Dagur - 13.08.1994, Blaðsíða 12
12 - DAGUR - Laugardagur 13. ágúst 1994
FRAMHALPSSAGA____________________
Saga Natans og Skáld-Rósu
49. kafli:
Gísli og Rósa ráðast suður
Báðar þær mæðgur, Rósa
og Sigríður, undu því illa,
að Wulf snerist frá ástum
við Sigríði.
Varð það úr, að þau
réðust öll burt frá Ólafsvík
vorið 1848. Flúðu þau
hjón á náðir velgjörðar-
manns síns, Ásgeirsens.
Fóru þau bæði til Hafnar-
fjarðar um vorið, en Sig-
ríður og Rósant voru um
sumarið í kauþavinnu
nyrðra. Geymsluskemma
var á Flensborgarhlaði.
Hana lét Ásgeirsen laga
svo innan, að í henni mátti
búa, og léði þeim hjónum
hana til íbúðar. Var Gísli á
fiskiskútu um sumarið, en
settist þar að um haustið.
Rósant settist þar einnig
að er hann kom úr kaupa-
vinnunni, en Sigríður sett-
ist að í Reykjavík. Hafði
hún hitt þar fyrir norð-
lenskan mann, er Daníel
hét, Markússon og orðið
honum áhangandi. Þó
kom hún til Hafnarfjarðar
við og við fram að jólum
og dvaldi þá jafnan nokk-
uð með móður sinni. En
eftir jól var hún stöðugt
með Daníel og mun þeirra
enn getið.
Þetta sumar (1848) réð-
ist Ásgeirsen í aö kaupa
Flensborgarverslun og þó
í skuld. Fór hann utan um
sumarið og settist að í
Kaupmannahöfn vetrar-
langt. Vildi hann sæta
vörukaupum er þau feng-
ist best. Þá veiktist hann
og dó um veturinn. Var
verslunin þá seld. Ekkjan
fékk að vera kyrr það ár
og hió næsta. Gísli og
Rósa urðu aó fara um vor-
ið 1849. Fóru þau að
Stóra-Lambhaga í Hraun-
um og voru þar tvö ár í
Þurrabúð. Rósant var með
þeim. Aö tveim árum liðn-
um leituðu þau aftur til
Hafnarfjarðar. Skaut Þórð-
ur bóndi á Óseyri skjóls-
húsi yfir þau og léði þeim
tómt húskot þar í túninu.
Það hét Óseyrarkot. Nú er
það í eyði og heitir þar
Kothóll. Þar bjuggu þau
síðan meðan Rósa lifði.
Þórður á Óseyri var sonur
Gísla Péturssonar, þil-
skipasmiös. Höfðu þeir
langfeðgar búið á Óseyri
hver fram af öðrum, verið
aflamenn af sjó, búhöldar
og smiðir góðir. Kona
Þórðar var Guðlaug
Sveinsdóttir bónda í Súlu-
holti í Flóa, góð kona og
sköruleg, greind, réttorð
og virð vel. Hún var enn á
lífi aldamótaárið 1900 og
með ósljóvguðu minni.
50. kafli
Enn frá
Sigríði
Nú er að segja frá Sigríði:
Hún giftist Daníel, sem áð-
ur er nefndur. Dvöldu þau
um hríð í Reykjavík, en
fóru síðan norður. Daníel
var gáfaður vel, fjörmaður
hinn mesti og gleðimaður,
en þótti gott vín og hafði
litla forsjá. Varð sambúð
þeirra eigi löng. Þau skildu
af fátækt. Síðan tók Sig-
ríður saman vió Björn,
Eggertsson bónda á Kol-
þernumýri, sem fyrr er
nefndur. Var Björn skútu-
formaður og aflaði vel,
gáfaður og skáldmæltur,
mikillátur við vín, en
reyndist Sigríði vel. Bjuggu
þau mörg ár saman, fyrst
á Reykjum í Miðfirði, en
síðan á Skagaströnd. Eigi
máttu þau giftast, því bæði
sátu í óleystum hjóna-
böndum. Sigríður veiktist á
efri árum sínum og hættu
þau búskap. Fór hún til
Jónasar bónda á Tindum á
Ásum og dó þar hjá hon-
um.
UM VÍÐAN VÖLL
Hvar er
myndin tekin?
