Dagur - 10.02.1994, Blaðsíða 7
Fimmtudagur 10. febrúar 1994 - DAGUR - 7
Margfeldisáhrif
Ekki er alltaf auðvelt aó sjá fyrir
áhrif og afleiðingar ákvarðana
okkar og gerða. Að fá okkur til
þess að gangast við þeim eftir að
þær koma í ljós er ekki heldur
auóvelt og oft útilokaó.
Atvinnuleysisvofan, sem ógnar
okkur öllum, var vakin upp af
okkur sjálfum, hvort sem við vilj-
urn gangast við því eður ei. Ferlið
hófst meó inngöngu í EFTA áriö
1970 en hún átti að vera mikil bú-
bót fyrir atvinnulífið.
Aðlögun var töfraorðið
Fyrir efasemdarmennina fundu
forgöngumenn inngöngunnar nýtt
töfraorð sem var aðlögun. Sú
merkilega aðlögun kom í ljós
hægt og bítandi.
Fyrst hrundi húsgagnaiðnaður-
inn, næst fór sælgætisiðnaðurinn
inn í aólögunina, svo fór innrétt-
ingaiðnaðurinn sömu leið að hluta
til. Kexframleiósla var töluveró en
hefur minnkað við þessa ágætu
aðlögun. Þessar greinar skópu
störf fyrir mikinn tjölda fólks en
nú cru þau störf horfin.
Ymis atvik og ákvarðanir grófu
um sig í atvinnulífinu án þess að
tekið væri eftir því vegna mikillar
spcnnu á vinnumarkaðinum.
Mcnn l'óru að flytja ýmis verk-
cl'ni úr landi, hver fyrir sig, án
þess að hugsa út í neitt nema
stundarhagnaó. Þar má nefna fata-
iðnað, prentiónaó og skipasmíðar
ýmiss konar.
Fleiri þurftu að græða meira
Með tilkomu gámafiutningakerfis-
ins opnuðust ný' tækifæri til út-
flutnings á ferskum fiski og voru
þau hiklaust notuð. Frystitogara-
bylgjan brast á með látum og
stendur enn. Enginn getur rekið
skip nema það sé frystitogari.
Alltaf var þó jafn gaman á Al-
þingi Islcndinga. Þar kváöust
menn á eða skömmuðu hver ann-
an til að auka trúverðugleika sinn.
Þetta lið varðmanna, sem þjóöin
heldur þarna með ærnum kostn-
aði, uggði ekki að sér frekar en
fyrri daginn. Allt sem þaðan kem-
ur, kemur of seint eóa er of lítið,
eða bara gallaó svo það nær ekki
tilgangi sínum.
Orlæti þessara manna á yfirlýs-
ingar sker mann inn að hjartarót-
um en eru léttar í maga og vega
lítið í fjármagnsþrengingum.
Hringvegur atvika
Atvinnuleysið, sem nú geisar, er
uppbyggt á löngum tíma og stend-
ur því traustum fótum í Iandinu.
Þær breytingar, sem þörf er á
til þess að minnka atvinnuleysið,
eru ekki auðveldar í framkvæmd.
Ráðast þyrfti gegn miklum hags-
munum sem byggst hafa upp í
landinu vegna afskiptaleysis
stjórnvalda; hagsmunum sem
misskildir voru sem athafnafrelsi.
Margir athafnamenn hafa litið
á ýmislegt í starfsemi sinni sern
sína cign, þar með talin atvinnu-
tækifærin í landinu. Með þau hafa
þeir farió aö vild án afskipta
stjórnvalda og úthlutaó þeim vítt
og breitt um heim með tilliti til
eigin hagsmuna. Ekki verður hjá
því komist að hefta þessa
lausagöngu athafnamanna með til-
liti til hagsmuna fjöldans og út-
hluta verður atvinnutækifærum
aftur til þjóðarinnar með stjórn-
valdsaðgeróum.
Hrikta mun í einhverjum stoð-
um áður en það gengur í gegn en
við því er ekkert að gera. Um er
að ræða neyðarrétt fjöldans. Nú er
komið að því að atvikin snúi á
upphafspunkt samkvæmt lögmál-
inu um að allt fari í hring.
Margfcldisáhrifin af þessum
gjöröum okkar hafa leynt á sér cn
koma nú fram af fullurn þunga í
þjóðfélaginu. Þau vaxa neikvætt
með miklum hraða, við hvcrn ein-
stakling sem missir vinnuna, alveg
eins og þau vaxa jákvætt með
hverjum einstaklingi sem fær
vinnu.
