Dagur - 13.08.1994, Side 9
Laugardagur 13. ágúst 1994 - DAGUR - 9
Kári Kristjánsson, landvöröur.
Myndir: IM
Herdubreiðarlindir:
Engínn fullur
í fínunár
- segir Kári Kristjánsson, landvördur
Hcrðubreiðarlindir. I>ar hefur verið hlýtt í sumar.
„Það er búin að vera sól og blíða í
nokkra daga og hitinn fór upp í 23
gráður, en hann mældist 24 gráður
fyrr í sumar. Þetta er venjulegt
sumar eins og þau voru á árunum
’89 til ’91, mikill hiti en ekki nein
úrkoma,“ sagði Kári Kristjánsson,
landvöróur í Herðubreióarlindum,
á þriðjudaginn.
Kári hefur starfað sem land-
vöróur í Herðuubreiðarlindum frá
því sumarið ’89. Honum finnst
fleiri á ferð í júlí í surnar en áður,
þó ekki sé búið aó taka saman töl-
ur því til staðfcstingar.
6000 gistinætur.
„Venjulega eru hér um 6000 gisti-
nætur yfir sumarið og 2000 af því
eru Islendingar. Skálinn rúmar 30
manns með góöu móti, en meiri-
hluti gesta er hér í tjöldum. Um
verslunarmannahclgina gistu hér
330 manns í einu, en það er meó
því mesta sem verður og í raun-
inni of margt. Oft eru hér 150-200
manns.“
Kári sagði að svæðió þyldi ekki
mikið nteira en 200 manns í einu
því eitt snyrtihús er á svæðinu
með aðeins fjórum salernum.
Náttúran þyldi ekki meira álag
heldur, kannski 200 manns um
helgar en ekki svo marga að með-
altali yfir allt sumarið.
- Hvaó með umgengnisreglur,
er landinn farinn aö virða þær í
auknum niæli?
„Já, mér finnst þaó nú. Fólk
sem ekki hefur feróast mikið síð-
ustu ár er ekki vant því að þurfa
aó taka tillit til reglna sem gilda,
ekki eins og þeir sem eru vanir að
ferðast. Fólk heldur að þetta sé
eins og áður, aö hægt sé að tjalda
út um holt og hæðir og gera sín
stykki þar. En mióað við þessa
miklu urnferð gengur þetta ekki
upp. Ferðamenn eru því bcðnir aó
gista á gististöðum og þar er að-
staðan fyrir fólkið, en þaðan er
farið á skoðunarstaði þar sem ekki
er gist.“
Utanvegaakstur
- Hvað er erfiðast vió að ciga í
þessu sambandi?
„Þaó er sennilega utanvega-
aksturinn. Þeir sem ætla sér að
tjalda utan gististaða vilja ekki
vera í vegkantinum og eru þá að
brjóta lög meö því að keyra ein-
hvern spotta út fyrir veginn. Að
yfirgefa slóðina er utanvegaakst-
ur. Nýjar reglur eru ákveðnari en
áður, og eftir þeim var dæmt í
Hvannalindum um daginn. Það
kostar töluvert fyrir ferðamenn að
fara út af slóð, fyrir utan skemmd-
irnar sem verða eftir í landinu og
ekki er hægt að bæta nema á 15-
20 árum. Landinn verður að taka
sig á í þessum efnum, og útlend-
ingar einnig. Islendingar líta svo á
að þaó sjái ekki á neinu eftir
breiðu dekkin, en það er mesti
misskilningur."
Vildi iandvarðarpeysu
handa ítölsku kærustunni
- Eru einhverntíma vandræði
vegna ölvunar í Herðubreiðarlind-
um?
„Nei, það hefur ekki sést vín á
nokkrum manni síðan 1. ágúst
’89. Þá var einn fullur hérna urn
vcrslunarmannahelgina, og það er
eina tilvikið sem ég man eftir.“
- Gerist ekki margt skemmti-
legt í þessu starfi?
„Jú. Það gerist ýmislegt
skemmtilegt í sambandi vió Ital-
ina sem koma hérna. Þeir eru
vægast sagt svolítið óagaðir. Þeir
buðu mér um daginn 5-6000 þús-
und lírur í peysu með merki Nátt-
úruvemdarráðs. Þeir voru hrifnir
af mekrinu og cinn vildi færa kær-
ustunni á Italíu svona peysu. Ég
lét ekki freistast. Þeir vilja prútta
um allt mögulegt, líka um gisti-
gjaldið. Það er oft gaman að þeim
en svo geta þcir orðið þreytandi.
Yfirleitt eru samskiptin vió l'erða-
menn ánægjuleg.“
Margt að sjá.
- Er starfið skemmtilegt?
