Dagur - 17.11.1992, Page 13
.Þriðjudagur 17. nóvember 1992 - DAGUR - 13
Landsvirkjun:
Samþykkir sérstaka skilmála
um sölu á umframrafmagni
- markmiðið að örva sölu á rafmagni
Stjórn Landsvirkjunar hefur
samþykkt sérstaka skilmála
um sölu á umframrafmagni
sem gera ráð fyrir afslætti á
verði forgangsrafmagns til
stórra rafmagnskaupenda er
gildi í 5 ár, frá og með 1. janú-
ar 1993. Afslátturinn nemur
einni krónu á kWst og er
markmiðið með honum að
örva sölu á rafmagni.
Rétt til að kaupa umfram-
rafmagn með afslætti eiga þeir
rafmagnsnotendur sem skuld-
binda sig til kaupa eftir sem áður
jafn mikið forgangsrafmagn á ári
á forgangsrafmagnsverði og þeir
hafa keypt á sl. 12 mánuðum
áður en þeir hefja kaup á
umframrafmagni með afslætti
enda hafi slík kaup numið minnst
300 MWst. Þá eiga nýir raf-
magnsnotendur rétt á að kaupa
umframrafmagn með afslætti séu
slík kaup til viðbótar kaupum á
300 MWst á ári á forgangsraf-
magnsverði án afsláttar.
Heildsöluverð Landsvirkjunar
á forgangsrafmagni til almenn-
ingsrafveitna er nú að meðaltali
um kr. 2,65 á kWst og á afsláttur-
inn að skila sér óskertur um raf-
veiturnar til viðskiptavina þeirra.
Verð rafveitna á forgangsraf-
magni til flestra stórra notenda er
hins vegar á bilinu 4-5 kr. á kWst
án vsk. Þeir rafmagnsnotendur
sem eiga rétt á afsíættinum og
hyggja á aukna notkun geta því
fengið umframrafmagn á bilinu
3-4 kr. á kWst án vsk eftir raf-
veitum og orkumagni.
Kynningarfundur
Al-Anon,
samtaka aðstandenda alkohólista.
í tilefni af 20 ára afmæli Al-Anon á (slandi verður
opinn kynningarfundur að Strandgötu 21, Akureyri,
miðvikudaginn 18. nóvember 1992, kl. 21.00.
★ Kaffiveitingar.
Allir velkomnir.
Til sölu
eða leigu
850 m2 iðnaðar- eða verslunarhúsnæði við
Hvannavelli.
Upplýsingar hjá framkvæmdastjóra í síma 96-21165.
Kiwanisklúbburinn Embla á Akureyri:
Formlega vígður inn
í Kiwanishreyfinguna
Um næstu helgi, nánar tiltekið
á laugardagskvöld, verða kon-
urnar í Kiwanisklúbbnum
Emblu á Akureyri, formlega
vígðar inn í Kiwanishreyfing-
una á Islandi.
Vígslan verður með viðhöfn á
Hótel KEA og koma fulltrúar
umdæmisstjórnar Kiwanis á ís-
landi norður til að vera viðstadd-
ir.
Kiwanisklúbburinn Embla,
sem ér fyrsti kvennaklúbbur
Kiwanis á Norðurlandi, var
stofnaður 25. apríl sl. og eru 28
konur nú í klúbbnum. Kristín
Þriggja herbergja íbúð á Brekk-
unni til leigu.
Bílskúr fylgir.
Upplýsingar í síma 23950.
Til leigu í Glerárhverfi 3ja herb.
raðhús.
Laust 1. des.
Uppl. í síma 21258 e. kl. 18.00.
Sjálfsbjargarfélagar Ak-
ureyri.
Munið áður auglýstan fé-
lagsfund að Bjargi, mið-
vikud. 18. nóv. kl. 20.00.
Sjálfsbjörg.
19.30.
Jólaföndurnámskeið
Sjálfsbjargar, verður
haldið að Bjargi (félags-
sal) mánud. 23. nóv. kl.
Leiðbeinandi Svanhvít Jósepsd.
Nánari uppl. og skráning þátttak-
enda hjá: Baldvin í síma 26888 kl.
12.30-16.30 daglega til föstud. 20.
nóv.
Félagsmálanefnd.
„IVlömmumorgnar“
- opið hús í safnaðar-
heimili Akureyrarkirkju.
Miðvikudaginn 18. nóv-
"ember frá kl. 10-12:
Gestaspjall: Séra Þórhallur
Höskuldsson: „Hjónabandið“. Allir
foreldrar velkomnir með börn sín.
Halldórsdóttir er forseti Emblu. I baks í Sunnuhlíð á Akureyri.
Vetrarstarfið er hafið og er Áhugasamar konur eru hvattar
fundur annan hvern þriðjudag í til að ganga í Kiwanisklúbbinn
húsnæði Kiwanisklúbbsins Kald- Emblu. (Fréttatiikynning)
Hótel Vertshús á Hvammstanga:
Hinir alkunnu harmoniku-
leikarar Reynir Jónasson og
Grettir Björnsson verða gestir
Tónlistarfélags V-Húnvetn-
inga annað kvöld, miðviku-
dagskvöld, kl. 21.