Breytt hugarfar
Atvinna er næg í landinu cf vió
hugsum öðruvísi en við höl'um
gjört hingað til. Banna þarf út-
fiutning á atvinnutækifærum og
huga að því sem er að gerast í af-
komu fjöldans í landinu.
Fiskveiðihættir okkar cru al'ar
hættulegir með tilliti til ástands
fiskstofnsins. Leggja þarl' niður
nctaveiði og dragnótavciöi og
Brynjólfur Brynjólfsson.
frióa hrygningargöngurnar á þeim
tíma sem þarf til aó fiskurinn nái
að hrygna. Hiklaust ætti aö skil-
yrða úthlutun fiskveiðiheimilda
því að öllum alla sé landað á ís-
landi og hann unninn þar en ekki
úti á sjó. Utgerð frystitogara er
hugsanlega hagkvæm í bókhaldi
viðkomandi útgerða cn hún er það
ekki í atvinnubókhaldi þjóófélags-
ins.
Eg á von á aó cinhver æpi:
„Miðstýring!“ en það er miðstýrt
atvinnuleysi í dag og ekki verður
við það unað til frambúðar.
Skilgreind framleiðsla
Að vcrkalýðshreyfingin skuli geta
gcrt grein fyrir hversu ntargir bón-
bjargarmcnn eru framleiddir á
klukkustund er mjög alvarlegt
mál. Ekki er við því að búast að
við það vcrði unað og þurfa þeir
sem eru í stjómmálum í dag aó
átta sig á því.
Mikið pólitískt afl hleðst upp í
þessum stóra hópi og þegar sú
stífla brestur veröur fátt sem
stendur fyrir henni. Hætt er viö að
öfgastefnur geti náð hugum þess
fólks, sem þannig er sett hjá í
þjóðfélaginu, því erfitt er að búa
við slíka höfnun.
Bylting
Sagan sýnir að þar sem farið hefur
verið illa meó fólk á einhvern hátt
hefur þjóðfélagsskipuninni verið
bylt og atvinnuháttum líka.
Flokka verður atvinnuleysi, í
þeirri mynd sem hér er, undir illa
meðferð á fólki og því má búast
við hörðum viðbrögðum frá þessu
fólki í framtíðinni.
Gjaldtaka af veiðiheimildum er
ekki ráðstöfun sem líkleg er til ár-
angurs í atvinnuleysinu og ættu
þeir sem nú ráða að huga að öðr-
um ráðum til úrlausnar.
Endurnýtt slagorð
Slagorðið gamla hefur nú verið
tekið til endurnotkunar við
inngönguna í EES. Ollu á að vera
óhætt vegna aðlögunar sem fyrr
og virðast margir taka það gott og
gilt.
Gleymni er mjög heppileg fyrir
stjórnmálamenn en ekki er hún
eins heppileg fyrir almenning þeg-
ar mikið liggur við aó muna geröir
stjórnmálamanna. I trausti
gleymni hafa stjórmálamenn nú
selt sjálfstæði þjóðarinnar fyrir
tollpening og voru kjósendur ekki
einu sinni virtir viðlits.
Reikna má meó að það verói
glcymt í næstu kosningum.
Brynjólfur Brynjólfsson.
Höfundur er matreiðslumcistari á Akureyri.
Fréttapístíll frá Félagi
aldraðra á Dalvík og nágrenni
Starfsárið 1993-94 hófst með
fundi 24.10. ’93 í Hlein, nýju
húsi, byggðu af sveitarstjórn
Hríseyjar. Þar eru auk 5 íbúða,
sem ætlaðar eru öldruðum,
sameiginleg aðstaða fyrir íbúa
hússins, stór setustofa, eldhús,
snyrtingar og annað tilheyrandi.
Þetta rými hafa aldraðir í Hrís-
ey nú fcngið til umráða og veittu
okkur af „fastalandinu“ þar af
rausn, auk þess að sýna okkur
íbúðirnar.
Starfsemi félags okkar hcfur
vcrið mcó líku sniói og undanfarin
ár.
Alla laugardaga er citthvað um
aó vera á vegum félagsins ef veð-
ur eða l'ærð hamla ekki. Annan
hvcrn laugardag er komið saman í
gamla barnaskólanum á Dalvík kl.
14.00 og sungiö undir stjórn og
tilsögn Maríu Gunnarsdóttur,
söngkennara. Söngurinn nýtur sí-
vaxandi vinsælda og margir vildu
gjarnan koma oftar saman til
songæfinga.
Sömu daga kl. 15.30 hefst síó-
an danskennsla á sama staö.