•nSuiQjy/íg jrusEjpjd ‘uos
-sujofqæus jiSjjg us J3 IpuBfjjs -|0)SJBun>(ip3Jd i J3 ‘uosB[n5(s jnjBjo ‘spuB|
-sj dn>|siq So ipjijBfXg i nf)[jj5[jBpunjr) ; uj>[3) J3 uipuÁjðj -uiopiSioq bjSbj
UBUUSCf Bf>[>[3Cj QB Q3UI UinpæjpuBA I I>[>jO B§3[nj) B§IO JB)[3ASJEQJBfjBf/fg JBnqj
Eindæmi
- einsdæmi
í rituðu máli, ekki síst í dagblöóum, er gjaman ruglað
saman orðunum eindœmi og einsdœmi. Rétt er aó segja að
menn geri eitthvaó upp á sitt eindœmi. Jafnframt er rétt aö
tala um einsdœmi í sögunni.
DACSKRA FJOLMIÐLA
SJÓNVARFIÐ
LAUGARDAGUR
13. ÁGÚST
09.00 Morgunsjónvarp baraanna
Kynnir er Rannveig Jóhannsdóttir.
Kapteinn ísland. 1. þáttur. Teikni-
myndasaga eftir Kjartan Arnórsson
um Fúsa Ánason sem á sér þann
draum að verða ofurhetja. Höfund-
ur les. (Frá 1986) Hvar er Valli? Valli
í landi Astekanna. Þýðandi: Ingólf-
ur B. Kristjánsson. Leikraddir:
Pálmi Gestsson. Múminálfarnir. Mia
hegðar sér undarlega. Þýðandi:
Kristín Mántylá. Leikraddir: Sigrún
Edda Björnsdóttir og Kristján
Franklin Magnús. Anna í Grænu-
hlið. Nýr myndaflokkur um fjörkálf-
inn með rauðu flétturnar sem alltaf
sér björtu hliðarnar á tilverunni.
Þýðandi: Vrr Bertelsdóttir og Ólafur
Guðmundsson.
10.20 Hlé
16.00 Mótorsport
Endursýndur þáttur frá þriðjudegi.
Umsjón: Birgir Þór Bragason.
16.30 Iþróttaboralð
Endursýndur þáttur frá fimmtu-
degi.
17.00 íþióttaþátturlnn
Umsjón: Fjalar Sigurðarson.
18.20 TáknmáUfréttir
18.30 VSlundur
(Widget) Bandarískur teiknimynda-
flokkur. Þýðandi: Ingólfur Kristjáns-
son. Leikraddir: Hilmir Snær Guðna-
son, Vigdís Gunnarsdóttir og Þór-
hallur Gunnarsson.
18.55 Fréttaskeytl
19.00 Gelmstóðln
(Star Trek: Deep Space Nine)
Bandariskur ævintýramyndaflokkur
sem gerist i niðurniddri geimstöð í
útjaðri vetrarbrautarinnar i upphafi
24. aldar. Aðalhlutverk: Avery
Brooks, Rene Auberjonois, Siddig
E1 Fadil, Terry Farrell, Cirroc Loft-
on, Colm Meaney, Armin Shimer-
man og Nana Visitor. Þýðandi: Karl
Jósafatsson.
20.00 Fréttlr
20.25 Veður
20.30 Lottó
20.35 Kóngur i rikl sínu
(The Brittas Empire) Bieskur gam-
anmyndaflokkur. Aðalhlutverk:
Chris Barrie, Philippa Hayward og
Michael Bums. Þýðandi: Gauti
Kristmannsson.
21.05 Lif að hættl bunda
(Mit liv som en hund) Sænsk bíó-
mynd um ungan dreng og þá oft
spaugilegu mynd sem barnshugur-
inn dregur upp af veröldinni. Leik-
stjóri er hinn góðkunni Lasse
Hellström. Þýðandi: Matthias Kristi-
ansen.
22.45 Launráð
(The Hidden Agenda) Bresk
spennumynd sem gerist á Norður-
írlandi á 9. áratugnum. Aðalhlut-
verk: Frances McDormand, Brian
Cox, Brad Dourif og Mai Zetterling.
Leikstjóri: Ken Loach. Þýðandi:
Gunnar Þorsteinsson.
00.35 Útvarpsfréttlr I dagskrár-
lok
SJÓNVARPIÐ
SUNNUDAGUR
14. ÁGÚST
09.00 Morgun8]ónvarp barnanna
Kynnir er Rannveig Jóhannsdóttir.
Perrine Barón finnur seðlaveski.
Þýðandi: Jóhanna Þráinsdóttir.
Leikraddir: Sigrún Waage og Hall-
dór Björnsson. Ungviði. Lilli og Palli
virða fyrir sér afkvæmi nokkurra
dýra og hvítvoðung. Leikraddir: Að-
alsteinn Bergdal og Helga E. Jóns-
dóttir. Nilli Hólmgeirsson.
