Dagur - 25.05.1994, Blaðsíða 18

Dagur - 25.05.1994, Blaðsíða 18
18 - DAGUR - Miðvikudagur 25. maí 1994 MINNI NG Asta Aðalsteinsdóttir Fædd 20. júlí 1941 - Dáin 12. maí 1994 Þegar sól hækkar á lofti og fönn leysir til fjalla, þegar nótt verður björt og angan gróðurs fyllir loft- ið, þá lifnar von í hjörtum mann- anna, þaó er að koma sumar. Hringing dyrabjöllunnar boóar kornu gests, oftast með góðar fréttir, en nú cru tíðindin alvarleg. Jóhann frændi minn ber mér þau boð að hún Asta móðursystir hans, væri nýlátin. Undanfarna daga hef ég fylgst meó Astu, og baráttu hennar við þann sjúkdóm sern leiddi hana til dauða, því kom fréttin mér ekki alveg á óvart. Þó er það svo þegar fólk í blóma lífs- ins er burtu kallaó, fólk sem hefur verið fullt af Iífsorku, þróttmikió og dugmikið fólk, fólk sem borió hefur meó sér gróðurangan vors- ins og birtu sumarsins, þá koma upp í hugann orð Drottins Jesú cr hann var að ræóa við Pétur, en Pétur viidi ekki leyfa honum að þvo fætur hans. Þá mælti drottinn, „nú skilur þú ekki hvað ég er aó gjöra, en seinna muntu skilja það“. Kynni okkar Astu hafa varað í mörg ár, en ráðning hennar sem matráðskonu að Sumarheimilinu aó Astjörn uröu til aó efla kynnin. Strax og hún hóf þau störf, varð okkur ljóst að þarna var kominn starfskraftur sem fyllti upp þær væntingar okkar sem við gerum til þeirra er hjá ókkur starfa á Astjörn. Hún var dugmikil ráós- kona með útsjónarsemi hinnar hagsýnu húsmóður, hún var kokk- ur sem eldaði góðan mat. En þaö sem öllum féll best í geð, var hið elskulega viðmót hennar og góða skap. Þá varð börnunum lljótt ljóst að hjá Ástu gátu þau alltaf leitað huggunar og þeir sem minna máttu sín fundu hjá henni traust. Þannig var oft á tíðum nokkuð margt í eldhúsinu, sem ef- laust surnir hefðu amast við, en Ástu féll þetta vel í geð. Aldrei var kvartað yfir löngum vinnudegi eða tilfallandi aukaverkum, og ef- laust hefur ósérhlífni hennar oróið til þess að fleiri verk komu á hennar hendur en ætlunin stóð til. Það fór svo aó fljótt voru aðalinn- kaup heimilisins jafnan borið und- ir hana. Við stjórnun á stóru bamaheimili koma einnig upp mörg vandamál, og fljótt lærðist mér, aó gott var aó leita ráða hjá Ástu, því næmni hennar á mann- legum samskiptum voru henni svo eðlileg, að vandamál voru til að Ieysa þau, ósætti til að sætta það. Á Ástjörn byrjar hver dagur og endar með bænastund. Það er ekki skylda á hverjum starfsmanni að mæta, en Ásta lét sig ekki vanta þótt á hennar herðum hafi verið mesta starf dagsins. Hún talaði ekki mikió um trú sína, en líf hennar allt gerði það, og ber henni fagran vitnisburð. Trú hennar og traust á Skapara sinn kom ef til vill best í Ijós nú er hún varð að lúta því kalli sem vió verðum ein- hvern tíma að lúta. Bænastundirn- ar þá og sá óttalausi svipur sem hún bar, var vitnisburður urn full- vissu hennar. Við Ástirningar höfðum vænst þess að eiga Ástu að áfram, og það hafði verið rætt um þaö að hún