Dagur - 07.04.1993, Page 5

Dagur - 07.04.1993, Page 5
Miðvikudagur 7. apríl 1993 - DAGUR - í Fréttir Athugasemdir við málflutning andstæðinga Kísiliðjunnar hf. Á undanförnum árum hafa ýmsir andstæðingar Kísiliðj- unnar hf. haldið því fram að aflasamdrátt í Mývatni megi rekja til starfsemi Kísiliðjunn- ar hf. Hér er um að ræða raka- Iausar fullyrðingar. Samkvæmt niðurstöðu Sérfræðinganefnd- ar um Mývatnsrannsóknir er ekki hægt að tengja saman sveiflur í dýrastofnum vatnsins við starfsemi Kísiliðjunnar hf. Verkefnishópur um Mývatns- rannsóknir bætir um betur og telur margt benda til þess að líta megi á Mývatn sem tvö sjálfstæð vatnakerfl, það er Ytri-Flói og Syðri-FIói. Friðrik Sigurðsson. Skýringanna að leita í veðurfari Hinn meinti samdráttur í veiði- tekjum bænda við Syðri-Flóa verður því alls elcki rakinn til Kísiliðjunnar hf. Þvert á móti virðist skýringanna að leita í veðurfari. Allar hótanir and- stæðinga Kísiliðjunnar hf. bæði fyrr og nú þcss efnis að sækja bætur fyrir meintan tekjumissi til Kísiliðjunnar hf. eiga því alls ekki rétt á sér. Hótanir þeirra um skaðabótakröfur og lögbann snúast því eingöngu um að bæta þeim upp meintan tekjumissi eða peninga, hvað svo sem þeir segja í dag. Ánægjuleg breyting í Ytri-Flóa Urriðinn Ef skoðaðar eru tölur um silungs- veiði í Mývatni kemur margt áhugavcrt í Ijós. Urriði hrygnir nær eingöngu í Ytri-Flóa, og þar veiðist einnig mest af honum (línurit 1). Veiði á urriða hefur verið nær stöðug síðan um 1970. Starfsemi Kísiliðjunnar hf. veld- ur því a.m.k. ekki samdrætti í urriðaveiði í Ytri-Flóa, gagnstætt fullyrðingum andstæðinga Kísil- iðjunnar hf. Takmörkuð stofn- stærð urriðans verður fyrst og fremst rakin til takmarkandi upp- eldis- og hrygningarskilyrða af náttúrulegum orsökum, en urrið- inn hrygnir í súrefnisríku straum- vatni. Við aukið áfok af landi og nýntyndun sets takmarkast upp- eldis- og hrygningarstöðvar enn frekar. Urriðastofn vatnsins virð- ist vera nokkuð stöðugur. Bleikjan Bleikjan í Mývatni hrygnir fyrst ogfremst í Syðri-Flóa. Verulegar sveiflur hafa verið í bleikjuveiði á undanförnum árum, gagnstætt því sem er reyndin með urriðann í Ytri-Flóa. Aflabrestur undan- farinna ára hefur meðal annars verið rakinn til breytinga í um- hverfisaöstæðum svo sem átu- brests, hækkandi hita- og sýru- stigs í vatninu og grynnkunar vatnsins. Hugsanlega er bleikjan í Mývatni á mörkum útbreiðslu sinnar, en hún er hánorræn teg- und sem drepst við hitastig yfir 24 gráðum á celsíus. Urriðinn er mun hitaþolnari tegund og gæti því komið að nokkru leyti í stað bleikju, til að mynda með fisk- rækt. Nýlegar hugmyndir þeirra þess efnis að nota hugsanlegar skaða- bætur til þess að bæta fyrir meint náttúruspjöll Kísiliöjunnar hf. eru ástæðulausar. Kísiliðjan hf. hefur ekki valdið náttúruspjöll- um. Pvert á móti hefur orðið ánægjuleg breyting í Ytri-Flóa, þar sem dæling hefur átt sér stað. Því er ntjög brýnt að læra af þeirri reynslu og hefja tilrauna- dælingu sem fyrst sunnan Teiga- sunds og stemma þannig stigu við þeirri lífríkishnignun sem þar hefur átt sér stað. Köfnunarefnisaukningin Hvað varðar köfnunarefnisaukn- ingu í Mývatni, er rétt að hnykkja enn einu sinni á áliti Sérfræðinganefndar um Mývatns- rannsóknir frá árinu 1991. Aukn- ing hefur orðið í ákomu næring- arefna með lindarvatni er streym- Landssamband smábátaeigenda: Hafnar niðurstöðu nefndar um mótun sjávarútvegssteftiu „A grundvelli laga um stjórn- un flskveiða nr. 38/1990 segir að Nefnd um stjórnun sjávar- útvegsstefnu skuli t.d. meta hagkvæmustu samsetningu fiskiskipaflotans. Þetta viða- mikla mál afgreiðir nefndin með hreinum orðhengilshætti í kringum þá „niðurstöðu“ að henni sé ekki unnt að komast að niðurstöðu! Því liggur Ijóst fyrir að nefndin hefur í veiga- miklum atriðum brotið og hunsað þau ákvæði laganna er kveða á um störf hennar,“ seg- ir Arthur Bogason, formaður Landssambands smábátaeig- enda. Að sögn Arthurs hefur Nefnd- in um mótun sjávarútvegsstefnu algjörlega sniðgengið hið lög- skipaða samráð við sjávarútvegs- nefnd Alþingis og