Dagur - 07.04.1993, Page 11

Dagur - 07.04.1993, Page 11
Miðvikudagur 7. apríl 1993 - DAGUR - 11 - viðtal við sr. Hjálmar Jónsson, prófast í Skagafirði, um mannanafnalög og túlkun þeirra 2. apríl voru glaðbeittir gestir á ferð á Akureyri. Þetta voru nemendur í Framhaldsskóla Vestfjarða á ísafirði í boði LOCOSar, leikklúbbs Verk- menntaskólans á Akureyri. Vestfirsku nemendurnir voru með í farteski sínu sýningu á leik- verki því, sem þeir settu upp fyrir Sólrisuhátíð skóla síns. Verkið heitir „Maður er manns gaman“ og er í leikskrá nefnt „sagnfræði- legur gleðileikur“. Það er hóp- samið af leikhópnum undir stjórn Akureyringsins Arnar Inga Gíslasonar, en hann er leikstjóri sýningarinnar. Verkið var sýnt á Akureyri í „Gryfju“ Verk- menntaskólans. Efnið er nokkur upprifjun ýmissa þátta sögu þjóðarinnar. Atriðin, sem fyrir eru tekin, eru mörg og hefjast á fjöllum uppi, þar sem liggja í híði sínu Halla og Eyvindur. Síðan er vikið í baðstofu, komið að sjálfstæðis- baráttunni og áfram að hernámi og ástandi. Allur þessi hluti gengur lipur- lega fyrir sig og er á ýmsan veg betur unninn en margt það, sem á svið er sett og heitir hópverk- efni. Þetta hópverkefni líður hins vegar fyrir það sama og rnörg önnur sama eðlis. Þegar líður á virðist ímyndunaraflið taka að dofna og hugmyndir að verða fátæklegri. Atriðin, sem áður voru allsnaggaraleg, taka að lengjast og verða ómarkvissari en góðu hófi gegnir. í hópverkefni Vestfirðinganna eru síðari atriði sífellt meira með þessum einkennum. Þættir, sem eiga að sýna ýmsar hliðar skemmtanalífsins í gegnum árin, verða, vegna óhóflegrar lengdar, ómarkvissir og jafnvel á stundum þreytandi. Flytjendur hópverkefnisins eru fjörlegir og að mörgu leyti vel færir um hlutverk sín. Framsögn og fas eru gjarnan góð, en nokk- uð oft kemur þó fyrir lesleg og losaraleg framsaga og ómarkviss- ar sviðshreyfingar, sem leikstjóri hefði mátt hafa auga með og lag- færa. Búningar eru í flestum tilfell- um skemmtilega valdir. Þó kem- ur nokkuð oft fyrir, einkum í fyrri hluta sýningarinnar, ýmis- legt, sem ekki fellur að því tíma- bili, sem um er fjallað. Leikbúnaður er einfaldur en þó fullnægjandi og reyndar ýmis- legt skemmtilega leyst, svo sem baðstofumyndin. Þá var lýsing á sýningunni í Verkmenntaskólan- um allgóð og einnig margt í „hljóðeffektum“, sem eru tals- vert margir í sýningunni. Það besta við sýningu nemenda Framhaldsskóla Vest- fjarða í Gryfju Verkmenntaskól- ans var fjör og kæti flytjendanna. Hún var næg til þess að jafna ýmsa þá galla, sem á uppsetning- unni voru og gera kvöldstundina ánægjulega. Haukur Ágústsson. getur ekki hugsað sér að börnin beri ef hægt er að afstýra því. Það er sárafá tilfelli, en ég veit ekki annað en það fólk sem ég hef hjálpað til að taka aðra ákvörðun sé ásátt og þakklátt fyrir það. Ráðgjöf er miklu árangursríkari leið. Það þarf frjálsari reglur og að nefndin sé fyrst og fremst til ráðgjafar og nafnalistarnir séu óskalistar. En við verðum að hafa vissan ramma, það er alveg eðlilegt.