Gæsirnar búast til langferðar. Þýð-
andi: Jóhanna Þráinsdóttir. Leik-
raddir: Aðalsteinn Bergdal og
Helga E. Jónsdóttir. Maja býfluga.
Villi frýs. Þýðandi: Ingi Karl Jóhann-
esson.
Leikraddir: Gunnar Gunnsteinsson
og Sigrún Edda Björnsdóttir.
10.25 Hlé
17.30 ísland á krossgötum
Endurtekinn þáttur frá miðviku-
degi.
18.20 Táknmálsfréttir
18.30 Okkar á mllli
(Ada badar: Oss karlar emellan)
Sænskur barnaþáttur. Þýðandi:
Edda Kristjánsdóttir. Sögumaður:
Þorsteinn Úlfar Björnsson. (Nord-
vision - Sænska sjónvarpið)
18.40 Jakob
(Jakub) Pólsk mynd um strák sem
hittir flækingskú á förnum vegi og
lendir í vandræðum þegar kýrin
tekur að elta hann. (Evróvision)
18.55 Fréttaskeyti
19.00 Úr ríki náttúrunnar
Oliumengun við Hjaltland (Survival:
Worse Things Can Happen at Sea)
Mynd um strand olíuskipsins Braer
við Hjaltland í janúar 1993 og af-
leiðingar slyssins á lífríkið. Þýðandi
og þulur: Ingi Karl Jóhannesson.
19.30 FólkiðíForsælu
(Evening Shade) Bandarískur fram-
haldsmyndaflokkur í léttum dúr
með Burt Reynolds og Marilu
Henner í aðalhlutverkum. Þýðandi:
Ólafur B. Guðnason.
20.00 Fréttlr og íþróttir
20.35 Veöur
20.45 Klrkjudagur í Aðalvík
Mynd um endurfundi Aðalvíkinga í
sinni gömlu heimabyggð sem nú er
komin í eyði. Gamlir Aðalvíkingar
halda þó skólanum og kirkjunni við
og koma saman á tíu ára fresti, nú
síðast í sumar, og er fylgst með
samfundum þeirra og skemmtun í
þessari mynd. Urasjón: Guðbergur
Davíðsson.
21.20 Égerkölluð Uva
(Kald mig Liva) Danskur framhalds-
myndaflokkur í fjórum þáttum um
lífshlaup dægurlaga- og revíusöng-
konunnar Oliviu Olsen sem betur
var þekkt undir nafninu Liva. Tíðar-
andi og tónlist millistriðsáranna er
áberandi í þáttunum. Þýðandi: Ólöf
Pétursdóttir.
22.35 Frjálsir fangar
(Stalag Luft) Gráglettin bresk sjón-
varpsmynd sem gerist í þýskum
fangabúðum í seinni heimsstyrjöld.
Aðalhlutverk: Stephen Fry, Nichol-
as Lyndhurst og Geoffrey Palmer.
Leikstjóri: Adrian Shergold. Þýð-
andi: Ólafur Bjarni Guðnason.
00.20 Útvarpsfréttir í dagskrár-
lok
SJÓNVARPIÐ
MÁNUDAGUR
15. ÁGÚST
18.15 TáknmáUfréttlr
18.25 Töfraglugglnn
Endursýndur þáttur frá fimmtu-
degi. Umsjón: Anna Hinriksdóttir.
18.55 FréUaskeytl
19.00 Hvuttl
(Woof VI) Breskur myndaflokkur
um dreng sem á það til að breytast
í hund þegar minnst varir, Þýðandi:
Þorsteinn Þórhallsson.
19.25 Undlr Afrikuhbnnl
(African Skies) Myndaflokkur um
háttsetta konu hjá fjölþjóðlegu
stórfyrirtæki sem ílyst til Afriku
ásamt syni sinum. Þar kynnast þau
lífi og menningu innfæddra og
lenda í margvíslegum ævintýrum.
Aðalhlutverk: Robert Mitchum,
Catherine Bach, Simon James og
Raimund Harmstorf. Þýðandi:
Sveinbjörg Sveinbjömsdóttir.
20.00 Fréttir og iþróttlr
20.35 Veður
20.40 Gangur lifslns
(Life Goes On II) Bandarískur
myndaflokkur um daglegt amstur
Thatcher-fjölskyldunnar. Þýðandi:
Ýrr Bertelsdóttir.
21.30 Sækjast sér um líkir
(Birds of a Feather) Breskur gaman-
myndaflokkur um systurnar Sharon
og Tracy. Aðalhlutverk: Pauline Qu-
irke, Linda Robson og Lesley Jos-
eph. Þýðandi: ÓIöí Pétursdóttir.