samtök helstu hagsmunaaðila í sjávarútvegi. „I desember sl. sendi Lands- samband smábátaeigenda nefnd- inni viðamikið safn upplýsinga um smábátaútgerðina. Megnið af þessum upplýsingum var frá virt- um opinberum stofnunum bæði innanlands og utan. Þrátt fyrir mikinn texta um smábáta í skýrsludrögum nefndarinnar sér hún enga ástæðu til að nýta sér þau gögn og vísar ekki til þeirra í heimildarskrá. Landssamband smábátaeigenda vill sérstaklega benda á að ýmsar þær upplýsing- ar sem fram koma frá nefndinni varðandi smábátaútgerðina eru beinlínis rangar eða þannig fram settar að meginatriðum er sleppt. Landssamband smábátaeigenda telur að Nefnd um mótun sjávar- útvegsstefnu hafi með vinnu- brögðum þessum sýnt sig van- hæfa til að fjalla um þau mál er henni var ætlað, samkvæmt nú- gildandi lögum um stjórnun fisk- veiða, og hafnar því niðurstöðum nefndarinnar," segir Arthur Bogason. ój Ríkið: 744 emstaklingar fengu 3 millj. eða meira í laun á síðasta ári Á árinu 1992 fengu 744 ein- staklingar á landinu greiddar 3 milljónir króna eða meira í laun frá ríkinu og er þá átt við samanlögð grunnlaun, fasta yflrvinnu, aðra yflrvinnu, þóknunarreikninga, aðrar þóknanir, bflastyrki, nefndar- laun og önnur laun. Þessar upplýsingar koma fram í svari fjármálaráðherra við fyrir- spurn Krístínar Ástgeirsdóttur um launagreiðslur ríkisins á liðnu ári. Fram kemur í svarinu að af 744 einstaklingum hafi karlarnir ver- ið 685 eða 92,1% og konurnar 59 eða 7,9%. Meðaltal heildarlauna þessara 685 karla voru 3,6 millj- ónir en til samans voru laun þeirra tæpir 2,5 milljarðar króna. Meðaltal heildarlauna 59 kvenna var 3,4 milljónir króna en til sam- ans voru laun þeirra rétt um 200 milljónir króna. í svari fjármálaráðherra er skrá yfir stofnanir þar sem ein- staklingar fá 3 milljónir eða meira í laun. Þar af eru 11 stofn- anir á Norðurlandi: Háskólinn á Akureyri, Verkmenntaskólinn á Akureyri, Héraðsdómur Norður- lands eystra, sýslumannsembætt- in á Blönduósi, Sauðárkróki, Siglufirði, Ólafsfirði, Akureyri og Húsavík, Ríkisspítalar legu- deildir Kristnesi og Skattstofa Norðurlands vestra. óþh 50.000 - 40.000 - 30.000 - 20.000 - 10.000 - 0 - 3.000 2.000 1.000 0 “1—i—i—r—i—|—i—i—i—i—|—i—r—r—i—[—i—i—i- ________1970________1975________1980________1985_________ Línurit 1. Afli í Mývatni 1970-1988. a) Bleikjuveiði. b) Urriðaveiði. Byggt á gögnuni frá Veiðiniálastofnun. Aflatölur eru ekki til frá árunum 1981-1982, en þá var veitt samkvæint kvóta. ir í Ytri-Flóa eftir 1969. í saman- burði við heildarumsetningu þessara efna í vatninu sjálfu eru áhrif þessara breytinga í ákomu lítil á næringarbúskap vatnsins og þeirra gætir ekki mælanlega í styrk næringarefna í vatninu. Jafnfranit er rétt að benda á niðurstöðu Verkefnishóps um Mývatnsrannsóknir. Hann segir að setflutningar ráðist fyrst og fremst af vindknúnum straumum í vatninu. I svo grunnu vatni sem Mývatni verður mikið upprót næringarefna við vindálag. í botnsetinu eru næringar'efni, auk þess sem áfok af landi í vatnið er næringarefnaríkt og áburðar- notkun er mikil í Mývatnssveit. Þetta ásamt stööugri grynnkun vatnsins leiðir til þess að magn næringarefna í vatninu eykst. Til þess að snúa við þessari þróun er því eölilegt að halda áfram dýpk- un vatnsins. Námagröftur Kísil- iðjunnar hf. er kjörin leið til þess að dýpka Mývatn og koma þann- ig í veg fyrir frekari lífríkishnign- un í Mývatni. Með dýpkun Mý- vatns er í raun aðeins verið að færa ástand vatnsins til fyrra horfs. Allar rannsóknir sem fram hafa farið á Mývatni til þesss hafa leitt í Ijós að óbreytt ástand er nánast óþekkt í sögu Mývatns. Reykjahlíð 04.04 ’93. Friðrik Sigurðsson, framkvæmdastjóri Kísiliðjunnar hf. (Millit'yrirsagnir eru blaðsins) !J!Í I fi«™ IH if II HOTEL KEA Geirmundur Valtýsson og hljómsveit í syngjandi sveiflu í kvöld Leikhúsmatseöill: Rjómalöguð skelfisksúpa. Léttsteiktar lambalundir með madeirasósu. Kaffi og heimalagað konfekt. Verð í kvöld með dansleik kr. 2.500,- Önnur kvöld kr. 2.100,- Gleðilega páska.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.