriðjudagur 17. nóvember 1992 - DAGUR - 7
Jóhann Sigurðssun átti mjög góðan leik fyrír lið UFA en sigur liðsins byggð-
ist þó fyrst og fremst á liðsheildinni. Mynd: Robyn
Körfubolti, 1. deild:
Enn sigra Þórsarar
- lögðu ÍR í jöfnum leik
Þórsarar bættu enn einum sigr-
inum í safnið þegar þeir tóku á
móti liði ÍR á föstudagskvöldið
í 1. deild íslandsmótsins í körfu-
bolta. Leikur Þórs var nokkuð
köflóttur að þessu sinni. Liðið
átti góða spretti en datt niður
þess á milli. í lokinn vannst þó
nokkuð öruggur sigur, 93:74.
Þórsarar hófu leikinn af mikl-
um krafti og náðu strax góðri for-
ystu. Bar þar mest á Davíð
Hreiðarssyni. Síðan datt allur
botn úr leik liðsins og ÍR náði að
saxa verulega á forskotið. Einar
Valbergsson hélt Þórsurum á
floti í fyrri hálfleik með þriggja
stiga körfum en aðrir léku undir
getu. Of mikið var byggt á ein-
staklingsframtaki í stað þess að
láta boltann ganga.
í síðari hálfleik lagaðist leikur
liðsins til að byrja með en síðan
virtist áhugaleysið ná yfirhönd-
inni og ÍR náði að jafna með góð-
um leik. Þá tóku Þórsarar sig á og
voru mun betri síðustu 10 mínút-
urnar. Birgir Örn Birgisson átti
mjög góðan leik fyrir Þór. Var
firnasterkur í vörninni og fiskaði
mörg víti. Konráð náði sér einnig
vel á strik í síðari hálfleik. Hjá
ÍR voru Márus Arnarson og
Hilmar Gunnarsson lang bestir
og skoruðu 2/3 af öllum stigum
liðsins. Lið ÍR var eitt af þeim
betri sem keppt hafa hér í vetur.
Frekar ungt og á framtíðina fyrir
sér. „Þetta var dálítið skrykkjótt
hjá okkur en það hafðist. Við
virðumst slaka heldur mikið á
þegar við komust yfir og ganga
illa að halda haus. ÍR er með
nokkuð léttleikandi lið og ég er
ánægður með sigurinn," sagði
Birgir Örn Birgisson sem var
sennilega einn besti maður vall-
arins. Með sigrinum tryggðu
Þórsarar áframhaldandi veru sína
á toppi riðilsins.
Gangur leiksins: 2:0, 17:6, 21:17, 23:23,
32:29, 43:39, 59:47, 66:57, 71:60, 75:75,
83:77, 90:79 og 93:79.
Stig Þórs: Konráð Óskarsson 27, Birgir
Örn Birgisson 17, Einar Valbergsson 17,
Davíð Hreiðarsson 13, Björn Sveinsson
13, Arnsteinn Jóhnnesson 3 og Þorvaldur
Arnarson 3.
Stig ÍR: Márus Arnarson 27, Hilmar
Gunnarsson 26, Broddi Sigurðsson 14,
Guðmundur Einarsson 8, Kristján Henrys-
son 2 og Gunnar Þorsteinsson 2.
Dómarar: Erlingur Arnarson og Ólafur
Hauksson og höfðu þeir góð tök á leikn-
um.
Körfubolti, 1. deild:
Körfubolti, úrvalsdeild:
Stólarnir náðu sér ekki á strik
UFA sýndi stórleik í Skenununni
- ÍR átti aldrei möguleika gegn frískum Ungmennafélagsmönnum
Þeir áhorfendur sem mættu í
Skemmuna á laugardaginn,
sem reyndar voru sorglega
fáir, fengu mikið fyrir pening-
ana sína, því leikur UFA og IR
var bráðskemmtilegur og vel
leikinn. Lið UFA átti einn sinn
besta leik til þessa og sýndi
virkilega hvað býr í liðinu. Lið-
ið gerði út um leikinn í síðari
hluta fyrri hálfleiks og þrátt
fyrir góða baráttu hjá ÍR var
sanngjarn sigur UFA, 77:63,
aldrei í verulegri hættu.
„Þetta small allt saman hjá
okkur núna og við spiluðum eins
og við ætlum okkur að gera það
sem eftir er í vetur,“ sagði Guð-
björn Garðarsson hjá UFA. Sig-
ur liðsins skrifast fyrst og fremst á
liðsheildina með Jóhann Sigurðs-
son fremstan í flokki. Liðið skipti
ört inná og hélt öllum heitum.