22.00 Pllsaþytur á Nordlsk For-
um
í þættinum eru dregnar upp svip-
myndir af þvi fjölmarga sem var á
dagskrá á Nordisk Forum í Aabo,
en þangað fjölmenntu islenskar
konur eins og kunnugt er. Rætt er
við þátttakendur og forsvarsmenn
ráðstefnunnar og sýndar svipmynd-
ir frá þingstaðnuni. Umsjónarmaður
er Sigrún Stefánsdóttir.
23.00 Ellefufréttir og dagskrárlok
STÖÐ 2
LAUGARDAGUR
13. ÁGÚST
09:00 Morgunstund
10:00 Dennl dæmalausl
10:30 Baldurbiiálfur
10:55 Jarðarvinir
11:15 Slmml og Samml
11:35 Ey|aklikan
12:00 Skólalíf í Ölpunum
12:55 Gott á grillið
13:25 L]úfar lygar
(Sweet Lies) Rómantísk gaman-
mynd um Peter Nicholl, einkaspæj-
ara tryggingafélags, sem kemur til
Parísar til að veiða svindlarann Bill
Taft í gildru. Bill þykist vera lamað-
ur fyrir neðan mitti og fær stórar
fjárhæðir í bætur. Aðalhlutverk: Tre-
at Williams, Norbert Weisser, Jo-
anne Pacula og Laura Manszky.
Leikstjóri: Nathalie Delon. 1986.
15:00 Straumar vorsins
(Torrents of Spring) Heillandi og
rómantísk kvikmynd um Dimitri
Sanin, rússneskan óðalseiganda
sem fellur flatur fyrir eiginkonu vin-
ar síns. Heitar ástríður láta ekki að
sér hæða og Dimitri hefur skapað
sér óvildarmenn með ístöðuleysi
sínu. Aðalhlutverk: Timothy Hut-
ton, Nastassia Kinski, Valeria Gol-
ino og William Forsythe. Leikstjóri:
Jerzy Skolimowski. 1990.
16:40 Skellurinn
(Hit Man) Hollywoodleikstjórinn
Roger Woods kennir í brjósti um
fórnarlömb fjárglæframannsins
Gordons Padway og ákveður að
beita brellum kvikmyndanna til að
klekkja á honum og kenna honum
eftirminnilega lexíu. Aðalhlutverk:
Dennis Boutsikaris og Gail O'Gra-
dy. Leikstjóri: Gary Nelson.
17:55 Evrópskl vinsældalistinn
18:45 S]ónvarpsmarkaðurinn
19:1919:19
20:00 Falin myndavél
(Candid Camera)
20:25 Mæðgur
(Room for Two)
20:55 Lifvörðurinn
(The Bodyguard) Tvær af skærustu
stjörnum skemmtanaiðnaðarins,
leikarinn Kevin Costner og söng-
konan Whitney Houston, fara með
aðalhlutverkin í þessari hrífandi
spennumynd og útkoman er hreint
frábær. Fyrrverandi leyniþjónustu-
maður er ráðinn lífvörður ríkrar
stórstjörnu eftir að hún hefur ítrek-
að fengið alvarlegar morðhótanir.
Dramatísk og áhrifarík spennu-
mynd. 1992.
23:00 Manndráp
(Homicide) Rannsóknarlögreglu-
maður í Chicago er við það að kló-
festa hættulegan dópsala þegar
honum er falið að rannsaka morð á
roskinni gyðingakonu. í fyrstu er
hann mjög ósáttur við þessa þróun
mála en morðrannsóknin leiðir ým-
islegt skuggalegt í ljós sem kennir
lögreglumanninum sitthvað um
villimennskuna sem stórborgin elur
af sér. Með aðalhlutverk fara Joe
Mantegna og William H. Macy.
1991. Stranglega bönnuð börn-
um.
00:40 Rauðu skómir
(The Red Shoe Diaries) Erótískur
stuttmyndaflokkur. Bannaður
bömum.
01:10 Bláa eðlan
(The Blue Iguana) Frumleg og fynd-
in mynd um hálfmislukkaðan
hausaveiðara sem er á hælunum á
skrautlegum skúrkum og eltir þá til
Mexikó. Sunnan landamæranna
bíða hans meiri ævintýri en nokk-
urn hefði órað fyrir. Ein fyrsta
myndin sem Sigurjón Sighvatsson
og félagar framleiddu. 1988.
Stranglega bönnuð börnum.
