Dagur - 10.02.1994, Qupperneq 16
Akureyri, fimmtudagur 10. febrúar 1994
^tenrfuBni
• Tölvugataða
• Frostþolna
• Tölvuvogamiða
• Strikamerki
Undirbúningur fyrir vetrarhátíðina á Akureyri er í fullum gangi og er hugur í aðilum í ferðaþjónustu. Þeir komu
saman í gær á veitingastaðnum Greifanum til skrafs og ráðagerða og þar var þessi mynd tekin. Mynd: Robyn.
Hagsmunaaðilar í ferðaþjónustu á Akureyri stórhuga:
Efna til vetrarhátíðar á Akureyri
Nú er verið að undirbúa af
kappi svokailaða vetrarhátíð á
Akureyri sem ætlunin er að
standi frá miðjum mars til apr-
ílloka.
Kynning á því sem vetrarbær-
Pingeyjarsýsla:
Iðnaðarráðherra
á yfirreið
- málefni Kísiliðju rædd
Sighvatur Björgvinsson, iðnað-
arráðherra, var á ferð um Þing-
eyjarsýslu sl. þriðjudag, ásamt
fylgdarliði. Á Húsavík heimsótti
hann Fiskiðjusamlag Húsavík-
ur, Kjötiðju Kaupfélags Þingey-
inga, Saumastofuna Prýði, Ce-
lite ísland hf. og Fjalar, tré-
smiðju. í Öxarfirði heimsótti
hann flskeldisstöðina Silfur-
stjörnuna og síðan sat ráðherr-
ann fund með bæjarstjórn
Húsavíkur.
„Ráöherrann var mjög ánægður
með heimsóknina i Fiskiðjusam-
lagið og leist vel á það sem verið
er að gera meó að pakka fiski í
neytendaumbúóir fyrir Evrópu-
markaó. Erindi hópsins var að
kynna sér atvinnuástandið í héraði
og önnur mál á staðnum. Á fund-
inum með bæjarstjórn Húsavíkur
voru rædd ýmis mál, m.a. málefni
Kísiliðjunnar sem eru í lausu lofti
vegna takmarkaðs námalcyfis, en
þar er um stórt atvinnumái í hér-
aði að ræóa,“ sagði Jón Ásberg
Salomonsson, bæjarfulltrúi A-lista
í samtali vió Dag. IM
O VEÐRIÐ
Gert er ráð fyrir stormi á öll-
um miðum og djúpum.
Sunnan og suðaustan rok
og jafnvel ofsaveður gengur
yfir vestanvert landið með
morgninum og nær noróur
síðdegis. Á föstudag og
laugardag verður hvöss
suðlæg átt um land allt,
víða rigning og hiti 3-9 stig.
Það er sumsé hlákutíð
framundan.
inn Akureyri hefur upp á bjóða er
komin í fullan gang og má segja
að henni hafi verið ýtt úr vör í síð-
ustu viku þegar Stöð 2 frumsýndi
stutta kynningarmynd um vetrar-
bæinn Ákureyri. Næsta skref var
kynningardagskrá í Kringlunni um
síðustu helgi og framundan er ým-
islegt á kynningarsviðinu. Nefna
má að á íslenskum dögum 14.-20.
febrúar á útvarpsstöðinni Bylgj-
unni mun vetrarbærinn Akureyri
koma oft við sögu, einn liður í
þeim er dagskrá í Perlunni þann
20. febrúar þar sem Akureyri
kemur til með að njóta öflugrar
kynningar.
Að vetrarhátíðinni standa hags-
munaaðilar í ferðaþjónustu á Ak-
ureyri, þ.m.t. veitingahús, hótel og
gistiheimili og Sérleyfisbílar Ak-
ureyrar. Einnig kemur Akureyrar-
bær inn í myndina, sömuleiðis
Leikfélag Akureyrar og Flugleió-
ir.
