Dagur - 10.02.1994, Blaðsíða 3
FRETTIR
Fimmtudagur 10.febrúar 1994 - DAGUR - 3
Kaupsamningum vegna Matfells sf. rift
- rekstur Kolagrillsins í Reykjavík seldur eiganda húsnæðisins
■ Lagóar hafa veriö fram í
bæjarráói hugmyndir um brcyt-
ingar á stjórnkcrfi Siglutjarðar-
bæjar. Þar er gert ráó fyrir sex
nefndum; bæjarráói, félags-
málaráði, fræöslu- og menn-
ingamefnd, húsnæöisnefnd,
tækni- og umhverfisráði og
hafnarncfnd. Bæjarráó sam-
þykkti aö vísa þcssum hug-
myndum til fyrri umræðu i
bæjarstjóm.
■ Bæjarráð samþykkti aö ýta á
eftir því aö Guðmundi Guöna-
syni yrói úthlutaó scrleyfió
Siglufjöróur-Sauöárkrókur-
Varmahlíö.
■ Anton V. Jóhannsson kom á
fund bæjarráös nýlcga til aó
ræöa lramtíö Sæbyhússins svo-
kallaöa sem var A-friöaö árió
1977. Bæjarráó samþykkti aö
bæjarstjóri og Anton myndu
ræöa málin viö hlutaóeigandi
og geri lillögur fyrir bæjarráö.
■ Þá ræddi bæjarráö nýverið
um hugmynd um sölu skíöa-
korta hjá Síglfirðingafélaginu i
Reykjavík til slyrktar uppbygg-
ingu skíöastarfs á Siglufirði.
Bæjarráö samþykkti að reyna
þessa sölu og fól bæjarstjóra
og skrifstofustjóra aö útfæra
hugmyndina ásamt formanni
Skiðafélagsins.
■ í framhaldi af auglýsingu frá
Siglufjaröarkaupstað þar sem
þeir sem óskuðu eftir styrkveit-
ingu frá bænum vora beðnir aó
sækja um, þá sendi Kristján El-
íasson íbúðarcigandi vió Lækj-
argötu bréf þar scnt hann sagöi
ekki farir sínar sléttar við æðri
máttarvöld sem og „kreml-
versk” bæjaryfirvöld. Kristján
segist hafa oröiö fyrir baröinu
á úrkomu í formi frysts vatns
og hafi hún scst í skafla og
teppt aðgengi hans og annarra
sem hann tengist að húsi hans.
Fjarlægð húss Kristjáns frá
götu hafi gert þaö aö verkum
að cignin hafi ekki lcnt inn á
snjómokstursáætlun „kreml-
verjanna“ og virtist gleymd og
grafin. Að auki hafi óhaggan-
legir valdhafar ekki sinnt því
aó svara bréfi Kristjáns frá síó-
asta ári um málcfni tengd um-
ræddri húseign. í ljósi nefndra
ástæðna sótti Kristján urn styrk
til snjómoksturs aó húseign
sinni. Bæjarráð fól skrifstofu-
stjóra aó rita Kristjáni bréf og
tilkynna honum aó styrkbeiðni
hans veröi tckin fyrir mcö öör-
um styrkbeiönum viö gerö fjár-
hagsáætlunar.
Kaupsamningum sem undirrit-
aður voru 1. desember sl. milli
Sigurðar J. Finnssonar, eiganda
Kolagrillsins við Strandgötu, og
Spáð í afla á loðnuvertíð:
„Ætli það berist
ekM 38.285 tonn
af loðnu til
Sigluljarðar“
- segir Kristján Möller,
forseti bæjarstjórnar
Siglufjarðar
Fyrsta loðnan á yflrstandandi
vetrarvertíð barst til Siglufjarð-
ar aðfaranótt sl. þriðjudags er
Beitir NK kom þangað með
1.200 tonn. Það er orðin föst
venja að forseti bæjarstjórnar
Siglufjarðar, Kristján Möller,
færi þeirri áhöfn sem fyrst land-
ar á vertíðinni rjómatertu og
engin undantekning var gerð á
þeirri skemmtilegu hefð að
þessu sinni.
„Þaó var ekkert brugöiö út af
venjunni, jafnvel þó ég sé búinn
aö liggja heima í hálfan mánuð
vegna brjóskloss. Frúin ók mér
nióur aö skipshliö meö tcrtuna og
þar fékk skipstjórinn alhenta sína
tertu. Eg spáöi í haust fyrir því
aflamagni sem berast mundi til
Siglufjarðar á haustvertíöinni og
fór ansi nærri því cn var þó of hár.
Þá vantaði upp á magnið sem
nemur 14% virðisaukaskatti en ég
hugsa að ég sé meö þann skatt
inni í útreikningunum núna. Þaö
er mjög erfitt að spá um komandi
vctrarvertíð því mér sýnist þaö
vera einhvcr þoka á spákúlunni.
Ætli þaö séu ekki brælurnar sem
við eigum von á. Eg er í neóri
kantinum núna en ætli hingað ber-
ist ekki 38.285 tonn en í fyrra
komu hingað um 42 þúsund tonn
en þá spáði ég 40 þúsund tonna
loðnuafla. Þessi 285 tonn koma til
vegna þess að sveitarstjórnarkosn-
ingar veröa 28.5., þ.e. 28. maí í
vor.
Eg lofaði starfsmönnum
bræöslunnar eitt sinn tertu ef þeir
næóu 40 þúsund tonnum. Eg var
að fara eitthvað í burtu um þaö
leyti en allt útlit var fyrir aö það
magn næóist, cn þaö varð hins
vegar 39.300 tonn, því skipið sem
var á leiðinni með 700 tonnin sem
á vantaði treysti sér ekki lengra en
til Raufarhafnar. Þaö eru því
starfsmenn loðnuverksmiðjunnar
sem skulda mér tertu eöa 700 tonn
af loðnu,“ sagði Kristján Möller.
