Dagur - 07.04.1993, Qupperneq 2
2 - DAGUR - Miðvikudagur 7. apríl 1993
PRÉTTIR
Akureyri:
Bæjarmála-
punktar
■ Á fundi skipulagsnefndar
25. mars sl. var tekin fyrir til-
laga teiknistofunnar Forms að
deiliskipulagi IV. áfanga Gilja-
hverfis. í henni er gert ráð fyr-
ir 40 eiqbýlishúsum og 117
íbúðum í rað- og parhúsum. f
Giljahverfi öllu verða þá 747-
777 íbúðir sem skiptast þannig
að einbýlishús veröa 60, par-
og raðhús 307-337 og 380
íbúðir verða í fjölbýlishúsum.
Skipulagsnefnd lagði til að til-
lagan yrði auglýst í samræmi
við 4.4 í skipulagsreglugerð.
■ í framhaldi af bókun bygg-
inganefndar 17. mars sl. um
breytingu á lóðarmörkum
Furuvalla 17 samþykkti skipu-
lagsnefnd á fundi sínum 25.
mars sl.: Allur almennur akst-
ur milli aðalbílastæðis Hag-
kaups og Norðurgötu verður
bannaður. Einungis verður
þar heimil umferð vöruflutn-
ingabíla og sendibíla. Setja
skai upp slá eða hlið sem
hindrar almenna umferð milli
bílastæðis og baklóðar sunnan
hússins. Bílum lengri en 8 m
skal ekið í gegnum svæðið án
þess að þeim verði snúið eða
bakkað. Jafnframt er fellt úr
gildi bann við umferð bíla
lengri en 8 m um Norðurgötu
norðan Grenivalla.
■ Á fundi stjórnar veitustofn-
ana 31. mars sl. var samþykkt
að taka tilboði Friðfinns Daní-
elssonar, verkfræðings, í bor-
un 10 grunnra rannsóknarhola
við Botn og Grýtu fyrir Hita-
veitu Akureyrar. Auk Frið-
finns gerði Ræktunarsamband
Flóa og Skeiða tilboð í verkið.
Samkvæmt samanburði á til-
boðunum er tilboð Friðfinns
kr. 195 þúsund lægra en tilboð
RFS, miðað við 700 bormetra,
samtals kr. 1.445.000.
■ Bæjarráð hefur samþykkt
bókun menningarmálanefndar
um að ganga til samninga við
Verkfræðistofu Norðurlands
um hönnun loftræstikerfis í
Samkomuhúsið á Akureyri.
Kostnaður verður greiddur úr
Húsfriðunarsjóði.
■ Mcnningarmálancfnd hef-
ur samþykkt í samráði við
amtsbókavörð að ráða Sig-
rúnu Ingimarsdóttur, Kjalar-
síöu 12B Akureyri, í stöðu
bókasafnsfræðings við Amts-
bókasafnið. Fjórir bókasafns-
fræðingar sóttu um starfið.
■ Mcnningarinálancfnd hef-
ur samþykkt að veita Birni
Steinari Sólbergssyni, organ-
ista Akureyrarkirkju, styrk
vegna tónleikaferða erlendis.
Einnig hefur menningarmála-
ntefnd samþykkt að styrkja
Sunnu Borg, leikkonu, vegna
kynnisferðar til Rússlands og
sömuleiðis hefur nefndin sam-
þykkt að styrkja Norræna
djasskvintettinn vegna tón-
leika á Akureyri í júní nk.
■ Á fundi stjórnar Tónlistar-
skólans 11. mars sl. voru lögð
fram gögn frá Marek Podhajski
með hugmynclum um tónlist-
arhátíð árið 1994. Skólastjóra
var falið að láta vinna áfram
að úrvinnslu tillagna að tón-
listarhátíðinni.
Þurrkari Krossanesverksmiðjunnar í
Noregi óseldur:
Rætt heftir verið við
aðila í Noregi og Perú
Þurrkari sem Krossanesverk-
smiðjan lét smíða í Noregi á
sínum tíma og hætt var við að
setja upp í verksmiðjunni í
tengslum við miklu víðtækari
uppbyggingu verksmiðjunnar
sem eitt sinn var þar á dagskrá
er enn hjá framleiðanda í Nor-
egi. Reynt hefur verið að selja
þurrkarann en ekki tekist og
uppi eru hugmyndir um að
taka hann heim ef ekki verður
af sölu á þessu ári.
