Dagur - 17.11.1992, Blaðsíða 9
Þriðjudagur 17. nóvember 1992 - DAGUR - 9
Haildór Arinbjarnarson £NSKA KNATTSPYRNAN
Þorleifur Ananíasson
Páll Gíslason mun klæðast Þórsbún-
ingnum á næsta sumri og er það
mikill fengur fyrir lið Þórs.
fara frá liðinu en mér hefur liðið
mjög vel hjá KA þessi 2 ár,“
sagði Páll Gíslason að lokum.
Örugg forysta Newcastle í 1. defld
- ekkert leikið í Úrvalsdeildinni vegna landsleikja
Glenn Hoddle leikur nú sem aftasti
maður í vörninni hjá Swindon.
Hann er jafnframt framkvæmda-
stjóri liðsins sem stefnir að sæti í
Úrvalsdeild.
eitt á toppnum
- Eyjólfur út í kuldann
að sitja á bekknum. Sú ákvörðun
þjálfarans að taka Eyjólf úr lið-
inu kom mjög á óvart enda hefur
hann leikið mjög vel á þessu
keppnistímabili og spilað betur
en flestir aðrir leikmenn liðsins.
Þessar breytingar þjálfarans skil-
uðu litlum árangri á laugardaginn
og Stuttgart var heppið að ná
markalausu jafntefli gegn
Wattenscheid á útivelli.
■ Miklar hræringar voru í þjálf-
aramálum hér í Þýskalandi í síð-
ustu viku. Holger Osieck, eða
„litli Beckenbauer“, eins og
hann er oft kallaður, enda var
hann aðstoðarmaður Beckenbauer
þau sex ár sem hann þjálfaði
þýska landsliðið í knattspyrnu og
síðan var hann einnig til aðstoðar
hjá Olympique Marseille en síð-
an skildu leiðir og hann tók að
sér að þjálfa Bochum, með litlum
árangri og í síðustu viku sagði
hann upp störfum enda liðið í
neðsta sæti deildarinnar og
aðeins búið að vinna einn leik í
vetur. Jurgen Gelsdorf, sem hef-
ur þjálfað Borussia Mönchenglad-
back í vetur, var þá boðin staðan,
sem og hann þáði, sagði upp hjá
Gladback og hélt til Bochum.
■ Þjálfaralausir leikmenn Glad-
bach höfðu ekkert í hið stór-
skemmtilega lið Saarbrucken að
gera á heimavelli. Bandaríkja-
maðurinn Eric Wynalda, sem nú
er næst markahæsti leikmaður
cur 2. flokkur:
sildar sætinu
jr kepptu í 2. deild
Þjálfarar beggja liða, þeir Jan
Larsen og Sveinn Pálsson, voru
sammála um að heldur illa hefði
verið staðið að skipulagningu
mótsins og framkvæmd og virtist
sem allan metnað skorti hjá lið-
unum fyrir sunnan, sem eiga kost
á mun fleiri leikjum en norðan-
liðin, að standa almennilega að
hlutunum.
Leó Örn Þorleifsson var einn besti
maöur KA í leikjum helgarinnar.
deildarinnar með átta mörk,
skoraði tvö mörk fyrir Saar-
brúcken í 5:2 sigri liðsins.
Sawitschew, Schúler, og Kostner
skoruðu hin mörkin þrjú, en Sví-
inn Dahlin og Neun skoruðu fyrir
heimamenn.
■ Markahæsti leikmaður deild-
arinnar er hins vegar Afríkubú-
inn Antony Yeboah frá Cana,
leikmaður Frankfurt, með níu
mörk. Hann tók ekki vel á móti
nýja liðinu hans Júrgen Gelsdorf,
Bochum, frekar en aðrir leik-
menn Frankfurtarliðsins. Yeboah
skoraði tvö mörk og Uwe Bein
og Schmitt sitt markið hvor, í 4:1
sigri. Wegmann skoraði fyrir
Bochum.