Þeir félagar hafa ekki fyrr spil-
að saman á tónleikum sem þess-
um og er félagið stolt af því að
eiga frumkvæði að því að þeir æfi
og spili saman. Á þessum tón-
leikum ætla þeir að flytja bæði
erlenda og íslenska harmoniku-
tónlist. Tónleikar' þessir eru
þriðju tónleikar félagsins á þessu
starfsári og hvetjum við alla sem
geta að koma á Hótel Vertshús
annað kvöld til þess að heyra í
þeim félögum. (Fréttatilkynning)
Þann 15. ágúst sl. voru gefin sam
an í hjónaband í Dalvíkurkirkju
af séra Jóni Helga Þórarinssyni,
Sigrún Huld Jónsdóttir og Atli
Snorrason, Karlsbraut 12,
Dalvík.
Ljósmynd: Ljósmyndastofa Páls Akureyri.
Sæfarinn sofandi
Iðunn hefur gefið út nýja ljóðabók
eftir Þorstein frá Hamri. Nefnist
hún Sæfarinn sofandi og er tólfta
ljóðabók skáldsins. En auk ljóða-
bókanna hafa komið út bæði skáld-
sögur og söguþættir eftir Þorstein
frá Hamri. Bókin Sæfarinn sofandi
skiptist í þrjá hluta og inniheldur
þrjátíu og sjö nýleg ljóð.
í frétt frá útgefanda segir m.a.:
„í þessari nýju bók kveður ef til
vill við persónulegri tón en áður hef-
ur gætt þegar skyggnst er í hugskot-
ið og víða er leitað fanga á vegferð
skáldsins. Skáldskapurinn er þó hér
sem fyrr fyrst og fremst spurning um
manneskjuna sjálfa, samspil hennar
við sinn innri mann og við umhverf-
ið sitt. Og á listrænan hátt rennur
efni og uppbygging Ijóðsins saman í
einum farvegi þar sem hugsunin fær
mál, formið skynjun. Þorsteinn frá
Hamri er trúr lesendum sínum - og
þó fyrst og fremst sjálfum sér í þess-
ari nýju bók.“
Síðbúin
afmœliskveðja
Um leið og við viljum óska
Verslunarmiðstöðinni Sunnuhlíð
til hamingju með 10 óra afmœlið,
langar okkur til að senda þeim
sérstakar þakkir fyrir fróbœrar móttökur
og alla aðstoð og aðstöðu
ö afmœlisdögum Sunnuhlíðar.
Handverkskonur úr Ólafsfirði.
....................................
Efnaverksmiðjan
Sjöfn
Framkvæmdastjóri
Laust er til umsóknar starf framkvæmda-
stjóra Ungmennasambands Eyjafjarðar
frá og með 1. janúar nk.
Vinnutími er breytilegur frá degi til dags, þó föst við-
vera á skrifstofu sambandsins frá kl. 13.00-15.00
alla virka daga. Vinnuskylda er 40 klst. á viku. Fullt
starf.
Umsækjandi þarf að vera vel að sér í almennri skrif-
stofuvinnu s.s. bókhaldsvinnslu ásamt allri annarri
tölvuvinnslu.
Æskilegt er einnig að umsækjandi hafi þekkingu á
félagasamtökum sem þessum.
Umsóknarfrestur er til 30. nóvember 1992.
Upplýsingar eru veittar í síma 96-26257 e.kl. 16.00.
Umsóknir skulu berast til:
UMSE b/t Þuríður Árnadóttir,
Hólabraut 22 • 600 Akureyri.
FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSIÐ
Á AKUREYRI
YFIRSÁLFRÆÐINGUR
Geðdeild Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri
óskar eftir að ráða sérfræðing í klínískri sálar-
fræði í stöðu yfirsálfræðings. Um er að ræða af-
leysingastöðu til eins árs frá 1. janúar 1993.
Viðfangsefni deildarinnar eru fjölbreytt. Áhersla er
lögð á samstarf fagmenntaðs starfsfólks að grein-
ingu, meðferð og endurhæfingu vegna geðtruflana
af ýmsum toga. Sérkennsla er veitt sjúklingum á
deildinni.
Umsóknir um starfið með upplýsingum um menntun
og fyrri störf óskast sendar Sigmundi Sigfússyni yfir-
lækni Geðdeildar F.S.A.
Nánari upplýsingarveitiryfirlæknir í síma 96-22100.
YFIRIÐJUÞJÁLFI
Geðdeild Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri
óskar eftir að ráða iðjuþjálfa. Um er að ræða
afleysingu í leyfi yfiriðjuþjálfa deildarinnar til 1.
sept. 1993.
Iðjuþjálfun er mikilvægur hluti af greiningu og með-
ferð sjúklinga deildarinnar, og fer hún að mestu fram
í sérstöku húsi að Skólastíg 7 á Akureyri. Hjúkrunar-
starfsfólk deildarinnar aðstoðar við iðjuþjálfun sjúkl-
inga.
Umsóknir um starfið með upplýsingum um menntun
og fyrri störf óskast sendar Sigmundi Sigfússyni yfir-
lækni Geðdeildar F.S.A., sem veitir nánari upplýs-
ingar í síma 96-22100.
I