kæmi sérstaklega vegna stúlknanna sem koma í sumar. Það veröur okkur erfitt og við munum sakna vinar í staó. Við vitum þó að söknuður fjölskyldu Ástu er mikill, þróttmikil og elsk- uö eiginkona, móðir og amma hefur verið burtu kölluó, svo ótímabært að okkur finnst. Faðir Ástu er einnig á lífi, og veit ég að mjög kært var með þeim, einnig systrunum tveim og fjölskyldum þeirra. Öllum þessum aðstandend- um vottum við okkar innilegustu samúð og biðjum þeim Guðs blessunar. Ásta var elsta dóttir hjónanna Aðalsteins Óskarssonar frá Kóngsstöóum í Skíðadal og Sigur- laugar Jóhannsdóttur frá Brekku- koti í Hjaltadal. Foreldrar hennar bjuggu þá á Ytri Másstöóum í Skíðadal, en fluttu árið 1950 til Dalvíkur, og bjó Ásta þar upp frá því. Árió 1959 giftist hún eftirlif- andi eiginmanni sínum Hauki Haraldssyni frá Svalbarði Dalvík. Saman eignuðust þau 5 börn, Að- alstein, f. 29.09.59. Kristin, f. 22.09.62. Auði Elfu, f. 18.06. 64. Sigurlaugu, f. 01.04.75 og Irisi Dögg, f. 04.06.82. Barnabörn þeirra eru 5. Það aó Guð gaf okkur samvist- ardaga með Astu, verðum við Guði ævarandi þakklát. Hún gerði okkur að betri mönnum með áhrif- um sinnar heilnæmu pcrsónu. Ásta mín! „hafðu þökk l'yrir allt, friður Guðs þig leiði“. Guó blessi minningu þína. Bogi Pétursson. Þann 12. maí barst okkur sú frcgn aó Ásta okkar væri dáin. Okkur langar að þakka þér Ásta fyrir þann tíma sern við fengurn með þér á Ástjörn. Þú varst ekki ein- ungis vinnufélagi heldur líka vin- ur. Það var svo gaman í kringum þig, þú varst alltaf svo fjörug og með í öllu sem okkur datt í hug að gera. Þú varst líka alltaf tilbúin að hlusta og gefa góó ráð. Kæra Ásta. Vió þökkum þér fyrir allt sem þú gafst okkur. Við biðjum góóan guð að hugga og styrkja fjölskyldu henn- ar og aðra aóstandendur og send- um okkar innilegustu samúðar- kveöjur. Guð blessi ykkur öll. En nieðan árin þreyta hjörtu hinna, sem horfðu á eftir þér í sárum trega, þá blómgast enn, og blómgast/ œvinlega, þitt bjarta vor í hugum vina þinna. (Tómas Guómundsson) Hófí og Jóhanna. Ásta Aðalsteinsdóttir fæddist í Engihlíð á Árskógsströnd 20. júlí 1941. Hún Iést á Fjórðungssjúkra- húsinu á Akureyri þann 12. maí 1994. Ásta var dóttir Sigurlaugar Jóhannsdóttur og Aðalsteins Ósk- arssonar sem býr á Akureyri. Eft- irlifandi eiginmaður Ástu er Haukur Haraldsson og eiga þau ílmm börn. Þau eru: Aóalsteinn, Kristinn, Auður Elfa, Sigurlaug og íris Dögg. Þann I. september 1993 hóf starfsemi sína Ieikskólinn Fagri- hvammur á Dalvík og réðst Ásta í starf matráðskonu frá þeim degi. Hún hafði aóeins gegnt því starfí í hálft ár þegar hún veiktist. Eftir tveggja mánaða veikindi og stutta sjúkrahúslegu er hún dáin langt um aldur fram. Ásta hafói til að bera mikla manngæsku. Þaó var alltaf gott að leita til hennar og hún var alltaf svo jákvæð og tilbú- in að gera það besta úr hlutunum. Orðið „nei“ var tæpast að fínna í hennar oróaforða en hafí það leynst þar þá var það lítið notað. Börnin