Baráttan í vörninni var góð og
menn hreyfanlegir í sókninni.
Lið ÍR barðist vel allan tímann
og náði að saxa nokkuð á forskot
UFA undir lokin. Hjá þeim
hrökk Broddi Sigurðsson í gang í
seinni hálfleik en þetta var þó
fyrst og fremst dagur UFA-liðs-
ins sem sýndi að leimenn hafa nú
náð vel saman og eru til alls lík-
legir.
Gangur lciksins: 4:4, 6:7, 10:12, 21:14,
28:18, 39:24, 45:28, 53:32, 65:38, 73:54
og 77:63.
Stig UFA: Jóhann Sigurðsson 16, Ágúst
Guðmundsson 13, Guðmundur Björns-
son 11, Eiríkur Sigurðsson 10, Stefán
Friðleifsson 8, Mattías Jónasson 7, Þórð-
ur Kárason 6, Nick Carilklia 4 og Jón G.
Guðlaugsson 2.
Stig ÍR: Broddi Sigurðsson 19, Hilmar
Gunnarsson 16, Márus Arnarson 9,
Björn Leósson 9, Kristján Henrysson 4,
Guðni Einarsson 4 og Gunnar Ö. Þor-
steinsson 2.
Dómarar: Pálmi Sighvatsson og Birgir
Valgarðsson og dærndu vel.
unnu sanngjarnan sigur 100:71
- Haukar
Haukar úr Hafnarfirði unnu
sanngjarnan sigur á úrvals-
deildarliði Tindastóls þegar
liðin mættust í á laugardaginn.
Haukar náðu öruggri forustu
srax í fyrri hálfleik og héldu
henni alit til leiksloka. Þegar
flautað var til leiksloka höfðu
Haukar skorað 100 stig en
Tindastóll 71.
Stólarnir byrjuðu illa og það
reyndist aðeins forsmekkurinn af
því sem á eftir fylgdi. Haukar
voru grimmari strax í byrjun með
John Rhodes fremstan í flokki.
Hann var bæði sterkur í frá-
köstunum og grimmur að skora.
Haukar voru mun frískari og
réðu gangi leiksins og Tindastóll
komst aldrei inn í hann. Leikur-
inn tapaðist í raun í fyrri hálfeik
því staðan í leikhléi var 44:27 fyr-
ir Hauka. Stólarnir hittu illa og
misnotuðu einnig vítaköstin.
Haukarnir sóttu hins vegar
grimmt og voru hreyfanlegir í
vörninni.
Tindastólsmenn áttu mun betri
leik í síðari hálfleik. Hittnin var
þó léleg og leikurinn um margt
áframhaid af fyrri hálfleik.
Greinilegt var hvort liðið var
betri aðilinn og sigur Hauka var
aldrei í hættu. Ingvar Jónsson
þjálfari Hauka var ánægður með
leik sinna manna. „Ég er mjög
ánægður með stigin. Við vorum
betri allan leikinn og mótspyrnan
var ekki mikil. Við höfðum meiri
breidd en greinilegt að meiðsli há
Tindastólsliðinu nokkuð,“ sagði
Ingvar. Páll Kolbeinsson var ekki
jafn hress. „Byrjunin var mjög
slæm hjá okkur og það gerði í
raun út um leikinn. Þetta var ein-
faldlega ekki okkar dagur en það
er langur vetur framundan,“
sagði Páll. Flestir í liði Stólanna
léku undir getu en John Rhodes
var bestur í góðu liði Hauka. SV
Gangur leiksins: 8:0, 13:4. 17:9, 32:17,
33:25, 44:27, 50:31, 60:40, 71:52, 82:63,
84:63, 91:67, 100:71.
Stig Hauka: Johan Rhodes 28, Jón A.
Ingvarsson 18, Pétur Ingvarsson 17, Sig-
fús Gunnlaugsson 15, Tryggvi Jónsson 8,
Bragi Magnússon 6, Sveinn Stefánsson 4,
Þorvaldur Henningson 3 og Jón Ö.
Guðmundsson 1.
Stig Tindastóls: Christofer Moore 26,
Valur Ingimundarson 22, Ingi Þ. Rúnars-
son 6, Páll Kolbeinsson 5, Karl Jónsson
4, Haraldur Leifsson 4, Pétur V. Sigurðs-
son 2 og Björgvin Rúnarsson 2.
Dómarar: Kristinn Óskarsson og Krist-
inn Albertsson og dæmdu ágætlega.
Valur Ingimundarson og félagar hans í liði Tindastóls áttu ekki góðan leik er
þeir mættu Haukum í beinni útsendingu í Ríkissjónvarpinu.