■ Það tók leikmenn Hamburger
SV ekki nema tuttugu og tvær
mínútur að skora þrjú mörk og
gera þar með út um leikinn, þeg-
ar Iiðið fékk Bayer Uerdingen í
heimsókn. Hartmann, Bester og
Baron sáu um að skora mörkin
þrjú.
■ Köln tókst að rífa sig upp um
eitt sæti með heppnissigri á Bayer
Leverkusen, sem var í öðru sæti
deildarinnar fyrir þessa umferð.
Leikurinn fór 1:0 og það var
Henri Fuchs sem skoraði sigur-
markið, með því að slá boltann í
netið á 41. mín.
■ Á föstudagskvöldið fóru fram
þrír leikir. Karlsruhe, sem hafði
verið á gífurlegu skriði undanfar-
ið tapaði stórt fyrir Dynamo
Dresden. Maucksch, Rath og
Kmetsch gerðu mörk Dresden í
3:0 sigri.
■ Kaiserslautern vann einnig
3:0, í þetta sinn lið Schalke,
Markus Marin, sem kom frá
Stuttgarter Kickers fyrir þetta
keppnistímabil og gerði ætíð
mikið af mörkum þegar hann lék
þar, skoraði sin tvö fyrstu mörk
fyrir Kaiserslautern í deildar-
keppninni í vetur. Hotic bætti
‘þriðja markinu við.
■ Skemmtilegasta viðureign
umferðarinnar var án efa leikur
Borussia Dortmund og Werder
Bremen, en þessi lið áttust ein-
mitt við í bikarkeppninni um síð-
ustu helgi og þá vann Werder
2:0. Leikmenn Dortmund voru
staðráðnir í að hefna fyrir sig og
lengi vel leit út fyrir að það tækis.
Austurríkismaðurinn Herzog
kom Werder að vísu yfir á 15.
mín. með glæsilegu marki, en
fyrirliði Dortmund, Zorc, svaraði
fyrir lið sitt með tveimur
mörkum, á 28. og 30. mín. Á 72.
mín tókst Bode síðan að jafna
leikinn fyrir gestina frá Bremen
og þar við sat og jafntefli því
staðreynd. Árni Hermannsson
Vegna landsleikja sem fram
fara nú í vikunni var ekkert
leikið í Úrvalsdeildinni á Eng-
landi um helgina. Leikmenn
toppliðanna fengu því lang-
þráð frí og koma vonandi
endurnærðir til leiks um næstu-
helgi. Ekki lá þó knattspyrnan
alveg niðri hjá enskum um
helgina, því leikið var í 1.
deildinni auk þess sem FA-
bikarinn er kominn vel á veg.
Um helgina var leikin 1.
umferð bikarsins, en þá koma
2. og 3. deildarliðin til leiks, en
það er ekki fyrr en í 3. umferð
sem lið úr Úrvalsdeildinni og
1. deildarliðin flest koma til
leiks í keppninni. En lítum
aðeins á leiki helgarinnar í 1.
deild sem vöktu helst athygli.
■ Lið Newcastle hefur nú yfir-
burðastöðu á toppi 1. deildarinn-
ar og virðist ekkert geta komið í
veg fyrir að framkvæmdastjórinn
Kevin Keegan leiði lið sitt upp úr
deildinni í vor. Liðið leikur mjög
góða knattspyrnu og í liðinu er
góð blanda ungra og efnilegra
leikmanna og síðan eldri og
reyndari manna. Á laugardag
bætti liðið enn einum sigrinum í
safnið og það á útivelli gegn liði
Charlton sem hefur verið í hópi
efstu liða í vetur. Þetta var síðasti
leikur Charlton á Upton Park
leikvelli West Ham, en Charlton
hefur notað hann sem heimavöll í
vetur. En liðið mun flytja sig að
nýju á sinn gamla völl, The Valley
fyrir næsta leik. Gevin Peacock
efnilegasti leikmaður Newcastle
skoraði tvö fyrstu mörk leiksins,
en mörg stórlið eru á höttunum á
eftir honum, en Keegan hefur
ekki viljað selja. Þrátt fyrir að
leikmenn Charlton næðu að
minnka muninn þá innsiglaði
Steve Howey öruggan sigur
Newcastle með þriðja marki liðs-
ins í leiknum.