elskuðu Ástu og að fá að hjálpa hcnni í eldhúsinu var öllum kærkomið. Hún var svo barngóó og þolinmóð, svona eins og amma sem hefur alltaf nægan tíma. Með þessum oróum langar okkur að kveðja Ástu og þakka henni sérlega gott samstarf sem varð allt of stutt. Hennar er sárt saknað í Fagrahvammi en við varðveitum minningar um yndis- lega manncskju í hugum okkar. Eiginmanni, börnum, barna- börnum og fjölskyldu scndum við okkar innilcgustu samúðarkvcöjur fyrir hönd starfslólks og barna í Fagrahvammi. Anna Jóna Guðmundsdóttir og Birna Blöndal. Kri^ana Sigfiimsdóttír Fædd 5. október 1903 - Dáin 12. maí 1994 Kristjana Sigfinnsdóttir fæddist á Grímsstöðum í Mývatnssveit 5. október 1903 og lést á sjúkrahúsi Húsavíkur 12. maí 1994. Foreldr- ar hennar voru Sigfinnur Sigur- jónsson og Þórunn Guómunds- dóttir. Stjana giftist 15. nóvember 1941 Sigurði Kristinssyni f. II. febrúar 1897 frá Steinsstöðum í Öxnadal. Hann lést 12. júní 1970. Stjana og Siguróur eignuðust einn son, Kjartan Þór. Mig langar að minnast afasyst- ur minnar í örfáum orðum og koma í hugann margar ánægjulcg- ar stundir er átti ég með henni, þó sérstaklega þegar ég var barn og langtímum saman hcima hjá henni. Þá spiluðum vió og lásum fyrir hvora aóra. Eins sagói Stjana mér ýmsar sögur, bæði af sér og öðruin. Hún sagði mér þegar hún fór á alþingishátíðina 1930. Hún fór gangandi frá Grímsstöðum í Neslönd og frá Neslöndum á báti í Álftagerði og þaðan á bíl til Akur- eyrar og svo ál'ram á bíl til Reykjavíkur. Var þetta rúmlega viku ferðalag og yndislegt í alla staði. Stjana fór líka í Hússtjórnar- skólann að Laugum. Hefur henni þótt það góðar og skemmtilegar stundir enda Ijómaði hún í framan þcgar hún talaöi um þann tíma. Mörg vorin var ég hjá Stjönu og Kjartani syni hennar að hjálpa til í sauðburði og fannst mér aó sjálfsögðu muna töluvert um mig hvað svo var í raun, en aldrei var ég látin fínna lyrir því að ég bara þvældist fyrir, hcldur alltaf þakk- aó á hverju kvöldi fyrir hjálpina. Mér er líka mjög minnisstætt þeg- ar komió var að matmálstímum. Þá talaói Stjana alltaf um að fara „að skamta“. Þegar komið var að því að borða var mér alltaf boðið að borða mcð þcim, þó svo aó ég byggi í næsta húsi og þótti mér þaó fíott að boróa þar. En samt var hængur á, því skeiðarnar hennar Stjönu voru svo stórar að ég rétt gat komið þeim upp í mig svo ég sótti skeiö heim til mín og átti hana hjá Stjönu og þar meó var sá vandi leystur. Alltaf gáfum við hvor annarri jóla- og afmælisgjafír. Hennar gjafir voru yllrlcitt leistar eða vettlingar með útprjónaðri átta blaða rós á handarbakinu. En þær scm ég gaf hcnni voru smíðaðar eftir mig og þá oftast kcrtastjaki scm ég bjó til úr dálitlum kubb og l'csti á hann álpappír. Svo var ég meó eitt eóa tvö trétvinnakclli og stækkaði á þeirn götin svo að lítil kerti pössuöu í þau. Þau festi ég á kubbinn og límdi síðan skcljar og smásteina utan á. Ein jólin var gjöfín þó sérstaklega