Dagur - 06.02.1993, Page 11
Laugardagur 6. febrúar 1993 - DAGUR - 11
Leikfélag Húsavíkur:
Frumsýning á Ronju ræningjadóttur
- áríðandi
að Qölskyldan komi saman í leikhúsið, segir Brynja Benediktsdóttir, leikstjóri
Leikfélag Húsavíkur frumsýnir
Ronju ræningjadóttur eftir
Astrid Lindgren í leikstjórn
Brynju Benediktsdóttir og
þýðingu Einars Njálssonar
iaugardaginn 6. feb. kl. 16.
Tónlist er eftir Helga Péturs-
son tónskáld á Húsavík. Leik-
mynd er hönnuð af leikstjóra
og Manfred Lemke kennara að
Stórutjörnum. Búninga gerði
Herdís Birgisdóttir, leikkona,
ásamt tíu leikfélagskonum.
Brúður eru hannaðar af Helgu
Arnalds. Ljós og hljóð er í
höndum Jóns Arnkelssonar og
Einars H. Einarssonar. Fjöldi
leikara kemur fram í sýning-
unni. Með titilhlutverkið fer 14
ára stúlka, Júlía Sigurðardótt-
ir, en Birki leikur jafnaldri
hennar Eiður Pétursson. Ingi-
mundur Jónsson fer með hlut-
verk Matthíasar ræningjafor-
Matthías og ræningjarnir hafa handsamað Birki: Ingimundur Jónsson, Eiður Pétursson, Anna Ragnarsdóttir, Júlia
Sigurðardóttir, Jóhannes Einarsson, Sigurður Illugason, Vigfús Sigurðsson og Svavar Jónsson í hlutverkum sínum.
Myndir: IM
Skemmtilegur siður á Dalvík:
Öllum nýburum ársins
færð gjöf frá bænum
Hinn 1. desember sl. voru íbúar
Dalvíkur 1504 og hafði fjölgað
um 8 milli ára. A árinu fædd-
ust hins vegar 27 börn á staðn-
um þannig að hin „náttúru-
lega“ fjölgun hefur þó aðeins
haft vinninginn umfram brott-
flutning af staðnum.
Til nokkurra ára hefur sá
skemmtilegi siður verið tíðkaður
í árslok af bæjarstjóranum, Krist-
jáni Þór Júlíussyni, að öllum
börnum ársins hefur verið færð
að gjöf silfurteskeið merkt Dal-
vík ásamt jólakorti og blóma-
skreytingu, að þessu sinni
hyacintuskreytingu. Blm. Dags
hitti nýlega eitt þeirra dalvísku
barna sem fæddust á nýliðnu ári.
Það er Ólafur Jóhann Þórbergs-
son, sem fæddur er 11. febrúar.
Systir hans, Hugrún, sem fædd er
9. maí 1990 fékk einnig sína
silfurteskeið á sínum tíma. For-
eldrar þeirra eru Þórbergur
Egilsson og Guðbjörg Halldórs-
dóttir. GG
Ólafur Jóhann með gjöfina frá bænum ásamt systur sinni Hugrúnu, sem
hafði meira áhuga á því sem fram fór í sjónvarpinu en horfa á Ijósmyndara.
Mynd: GG
Bjarkaræningjarnir með Ronju í haldi: Guðný Þorgeirsdóttir, Júlía Sigurð-
ardóttir, Þorkell Björnsson og Kristjana Einarsdóttir í hlutverkum sínum.
ingja, en hann á 40 ára leikaf-
mæli í ár. Lovísu móður Ronju
leikur Anna Ragnarsdóttir.
„Það sem einkennir þessa upp-
setningu er, að hér er fólk á öll-
um aldri, ungir og gamlir sem
leika saman, námsfólk úr skólan-
um og kennarar sinna ýmsum
störfum, hér er því hvorki einlit-
ur hópur eða kynslóðabil," sagði
Brynja Benediktsdóttir leikstjóri
í samtali við Dag. „Fólk frá sex
þjóðlöndum vinnur hér saman:
Leikararnir Agga Olsen og Rink
Egede frá Grænlandi dveljast hér
við undirbúning sýningarinnar og
eru að læra leikstjórn. Söngkon-
an Natalía Chow frá Hong Kong
kemur fram í sýningunni, einnig
Mira, tíu ára stúlka ættuð frá
Kóreu og móðir hennar Hanne
F. Knudsen sem er dönsk. Man-
fred Lemke leikmyndasmiður er
Svisslendingur.
