Dagur - 10.02.1994, Blaðsíða 4
4 - DAGUR - Fimmtudagur 10. febrúar 1994
FRETTIR
ÚTGEFANDI: DAGSPRENT HF.
SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31,
PÓSTHÓLF 60, AKUREYRI, SÍMI: 96-24222
ÁSKRIFT KR. M. VSK. 1400 Á MÁNUÐI
LAUSASÖLUVERÐ M. VSK. KR. 125
GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 765 KR.
RITSTJÓRI: BRAGIV. BERGMANN (ÁBM.)
FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON
BLAÐAMENN:
GEIR A. GUÐSTEINSSON, HALLDÓR ARINBJARNARSON (íþróttir),
INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavíkvs. 96-41585, fax 96-42285),
JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON,
STEFÁN SÆMUNDSSON, ÞÓRÐUR INGIMARSSON
LJÓSMYNDARI: ROBYN ANNE REDMAN
PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN
ÚTLITSHÖNNUN: RÍKARÐUR B. JÓNASSON
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON
DREIFINGARSTJÓRI:
HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL
PRENTVINNSLA: DAGSPRENT HF.
SÍMFAX: 96-27639
Flytja þarf stofnanir þótt
starfsmenn mótmæli
Þá miklu byggðaröskun, sem átt hefur sér stað hér á
landi um árabil, má að stórum hluta rekja til breyttra
atvinnuhátta þjóðarinnar. Það er staðreynd að vaxt-
arbroddur íslensks atvinnulífs mörg undanfarin ár
hefur fyrst og fremst verið í þjónustugeiranum. Það
er jafnframt staðreynd að um níu af hverjum tíu nýj-
um störfum í þessum greinum hafa fallið íbúum höf-
uðborgarsvæðisins í skaut. Ljóst er að þorri hinna
nýju starfa hefur komið í stað framleiðslustarfa sem
lögð voru af, því á sama tíma fækkaði störfum í fram-
leiðslugreinum verulega.
Hlutur stjórnvalda í þessu ferli er stór. Til marks
um þetta má nefna að á einungis fimm ára tímabili,
1985-1990, fjölgaði ársverkum hjá hinu opinbera um
fjögur þúsund. Á sama tíma fækkaði ársverkum á
landinu í heild um fimm hundruð. Af þessum fjögur
þúsund nýju störfum á vegum hins opinbera urðu
þrjú af hverjum fjórum til á höfuðborgarsvæðinu. Því
má með sanni segja að stjórnvöld hafi flutt atvinnu-
tækifærin jafnt og þétt af landsbyggðinni á höfuð-
borgarsvæðið. Það væri ósanngjarnt að halda því
fram að stjórnvöld hafi gert þetta af yfirveguðu ráði.
Nær sanni er að segja að þau hafi ekki gert sér grein
fyrir afleiðingum „atvinnubyltingar" sinnar. Það var
raunar ekki fyrr en á allra síðustu árum sem augu
ráðamanna opnuðust fyrir því hve þjónustustarfsem-
in er orðinn afgerandi þáttur í atvinnulífinu og þá
sérstaklega hvað varðar ný störf. Þá fyrst hófst um-
ræðan um það óréttlæti að velja höfuðstöðvum nær
allra ríkisstofnana stað í Reykjavík. í framhaldi af því
fóru stjórnmálamenn svo að velta vöngum yfir kost-
um þess að flytja nokkrar stofnanir í „hina áttina",
þ.e. út á land.
Síðastliðið haust skilaði stjórnskipuð nefnd um
flutning ríkisstofnana tillögum sínum. Hún lagði til
að höfuðstöðvar sjö veigamikilla ríkisstofnana yrðu
fluttar frá höfuðborgarsvæðinu út á land. Enn á eftir
að koma í ljós hvort stjórnvöld ætla að framkvæma
tillögur nefndarinnar ellegar láta skýrslu hennar
rykfalla uppi í hillu hjá öllum hinum skýrslunum.
