Dagur - 17.11.1992, Qupperneq 11
Þriðjudagur 17. nóvember 1992 - DAGUR - 11
Kjördæmisþing framsóknarmanna á Norðurlandi eystra:
Vill að hrefiiuveiðar verði
hafiiar á ný þegar á næsta ári
- og að Kísiliðjan fái áframhaldandi rekstrarleyfi
Framsóknarmenn á Norður-
landi eystra hvetja til þess að
hrefnuveiðar verði hafnar á ný
þegar á næsta ári. Einnig skuíi
stefnt að því að hefja almennar
hvalveiðar sem fyrst. Þetta
kemur fram í ályktun, sem
samþykkt var á Kjördæmis-
þingi framsóknarmanna í
Norðurlandskjördæmi eystra
um helgina.
í ályktuninni er hvatt til
skynsamlegrar nýtingar á auð-
lindum. „Þjóðin á að hafa sem
mestan arð af landi og hafi - um
Ieið og gætt er umhverfissjónar-
miða og jafnvægis í vistkerfinu,“
segir í ályktuninni.
Kjördæmisþingið ályktaði ein-
nig um framtíð Kísiliðjunnar í
Mývatnssveit. Þingið telur brýnt
að óvissu um framtíð Kísiliðj-
unnar verði eytt og að hún fái
áframhaldandi rekstrarleyfi, þar
sem rannsóknir hafi ekki staðfest
eða sýnt fram á að verksmiðjan
skaði lífríkið. BB.
Landssamtök atvinnulausra:
AKUREYRARB/íR
Manntalsskrifstofan
auglýsir
Manntal Akureyrar vill hér meö minna þá á, sem
flutt hafa til Akureyrar og ekki enn tilkynnt það, að
gera það nú þegar.
Einnig eru þeir, sem flutt hafa á milli húsa í bæn-
um minntir á tilkynningaskyldu sína.
Akureyri, 16. nóvember 1992.
Bæjarstjóri.
Lögmenn hætti rukkarastörfum
og taki upp lögfræðistörf
Stjórn nýstofnaðra Landssam-
taka atvinnulausra hefur sent
frá sér ályktun um atvinnu-
leysi, fjármál heimilanna og
fyrirsjáanlega uppboðs- og
gjaldþrotahrinu. Alyktun sam-
takanna fer hér á eftir:
Uppboðs- og gjaldþrotalög
„Hinn 1. júlí síðastliðinn gengu í
gildi lög sem aðskilja dómsvald
og framkvæmdavald. í leiðinni
var mörgum öðrum lögum og
lagagreinum breytt sem koma
verulega við hagsmuni hvers
einstaklings, þótt því hafi minna
verið haldið á lofti.
Þegar lögin voru samin og sett
ríkti hér ekki atvinnuleysi eins og
nú. Þá viðgekkst að dómsmál
drægjust úr hömlu og veittur var
frestur á frest ofan á uppboðum
bæði á lausafé og fasteignum.
Þetta þótti hið mesta ófremdar-
ástand. Nýjar reglur gera nú ráð
fyrir að allt ferlið í dóms- og upp-
boðskerfinu gangi mun hraðar
fyrir sig. Nú er ekki hægt að veita
nema mjög takmarkaðan frest
lengur.
Ríkið hafði vit á því að mata
krókinn rækilega um svipað leyti
og breytingarnar tóku gildi. Nú
þarf hver sá sem lendir í því að fá
á sig uppboðsbeiðni að greiða í
skatt til ríkissjóðs milli 9 og 30
þúsund krónur fyrir hverja ein-
ustu uppboðsbeiðni á fasteign
sem berst sýslumanni. Þetta gjald
keinur ofan á allan annan kostn-
að og íþyngir uppboðsþola alvar-
léga og leiðir hann auðvitað fyrr í
þrot.
Um þessar mundir er að byrja
mikil hrina uppboða og gjald-
þrota samkvæmt þessum nýju
lögum. Þetta verður hrina sem á
sér ekki sinn líka í sögunni. Það
er ekki hægt að fá neinu frestað
lengur, nánast hvernig sem á
stendur. f
Þeir sem eru atvinnulausir, um
5000 manns nú, eru mjög margir
í greiðsluerfiðleikum einnig, ein-
mitt vegna atvinnuleysisins. Það
sem hefur breyst frá því sem áður
var er, að menn geta ekki fengið
vinnu lengur, hvað þá aukavinnu
til þess að bjarga sér út úr greiðslu-
erfiðleikum sínum, og menn geta
ekki fengið frestað uppboðsað-
gerðum sýslumanna þar til þeir
eru komnir yfir örðugleikana. -
Menn hafa með öðrum orðum
enga leið til að bjarga sér. Af
ofangreindum ástæðum verður
selt ofan af fjölda manna nú á
allra næstu mánuðum ef ekkert
verður að gert.