Við þurfum að sníða okkur
stakk eftir vexti því leikhúsið er
svo lítið. Það þarf ekki endilega
að vera galli, það skapar skemmti-
legt návígi við leikarana. Við
spilum meira á ímyndunarafl
áhorfendanna, þeir verða að
ímynda sér það sem þeir sæju
betur á kvikmynd eða í stærra
leikhúsi. En mér finnst í lagi að
gera kröfur til ímyndunarafls
áhorfendanna.“
- Hvernig verk er Ronja? Er
þetta barnaleikrit eða höfðar það
einnig til fullorðinna áhorfenda?
- „Þetta er ósköp falleg saga.
Þroskasaga barns eða unglings og
ekki síður þroskasaga foreldris.
Batnandi manni er best að iifa,
og karlremban Matthías ræningja-
foringi mildast í lokin, hættir að
ræna og hættir þessum yfirgangi.
Hann lærir af börnunum og við
mættum kannski læra meira af
börnunum okkar.
Þó leikritið sé sænskt er þetta
íslensk leiksýning. Við nýtum
okkur einnig hugmyndir frá
Grænlendingunum okkar og
komum inn á þeirra arfleifð.
Leikritið er á vissan hátt um
nánd mannsins við náttúruna.
Það er kannski skrifað fyrir borg-
arbörn sem ekki komast út í nátt-
úruna, en því þurfa Húsvíkingar
ekki að kvarta yfir. Við höfum
því notað æfintýraljómann meira
en náttúrulýsingar. Grádvergarn-
ir í sýningunni eru ekta Ínúítar,
eða ættaðir frá vondum náttúru-
öndum Eskimóa.
Hér er tónskáld, Helgi Péturs-
son, sem semur hin skemmtileg-
ustu lög og ég er mjög ánægð
með að geta haft íslenska músík
við sýninguna. Friðrik Steingríms-
son úr Mývatnssveit samdi texta.
Einnig erum við með gamla ókind-
arkvæðið inni í sýningunni, til að
auka fjölbreytileikann."
- Hvernig líkar leikstjóranum
að vinna með Leikfélagi Húsa-
víkur?
„Mér líkar ákaflega vel. Það er
stórkostlegt að upplifa þennan
dugnað og ódrepandi áhuga.
Þetta félag er ákaflega öflugt og
því hefur tekist að virkja unga
fólkið með sér. Það er af hinu
góða. Hér eru leikarar, Ingi-
mundur Jónsson og Bjarni Sigur-
jónsson, sem hafa leikið í 40 ár,
og af þeim lærir unga fólkið.
Herdís Birgisdóttir, þessi stólpa-
leikkona, hefur séð um búning-
ana ásamt fríðu lið kvenna. Hér
er ekki bara áhugi á að leika,
heldur er svo kraftmikið fólk sem
sinnir öllum öðrum þáttum leik-
hússins, en slíkt vantar oft úti á
landi.
Vonandi kemur fólk á öllum
aldri til að sjá sýninguna og ég
vona að foreldrar komi með ungl-
ingum og börnum. Það er svo
áríðandi að fjölskyldan eigi sam-
an skemmtilega stund í leikhús-
inu, en ekki bara við sjónvarp-
ið.“ IM
Þorrablót
Glæsíbæjarhrepps
verður haldlð í Hlíðarbæ laugardaginn 13.
febrúar og hefst kl. 20.30 stundvíslega mjög
stundvíslega. Mlðapantanir hjá önnu í síma
23516 og Jónl í síma 23613 miðvikudag og
flmmtudag 10. og 11. febrúar milli M. 20 og 22.
Hreppsbúar fyrr og nú íjölinenuum.
Nefiadin.