Dagur - 09.12.1993, Side 14
14 - DAGUR - Fimmtudagur 9. desember 1993
B/EKUR
Jólakveðjur -
Jólablað
Benedikt
á Auðnum
Jólablab Dags kemur út föstudag-
inn 17. desember.
Þeir aðilar sem vilja senda kveðjur
til starfsfólks, viðskiptavina eða
annarra, vinsamlegast hafið
samband við auglýsingadeild Dags
sem fyrst og eigi síðar en
föstudaginn 10. desember nk.
Auglýsingadeild sími 24222.
Rekstur/Atvinna
Til sölu matvælafyrirtæki (salatgerö) í fullum
rekstri staösett á Akureyri.
Um er að ræða þekktar vörur með góða framlegð.
Gott tækifæri fyrir dugmikla aðila.
Allar nánari upplýsingar í síma 96-25832.
Gleymið ekki
að gefa smáfuglunum.
Mál og menning hefur sent frá sér
ævisögu Benedikts á Auðnum sem
skráó er af Sveini Skorra Hösk-
uldssyni.
Benedikt Jónsson, sem kenndur
var við Auðnir í Laxárdal, lifði
svo sannarlega tvenna tíma. Hann
fæddist að Þverá í Suður-Þingeyj-
arsýslu árið 1846, og lést á Húsa-
vik snemma árs 1939. Alla sína
löngu ævi var Benedikt með ólík-
indum starfsamur og tók öflugan
þátt í því mikla uppbyggingar-
starfi íslensks samfélags og menn-
ingar sem fram fór á þessu tíma-
bili.
Aratug fyrir andlátió kallaói
Haldór Laxness hann „föður Þing-
eyinga“ í tímaritsgrein, „af því að
hann er faðir þingeyskrar alþýðu-
menningar“. Benedikt lét til sín
taka í stjómmálum, hann var lífið
og sálin í starfsemi Kaupfélags
Þingeyinga um langt skeið, hann
byggði upp stórmerkilegt sýslu-
bókasafn á Húsavík og hann átti
merkan þátt í varðveislu íslenskra
þjóðlaga.
Sveinn Skorri Höskuldsson
hefur um langt árabil rannsakað
ævi og verk Benedikts á Auðnum,
eftir prentuðum heimildum sem
óprentuðum, og hefur hér dregið
saman nióurstöður sínar í bók sem
í senn er ævisaga og aldarspegill.
Hún er ríkulega myndskreytt.
Bókin er 607 bls., unnin í G.
Ben. Prentstofu hf. og kostar kr.
3.880.
Gallar á fullorðna - Verð kr. 7.900,
Gallar á börn - verð kr. 3.600,-
Úrval af húfum og vettlingum
Glerárgötu 28 • Sími 11445
Guðbergur Bergsson.
Sú kvalda ást
sem hugar-
fylgsnin geyma
- ný skáldsaga
eftir Guðberg Bergsson
Bókaútgáfan Forlagið hefur gefió
út skáldsöguna Sú kvalda ást sem
hugarjylgsnin geyma eftir Guð-
berg Bergsson. Þetta er tólfta
skáldsaga Guðbergs og eru þá
ótalin smásagnasöfn, ljóðabækur
og fjölmargar þýðingar á stórverk-
um heimsbókmenntanna.
I kynningu Forlagsins segir: „I
kjallaraherbergi úti í bæ kúrir
miðaldra maður og bíður þess aö
ástin berji að dyrum. Þar leitar
hann nautnar sem er ósýnileg
heiminum, rammflæktur í íslensk-
um hnút, innst í völundarhúsi ást-
arinnar. - I meistaralegri sögu
sinni leiðir Guóbergur Bergsson
lesandann um þetta völundarhús
og býður honum að líta í huga
mannsins sem ráfar þar og leitar
aó ljósinu sem kannski er hvergi
til.“
Sú kvalda ást sem hugarfylgsn-
in geyma er 239 bls. Prentsmiðjan
Oddi hf. prentaði. Bókin kostar
2.850 kr.
Ekkert mál
- sagan á bak við
Jón Pál
Fyrirtækið Island og umheimurinn
hf. hefur gefið út bókina Ekkert
mál - sagan á bak við Jón Pál:
Ævisaga Jóns Páls Sigmarssonar
íþróttamanns ásamt yfirliti um
arfleijð íslenskra kraftamanna,
eftir Ólaf H. Torfason.