íþyngjandi lögmannataxti
Lögmenn eru hér á landi með
mjög óréttláta taxta á rukkunar-
verkum sínum og það gerir
skuldurum oft verulega erfitt fyrir
og setur þá iðulega í óverðskuld-
uð og ótímabær gjaldþrot, - o
hver hagnast svo sem á því?
nágrannalöndunum eru tjl inn-
heimtustofnanir sem stunda
miklu manneskjulegri innheimtu-
aðferðir en lögmenn hér tíðka.
Þar eru slíkar innheimtustofnanir
ekki endilega reknar af lögmönn-
um eins og hér tíðkast.
Sú breyting hefur einnig orðið
með tilkomu hinna nýju laga sem
tóku gildi 1. júlí sl. að nú þarf
ekki lengur að vera lögmaður að
baki innheimtustofnun. Þessu er
hér með beint til athafnamanna í
öllu atvinnuleysinu. Setjið upp
innheimtuskrifstofur hver í sínu
sveitarfélagi í samkeppni við
lögmenn. Það er heimilt, og það
er hægt að vinna heiðarlega fyrir
sér með svoleiðis fyrirtæki.
í nágrannalöndunum, og jafn-
vel í sjálfri Ameríku, fá skuldar-
ar oft fyrst kurteislegt bréf frá
innheimtuskrifstofu, þ.e. þegar
skuldareigandinn er búinn að
gefast upp á að rukka inn skuld-
ina eftir hefðbundnum leiðum,
þar sem þeim er sagt að skrifstof-
an hafi fengið skuldina til inn-
heimtu. Þeir eru beðnir að greiða
skuldina eða semja um hana inn-
an ákveðins frests, en ekkert álag
kemur á skuldina strax. Sinni
þeir ekki kalli er sent annað inn-
heimtubréf líka kurteislegt og
vextir lagðir við. Sé því ekki sinnt
er farið að hringja í menn og
athuga hvort ekki sé flötur á
samningum. Ef skuldarinn er í
miklum greiðsluerfiðleikum er
jafnvel boðinn afsláttur af skuld-
inni ef hún er greidd í heilu lagi.
Fari svo að hvorki bréfaskriftir
né fortölur dugi fer skuldin að
hlaða á sig innheimtukostnaði.
Fram til þessa greiðir skuldareig-
andinn allan kostnaðinn, enda
lítill, aðeins nokkur stöðluð bréf
og 1-2 símtöl. Kostnaðurinn hér
eftir sem hleðst á skuldina stend-
ur í réttu hlutfalli við þá vinnu
sem lögð er í að innheimta hana.
Hér á landi er kostnaðurinn
ákveðin prósenta af upphæð
skuldarinnar. Þetta er himin-
hrópandi óréttlæti sem umsvifa-
laust verður að afnema.
Samantekt
Samtök atvinnulausra vilja með
ályktun þessari benda á það hve
erfitt er fyrir hina atvinnulausu
að bera hönd fyrir höfuð sér
vegna fjárskorts sem beinlínis
stafar af atvinnuleysinu. Þeir
munu margir fyrirsjáanlega missa
eigur sínar á næstu mánuðum í
uppboðum. Samtökin benda á að
ríkisvaldið gengur fram fyrir
skjöldu og tekur aukaskatt af illa
stöddu fólki, sem einungis leiðir
það fyrr í þrot. Samtökin benda á
að lögmenn hafa ekkert lækkað
taxta sína þótt fyrirhöfnin við að
innheimta skuldir, svo sem víxla
og skuldabréf, hafi minnkað stór-
lega. Samtökin telja að atvinnu-
lausir þurfi sérstök skuldbreyt-
ingalán til þess að bjarga aleigu
sinni, húsinu sínu. Samtökin telja
einnig að ríkið eigi að falla frá
skattheimtu sinni af uppboðum
sem er hróplega óréttlát. Lög-
menn eigi að leggja niður rukk-
arastörf og taka upp lögfræði-
störf. Það muni sýna sig að
ómenntaðir rukkarar duga okkur
íslendingum eins og öðrum þjóð-
um.
Málningartilboð!
Bett 10 innanhússmálning
(Ijósir litir)
35% afsláttur
Geri aðrir betur!
slippstödin
Lager, sími: 27300 - Fax: 11717.
Dagana 16. nóv.-5. des.
Félagsmannatilboð
í verslun okkar að Lónsbakka
og í útibúum KEA
15% afsláttur
af tcppum, dreglum, dúkum «g mottum
1«% afsláttur
af rafmagnsvcrkfærum
15°/o afsláttur
af baðkörum og sturtubotnum frá BETTE,
IFO hrcinlætistækjum og MORA blöndunartækjum
15% afsláttur
af handvcrkfærum
Afsláttur miðast við staðgreiðslu
■■
BYGGMVORUR
LONSBAKKA• 601 AKUREYRI
~ 96-30321, 96-30326, 96-30323
FAX 96-27813