■ Swindon hefur ekki síður
frægan framkvæmdastjóra þar
sem er Glenn Hoddle sem um
áraraðir lék með Tottenham og
hann leikur jafnframt með
Swindon. Og lið hans hóf leikinn
gegn Southend með miklum lát-
um og komst í 3:0 eftir 25 mín.
leik. Liðið virtist ætla að bursta
Southend og markahrókur liðsins
Craig Maskell hafði skorað tvö
mörk á tveim mín. og lagt upp
þriðja markið fyrir Martin Ling.
En 6 mín. fyrir hlé náði Ian
Benjamin að minnka muninn fyr-
ir Southend og liðið sótti oft stíft
í síðari hálfleiknum. Það var síð-
an 8 mín. fyrir leikslok að John
Cornwell náði enn að minnka
muninn fyrir Southend, en leik-
menn Swindon með Hoddle í
fylkingarbrjósti í vörninni náði
að halda út og tryggja sér sigur-
inn í leiknum 3:2.
■ Það leit ekki vel út hjá Tran-
mere í hálfleik, aðkomuliðið
Brentford 2:0 yfir. Gary Blissett
og Marcus Gayle höfðu skorað
fyrir liðið sem verðskuldaði for-
ystuna og Blissett hafði raunar
látið verja frá sér vítaspyrnu.
Kenny Irons náði síðan að pota
boltanum í netið fyrir Tranmere
á 58. mín. og Pat Nevin sem
Tranmere keypti af Everton jafn-
aði 2:2 með glæsilegu marki 13
mín. síðar. Leikmenn Tranmere
höfðu tekið öll völd í leiknum og
7 mín. fyrir leikslok náði Nevin
að skora sigurmark Tranmere
eftir mikla baráttu og undirbún-
ing frá Neil McNab. Tranmere er
því ásamt Swindon í öðru til
þriðja sæti deildarinnar.
■ Notts County hefur gengið
furðu illa það sem af er keppnis-
tímabilsins og staðan var ekki
glæsileg er 10 mín. voru til leiks-
loka í leik liðsins á heimavelli
gegn Wolves. Úlfarnir höfðu
tveggja marka forystu og áhorf-
endur sem flestir voru á bandi
Notts County bauluðu á sína
menn, enda virtist tap óumflýjan-
jlegt. Þá skipti framkvæmdastjór-
Gavin Peacock skoraði tvö af mörk-
um Newcastle gegn Charlton.
inn Neil Warnock sem ekki vildi
gefast upp, nýjum leikmanni inná
hjá County. Kevin Bartlett eld-
snöggur og fljótur sóknarmaður
kom inná og vörn Wolves sem
hafði haft allt í hendi sér í leikn-
um komst loks í vandræði. Með
sinni fyrtu snertingu við boltann
skoraði Bartlett af stuttu færi og í
sinni þriðju snertingu á loka-
sekúndum leiksins jafnaði hann
2:2 og tryggði liði sínu óvænt stig.
Robert Dennison og Steve Bull
höfðu skorað fyrir Wolves og sig-
ur liðsins virtist í höfn þar til
komið var að varamanninum
Bartlett.
■ Barnsley gerði góð kaup er
liðið keypti nýlega miðherjann
Wayne Biggins frá Stoke City.
Það var Biggins sem skoraði bæði
mörk liðsins í sigrinum gegn
Cambridge á útivelli.