Landsfeðurnir hafa í örfáum tilvikum gert meira en
að ræða um nauðsyn þess að velja veigamiklum
stofnunum stað á landsbyggðinni. Þeir hafa í örfáum
tilvikum látið verkin tala. í því sambandi má nefna
stofnun Háskólans á Akureyri, flutning höfuðstöðva
Skógræktar ríkisins til Egilsstaða og Hagþjónustu
landbúnaðarins til Hvanneyrar í Borgarfirði. Nú síð-
ast lýsti umhverfisráðherra því yfir að hann hyggðist
færa embætti veiðistjóra undan ráðuneyti sínu og
sameina það setri Náttúrufræðistofnunar íslands á
Akureyri. Yfirlýsing ráðherra féll í góðan jarðveg
nyrðra en að sama skapi grýttan syðra. Starfsmenn
umræddrar stofnunar hafa mótmælt hástöfum og
veifa lögfræðiáliti til að sýna fram á að fyrirhugaðir
búferlaflutningar séu brot á kjarasamningum! Von-
andi lætur umhverfisráðherra mótmæli þeirra sem
vind um eyru þjóta. Það er tími til kominn að starfs-
menn ríkisstofnana á höfuðborgarsvæðinu geri sér
grein fyrir því að þeir lifa ekki að öllu leyti í vernduðu
umhverfi. Hingað til hafa ríkisstarfsmenn á lands-
byggðinni ekki verið spurðir álits þegar störf þeirra
hafa verið lögð niður eða flutt milli byggðarlaga en
slíkt er næsta algengt. Hið sama hlýtur að gilda um
aðra. Starfsmenn embættis veiðistjóra verða einfald-
lega að flytja með stofnuninni norður ellegar leita sér
að annarri vinnu. BB.
Formaður SKÍ hefur unnið
gegn skíðahreyflngunm
- segir Pröstur Guðjónsson, formaður Skíðaráðs Akureyrar
Eins og margoft hefur komið
fram í fjölmiölum að undan-
förnu eru margir forystumenn
skíöamála í landinu mjög
óánægðir með störf formans
SKI, Sigurðar Einarssonar.
Hæst reis óánægjan í lok síðustu
viku þegar þrjú skíðafélög fóru
fram á afsögn hans. Sigurður
varð hins vegar ekki við því en
fyrir lá að hann mun hætta sem
formaður á ársþingi SKI í vor.
Skíóaráð Akureyrar var eitt
þeirra félaga sem fór fram á af-
sögn Sigurðar. Þröstur Guójóns-
son, formaður SRA, sagöi ljóst að
formaður SKI hefði unnið gegn
skíðahreyfingunni að undanförnu.
„Mín vegna má hann sitja áfram.
Ef hins vegar forystumaður hreyf-
ingarinnar er að sundra henni þá á
hann að fara frá. Þetta á að heita
andlit okkar út á við og það er afar
slæmt hvernig hann hefur komið
fram og barist gegn samþykkt
stjórnar SKI varðandi val á
Olympíuförunum, sá maður sem
við höfum valið innan skíðahreyf-
ingarinnar til aó gæta okkar hags-
muna. Þaö er líka annað sem
menn verða að gera sér grein fyrir
að það eru héruðin sem halda úti
skíðalandsliðinu en ekki Skíða-
sambandið þó það styrki þetta
reyndar lítilsháttar,“ sagði Þröstur.
Hann sagði ennfremur aó þrátt
fyrir þetta mál þá væri skíðahreyf-
ingin ekki sundruð. Þvert á móti
hefði komið í ljós aó nær öll félög
á landinu hefóu staðið saman í
þeim deilum sem átt hafa sér stað
við formann SKÍ aó undanförnu.
Björn Þór Ólafsson, formaður
Skíóadeildar Leifturs á Ólafsfirði,
er einn þeirra sem gagnrýnt hafa
formann SKI og störf hans sem
formanns viómiðunarnefndar Óí.
„Þetta er allt saman mjög slæmt
mál og sú yfirlýsing hans að hann
ætli sér hvort scm er aó hætta í
vor brýnir mann á því að honum
sé nokkuð sama um þetta allt sam-
an. Ég er vissum að þetta stór-
skemmir fyrir franitíó þess fólks
sem hefur verið að berjast við lág-
mörkin og er mjög hræddur um að
það hætti hreinlega eftir svona
uppákomu, þó ég voni visulega að
sú verði ekki raunin.“ HA
Útboð á ræktun 800.000 skógarplantna:
Samið við Barra á Egilsstöðum
Skógrækt ríksins og Ríkiskaup
buðu í haust út ræktun 800.000
skógarplantna vegna Land-
Ný bifljard-
stofa í
Ólafsfirði
Um helgina var opnuð ný billj-
ardstofa í Ólafsfirði. Stofan sem
ber heitið Billjardstofan Ólafs-
firði, er til húsa að Aðalgötu 36
og þar eru til boða tvö 12 feta
„snoker“ borð.
Einar Amundason, cigandi
stofunnar hefur innréttað iðnaðar-
húsnæöi fyrir starfsemi sína og
einnig byggði hann aðeins vió það
undir sjoppu og í allt er húsnæðið
70 fermetrar. Aður var í húsinu
alls kyns iðnaðarstarfsemi, nú síð-
ast Islensk tónbönd.