„Við viljum kalla þetta vetrar-
hátíð á Akureyri," segir Hjörtur
Narfason, sem hefur verið ráóinn
starfsmaður í tvo og hálfan mánuð
til þess að sjá um kynningu og
framkvæmd hátíðarinnar. „Þetta
kemur til með að byggjast mikið á
menningarþættinum þar sem leik-
húsið og Sjallinn hafa stór hlut-
verk. Listagilið kemur inn í þetta
líka með ýmsum hætti. Til dæmis
er á þess vegum stefnt að því aó
efna til ísmyndasamkeppni á Ráð-
hústorgi. Hinir árlegu Andrésar
andar leikar veróa á þessu tímabili
og síðan erum við byrjaðir að
vinna að hugmynd unr að efna til
landsmóts saumaklúbba á Akur-
eyri í endaðan apríl.“
Hjörtur sagöi að áhersla væri
lögö á uppákomur um hverja helgi
á þessu tímabili og þáttur veit-
ingahúsanna veröi þar töluvert
stór.
„Hér verður mikið unr að vera
og ég efast ekki um að fólk hér á
Akurcyri, úr nágrannabyggðum
og ekki síður af höfuðborgarsvæö-
inu getur fundið eitthvað við sitt
hæfi,“ sagði Hjörtur Narfason.
óþh
Atvinnuleysisbætur í S.-Þingeyjarsýslu:
Átta milljónir
greiddar í janúar
- 98 atvinnulausir á Húsavík
„Ég er ekki bjartsýnn. Það eru
196 skráðir atvinnulausir í sýsl-
unni í dag, þar af 98 á Húsavík.
Atvinnuleysið í sveitunum eykst
jöfnum skrefum. í janúar voru
átta milljónir greiddar í bætur
til 332 einstaklinga sem komu
inn á skrá og voru samtals með
5000 atvinnuleysisdaga. Um
mánaðamótin voru 181 á skrá,
svo það hefur orðið fjölgun síð-
an,“ sagði Aðalsteinn Baldurs-
son, varaformaður Verkalýðsfé-
lags Húsavíkur, aðspurður um
atvinnuástand í Suður-Þingeyj-
arsýslu.
Áðalsteinn sagði að nokkur 17-
18 ára ungmenni hefðu lokið eóa
hætt námi um áramótin og komið
inn á skrá. Hann sagðist hafa gert
skoðun á aldri og atvinnuleysi
þeirra sem eru á skrá á Húsavík.
Hann sagði að 67% skráðra væru
alveg án atvinnu en 33% í hluta-
störfum. Hvað aldurinn varðaði
væru 40% atvinnulausra á aldrin-
um 16-30 ára, 35% á aldrinum 31-
50 ára og 25% á aldrinum 51-70.
Konur eru 42% atvinnulausra en
karlar 58%.
Aðalsteinn sagði að salur
verkalýðsfélaganna yrði framveg-
is opinn kl. 13-17 á fimmtudögum
fyrir samverustund atvinnulausra.
„Þar getur fólk komið saman og
rætt sín mál, drukkið kaffi og
spjallað. Menn geta spilað eóa
komið með óskir um að fá fyrir-
lesara. Þetta er ömurlegt ástand,“
sagði Aðalsteinn. IM
LÍMMIÐAR NORÐURLANDS HF.
Strandgötu 31 -600 Akureyri • Sími 96-24166
Vinnsla hafin hjá Dögun hf. á Sauðárkróki
eftir gagngerar endurbætur:
Góð rækjuveiði
á
Rækjuvinnsla er hafin að nýju
hjá Dögun hf. á Sauðárkróki
eftir hlé sem staðið hefur síðan
fyrir sl. jól og er nú fyrst í stað
unnið á einni vakt. Ekki hefur
verið ákveðið hvort bætt verði
við annarri vakt, það ræðst m.a.
af því hvort aukinn kvóti fæst til
veiða á innfjarðarrækju á
Skagaflrði. Gagngerar endur-
bætur hafa farið fram á
vinnslusalnum og eins hefur far-
ið fram mikil endurnýjun á
vélakosti, m.a. á flokkurum,
vinnsluborðum og frystum.