Bókin er tvískipt: Annars vegar
er fjallað um ævi Jóns Páls Sig-
marssonar en hins vegar er í l'yrsta
sinn reynt að fella íslenska krafta-
menn inn í ramma ákvcðinnar arf-
leifðar.
Sagt er frá æsku Jóns Páls í
Skáleyjum á Breiðafirði, í Stykk-
ishólmi og í Reykjavík, störfum
hans í höfuðborginni, íþróttaferl-
inum og síðan atvinnumcnnsku
erlendis í aflraunum um nær 10
ára skeið. Lýst er í máli og mynd-
um æfingum Jóns Páls og þátttöku
í karate, ólympískum lyftingum,
kraftlyftingum, vaxtarrækt, hnefa-
leikum, skotfimi, sjómanni og
hjólastólaakstri og alls konar afl-
raunum. Sagt er frá persónuleika
og venjum Jóns Páls, skapi, trú-
málum, peningamálum, mataræði,
ímynd, glannaskap, íslenskukunn-
áttu, konum, áfengi, lyfjum,
frægð, meiðslum, hjartasjúkdóm-
um og streitu. ítarlega er fjallað
um ævilok Jóns Páls Sigmarsson-
ar og vangaveltur sem upp hala
komið um dánarmein hans. Mjög
ítarlega er fjallaó um lyfjanotkun
íþróttamanna í bókinni og teflt
saman ýmsum sjónarmióum og
upplýsingum.
1 köflunum Arfleifð og Karl-
mennska og íþróttir er rakin saga
kraftamennskunnar. Fjallað er um
kraftamenn með fornþjóðum, í ís-
lendingasögum, þjóðsögum og
fram á 20. öld. I bókinni er reynt
að setja kraftaíþróttir í sögulegt og
félagslegt samhengi. Settar eru
fram kenningar um hlutverk af-
reksmanna hjá þjáðri þjóð, afl-
raunir og sióalærdóma, um heim-
ilda- og skemmtanagildi aflrauna-
sagna og fjallað um breytileg vió-
horf til karlmennskunnar. Sérstök
áhersla er lögð á fróðleik um ís-
lenskar aflraunir að fornu og nýju,
bent á aflraunasteina víðs vegar
um Island, vísaó nákvæmlega á
heimildir um sterka menn og afrek
þeirra í Islendingasögum og þjóð-
sagnasöfnum. Bókinni fylgja ítar-
legar heimilda- og tilvísanaskrár.
I bókinni er rætt við rúmlega
50 einstaklinga um Jón Pál Sig-
marsson og ýmsar hliðar íþrótta
og heilsuræktar.
Bókin er 200 bls. aó lengd í A4
broti, prýdd 102 litmyndum og 68
svarthvítum, prentuð í Svans-
prenti. Verö bókarinnar er 3.590
krónur.
Borg
- skáldsaga eftir
Rögnu Sigurðardöttur
Mál og menning hefur scnt frá sér
skáldsöguna Borg eftir Rögnu
Sigurðardóttur.
Sagan fjallar um þrjár ungar
persónur í leit aó ást og hamingju,
þau Vöku, Ullu og Loga. Sögu-
sviðið er einhver borg, Reykjavík,
Amsterdam, kannski einhver allt
önnur borg.
I frétt frá útgefanda segir m.a.:
„í þessari fyrstu skáldsögu sinni
bcitir ljóðskáldið og myndlista-
konan Ragna Siguróardóttir penn-
anum af næmni og innsæi. Höf-
undurinn notar birtu, liti og form
til að byggja upp gullfallega,
ljúfsára og létterótíska sögu um
ungt fólk í leitinni eilífu að ást og
viðurkenningu annarra.“
Bókin er 181 bls., unnin í G.
Ben. Prenststofu hf. og kostar kr.
2.680.
FLUGLEIÐIR
Flugfrakt
Viðskiptavinir
athugið
Rýmri opnunartími
í desember
Frá 13.-23. des. virka daga frá kl. 8.00-19.00
Laugardagana 11. og 18. des. frá kl. 10.00-18.00
Sunnudaginn 19. des. frá kl. 10.00-18.00