Dagur - 06.02.1993, Side 24
NISSAN
NISSAN
Stakfell PH-360 komið
á rækjuveiðar
í EyjaQarðarál:
Rækjuvinnslulínan
í skipið kostaði
35 milljónir kr.
Gagngerar breytingar hafa
farið fram á vinnslulínu togar-
ans Stakfells ÞH-360 frá Þórs-
höfn en í Slippstöðinni hf. hef-
ur verið sett í hann vinnslulína
fyrir frystingu á rækju og verð-
ur rækjan unnin og pökkuð í
öskjur á markað í Asíu en
aðalmarkaðssvæðin eru Japan
og Kórea.
Togarinn kom til Akureyrar í
fyrstu viku desember og hefur
því verið þar rétt tvo mánuði
en hann hélt svo á veiðar á
fimmtudag og á föstudagsmorgun
var fyrsta holið tekið í Eyjafjarð-
arál. Að sögn Guðna Hauksson-
ar skrifstofustjóra Hraðfrysti-
stöðvar Þórshafnar hf., eiganda
togarans, kosta þessar breytingar
á skipinu um 35 milljónir króna
sem er heldur hærri upphæð en
reiknað var með í upphafi en í
ljós kom ýmislegt sem þurfti að
lagfæra eins og gengur og gerist
þegar ráðist er í framkvæmdir af
þessu tagi og sumt af því er
ótengt þeim breytingum sem
gerður voru á vinnslulínunni.
Kostnaður við þessi aukaverk er
áætlaður um 10 milljónir króna.
Páll Halldórsson, skipstjóri, segir
að skipið verði á rækjuveiðum
fram í miðjan maímánuð en síð-
an fer Stakfellið á frystingu á
grálúðu og karfa í sumar en síðan
aftur á rækju með haustinu.
Möguleikar eru einnig á að skipið
taki einn eða fleiri túra þar sem
fryst verða þorskflök en engin
ákvörðun hefur verið tekin um
það. Páll er að hætta með skipið,
flytur vestur í Hnífsdal þaðan
sem hann er ættaður og tekur við
togaranum Páli Pálssyni ÍS-102.
Magnús Helgason útgerðarstjóri
segir að ekki sé enn ákveðið hver
taki við skipstjórn á Stakfelli af
Páli Halldórssyni. GG
Hengt í hjallana.
Mynd: Robyn
Hið umdeilda sorppokaútboð Akureyrarbæjar:
Bæjarráð stendur við
fyrri afgreiðslu sína
- mælir sem fyrr með að tilboði umboðs-
aðila Plastos hf. í Reykjavík verði tekið
Bæjarráð Akureyrar fjallaði á
fundi sínum í fyrradag um
útboð á sorppokum fyrir
Akureyrarbæ en sem kunnugt
er vísaði bæjarstjórn málinu
aftur í bæjarráð í Ijósi gagna
sem fyrirtækið Akoplast hf. á
Fjárhagsáætlun ÓlafsQarðarbæjar:
47 milljónir tll bygg-
ingar íþróttahússins
- fyrri umræða á þriðjudag
Fyrri umræða um fjárhags-
áætlun Ólafsfjarðarbæjar fyrir
árið 1993 verður nk. þriðju-
dag. Að sögn Kristins Hreins-
HELCARVEÐRIÐ
Leiðindarveður verður um allt
Norðurland um helgina. ( dag
gera veðurfræðingar Veður-
stofu (slands ráð fyrir vaxandi
austan- og síðar suðaustan-
átt. Er líður á daginn verður
komið hvassviðri með snjó-
komu, sem helst í alla nótt og
fram eftir degi á morgun.
Heldur fer kólnandi.
sonar bæjarritara verður
stærsta verkefni bæjarsjóðs
Ólafsfjarðar á árinu nýja
íþróttahúsið en til þess verður
varið 47 milljónum króna.