höfðingleg. Eg og frændi minn vissum að fjósaskammclið hennar Stjönu var orðið ræfílslegt. Það var með þremur l'ótum og þeir í miklum lamasessi. Smíðuðum við nýtt skammel með tveimur vel stcrk- um fótum og gáfum henni í jóla- gjöl'. Hún líka marg kyssti okkur og þakkaði fyrir þessa miklu gjöl'. Stundum spilaði Stjana l'yrir mig á munnhörpu og ég söng rneð. Það var oft ansi gantan hjá okkur þá og mikió hlcgió því ég kunni ckki alltaf bæði lag og tcxta. Minning- arnar eru bæði margar og ljúfar cn að cndingu vil ég þakka þér clsku Stjana mín fyrir óglcymanlcgar stundir mcó þessurn Ijóðlínum cft- ir Friðrik bróður minn. Frelsarans þúfetar slóð fylgir tímans vana. Kveðjum við þig Idökk og hljóð kcera góða Stjana. Krökkum þeim scm kynntust þcr kœrleiks jóst af brunni. Gafa sú og gleði er geymcl í minningunni. Eg þakka þcr alla þá ómajclu stuncl sem áttum er lít ég til baka. Og nú crtu gengin á feðranna funcl erfagnandi móti þér taka. (F-'.S.) Þín frænka Ella. Margs er cið niinncist, nicirgt er þér cið þakka. Guði sé loffyrir liðna tíð. Margs er cið minnast, margs er ctð sakna. Guð þerri tregatárin stríð. (Vald. Bricm) Þegar ég l'rétti lát Stjönu afa- systur minnar kom mér í hug þetta vers. Vissulcga á ég niargs aö minnast og margs að sakna, cn fyrst og fremst hcilmargt að þakka. Elsku Stjana rnín! Allar þær óteljandi stundir scm þú urn- barst, stelpufiðrildió scm aldrei var kyrrt, cn spuröi í sílcllu og krafðist svara. Alltaf hafðir þú tíma, hvað scm þú varst að gcra. Mikið óskaplcga fannst mér ganian þegar ég fékk að grciða á þér hárið, vcfja það upp í hnakk- ann og fcsta síöan mcð spcnnum. Það var orðinn l'astur liður í hcim- sóknunum til þín og að spila síðan stclpuspil á cftir. Hlýi hugurinn scm hún Stjana mín bar til mín hcl'ur fylgt mér og Ijölskyldu minni allt til þcssa dags. Ofáa lopasokka var hún bú- in að prjóna á manninn minn og börnin og rósavcttlinga handa mér. Börnin mín scnda ömmu Stjönu hlýjar kvcðjur og þakka fyrir allt og sérstakar kvcðjur eru frá Lísu og Rósu. Margs cr aó minnast og gott að ciga góðar og fallegar minningar til að brosa og jafnvcl hlægja að. Minningarnar um þig, Stjana mín. Far þú ífriði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans clýrðarhnoss þú hnjóta skalt. Innilegar samúðarkvcójur til allra aðstandenda. Sigfríður Steingrímsdóttir. AKUREYRARB/€R Útboð Akureyrarbær óskar eftir tilboðum í að byggja leikfimi- hús við Oddeyrarskóla á Akureyri. Leikfimisalur er 205 fm og viðbygging við skólahús 86 fm. Leikfimisalur byggist úr límtré og einingum, en við- bygging úr steinsteypu. Útboösgögn veróa afhent á byggingardeild Akureyrar- bæjar, Geislagötu 9, gegn 12.450.00 kr. tilboóstrygg- ingu. Tilboð skulu hafa borist byggingadeild Akureyrarbæjar eigi síðar en föstudaginn 3. júní 1994 kl. 11.00 og verða þau opnuó þar í viðurvist þeirra bjóðenda sem þess óska. Akureyrarbær/Byggingadeild.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.