“ Þarf að vera friður um nafnalög „Það eru ótal dæmi um að börn hafi verið skírð, en nafninu síðan hafnað. Ef við tökum það tilfelli sem hér kom upp með nafnið Reynald, þá hefur það verið not- að í landinu í rúmar tvær aldir, að vísu með mismunandi staf- setningu. Reynald er eins mynd- að og t.d. Albert sem engum dettur í hug að amast við. Albert ætti að vera Aðalbjartur ef það væri íslenskt. Leopold er svipað nafn. Ég vissi að þetta nafn Reynald var ekki á skrá, en skömmu áður hafði ég leitað úrskurðar um nafnið Kort. Það var samþykkt þar sem það hefði verið í gildi í landinu svo lengi að ekki væri hægt að amast við því. Með þetta fordæmi taldi ég víst að Reynald yrði samþykkt. Þetta var milli jóla og nýárs og ég náði ekki í nefndarfólkið og tók þessa áhættu með foreldrunum. Að öðrum kosti hefði þurft að fresta skírninni eða breyta um nafnið. Að mínum dómi voru yfirgnæf- andi líkur á að nafnið yrði samþykkt. Það er u.þ.b. tveggja alda gamalt í málinu. Ég tel rétt að fólk bíði endur- skoðunar laganna, enda ekkert annað að gera. Við endurskoðun laganna þarf að búa svo um hnúta að friður verði um nafna- lög. Ég vil bæta því við að prest- urinn skírir börn og er þá að sinna sínu trúarlega og kirkjulega hlutverki. Hann er jafnframt settur í það að vera gæslumaður með nafnalögum. Það er svo sem allt í lagi. En túlkun nefndarinn- ar á lögunum stríðir í vissum til- vikum gegn réttlætiskennd fólks, presta sem annarra. Við erum í rauninni ekki að brjóta lögin heldur túlkun nefndarinnar á þeim. Vissulega má segja að nefndin hafi vald til að túlka lög- in eftir sínum vilja. En hennar sjálfrar vegna tel ég að hún hafi of mikið vald. Þróun íslensks máls hefur aldrei verið nefndar- starf.“ Páskallljur, páskagrelnar, páskakerti, páskaskraut, páskaserviettur og margt fleira. Opið fímmtudag (skírdag) kl. 9.00-18.00, laugardag 10. apríl kl. 9.00-19.00. akur! KAUPANGIV/ MYRARVEG 602 AKUREYRI SÍMAR 24800 & 24830 PÓSTHÓLF 498 Árið 1991 voru sett á Alþingi lög um íslensk mannanöfn og í framhaldi af því tók manna- nafnanefnd til starfa. Nefndin hefur endanlegt úrskurðarvald um íslensk mannanöfn og gerði skrá yfir heimil nöfn. Mörgum þykja reglur þær sem nefndin hefur starfað eftir vera alltof strangar. Kvartanir hafa borist til umboðsmanns alþing- is vegna þessa og talsvert verið um málið fjallað í fjölmiðlum. Mannanafnanefnd starfar ennþá, en aðalmennirnir sögðu af sér og varamenn komu í stað þeirra. Sr. Hjálm- ar Jónsson varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins á Norður- landi vestra og prófastur Skagafjarðarpról'astsdæmis spurði dómsmálaráðherrann, Þorstein Pálsson, í þinginu nýverið hvort fyrirhugað sé að endurskoða lögin frá 1991 og svaraði Þorsteinn því játandi. Sett verður nefnd til endur- skoðunar laganna frá 1991. Þeir sem þegar hafa skírt börn sín, en fengið synjun á nöfnum, verða því líkast til að bíða átekta og sjá hverju fram vindur. Um er að ræða fjölmörg tilfelli, nokkra tugi. Sr. Hjálmar er sennilega manna best heima í þessum efn- um þar sem hann er starfandi prestur og þarf oft að skíra börn, en jafnframt þekkir hann vel til starfa alþingis. Hann skilur vel að aðstandendum sé sárt um að vera neitað um að nefna börn sín þeim nöfnum sem þau hafa valið að vandlega íhuguðu máli. af þeim. Ég fékk jákvætt svar við því og hann er þegar farinn að vinna að því að nefnd taki til starfa við að endurskoða lögin. Ráðuneytið hefur fengið mörg vandamál