02:40 Úlfahúsið
(Legend of Wolf Lodge) Sögur um
Úlfaskálann hafa gengið manna á
milli í meira en tvær aldir. Sagt er
að þar sé á sveimi máttugur andi
sem gangi berserksgang ef hann
skynjar einhverja fólsku í námunda
við sig. Fyrir tuttugu árum gerðust
hér hræðilegir atburðir og sagan
endurtekur sig núna. Stranglega
bönnuð börnum.
04:15 Dagskrárlok
STÖÐ2
SUNNUDAGUR
14. ÁGÚST
09:00 Bangsar og bananar
09:05 Dýrasögur
09:15 Tannmýslurnar
09:20 Kisa iitia
09:45 Þúsund og ein nótt
10:10 Sesam opnist þú
10:40 Ómar
11:00 Aftur til framtíðar
11:30 Krakkarnir við flóann.
Lokaþáttur
12:00 íþróttir á sunnudegl - lógó
13:00 Með öilum mjalla
(Perfectly Normal) Skemmtileg og
manneskjuleg gamanmynd um ís-
knattleiksmanninn Renzo og mat-
reiðslumeistarann Turner sem
ákveða að nota arf sem Renzo
áskotnast til að setja á fót ítalskan
veitingastað þar sem þjónarnir
syngja aríur fyrir gesti og
gangandi. Aðalhlutverk: Robbie
Coltrane, Michael Riley og Deborah
Duchene. Leikstjóri: Yves Simon-
eau. 1990. Lokasýning.
14:45 örlagasaga
(Fine Things) Átakanleg mynd um
Bernie Fine sem giftist Liz, fagurri
fráskilinni konu sem á unga dóttur,
Jane. Skömmu eftir að þau hafa
eignast saman son greinist Liz með
krabbamein. Aðalhlutverk: Cloris
Leachman, Judith Haag og Tracy
Pollan. Lokasýning.
17:05 Banvæn fegurð
(Lethal Charm) Aðalsöguhetja
myndarinnar er fréttakonan Tess
O'Brien, sem telur sig sjálfkjörinn
arftaka fréttastjórans, sem er við
það að láta af störfum. Snurða
hleypur á þráðinn þegar aðstoðar-
stúlka hennar fer að keppa við
hana um stöðuna og beitir við það
öllum tiltækum ráðum. Aðalhlut-
verk: Barbara Eden, Heather
Locklear og Stuart Wilson. Leik-
stjóri: Richard Michaels. Lokasýn-
ing.
18:45 Sjónvarpsmarkaðurinn
19:19 19:19
20:00 H]á Jack
(Jack's Place)
20:55 Ástareldur
(Hearts on Fire) Lesley Ann Warr-
en, Tom Skerritt og Marg Helgen-
berger fara með aðalhlutverkin í
þessari vönduðu mynd um ástarþrí-
hyrninginn sígilda. Jarrett ræður
Mickey Woods til að annast eigin-
konu sína sem þjáist af MS-sjúk-
dóminum. Konunum verður vel til
vina og Mickey kemur með ferskan
andblæ inn á heimilið. En syndin er
lúmsk og Jarrett dregst ósjálfrátt
að ungu konunni...
22:25 60 mínútur
23:15 Hið fullkomna morð
(Murder 101) Þegar kollegi ensku-
prófessorsins Charles Lattimore og
. einn nemenda hans eru myrtir er
prófessornum kennt um. Hann
verður að koma upp um morðingj-
ann og hreinsa mannorð sitt. Aðal-
hlutverk: Pierce Brosnan, Dey Yo-
ung og Antoni Cerone. Leikstjóri:
Bill Condon. 1991. Stranglega
bönnuð börnum. Lokasýning.
00:45 Dagskrárlok
STÖÐ2
MÁNUDAGUR
15. ÁGÚST
17:05 Nágrannar
17:30 Spékoppar
17:50 Andlnn i flöskunnl
18:15 Tánlngarnlr i Hædagarðl
18:45 S|ónvarpsmarkaðurinn
19:1919:19
20:15 Neyðarlínan
(Rescue 911)
21:05 Gott á grilllð
21:40 Selnfeld
22:05 Hver var Lee Harvey Osw-
ald?
(Who Was Lee Harvey Oswald?)
Seinni hluti bandariskrar heimildar-
myndar um morðið á John F.
Kennedy Bandaríkjaforseta og
morðingja hans.
23:00 Framapot
(Lip Service) Ungur, myndarlegur
fréttaþulur á ekki sjö dagana sæla
þegar hann fær það verkefni að
hressa upp á morgunfréttaþátt í
sjónvarpi og þulinn sem var þar fyr-
ir. Aðalhlutverk: Griffin Dunne og
Paul Dooley. Leikstjóri: W.H, Macy.
1990.
00:35 Dagskrárlok