GG
Jóhanns Gunnars Sævarssonar
og Vals Eyþórssonar um kaup á
kjötiðnaðarfyrirtækinu Matfelli
sf. við Glerárgötu hefur verið
rift vegna vanefnda kaupand-
ans. Einnig hafði Sigurður
stofnað nýjan veitingastað við
Þingholtsstræti 2-4 í Reykjavík
undir nafninu Kolagrillið en
hann hefur nú selt þann rekstur
Róberti Arna Hreiðarssyni, lög-
fræðingi, sern leigði Sigurði hús-
næðið undir reksturinn.
Hinn 28. janúar sl. ræddi blm.
Dags við Sigurð og þá sagði hann
m.a.: „Það kom upp visst vanda-
mál í Matfelli varðandi launa-
greiðslur en þaö lcysist og verður
gengið frá þeim ntálum í dag.
Þessar launagreiðslur eru einnig
frá því áöur en ég tek viö og því
ber ég ekki ábyrgð á því að þeir
fái sín laun, en einnig eru þetta
laun frá því í desembermánuði
sem ég ber fulla ábyrgð á. Öllu
starfsfólkinu var sagt upp í byrjun
desember og hluti starfsfólksins
starfaði til loka desembermánaðar,
þ.e. til loka uppsagnarfrestsins því
ekki voru fyrir hendi nægjanleg
verkcfni fyrir þann mannskap sem
þarna var og ég lít svo á aö það
skýri að hluta af hverju dráttur
varö á launagreiðslum til sumra
starfsmanna.”
Jóhann Gunnar Sævarsson, eig-
andi Matfells sf., segir að ekki
hall verið staðió við allar greiðslur
á launurn og eftir standi um 70
þúsund krónur. Jóhann segir þaö
ekki vafamál aö hann niuni tapa á
því að til riftunar á samningnunr
þurfti að koma og eins hafi orðið
vcrulegur hráefnisskortur í kjöl-
fariö sem hefur valdið því að fyr-
irtækió hafi víða misst hillupláss í
fyrirtækjum þar sem samkeppnis-
aðili hafi síðan komið inn.
„Þetta var einfaldlega of mikið
álag og mér tókst að selja rekstur-
inn í Reykjavík en hann verður
áfram rekinn undir sama nafni,
þ.e. Kolagrillió.”
Kaupsamningi þínum vegna
Matfells sf. var rift. Hvað olli því?
„Þaó var allt öðruvísi dæmi.
Það mál hefur hins vegar eftirmála
af nrinni hálfu en ég vona að það
renni áfram rétt og skýrt. Þegar
fyrirtæki er keypt og þeim samn-
ingum síðan slitiö þá deila menn
urn ýmislegt en þaö verður að
koma í ljós hvort maður leysir það
ekki í hægum gír. Það er mín ósk.
Ég held áfram rekstrinum á
Kolagrillinu hér á Akureyri og í
dag eru ekki uppi neinar vanga-
veltur að hætta þeinr rekstri. Ég
hef orðið fyrir hnykk út af Mat-
fellskaupunum en þetta skýrist allt
á næstu 10 dögum,“ sagði Sigurö-
ur J. Finnsson. GG
HRISALUNDUR
Þar sem gæði og lágt vöruverð fara saman
ÚR KJÖTBORÐI ÚR GRÆNMETISBORÐI ÚR BRAUÐBORÐI
Nýtt
Steiktar
franskar kartöflur
+ kjúklingur
kr. 929
Tilboð
Blómkál
98 kr. kg
Paprika græn
128 kr. kg
Bolluboð
Rjómabollur
124 kr. stk.
Bollur ófylltar
68 kr. stk.
Saltkjöt: Framhryggir 780 kr. kg • Blandaður fl. 499 kr. kg
Rif og hálsar 299 kr. kg
Gulrófur 59 kr. kg • Whitworths gular baunir 78 kr.
Mánudag-föstudags kl. 10.OO- 19.30
Laugardag kl. 10.00-18.00
Verð: 1.500,-
9lLctió <2A$yLlylj.
Fordrykkur: Fiölaragarpur
Náttúruvænt grænmetispaté meö súrmjólkur-rifsberjasósu.
Lambanýru í súrsætri sósu.
Innbakað ungnautalifrarbuff meö lyngsósu.
Fyllt lambasíöa meö ávaxtasalati
Hunangsmarineraöar reyktur lambsbógur meö appelsínusósu.
Timian-krydduö ungnautahjörtu í hindberja-rjómasósu.
Heilsteikt ungnautalæri meö rauövínssósu.
Gufusteikt kálfabris.
Skyrterta
Veislustjóri: Sigurður Hreiðar
Umræður um málefni landbúnaðarins.
Sérstakir gestir sælkeraveislunnar: Steingrímur Sigfússon, fyrrv.
landbúnaðarráðherra. Jakob Magnússon, forseti Klúbbs matreiðslumeistara.
Benedikt Davíðsson, forseti ASÍ. Magnús Gauti Gautason, kaupfélagsstjóri.
Pétur Ó. Helgason, bóndi, formaður Búnaðarsambands Eyjafjarðar.
(''ftd/awi/i M
f TAOUfílNN á rorrs
NUM
ATH: Vinsamlegast tilkynnið þátttöku í síma 96-27100 í síðasta lagi föstudaginn 11. febrúar.