Veióar hófust að nýju á inn-
fjarðarrækjunni á Skagafiröi 4.
febrúar sl. og hefur afli verið
mjög góður og rækjan stærðar-
flokkast mjög vel. Veióarnar
stunda þrír bátar frá Sauðárkróki;
Jökull, Sandvík og Þórir, og einn
frá Hofsósi; Berghildur. Tvö
hundruð tonna rækjukvóta var út-
hlutað til veiða á Skagafirði og
eru bátarnir að verða búnir með
þann kvóta. Veiðar hafa einnig
verið takmarkaðar á ákveðnum
svæðum vegna mikillar sniáýsu,
sem fannst í aflanum í haust.
Veiðin gekk mjög treglega framan
af í haust en hefur verið allgóö
undanfarna daga en bátarnir hafa
þó ekki farið á sjó alla dagana til
þess aö draga veiðarnar á langinn.
Aflinn hefur verið 3,5 til 4 tonn
eftir daginn el'tir 2 til 3 hol og allt
upp í 6 tonn.
Spurningakeppni
framhaldsskóla:
Fjögur lið
frá Norður-
landi
- í átta liða úrslit
Nemendur fjögurra framhalds-
skóla á Norðurlandi hafa náð
þeim árangri að vera komnir í
átta liða úrslit í Spurninga-
keppni framhaldsskólanna í
Ríkisútvarpinu. Hvert lið hefur
lagt að velli lið frá öðrum fram-
haldsskólum í tveimur umferð-
um í útvarpskeppninni, en þær
þrjár umferðir sem eftir eru
fara fram í Sjónvarpinu.
í raun eiga þrjú liðanna frá
Norðurlandi fræðilegan mögu-
leika á að komast í fjögurra liða
úrslitin. En annað hvort lið MA
cða VMA fellur úr keppni í næstu
umferð, því Menntaskólinn á Ak-
ureyri og Verkmenntaskólinn á
Akureyri keppa hvor á móti öör-
um föstudagskvöldið 18. febrúar
nk.
Næstu lið keppa 25. febrúar en
það eru Menntaskólinn á Laugar-
vatni og Framhaldsskólinn á
Laugum í Reykjadal. Þann 4. mars
keppa Verslunarskóli Islands og
Framhaldsskólinn á Húsavík og
11. mars keppa Fjölbrautaskólinn
í Breiðholti og Menntaskólinn í
Reykjavík. IM
Eins er Haförn írá Stokkseyri a
úthafsrækjuveiðum og mun landa
afianum til vinnslu hjá Dögun hf.
Hann hefur farið eina veiðiferó og
var aflinn 10 tonn.
Stefán Brynjólfsson, fiskifræð-
ingur hjá Hafrannsóknastofnun, er
vió rækjurannsóknir á Húnaílóa
og mun um næstu helgi halda
rannsóknunum áfram á Skagafirði
og þaðan liggur leiðin svo á
Skjálfandaflóa og í Oxarfjörö.
Unnur Skúladóttir, fiskifræðingur
hjá Hafrannsóknastofnun, segir að
fyrstu gögnin verói komin suður
um miðja næstu viku og fljótlega
úr því verði hægt að taka afstöðu
til þess hvort breytinga megi
vænta á rækjukvótanum á Húna-
flóa og Skagafirði, þ.e. hvort hann
verói aukinn. GG
Árskógsströnd:
Harður árekstur
Um hádegisbilið í gær varð all-
harður árekstur tveggja bíla á
mótum Olafsfjarðarvegar og
Árskógsstrandarvegar. Bílarnir
skemmdust mikið en ekki urðu
slys á fólki.
Að sögn lögreglunnar á Dalvík
mættust tveir bílar þarna á gatna-
mótunum og skullu þcir saman af
töluverðum krafti og skemmdirnar
eftir því.
Annars var tíóindalítiö hjá lög-
reglu á Eyjafjarðarsvæðinu og
Norðurlandi vcstra í gær. SS
Við
tökum vel á
móti ykkur
alla daga
til kl. 22.00
Byggðavegi 98
Allt fyrir
gluggann
Rúllugardínur • Z-brautir
Gluggakappar
Álrimlatjöld, 40 litir
Plizzegardínur
Strimlagardínur
Ömmustangir
Kappastangir • Þrýstistangir
Plastrimlatjöld, 6 litir
Smíðum allt eftir máli
Sendum í póstkröfu
0KAUPLAND
Kaupangi v/Mýrarveg, simi 23565