Dagur - 10.02.1994, Side 6
6 - DAGUR - Fimmtudagur 10. febrúar 1994
- Borðar þu allan þorramat?
Spurníng vikttnnar — spurt á Akureyri
Brynja Hermannsdóttlr:
,Já, ég boröa allan þorramat.
Mér finnst þetta allt jafn gott."
Bára Björk Bjömsdóttir:
„Nei, ekki allan. En ég borða
hákarlinn, hangikjötið og harð-
fiskinn en ekkert af þessu súrs-
aða."
Kristján Júlíusson:
,Já, ég borða allan þorramat.
Af honum tek ég þó helst fram
yfir harðfiskinn og hákarlínn og
svo verður endilega að vera
kalt og gott brennivín með."
Vilhelm Guðmundsson:
,Já, ég borða allan þorramat.
Mér finnst hann allur góður og
ekkert fremur en annað í
uppáhaldi."
Ingibjörg Stefánsdóttir:
„Nei, ég borða í mesta lagi
slátur og stundum harðfisk-
inn."
H111II11111111111111111111111111111111111111111111111111111111| 111111111111111111111111111111111111111
m |||f| Þorrablót |
wm Þórs =
Þorrablót Þórs verður haldið í Hamri 1
| laugardaginn 12. febrúar kl. 19.30.
z Míðasala í Hamri, sími 12080. Miðaverð kr. 1.200,- =
1 Ball að loknu borðhaldi. =
1 Opíð htts eftír að borðhaldí Iýkur. |
1 Sækjum gesti ef óskað er. 5
= íþróttafélagið Þór 1
lUordlenskt athafnafólk!
Iðntæknistofnun veitir ráðgjöf og tækniþjónustu í
iðnaði og sjávarútvegi
Iðntæknistofnun
Starfsmaður Iðntæknistofnunar
á Akureyri er
Kristján Björn Garðarsson
IÐNTÆKNISTOFNUN ÍSLANDS
Glerárgötu 36, 600 Akureyri
Simi (96) 30957
Fax(96)30998
ÍH,
LETTIB
Aðalfundur
Hestamannafélagsins Léttis
verbur haldinn í Skeifunni
sunnudaginn 13, febrúar kl. 14.00.
Dagskrá.
1. Skýrsla stjórnar.
2. Afgreiðsla reikninga félagsins.
3. Kosning stjórnar, nefnda og endurskoðenda.
4. Lagabreytingar.
5. Önnur mál.
Stjórnin.
Skíðakennsla um helgina
Innritun og upplýsingar i sima 22280 og 23379.
Hver er maðttritu?
Höfundur: Anders Paim
Þýðandi: Sígorbjöm Kristinsson
Hér á eftír verðar dregin app svipmynd af heimskunnri per-
sóna, lífs eða líðinni, karli eða konu. Glöggar lesandi á smám
saman að geta áttað sig á hvetjum/hverri er verið að lýsa. Til
dæmis gæti verið tilvalið fyrir alla fjölskylduna að spreyta síg
á að fínna svarið sameigínlega. Ef þið gefíst upp, er svarið að
fínna á blaðsíðu 13!
að var ekki mjög rúmt um
þau, okkar mann og fjöl-
skyldu hans, í þriggja her-
bergja íbúðínni. í upphafi, þeg-
ar foreldrarnir keyptu, var ekki
svo þröngt en börnunum fjölg-
aði ört; að Iokum voru þau
orðin níu.
Okkar maður, eða Joseph,
eíns og hann heitir, deildi litlu
herbergi með 4 bræðrum.
Börnin fengu strangt uppeldi;
minnsta yfirsjón kostaðí hýð-
ingu. Joseph var afar illa við
þessar uppeldisaðferðir. Við
hverja barsmíð æpti hann
ókvæðsorðum eins og „helvítis
morðinginn þinn", að föðurn-
um, sem reyndar lét sér fátt
um finnast.