Kennarar eru eins og áður Margrét
Brynjólfsdóttir og Gunnar Smári
Björgvinsson. Leiðbeina þau sí-
stækkandi hópi í margs konar
dansi og harmónikuspilarar stað-
arins aðstoða eftir þörfum.
Allt þctta fólk hefur verið fé-
laginu afar vinsamlcgt frá upphafi.
Verið sannir „haukar í horni".
Hina tvo laugardaga mánaðar-
ins er komið saman í nýja barna-
skólanum á Dalvík kl. 14.00. Þá
eru félagsfundir, spilað á spil cða
bingó, lesið upp og lleira gert sér
til skemmtunar. Nú á lclagið gott
talkcrll scm sér um að koma því
vel til skila scm í það cr sagt.
Litlu jólin voru haldin í Víkur-
röst 11. descmber. Þrátt fyrir
slæmt veóur komu áttatíu gestir,
þar af um 20 frá Ólafsfirði. Séra
Svavar Jónsson llutti hugvekju,
Jón Þorstcinsson söng við undir-
leik Gerrit Schuil, tvær ungar
stúlkur frá Dalvík léku á fiautur
og Björn Björnsson og fleiri
sýndu látbragðsleik. Var þetta hin
besta skemmtun. Það óvæntasta
var þó að í upphafi samkomunnar
var tilkynnt að Rauðakrossdeild
Dalvíkurlæknishéraðs ætlaói að
standa straum af öllum kostnaði af
þessum litlu jólum, í tilcfni þess
að nú væri ár aldraðra.
I sumar var farin dagsferó í
samvinnu við Dalbæ. Komið var
við í Laufási, síðan haldið til
JJúsavíkur og Mývatnssveitar.
Agæt ferð sem tókst vel.
í ágústmánuói stóó félagið fyrir
annarri ferð, nú fyrir félagsmenn
eingöngu. Haldið var vcstur í
Vatnsdal og hann skoóaður og
notið ágætrar leiðsagnar Gríms
Gíslasonar, fréttaritara á Blöndu-
ósi. Borðað var á Húnavöllum,
komió við á Þingeyrum og kirkjan
og ficira á staðnum skoóað.
A Blönduósi var komið í Tó-
vinnustofu Halldóru Bjarnadóttur,
kirkjan skoðuð og litast um. Kal'fi
var drukkiö á heimleið í Varma-
hlíð. Þcssi fcró þótti takast mjög
vcl, margt skoðaó og mikið sung-
ið. Formaóur fcrðanefndar var
Birna Jóhannsdóttir.
Aðallundur félagsins var hald-
inn 15. janúar. Aðalstjórn er
óbrcytt og Friðgcir Jóhannsson
formaöur sem fyrr.
Þann 22. janúar fóru 34 félags-
rncnn á þorrablót til Félags aldr-
aóra á Akureyri og skcmmtu sér
vel.
Næstkomandi laugardag, 12.
febrúar, mun Guðmundur Jóns-
son, sjúkraþjálfari, koma á fund til
okkar í nýja barnaskólanum og
ræða um áhrif þjálfunar á aldraöa.
Síðan er árshátíð félagsins ráð-
gerð 12. mars ef veðurguðir verða
okkur innan handar.
Með félagskveðju,
Edda Jensen
„blaðafulltrúi".
Hestamenn!
Látum ekki aka á okkur
í skammdeginu - notum
ENDURSKINSMERKI
HESTAMANNAFÉLAGIÐ LÉTTIR
Stotnið 5 nóv 1928 POBo«348 • 602 Akutvyri
Almennir
stjórnmálafundir
Alþingismennirnir
Hjörleifur Guttormsson og Steingrím-
ur J. Sigfússon verða á almennum
stjórnmálafundum:
Akureyri, fimmtudaginn 10. febrú-
ar kl. 20.30 í Alþýðuhús-
inu, Skipagötu 14. *
Dalvík, föstudaginn 11. febrúar
kl. 20.30 í Bergþórshvoli.
Sérstaklega verður rætt um efna-
hags- og atvinnumál og tillögur Al-
þýðubandalagsins í þeim efnum.
Einnig verður tillaga um Norðurstofn-
un á Akureyri kynnt.
Allir velkomnir!
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ
MIÐAVLRÐ 3.900,- SÉRTILBQO í H
SÝN f Á S.AIJCARDAGSKVÖS,DUA\ f VI
KQI
SVEI
MIÐA-
OG BORÐA-
PANTANIR
í SÍMA 96-22770
OG 96-22970
m
FRUMSÝNING 12. FEBRÚAR