Dagur - 10.02.1994, Blaðsíða 8
8 - DAGUR - Fimmtudagur 10. febrúar 1994
„Samkvæmt lögum eiga öll börn rétt á dvöl á leikskóla og allir
foreldrar eiga rétt á að vita af börnum sínum í öruggum hönd-
um,“ hefst formáli úttektar verkefnahóps á leikskólunum á Akur-
eyri. Hópurinn hefur skilað tillögum sínum inn til forsvarsmanna
bæjarins og má búast við að næstu vikurnar verði tillögurnar
teknar til umfjöllunar innan bæjarkerfisins. Starfshópinn skip-
uðu Ingibjörg Eyfells, deildarstjóri dagvistardeildar, Dan Brynj-
arsson, hagsýslustjóri, Jón Björnsson, félagsmálastjóri, Jón Hall-
ur Pétursson, framkvæmdastjóri Kaupþings Norðurlands og Sig-
rún Sveinbjörnsdóttir, formaður félagsmálaráðs. Hún var jafn-
framt verkefnisstjóri.
Leikskólinn ómetanlegur
Ennfremur segir í formála að
skýrslu hópsins: „ Verkefnahópur-
inn gerir sér grein fyrir því aö
góóur leikskóli er forsenda at-
vinnuþátttöku beggja foreldra í
þágu þjóðfélagsins. Á fyrstu áruni
barnsins þróast persónuleiki þess
og ef höndum er kastað að fóstrun
og menntun leikskólabama er
heill komandi kynslóðar í veói.
Eitt besta úrræði til styrktar fjöl-
skyldunni, sem óumdeilanlega er
homsteinn þjóðfélagsins, er að
börnum sé örugglega borgió og í
því er góður leikskóli ómetanleg-
ur. Sameinuðu þjóðirnar tileinka
fjölskyldunni árió 1994, en verk-
ureyri sé meira en 100% starf og
bendir á að könnun á verkefnum
leikskólastjóra, sem gerð hafi ver-
ió á vegum starfshópsins seint á
árinu 1992, bendi ekki til að þessa
sé þörf.
Klofningur um yfírvinnu
fóstra
Þegar kom í vinnu starfshópsins
að yfirvinnu annarra starfsmanna
leikskólanna en leikskólastjóra
klofnaði hópurinn í afstöðu sinni.
Aó meirihlutaáliti í hópnum stóðu
Jón Björnsson, Jón Hallur Péturs-
son og Dan Brynjarsson. Álit
þeirra er þannig:
„Meirihluti starfshópsins (DB,
„Samkvæmt lögum eiga öll börn rétt á dvöl á Icikskóla og allir foreldrar eiga rétt á að vita af börnum sínum í örugg-
um höndum.“
Úttekt verkefnahóps á leikskólamálum Akureyrarbæjar:
„Góður leikskóli er forsenda atvinnuþátt-
töku beggja foreldra í þágu þjóðfélagsins“
efnahópurinn bendir bæjarstjórn á
aó enn er mikil eftirspurn eftir
leikskólarýmum (tæplega 500
börn á biðlista þegár þessi orð eru
skrifuð) þannig að enn skortir á að
bæjarfélagið sinni þessari frum-
þörf fjölskyldunnar.
Við gerð tillagna til breytinga
eða nýbreytni hugaði hópurinn
einkum aó: velferð bama, þjón-
ustu við foreldra, aóstæðum
starfsfólks, rekstrarkostnaði/hag-
ræóingu og loks nauðsynlegri
framtíðarsýn og stefnumótun.“
Tillögur til breytinga
fjölþættar
Tillögum hópsins er skipt niður í
sex eftirfarandi efnisflokka í út-
tektinni:
1. Tillögur sem varða breytingu á
launamálum og rekstri.
2. Tillögur sem varða breytingar á
þjónustu.
3. Tillögur sem varóa samskipti,
hlutverk og tengsl.
4. Tillögur sem varóa breytingar á
nýtingu húsa, starfsmannahaldi
og barnafjölda á núverandi leik-
slcólum.
5. Tillögur sem varóa uppbygg-
ingu nýrra leikskóla, breytingar
eldra húsnæóis og aðrar breyt-
ingar á dagvistarkerfinu.
6. Ymis atriói.
Vegna þess hve lengi starfs-
hópurinn hefur verið starfandi
hafa sumar tillagnanna þcgar ver-
ió framkvæmdar, aðrar hafa verió
til umtjöllunar við geró fjárhags-
áætlunar eóa þriggja ára áætlunar.
Aórar tillögur mun félagsmálaráó,
bæjarráö og bæjarstjórn taka sér-
staka ákvörðun um, svo fremi að
framkvæmdin sé ekki á verksviði
deildarstjóra.
Starfsmenn leikskólanna séu
í fullu starfí
Sett er fram í úttektinni sú skoðun
starfshópsins að leggja beri
áherslu á að starfsmenn leikskóla
séu í fullu starfi fremur en hluta-
starfi hvenær sem því verði við
komið. Þetta atriði eigi sérstak-
lega við um leikskólastjóra.