Móðir okkar manns heitir
Katherine. Hún var viðræðu-
betri en faðirinn og því dróst
Joseph að henni. Hún hafði
ætið veriö trúmanneskja og
þegar okkar maður var 5 ára
gekk hún í Votta Jehova. Hún
var skírð inn í söfnuðinn í
sundlaug áriö 1963. Joseph fór
gjarnan með móður sínni á
samkomur og tók einnig skfrn
Jehova. Sem fullorðinn fann
hann sér þó aðra trú.
Faöír Josephs vann í stái-
verksmíðju fyrir lágum launum
og fjölskyldan var því oft aura-
Iítil. Það sem mörgum þótti
sjálfsagt að eíga, var fjarrænn
draumur hjá þeím.
T.d. Iiðu mörg ár áður en
þau gátu fengið sér síma. Kat-
herine saumaöí föt á börnín,
eða keypti þau á flóamörkuð-
um.
Skólaganga okkar manns
var ekki mjög vel heppnuö. Aö
vísu Ieið honum vel fyrst í staö
en í efri bekkjunum byijuðu
vandamálin. Hann sat og
dreymdí í tímum eða drap
tímann með því að teikna
undarleg dýr og skrímsli í
bækurnar. Ahugaleysi Josephs
fyrir náminu bítnaðí því miður
á allri almennri þekkíngu hans.
Okkar maöur hefur ekki
sýnt pólitík mikinn áhuga.
Hann er talinn illa heima á
mörgum sviðum og á í eilífum
barningi með bókstafina þegar
hann reynir að draga til stafs.
Þrátt fyrir það hefur hann náð
langt á sínu sviðí og er löngu
orðinn heimsfrægur.
Ástarmál okkar manns er
kapítuli út af fyrir sig. Þegar
hann var 18 ára hitti hann Tat-
um, hressa og framkvæmda-
sama steipu, sem þá var bara
13 ára. Hún bauð honum í
mat á þekktu veitingahúsi og á
eftir fengu þau sér sundsprett.
Vínskapnum við Tatum lauk
þó í veíslu nokkurri, þegar hún
og vinkona hennar reyndu að
forfæra okkar mann undir
hvatníngarhrópum viðstaddra.
Okkar maður varö skelfingu
lostinn og lagði á flótta.
Okkar maður er veikur fyrir
dýrum. Hann áttí eitt sinn bóa-
slöngu sem hann mataði á lif-
andi rottum með viðhöfn.
Annað gæludýra hans, símp-
ansinn Bubbles, var um tíma
daglegur blaðamatur. Það var
nefnílega fullyrt að Joseph væri
í „apamálstímum" til að geta
spjailað við vin sinn Bubbles.
Voriö 1984 var okkar
manni boðiö í Hvíta húsiö að
heilsa upp á Ronald og Nancy
Reagan. Joseph hafði verið iof-
að að þetta yrði fámennt sam-
sæti, aðeins hann sjálfur,
nokkur böm og svo forseta-
hjónin. Móttökunefndin var þó
ekki mönnuð börnum, heldur
aragrúa fulloröinna. Joseph
fékk áfall og hijóp á brott.
Hann fann griðarstað á salern-
inu, en þar læsti hann sig inni
þar tíl fulioröna fólkið hafði
verið fjarlægt og náð í nokkur
börn.
Áriö 1988 gaf okkar maður
út ævisögu sína. Hann skrifaði
að vísu aðeins fáeínar línur
sjálfur, mest allt var skráð af
manni sem forlagíð útvegaði.
Útgefandinn, Jacqueline On-
assis, skrifaðí stuttan formála.
Þrátt fyrir þetta var bókínni
ekki sérstaklega vel tekið. ,Áð-
eins 20% af henni er sannleik-
ur“ voru dómar eins bróöur-
ins.
Okkar maður hefur verið
míkið í fjölmiðlum upp á síö-
kastið en trúlega hefði hann
viljað sleppa við þá umfjöllun.
Hver er maðurinn?
RAUTTLjÓS^'
||UMFERÐAR RMJTT LýOSi