■ Malcolm Allison stjórnaði
Bristol Rovers í fyrsta sinn á
laugardag, en þessi gamli garpur
sem lengi var við stjórnvölinn hjá
Manchester City náði þó ekki að
hefja starfið með sigri. Bristol
Rovers tapaði heima gegn Derby
sem hefur verið að sækja mjög í
sig veðrið að undanförnu. Paul
Kitson náði forystunni fyrir
Derby strax í upphafi og þrátt
fyrir að Rovers tækist að jafna þá
náði Derby að knýja fram sigur í
lokin. Þ.L.A.
Andy Mutch óskar félaga sínum Steve Bull no. 9 til hamingju með enn eitt
markið fyrir Úlfana, en oft vantar herslumuninn hjá liðinu.
Urslit
Úrvalsdeildin
Oldham-Norwich 2:3
Deildabikarinn
3. umferð:
Watford-Leeds Utd.
2:1
Endurteknir jafnteflisleikir úr
3. umferð:
Liverpool-Sheffield Utd. 3:0
Scarborough-Plymouth 2:1
Wimbledon-Everton 0:1
Úrslit um helgina:
1. deild
Bristol Rovers-Derby 1:2
Cambridge-Barnsley 1:2
Charlton-Newcastle 1:3
Grimsby-Bristol City 2:1
Notts County-Wolves 2:2
Oxford-Luton 4:0
Swindon-Southend 3:2
Tranmere-Brentford 3:2
Watford-Portsmouth 0:0
Sunderland-Leicester 1:2
Millwall-West Ham 2:1
Staðan
Úrvalsdeildin
Norwich 15 9-3-3 27:27 30
Arsenal 15 9-24 22:13 29
Blackburn 15 7-6-2 25:10 27
Aston Villa 15 7-6-2 24:15 27
QPR 15 7-5-3 22:15 26
Coventry 15 6-54 18:18 23
Chelsea 15 6-4-5 22:18 22
Man. City 15 64-5 21:14 22
Man. Utd. 15 5-6414:12 21
Ipswich 15 4-9-2 20:18 21
Liverpool 15 5-4-6 24:24 19
Leeds 15 4-6-5 25:27 18
Middlesbrough 15 4-6-5 23:24 18
Sheff. Wed. 15 4-6-5 16:19 18
Tottenham 15 4-6-5 16:22 18
Sheff. Utd. 15 4-5-6 15:21 17
Everton 15 44-713:1916
Oldham 15 3-6-6 23:26 15
Southampton 15 3-6-612:1715
Wimbledon 15 3-5-7 18:23 14
Crystal Palace 15 1-8-6 19:2111
Nottingham Forest 15 24-9 11:2410
1. deild
Newcastle 16 13-1- 2 32:13 40
Tranmere 16 94- 3 30:15 31
Swindon 17 94- 4 31:23 31
Millwall 16 8-5- 3 27:14 29
West Ham 16 8-3- 5 25:13 27
Leicester 17 8-3- 6 20:20 27
Charlton 17 7-5- 5 21:16 26
Wolves 17 6-8- 3 28:17 26
Grimsby 16 74- 5 24:18 25
Derby 17 7-3- 6 27:21 24
Peterborough 15 7-3- 5 24:20 24
Oxford United 16 5-8- 3 25:17 23
Watford 17 6-5- 6 26:27 23
Portsmouth 16 6-5- 5 24:23 23
Bristol City 16 6-2- 8 24:36 20
Brentford 16 5-4- 7 24:20 19
Birmingham 15 54- 613:2319
Barasley 16 5-3- 8 20:1718
Cambridge United 17 4-5-817:3117
Sunderland 16 4-3- 9 20:33 15
Notts County 17 3-6- 8 20:3515
Luton 16 2-6- 8 23:32 12
Southend 16 2-5- 9 14:2611
Bristol Rovers 17 2-3-12 22:46 9