Hann segir að unglingar í Ól-
afsfirði kunni vel að meta þessa
þjónstu en að þcir eldri mættu
einnig láta sjá sig, því þetta væri
íþrótt fyrir alla aldurshópa. KK
Æfingar á Alt Heidelberg eru að
komast í fullan gang hjá Leikfé-
lagi Húsavíkur. Þetta er gamalt
þýskt verk eftir Vilhelm Meyer-
Förbter. Leikstjóri er Siguröur
Hallmarsson.
Leikfélagið færist mikið í fang
með þessu verkefnavali því um
eða yfir 40 manns koma á svið í
uppsetningunni. Fjöldinn fcr eftir
fjölda söngvara í kórnum en mikið
af söngvum er í verkinu. Einnig
mun 4-5 manna hljómsveit sjá um
tónlistarflutning.
Guóný Þorgcirsdóttir, aðstoðar-
lcikstjóri, segir aö nokkrar breyt-
ingar hafi verið gerðar á verkinu
frá fyrri uppsetningum og sýning-
in verói mjög skenimtileg ef vel
takist til. Smíði sviðsmyndar er
hafin og búningasaumur. Hcrdís
Birgisdóttir, sem starfar að bún-
ingagerð, sagói aó þeir skiptu tug-
um sem sauma þyrfti og einnig
græðsluskóga 1995 og 1996. AIIs
bárust 9 tilboð sem ýmist náðu
til allrar framleiðslunnar eða
hluta hennar. Lægsta tilboðið í
alla framleiðsluna barst frá
Barra hf. á Egilsstöðum, rúmar
11,5 milljónir króna. Því tilboði
hefur verið tekið og var gengið
frá samningum þar að Iútandi í
lok janúar sl.
Hér cr um að ræða ræktun á
ýmsum tegundum skógarplantna,
eins og birki, elri, lerki, sitkagreni,
stafafuru og bergfuru. Af einstök-
um trjátegundum er mest af birki í
Byggingarnefnd nýrrar sund-
laugar á Dalvík hefur gengið frá
samningi við Sigmar Sævalds-
vantaði leikfélagið sárlega magn
af kjólfötum og stúdentshúfum.
Hún sagði aó alls ynnu 50-60
manns að sýningunni. „Það er því
meira gaman sem manni finnst
verkefnið óyfirstíganlegra," sagði
Herdís. IM
Hjorleifur Guttormsson og
Steingrímur J. Sigfússon, al-
þingismenn Alþýðubandalags-
ins, verða á almennum stjórn-
málafundum á Akureyri í kvöld
og á Dalvík á morgun föstudag.
Fundurinn á Akureyri í kvöld
fer fram í Alþýöuhúsinu, Skipa-
útboóinu, cða 380.000 plöntur.
Plönturnar eiga að vera tilbúnar
1995 og 1996 og fara þær til út-
plöntunar um allt land.
Þetta er í fyrsta skipti sem slíkt
útboð fer fram hjá Skógrækt ríkis-
ins en framleiósla á skógarplönt-
um er sérhæfð framleiðslugrein
sem fram til þessa hefur verió á
fárra höndum, mest innan Skóg-
ræktar ríkisins og stærstu skóg-
ræktarfélaganna. Einkaaóilar hafa
hins vegar í vaxandi mæli lagt
stund á fjöldaframleiðslu á skóg-
arplöntum og þá sérstaklega á
svokölluðum garðplöntum. KK
son rafvirkja um rafiagnir í
sundlaugina og er það gert á
grunni tilboðs sem barst frá Sig-
mari, en tilboð voru opnuð 25.
janúar sl.
Tilboð Sigmars hljóðaði upp á
kr. 1.698.401 en auk þess barst til-
boð frá Birni og Helga að upphæð
kr. 1.841.689. Kostnaðaráætlun
hljóðaði upp á kr. 2.325.397 og
var geró af Raftákni hl'. á Akur-
eyri en ckki Raftækni sem rang-
lcga hafði vcrið bókað í fundar-
gerð byggingarnefndarinnar og
skýrt hafði vcrið frá í DEGI.
Raflagnavinnu á að vera lokið
15. júní nk. cr gert er ráð fyrir að
taka sundlaugina í notkun á kom-
andi haustdögum. GG
götu 14 og hefst kl. 20.30. Fund-
urinn á Dalvík á morgun fpr fram í
Bergþórshvoli og hefst kl. 20.30.
Sérstaklcga verður rætt um
efnahags- og atvinnumál og tillög-
ur Alþýðubandalagsins í þeim
efnum. Einnig veróur tillaga um
Norðurstofnun á Akureyri kynnt.
KK
Leikfélag Húsavíkur:
Alt Heidelberg
- æfingar hafnar af krafti
Ný sundlaugarbygging á Dalvík:
Samið við Sigmar Sæ-
valdsson um raflagnir
Alþýðubandalagið:
Hjörleifur og Steingrmiur
funda á Akureyri og Dalvík