Starfshópurinn hafnar þeirri hug-
mynd sem fram hafi komið að
stjórnun stærri leikskólanna á Ak-
JB, JHP) leggur til að allir aðrir
starfsmenn leikskóla en leikskóla-
stjóri, fái einungis greidda yfir-
vinnu samkvæmt skilagrein sem
leikskólastjóri staófestir. Með því
er afnumin greiðsla á 13,5 föstum
yfirvinnustundum, sem allar fóstr-
ur í fullu starfi hafa notið undan-
farin ár vegna undirbúnings utan
vinnutíma.“
Þremenningarnir benda á að
umræddar yfirvinnugreiðslur sem
hafi verið sérstaklega umsamdar
við fóstrur á Akureyri 1988/1989
séu nú orðnar óþarfar fyrir þá sök
að nú sé í almennum kjarasamn-
ingum við fóstrur gert ráð fyrir
því að þessi undirbúningur fari
fram á dagvinnutíma og sé svo
gert. Vegna þess sé kallað til sér-
stakt afleysingafólk. Um hafi því
verið að ræða greióslu fyrir óunna
vinnu, eða aö tvívegis sé greitt
fyrir sömu vinnuna. Auk heldur
tíðkist yfirvinnugreiðslur þessar
ekki utan Akureyrar og greiðslur
af þessum toga tíðkist heldur ekki
annars staóar hjá Akureyrarbæ.
Sigrún Sveinbjörnsdóttir og
Ingibjörg Eyfells skila í úttektinni
minnihlutaáliti hvaó þetta atriði
sncrtir.
„Yfirvinnusamningur sem
gerður var við fóstrur 1988/1989
og nam 13,5 tímum á mánuði
hélst óbreyttur eftir að ákvæði
varðandi undirbúningstíma fóstra
var tekið inn í kjarasamning
þeirra. Yfirvinnusamningurinn var
munnlegur, en fóstrur álíta aó um
almennt samkomulag hafi verið
að ræða og því sé um beina launa-
lækkun aó ræða, verði þessi fasta
yfirvinna af þeim tekin. Undirrit-
uðum er ljóst aö óskilgreind yfir-
vinna tíðkast á ýmsum stööum,
hvot heldur á í hlut Akureyrarbær
eða aðrir vinnuveitendur, og telja
óráðlegt aó taka yfirvinnu þessa af
fóstrum, sem hafa lág laun miðað
við þá ábyrgð sem þeiin er falin.
í ljósi þeirrar hagræðingar sem
lögð er til í tillögum verkefna-
hópsins og sumpart er byrjað aó
framkvæma, Ieggjum vió undirrit-
aðar til að yfirborgun, 13,5 klst. á
mánuói verði tekin inn í föst
heildarlaun fóstra.“
Önnur launaatriði varða yfir-
vinnu í hádegi, vaktaálagsgreiósl-
ur fyrir kl. 8 og eftir kl. 17, lokun-
artíma, starfsmannafundi og
tryggingar.
Aldurinn færður niður á
forgangshópum á næsta ári
Sá kafli úttektarinnar sem tekur til
breytinga á þjónustu felur í sér
eftirtektarverðar nýjungar. Lagt er
til að frá ársbyrjun 1994 verói ráð-
inn til starfa á skrifstofu dagvistar-
deildar sálfræöingur í allt að fullt
starf og skal hann sinna m.a.
greiningu á fötluðum börnum sem
óskað er vistar fyrir á leikskólum
og skóladagheimilum, yfirumsjón
með þjálfun og hæfingu þeirra
innan leikskólanna, ráðgjöf við
leikskólastjóra og fóstrur í uppeld-
islegum efnum og um meðferð
fatlaðra barna sérstaklega, sam-
skiptum við grunnskóla og ráð-
gjafar- og sálfræðideild fræðslu-
skrifstofu vegna fatlaðra barna og
almennri uppeldislegri ráðgjöf við
foreldra ungra barna í samvinnu
vió fóstrur og aóra aðila innan
dagvistarkerfis og sé þetta liður í
almennu forvarnarstarfi í barna-
vernd.
Sú tillaga starfshópsins að
börnum á Akureyri verði almennt
gefinn kostur á að hetja leik-
skólagöngu frá eins árs aldri er
veigamikil gangvart barnafólki.
Mióað er við að þetta komist á
þegar nýr leikskóli, sá næsti á eftir
leikskólanum í Giljahverfi, verður
tekinn í notkun. Hvað varóar for-
gangshópa er lagt til að þessi
breyting verði gerð þegar á næsta
ári.
- ný bók eftir
Alþýðusamband Islands hefur
gefið út bókina Réttindi og skyld-
ur á vinnumarkaði eftir Láru V.
Júlíusdóttur.
