Dagur - 13.08.1994, Síða 3
FRETTIR
Laugardagur 13. ágúst 1994-DAGUR-3
„Viljum afdráttarlausan stuðning stjórnvalda"
- segir í ályktun Skipstjóra- og stýrimannafélags Norðlendinga
Stjórn Skipstjóra- og stýri-
mannafélags Norðlendinga sam-
þykkti á fundi sínum 11. ágúst
sl. að skora á stjórnvöld að lýsa
nú þegar yfír fullum og ótvíræð-
um stuðningi við veiðar ís-
lenskra sjómanna á Svalbarða-
svæðinu og í Smugunni.
I ályktun stjómarinnar segir
m.a.:
„Þar sem komió hefur fram
undanfarna daga á skýran og aug-
ljósan hátt að réttur Norómanna til
yfírráða á þessum svæðum er ekki
fyrir hendi, þá ber íslenskum
stjómvöldum skylda til að Ieita
allra leiða til að tryggja framtíðar-
hagsmuni íslenskra þegna á þess-
um svæðum. Sem fyrsta skref í
þessa átt förum við fram á afdrátt-
arlausan stuðning stjómvalda nú
þegar.“
Stjórnin ítrekaði ennfremur
fyrri samþykkt þess efnis að ís-
lenska úthafsveiðiflotanum veröi
tryggð læknisþjónusta á þeim tíma
sem úthafsveiði stendur yfir, hvort
sem það er í Barentshafi eða út á
Reykjaneshrygg.
I gær gerðist það svo að norska
ríkisstjómin samþykkti að veita
16 Evrópuríkjum veiðiheimildir
við Svalbarða samkvæmt nýrri
reglugeró, og er ísland ekki meðal
þessara þjóða. Björn Tore Godal,
sjávarútvegsráðherra Noregs, seg-
ir að ekki séu til staðar nein rök til
að veita Islendingum veiðiheim-
ildir við Svalbarða og gengur
hann svo langt að kalla íslensku
sjómennina sjóræninga. Reglu-
gerðin veitir norsku strandgæsl-
unni heimild til að færa togara
sem staðnir eru aó ólöglegum
veióum til hafnar, afli verður
gerður upptækur og í versta falli
einnig skipið.
Þorsteinn Pálsson, sjávarút-
vegsráðherra, segir að Norömenn
séu meó þessari reglugerð að
koma fram refsiákvæóum því þeir
gátu ekkert aðhafst og klúðruðu
málinu gegn Hágangi II. íslend-
ingar viðurkenna hins vegar ekki
rétt Norðmanna á Svalbaróasvæð-
inu og því má allt eins búast við
höróum átökum, en um 400 ís-
lenskir sjómenn cru nú við veiðar
á svæðinu. GG
Nýtt íþróttahús á Grenivík:
Væntanlega I
notkun í október
Framkvæmdir við nýtt íþrótta-
hús á Grenivík sem tengist
skólabyggingunni með tengi-
byggingu eru langt komnar og
er aðeins eftir að ganga frá gólfi
°g leggja á það sérstakan dúk.
Reiknað er með að hægt verði
að fara í dúklagninguna í sept-
embermánuði nk. og ef það
gengur eftir verður húsið tekið
formlega í notkun í október-
mánuði.
Áætlaður byggingarkostnaður
var 43 milljónir króna en hann
verður kominn í 35 milljónir
króna eftir að lokið verður við
gólflð. Þá er að vísu eftir frágang-
ur á loftræstibúnaði en þegar hann
er kominn upp ætti byggingar-
kostnaöur ekki að fara yfír 40
milljónir króna.
Vallarstærð íþróttahússins er
16x28 metrar en utan við það er
rúmlega meters breitt svæði auk
áhorfendabekkja sem koma öóru
megin við völlinn. Sett verða upp
mörk og körfur við völlinn en
einnig er til eitthvaó af öðrum
íþróttaáhöldum, þó af skornum
skammti.
Iþróttakennsla við grunnskól-
ann hefur farió fram í sal í kjallara
skólabyggingarinnar svo fullyröa
má að nýja íþróttahúsið muni
valda byltingu í íþróttakennslu og
íþróttaiðkun í Grýtubakkahreppi.
Búningsklefar fyrir íþróttahús-
ið og sundlaug, sem stendur norð-
an þess, verður enn um sinn í
kjallara skólahússins en það er
framtíðarverkefni aó byggja sam-
eiginlega búningsklefa fyrir
íþróttahúsið og sundlaugina. GG
Nýja íþróttahúsið á Grenivík, sem á myndinni er hægra megin við skólahúsið, vcrður mikil lyftistöng ailri íþrótta-
iðkun í Grýtubakkahrcppi.
LEIKURINN
u& 011 A»
v/cumel cR''
ALLIR FA GLAS!
Þátttakan í Mjólkurbikarleiknum hefur verið
svo gífurleg að við höfum orðið uppiskroppa
með verðlaunabikara! En það er aðeins
tímabundið ástand því búið er að panta
aukasendingu af giösum sem tryggir að
allir sem skila inn útfylltum þátttökuseðli
fyrir 26. ágúst fá örugglega sinn
verðlaunagrip.
Þessi metþátttaka skýrist m.a. af því að það
er ekki bara unga fólkið um allt land sem
skellir sér í leikinn, heldur afar og
ömmur, pabbar og mömmur ásamt
frændum og frænkum á öllum aldri.
Það eru bókstaflega allir með!
Þangað til glösin komast í hendur réttra
eigenda verðum við að treysta á þolinmæði
þátttakenda sem munu að sjálfsögðu fá
sérstaka inneignarkvittun fyrir hvern útfylltan
þátttökuseðil sem skilað er inn.
ALLIR
sem skila inn útfylltum þótttökuseðli fyrir 26. ögúst fö sitt glas!
Við þökkum fröbcerar móttökur!
Það verður að sjálfsögðu auglýst rœkilega þegar glösin koma
til landsins svo ekkifarifram hjá neinuml
ISLENSKUR MJOLKURIÐNAÐUR