Kostnaður við að taka þurrkar-
ann heim og setja hann upp er
nokkur, en afköst verksmiðjunn-
ar munu aukast til muna ef nýi
þurrkarinn verður settur upp. Pá
þarf að leggja nýjan rafstreng til
Krossanesverksmiðjunnar.
Eftir því sem lengri tími líður
frá því þurrkarinn var framleidd-
ur verður erfiðara að selja hann,
þar sem vissir hlutir hans úreldast
vegna örrar tækniþróunar.
Framleiðandinn hefur aðstoð-
að verksmiðjuna við að reyna að
selja þurrkarann og m.a. hefur
verið rætt við aðila í Noregi og
Perú en á sínum tíma kostaði
hann 39 milljónir króna. Við
kaupin á þurrkaranum fylgdi lán
sem verið er að greiða af og vaxta-
kostnaður af því er a.m.k. 2
milljónir króna á ári. GG
Krossanesborgir norðan Akureyrar:
„Friðlýst land sem Akur-
eyringar verða að virða“
„Um langt árabil hafa hesta-
menn á Akureyri haft sumar-
og haustbeit fyrir hross í
Krossanesborgum norðan Ak-
ureyrar. Nú eru hrossin á braut
og bæjaryfirvöld hafa friðlýst
svæðið. Því er svo, að
umhverfisdeild Akureyrarbæj-
ar fer þess á leit við eigendur
torfærubíla að þeir aki ekki um
svæðið, sem gert hefur verið
gróðri og dýralífi til stórskaða.
Einnig viljum við benda á að
hundaeigendur hafa ekki heim-
ild til að slepppa hundum laus-
um á svæðinu, sem mikil brögð
eru að,“ segir Tryggvi Marinós-
son, fulltrúi hjá umhverfisdeild
Akureyrarbæjar.
Að sögn Trygga voru girðingar
í Krossaneshaga rifnar í haust.
Um svæðið liggja moldargötur og
gamlar slóðir bifreiða frá her-
námsárunum. Eigendur torfæru-
bíla og öflugri jeppa sækja nú í
slóðir þessar, sem er brot á öllum
reglugerðum er lúta að friðlýstu
landi.
inum að jafna sig eftir áratuga
beit búfjár og virða allar þær
reglur sem í gildi eru um friðlýst
land,“ segirTryggvi Marinósson.
ój
Lcstrarhestar í Borgarhólsskóla 6. bekkur í 5. stofu ásamt Halldóri Valdi-
marssyni skólastjóra og Arnheiði Eggertsdóttur kennara á safni. Á myndina
vantar Margréti Samsonardóttur kennara bekksins. Mynd:IM
Borgarhólsskóli:
Nemendur í verðlaunabekkmim
lesa alltaf mikíð
- segir Arnheiður Eggertsdóttir, kennari
Borgarhólsskóli á Húsavík
vann til verðlauna í Lestrar-
keppninni miklu. Það var 6.
bekkur í 5. stofu sem las mest
sinna jafnaldra. Bekkjarkenn-
ari er Margrét Samsonardóttir.
Nemendur í bekknum lásu alls
227 bækur, eða 10,8 bækur á
mann og 32.262 síður, eða
1536 síður á mann.
Arnheiður Eggertsdóttir kenn-
ari á safni sagðist ekki hafa orðið
hissa þegar bekkurinn hlaut verð-
launin. Þar væru margir afburða-
lesarar sem læsu alltaf mikið.
Sem dæmi nefndi hún Þóru Björk
Lárusdóttur sem las 32 bækur í
keppninni eða 5283 bls., Guð-
nýju Stefánsdóttur sem las 31
bók og 4526 bls. og Árna Rúnar
Sighvatsson sem las 25 bækur eða
3468 bls.
Arnheiður sagði að alltaf væri
mikil aðsókn að hinu nýja og
glæsilega bókasafni skólans og að
gaman væri að geta boðið upp á
slíka aðstöðu. Hún nefndi nokk-
ur dæmi um lestrarhesta í öðrum
bekkjum Borgarhólsskóla: Har-
aldur Sigurðsson 2. bekk í 5.
stofu las 25 bækur, samtals 1268
síður, Ragnheiður Sigurðardótt-
ir, 7. bekk í 6. stofu las 21 bók,
samtals 3543 og Ingibjörg Gunn-
arsdóttir, 8. bekk í 9. stofu las 32
bækur eða 6060 síður. IM
„Krossaneshaginn er eingöngu
ætlaður gangandi fólki. Á svæð-
inu er fjölskrúðugt fuglalíf. Hag-
inn á að vera griðarstaður
mófugla og andategunda, en milli
borganna eru víða seftjarnir.