Bókin fjallar um þær reglur
sem gilda í samskiptum starfs-
manna og atvinnurekenda, um
ráóningu til starfa, skyldur at-
vinnurekenda og starfsmanna, or-
Iof, aukahelgidaga, lífeyrissjóði
og tryggingar, sjúkdóma og slys,
fæðingarorlof, atvinnuleysisbætur,
breytingar á ráóningarkjörum,
uppsagnir, brottrekstur úr starfi og
í úttektinni er nokkuð rætt um
reglur um forgang barna að leik-
skólum og afslætti af vistgjöldum.
„Starfshópurinn hefur tjallað um
reglur um forgang einstakra
barnahópa að leikskólum. Þrátt
fyrir nokkrar áhyggjur al' því hve
mörg börn eru í forgangshópum,
sem veldur að biðtími er orðinn
langur, jafnvel þegar um for-
gangsvistun er að ræða, telur
starfshópurinn sér ekki fært aó
leggja til að núverandi forgangs-
hópum sé fækkað,“ segir í úttekt-
inni.
Þar er lagt til aó sú breyting
verði geró á reglum um afslætti á
vistgjöldum, að ekki verði veittur
afsláttur af vistgjaldi barns náms-
manns, þegar foreldrar eru í sam-
búð og aðeins annað stundar nám.
Eftir sem áður verði námsmanna-
afsláttur veittur þegar báðir for-
eldrar stunda nám sem uppfyllir
hin tilteknu skilyrði. Börn náms-
manna eigi áfram forgang aó vist-
un, hvort heldur sem annað for-
eldra stundar nám eða bæói.
Rétt að beita úrræðum leik-
skólanna í þágu barna at-
vinnulausra
Þá fjallaði starfshópurinn einnig
um hugsanlegan forgang fyrir
börn atvinnulausra foreldra aó
Ieikskólum og afslátt af vistgjaldi
í slíkum tilvikum. „Starfshópnum
sýnist að afar örðug sé aó setja al-
mennar reglur um slíkt, sem sam-
tímis eru sanngjarnar og fram-
kvæmanlegar með góðu móti.
Starfshópurinn telur engu að síður
að undir vissum kringumstæðum
sé æskilcgt og skylt að beita úr-
ræðum leikskólanna í þágu barna
atvinnulausra foreldra. Með tilliti
til þess að frá hausti 1993 mun
sértakur ráógjafi á vegum ráðgjaf-
ardeildar taka að sinna einstak-
lingsbundnu mati á fólki sem
lengi hefur verió atvinnulaust og
ráógjöf við það, lítur starfshópur-
inn svo á að undanþágur og for-
gangur barna að leikskólanum
vegna atvinnuleysis foreldra skuli
gerðar að tillögu þess ráðgjafa.
Stórt skref með Giljahverfís-
leikskólanum
I húsnæðismálakafla skýrslunnar
er komið inn á sameiningu rekstr-
ar Sunnubóls og Króabóls og fyr-
irhugaða aðstöðu í Glerárkirkju.
Bygging nýs leikskóla í Gilja-
hverfi er einnig stórt skref í leik-
skólamálum bæjarins þó það dugi
hvergi nærri til aó uppræta langan
biðlista eftir leikskólaplássuni.
Um gæsluvellina segir í úttekt-
inni að starfshópurinn geri ekki
tillögur um gerð gæsluvalla um-
fram það sem orðið er. Hópurinn
leggur hins vegar til að starl's-
mannahaldi verði hætt á gæslu-
völlum í áföngum á næstu fimm
árum þannig aó frá 1999 verði all-
ir núverandi gæsluvellir orðin op-
in lciksvæði en húsum haldið við.
Lagt er til að jafnótt og gæsla falli
niður verði umsjón vallanna og
rekstur þeirra færöur frá dagvist-
ardeild til umhverfisdeildar. JÓH
Réttindi og skyldur á vmnumarkaði
Láru V. Júlíusdóttur, lögfræðing ASÍ
reglur sem tengjast gjaldþrotum
fyrirtækja svo nokkuð sé nefnt.
Bókin er 280 blaðsíður aó
stærð og innbundin. Hún skiptist í
þrjá hluta, upphaf ráðningar, rétt-
indi og skyldur starfsmanna og
lok ráðningar. Itarleg atriðisorða-
skrá er í bókinni og spássíufyrir-
sagnir, sem ætlað er að auðvelda
notkun bókarinnar sem handbók-
ar. Einnig er skrá yfir tilvitnaða
dóma, scm reifaðir eru en margir
þcirra cru undirréttardómar og
hafa hvergi verið birtir.
Réttindi og skyldur á vinnu-
markaði nýtist öllum þeim sem
fást við að túlka lög og kjara-
samninga á vinnumarkaði, lög-
fræðingum, starfsmannahaldi fyr-
irtækja og launafólki.
Lára V. Júlíusdóttir er lögfræð-
ingur að mcnnt, og hefur starfað
hjá Alþýðusambandi Islands frá
árinu 1982. Menningar- og
fræðslusamband alþýðu sér um
dreifingu bókarinnar. Verð til fé-
lagsmanna ASI er kr. 1200.