t.d. varðandi nöfn sem eru viðtekin og algeng, sem er hafnað. Ég vona að eitthvað komi út úr þessu og að lögin verði túlkuð með vissu umburð- arlyndi. Ég hef persónulega fengið nokkur tilvik þar sem foreldrar hafa borið undir mig nöfn, þar sem ég hef reynt að leiða þeim fyrir sjónir að nöfnin gangi ekki. Állir prestar lenda í þessu ein- hvern tíma. Það þarf auðvitað fyrst og fremst að hugsa um vel- ferð barnsins og stundum kemur það fyrir að foreldrar koma með mjög undarleg nöfn, sem maður Skírn sem er gleðilegur atburð- ur fyrir aðstandendur hefur því stundum snúist upp í óþægindi. Dómgreind presta og foreldra er eiginlega tekin úr sambandi í þessum málum, eins og þetta er núna. íslenskur nafnasiður hefur orðið til samkvæmt smekk fólks og máltilfinningu. Því má gjarn- an bæta við að yfirgnæfandi meirihluti íslenskra mannanafna er góður og gildur. Það segir okk- ur að ekki þarf að taka fast í taumana. En svo eru alltaf ein- hver tilvik sem má segja að séu á jaðrinum. Það eru auðvitað þau sem koma til álita og úrskurðar. í flestum löndum Evrópu eru lög um mannanöfn. En m.v. hvernig þessi lög hafa reynst hefur að sjálfsögðu unnið sér hefð.“ Eðlilegt að hafa ramma „Nú er verið að snúa til baka ýmsu sem hefur viðgengist. Ég neita því ekki að nefndin hefur nokkuð til síns máls og Guðrún Kvaran formaður nefndarinnar hefur gert marga góða hluti. Hún samdi reyndar sjálf drögin að frumvarpinu og á sinn þátt í að það varð að lögum. Málið er það að nefndin hefur töluvert rúmar hendur með það hvernig hún túlkar lögin. Ég kom með fyrirspurn í þing- inu til dóms- og kirkjumálaráð- herra, hvort hann hygðist endur- skoða lög um mannanöfn frá ’91, í ljósi reynslunnar sem er fengin Sr. Hjálmar Jónsson. Leiklist mörg nöfn eru með þolfallsend- ingu, t.d. Ásberg, Valberg, Erling, en nefndin segir þau eiga að vera í nefnifalli, s.s. Erlingur o.s.frv. Ég hef dæmi um það frá presti að ekki megi nota nafnið Erling, þ.e. í þolfalli. Hann fletti upp í símaskránni og komst að því að það eru nokkurn veginn jafn margir sem heita Erling og Erlingur. Það má benda á að al- gengasta karlmannsnafn í landinu er í þolfalli, nafnið Jón. Það ætti að vera Jónn, sbr. Sveinn. Það Of stífar reglur „Það er ekkert hégómamál fyrir fólki að velja börnunum sínum nöfn. Fólk hugsar sig yfirleitt vel um og þegar það kemur til prests- ins þá er það yfirleitt með mót- aða skoðun. Þetta er eitt mikil- vægasta tilfinningamál foreldra. Það er margt vitlausara en það orðtak að gifta fylgi góðum nöfn- um og fólk vill gefa börnin sín góðum nöfnum. Hingað til hafa prestar verið ráðgjafar og haft frekari stuðning frá Hagstofu og Heimspekideild Háskólans. fannst mér að endurskoðunar væri þörf. Það hlaðast upp vandamál og ágreiningsmál og umboðsmaður alþingis fær fjöld- an allan af málum. Nefndin hefur sett sér svo stífar reglur til að fara eftir að fólk unir mjög illa úrskurðinum. Á sama tíma leyfir nefndin ýmis nýnefni sem mér finnst að orki miklu frekar tví- mælis og miklu eðlilegra að þar sé spyrnt við fótum en að banna nöfn sem hafa verið í gildi all lengi. Sem dæmi má nefna að Glaðir gestir að vestan Þróun íslensks máls er ekki nefndarstarf

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.