Hundaeign Akureyringa er mik-
, en í Krossaneshagann mega
hundar ekki koma. Lausaganga
hunda í bæjarlandinu er bönnuð
og Krossaneshaginn er engin
undantekning þar á. f framtíð-
inni er ráðgert að gera svæðið
aðgengilegra fyrir gangandi fólk.
Göngustígar verða lagðir og brýr
settar á skurði og síki. Plöntur
verða merktar þannig að fólk hafi
nokkurt gagn af svæðinu, en í
fyrstu verðum við að leyfa gróðr-
Alþjóðaheilbrigðisdagurinn er í dag
Alþjóðaheilbrigðisdagurinn er
í dag 7. apríl. Að þessu sinni
eru dagurinn helgaður slysa-
vörnum með yfirskriftinni:
„Berum umhyggju fyrir lífinu
og sýnum því virðingu. Kom-
um í veg fyrir ofbeldi og van-
rækslu.“
Slys valda árlega ótímabærum
dauðdaga hjá 3,5 milljónum jarð-
arbúa en fleiri hljóta ævarandi
örkuml. Of lengi hefur verið litið
á slysin sem eitthvert yfirnáttúru-
legt fyrirbrigði, sem ekkert verð-
ur ráðið við. Sé hins vegar tekist
á við þau sem farsótt, sem hægt
er að beita skipulegum vörnum
við, má vænta góðs árangurs. í
þessu tilliti skulum við hugsa til
þess sem áunnist hefur í barátt-
unni gegn smitsjúkdómum á
þessari öld.
Alþjóðaheilbrigðismálastofn-
unin hvetur aðildarlöndin til að
fækka dauðaslysum um 25% fyrir
árið 2000 miðað við það ástand
, Skákfélag Akureyrar:
Urslit í hraðskák og öldungamóti
Urslit í fyrsta 15 mínútna mót-
inu sem Skákfélag Akureyrar
hélt sérstaklega fyrir 45 ára og
eldri urðu þau að Haraldur
Ólafsson sigraði. Hann fékk
6V2 vinning af 8 mögulegum.
Næstir komu Sveinbjörn Sig-
urðsson með 5Vi vinning, Haki
Jóhannesson með 5 vinninga og
Margeir Steingrímsson sömuleið-
is með 5 vinninga.
Efstu menn í aprílhraðskák-
mótinu urðu þessir: 1. Rúnar Sig-
urpálsson 12V$ v. af 16 möguleg-
um. 2. Rúnar Berg 9x/i v. 3. Pór-
leifur Karlsson 9 v. 4. Gylfi Pór-
hallsson 9 v.
Bikarmót Skákfélags Akureyr-
ar hefst miðvikudaginn 7. apríl
kl. 20. Hver keppandi fær hálfa
klukkustund í umhugsunartíma
og keppandi er úr leik þegar
hann hefur tapað þremur vinn-
ingum.
Á annan dag páska kl. 14 verð-
ur páskahraðskákmót og verða
veitt páskaegg í verðlaun fyrir
þrjú efstu sætin í flokki fullorð-
inna sem og unglinga. SS
sem ríkti árið 1980. Talið er að
vænlegasta leiðin til að ná þessu
markmiði sé að berjast gegn slys-
unum í sveitarfélögunum. Fólk
er almennt áhugasamt um vanda-
málin á heimaslóð og er tilbúið til
aðgerða. Góð reynsla er af slysa-
vörnum í sveitarfélögum í Sví-
þjóð en þar hefur tekist á nokkr-
um stöðum að fækka slysum um
30% á örfáum árum með skipu-
lögðu átaki.
í vikunni hélt Ólafur Hergill
Oddsson, héraðslæknir Norður-
landsumdæmis eystra, fund með
sveitarstjórnarmönnum í heilsu-
gæsluumdæmi Akureyrar og ýms-
um eftirlitsmönnum Akureyrar-
bæjar, Eyjafjarðar og ríkisins.
Fulltrúi Slysavarnafélags íslands,
formaður Slysavarnadeildar
kvenna á Akureyri, yfirlæknir
bæklunardeildar FSA og héraðs-
læknir fluttu erindi um slysavarn-
ir og urðu líflegar umræður á
eftir.
Mikill áhugi er á því að vinna
markvisst og í samvinnu að fækk-
un slysa í heilsugæsluumdæmi
Akureyrar. Fréttatilkynning