íþróttahúsið hefur verið stærsti
liðurinn í fjárhagsáætlun bæjar-
ins undafarin tvö ár en verklok
við byggingu hússins verða sam-
kvæmt áætlun fyrri hluta árs
1994. í fyrrasumar voru höfð
jarðvegsskipti í Túngötunni og
hún undirbyggð og í sumar verð-
ur hún malbikuð og til þeirrar
framkvæmdar eru ætlaðar 5,8
milljónir króna. Ýmsum öðrum
ótilgreindum viðhaldsmálum
verður einnig sinnt í sumar. GG
Akureyri sendi bæjaryfirvöld-
um. Fyrirtækið var meðal til-
boðsgjafa í sorppokana en
bæjarráð hafði mælt með, eftir
að hafa yfirfarið tilboðin á sín-
um tíma, að tilboði frá
umboðsmanni Plastos hf. á
Akureyri yrði tekið. A fundin-
um í fyrradag ákvað bæjarráð
að standa við fyrri afgreiðslu.
Eins og komið hefur fram í
máli forsvarsmanna Akoplasts
taldi fyrirtækið að ef það missti
þá plastpokaframleiðslu sem það
hefur haft fyrir Akureyrarbæ þá
yrði að segja upp einum starfs-
manni en ef tilboði fyrirtækisins
yrði tekið þá styddi það nýsköp-
unarstarf hjá fyrirtækinu og gæti
orðið til að þrjú ný störf bættust
við.
Sigurður J. Sigurðsson, for-
maður bæjarráðs, segir að hug-
myndir Akoplastsmanna um nýja
framleiðslu sé allt annar þáttur
sem ekki komi útboðinu á sorp-
pokunum við. Hann segir að í
bæjarráði hafi Úlfhildur Rögn-
valdsdóttir (B) setið hjá við
afgreiðsluna í fyrradag en að
öðru leyti hafi bæjarráð verið
sammála um að standa við fyrri
afgreiðslu á þessu máli. Bæjar-
stjórn Akureyrarar mun því
væntanlega afgreiða sorppoka-
málið á fundi eftir rúma viku og
taka þar tilboði Plastos hf. í
Reykjavík. JÓH
ARU
Einnig sýnum við Arctic cat vélsleða.
Bifreiðaverkstæði
Sigurðar Valdimarssonar
Óseyri 5 - Sími 22520 - Akureyri.
Ingvar Helgason hf. Sævarhöfða 2.
Sauðárkrókur:
Innbrot í Gagn-
fræðaskólann
- skemmdir á húsnæði, en litlu stolið
Brotist var inn í Gagnfræða-
skólann á Sauðárkróki aðfara-
nótt föstudags. Skemmdir á
húsnæðinu eru nokkrar, en
litlu eða engu var stolið. Málið
er í rannsókn.
Tilkynnt var um innbrotið til
lögreglunnar á föstudagsmorgun.
Nokkrar skemmdir voru unnar á
húsnæði skólans. Brotnar voru
upp tvær hurðir og þær eru taldar
ónýtar. Önnur var hurð að skrif-
stofu skólastjórans. Einnig voru
brotnar þrjár rúður. Að sögn lög-
reglu var engu eða litlu stolið og
er ekki enn vitað hverjir voru hér
að verki. Málið er í rannsókn. sþ
Sýnum einnig Subaru station, árg. '93
á sérstöku kynningarverði.
Komið ogkynnið ykkur frábæra bíla
Hagstætt verð og greiðsluskilmálar
Bílasýning
verður í sýningarsal okkar
að Bifreiðaverkstæði Sigurðar Valdimarssonar,
Óseyri 5, laugardaginn 6. og og sunnudaginn
7. febrúar frá kl. 14-17 báða daga.
Sýnum '93 árg. af Nissan Sunny,
og nú með beinni innspýtingu og fjölventla
vél ásamt mörgum öðrum nýjungum.