„Okkar starf er tvískipt. Það er
að taka á móti fcrðamönnum og
veita þeim upplýsingar, og svo er
fræðslustarfió mjög gefandi. Við
förum í gönguferðir með hópum
þegar tími og aðstæður leyfa, það
er nokkuð vinsælt. Það er gaman
að velta fyrir sér hegðun fólks af
mismunandi þjóöernum. Landinn
feróast öðruvísi en útlendingar.
Utlendingar taka þetta eins og
hverja aðra vinnu, landinn er aó
reyna að afstressa sig og hvíla sig,
en þó eru mismunandi áherslur og
sumir cru búnir að negla niður
næsta áfangastað og niega ekki
vera að því að stoppa, skoða bara
út um bílgluggann. En hér er
margt að sjá.“
- Hefur eitthvað fréttnæmt
gerst á svæðinu í sumar?
„Það er svolítil jaróskjálfta-
hrina þcssa daga, sennilcga viö
Herðubrciðartögl. Það var önnur
slík fyrr í sumar, en það er venju-
legt aö svona hrina komi annað
eða þriója hvert ár.
Annars er þetta ósköp venju-
iegt sumar. Það er meira af Islend-
ingum á ferðinni, orsökin getur
m.a. verið sú að landinn ferðaðist
ekki hér í fyrrasumar vegna
kulda,“ sagði Kári. IM
Forstöðumaður
Bæjarstjórn Akureyrar hefur ákveðið að efla atvinnu-
málaskrifstofu bæjarins og því auglýsum við laust starf
forstöðumanns skrifstofunnar. Gert er ráð fyrir að á
skrifstofunni starfi 2-3 starfsmenn. Skrifstofan heyrir
undir atvinnumálanefnd. Verksvió hennar felst m.a. í
aó:
1. Vera bæjarstjórn til ráðuneytis um atvinnumál og
skapa tengsl milli bæjarstjórnar og atvinnulífs bæjar-
ins.
2. Fylgjast með ástandi og horfum í atvinnulífi bæjar-
ins, aóstæðum til atvinnurekstrar og gera tillögur til úr-
bóta er þurfa þykir.
3. Annast almenna ráðgjöf í atvinnumálum og stuðla
að stofnun nýrra fyrirtækja á Akureyri m.a. í samstarfi
við Iðnþróunarfélag Eyjafjarðar hf.
4. Vinna að eflingu ferðamannaþjónustu og annast
kynningu á Akureyri sem ferðamannabæ.
Gert er ráð fyrir að Framkvæmdasjóóur Akureyrar,
sem er eignarhaldssjóður í eigu bæjarins, heyri undir
atvinnumálaskrifstofuna.
Um er að ræða krefjandi og spennandi starf fyrir dug-
mikinn einstakling. Við leitum að einstaklingi með há-
skólamenntun á sviði rekstrar og/eóa viðskipta með
reynslu úr atvinnulífinu.
Nánari upplýsingar veitir Þórir Þorvarðarson.
Vinsamlega sendið skriflegar umsóknir til Ráðn-
ingarþjónustu Hagvangs hf., merktar „Forstöðu-
maður 283“ fyrir 20. ágúst nk.
Hagvangur hf
Skeifunni 19 • Reykjavík • Sími 813666 • Fax 688618
>1
AKUREYRARBÆR
Barnaskóli Akureyrar
Laus eru til umsóknar störf við ræstingar, gangavörslu
og barnagæslu og fl. (blönduó störf) um er að ræða 3
stöóur 50%. Umsækjendur þurfa að geta hafið störf
sem fyrst.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Einingar og
Akureyrarbæjar.
Upplýsingar um störfin gefa skólastjóri og aðstoðar-
skólastjóri í síma 24172 og heima (Benedikt 24661)
eða (Birgir 26747).
Síðuskóli
Laust er til umsóknar 50% starf ritara (eftir hádegi).
Umsækjandi þarf að hafa gott vald á íslenskri tungu
og reynslu af ritvinnslu. Þarf að geta hafið störf sem
fyrst. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi STAK
og Akureyrarbæjar.
Upplýsingar um starfið gefa skólastjóri og aðstoóar-
skólastjóri í síma 22588 og heima (Þorgerður 25891)
eða (Elín 25244).
Tónlistarskólinn á Akureyri
Laust er til umsóknar 50% starf ritara frá 1. september
nk. Vinnutími frá kl. 15-19 frá mánudegi til föstudags,
á starfstíma skólans. Reynsla af skrifstofustörfum og
tölvukunnátta nauósynleg. Launakjör eru samkvæmt
kjarasamningi STAK og Akureyrarbæjar.
Upplýsingar um starfið gefur rekstrarstjóri í síma
21788.
Upplýsingar um kaup og kjör fyrir ofangreind störf gef-
ur starfsmannastjóri í síma 21000.
Umsóknareyðublöð fást í starfsmannadeild Akur-
eyrarbæjar, Geislagötu 9.
Umsóknarfrestur um störfin er til 19. ágúst nk.
Starfsmannastjóri.
11.08.1994.