Dagur


Dagur - 08.12.1994, Qupperneq 14

Dagur - 08.12.1994, Qupperneq 14
14 - DAGUR - Fimmtudagur 8. desember 1994 NVJAR BÆKUR Islenskt já takk. Atvinna til frambúðar Starfsmannafélag Akureyrarbæjar Leikfélag Dalvíkur sýnir söngleikinn Land míns föður eftir Kjartan Ragnarsson Tónlist eftir Atla Heimi Sveinsson Leikstjóri: Kolbrún Halldórsdóttir Tónlistarstjóri: Gerrit Schuil 14. sýning fimmtudag 8. desember kl. 21 15. sýning sunnudag 11. desember kl. 15 Sýningar eru í Ungó og hefjast kl. 21 Miðasala kl. 17-19 sýningardaga í Lambhaga, sími 61900, og í Ungó eftir kl. 19 fram ab sýningu Tekiö við pöntunum í símsvara í sama númeri allan sólarhringinn Efstu dagar Mál og menning hefur sent frá sér skáldsöguna Efstu dagar eftir Pétur Gunnarsson. í henni lýsir höfundur reykvískri fjölskyldu og fylgir henni um hálfra, aldar skeið. Brugðið er upp svipmyndum úr ættinni, enda tími 8mm kvikmyndavélanna genginn í garð. Aðalpersóna sögunnar er bama- stjarnan Símon Flóki Nikulásarson sem hleypir heimdraganum og kynnist Kristi sínum óvart á markaðstorgi há- skólaanddyrisins á jjeim tíma þegar ungir menn vildu hvað mest líkjast honum í útliti. I Reykjavík bíður prest- skapur í úthverfasöfnuði. Eiginkonan, Vera, deilir lífinu með honum en tekur þó myndlistina fram yfir hlutverk prestmaddömunnar. Sagan sver sig í ætt við fyrri verk höfundar þó að viðfangsefnð sé annað og alvarlegra en fyrr. Frásagnargleði, snjallar mannlýsingar, leikur að orð- um, fágun í stíl þar sem hlýja og kímni eru í fyrirrúmi. Bókin er 234 bls. og unnin í Odda hf. en kápu hannaði Margrét E. Lax- ness. Verð er 3.380 kr. Leikhúshjón fyrir opnum tjöldum Mál og menning hefur sent frá sér bókina Brynja og Erlingur - fyrir opn- um tjöldum. Bók þessi er skrifuð af lcikhúshjónunum Brynju Benedikts- dóttur og Erlingi Gíslasyni í félagi við Ingunni Þóru Magnúsdóttur. Brynja og Erlingur hafa sett svip á íslenskt leik- húslíf um áratugaskeið, sem leikarar og leikstjórar en hafa ekki síður átt sér viðburðarríkt líf utan leikhússins. Meðal þess sem sagt er frá í bókinni er Inúk ævintýrið, leikfélagið Gríma, sigrar og ósigrar í atvinnuleikhúsum sem í einkalífi, uppfærslan á Hárinu, kynni af Dario Fo og Vaclav Havel og fjölmörgum íslenskum samtíðarmönn- um, vinnu að tjaldabaki og sameigin- legum verkefnum. Þeim hjónum er gefið að segja skemmtilega frá og fyrir vikið er bókin bæði fróðleg og læsileg, frásögn umbúðalaus og lífleg auk þess sem bókin er prýdd fjölda ljósmynda úr ævi og starfi þeirra hjóna. Bókin er 287 bls. og unnin í Odda hf. en kápu hannaði Sigurjón Jóhanns- son. Verð hennar er 3.480 kr. Fólk og fírnindi - bók eftir Ómar Ragnarsson Utgáfufyrirtækið Fróði hf. hefur sent frá sér bókina Fólk og firnindi eftir Omar Ragnarsson. Undirtitill bókar- innar er Stiklað á Skaftinu. I bókinni býður Omar Ragnarsson, fréttamaður, lesendum með sér í óvcnjulcgt ferðalag þar sem víða er komió við utan alfararleiðar og heilsað upp á fólk sem á það sameiginlegt að binda ekki bagga sína nákvæmlega sömu hnútum og samferðamennirnir. Ferðalag Omars hefst í Haga í Skorradal þar sem hann hittir fyrir liinn síunga öldung, Þórð í Haga. Síð- an er haldið til systkinanna í Knarrar- nesi og áfram flýgur Omar á Skaftinu vestur um firði og kemur við í Arnar- firði þar sem hann heimsækir Sigríöi Sigurðardóttur og rifjar upp kynni sín af þeim fræga einbúa Gísla á Uppsöl- FYRl RTÆKI SKRIFSTOFUHUSNÆÐI TIL LEIGU Til leigu eru skrifstofuherbergi í skrifstofuálmu á Gleráreyrum Húsnæðið er allt mjög glæsilegt og sérhannað fyrir skrifstofustarfsemi. Innréttingar eru í mjög góðu ástandi, aðeins fimm ára gamlar. Hægt er að leígja einstaka skrifstofur eða fleiri saman. Margar stærðir í boði. HAGSTÆÐ LEIGA UPPLÝSINGAR í SÍMA 23225 Á DAGINN um og dregur fram í dagsljósið ýmis- legt sem skýrir óvenjulega hegðun og lífsmynstur hans. I Hornvík spjallar Omar við Mórur og flugfeðga og kem- ur síðan við á Hornbjargsvita þar sem Oli kommi er samur við sig og trúr Stalín, hvað sem öllum hreinsunum og hruni kommúnismans líður. A Guð- mundarstöðum í Vopnafirði virðist sem tíminn hafi numið staðar og á Kvískerjum í Öræfum hittir Ómar fyrir hina landsþekktu Kvískerjabræður sem voru og eru vísindamenn í fremstu röö þótt þeir hafi ekki ekki bréf upp á það. Fjölmargar Ijósmyndir eru í bók- inni. Fólk og firnindi er 248 bls. Verö kr. 3390. Til heljar og heim Mál og menning hefur sent frá sér bókina Til heljar og heim eftir Guð- rúnu Finnbogadóttur. Þetta er frásögn af ferðum höfundar til Rússlands og fleiri hluta Sovétríkjanna fyrrverandi á árunum 1990 til 1993. Hún dregur upp svipmyndir af hlutskipti manna, landi og þjóð, annars vegar með því að segja frá og gefa rithöfundum og fleira fólki af ýmsu tagi orðið og hins vegar með sérstæðum lýsingum á reynslu sinni af lævi blöndnu andrúmslofti og afar margbreytilegu mannlífi. Frásagnir af hversdagslegu lífi fólks eru látnar kall- ast á við fréttir í fjölmiðlum og úr verður mögnuð og persónuleg lýsing á gífurlegum umbrotstímum. Fjöldi ljós- mynda prýða bókina. Bókin er 224 bls., unnin í Odda hf. Kápu hannaði Margrét E. Laxness. Verð er kr. 3.480. Heimsmeistara- keppnin í knattspyrnu - eftir Sigmund Ó. Steinarsson Fróði hf. hefur sent frá sér bókina HM ’94 eftir Sigmund Ó. Steinarsson blaðamann. Bókin fjallar um heimsmeistara- keppnina í knattspyrnu en lokakeppni hennar fór fram með miklum glæsi- brag í Bandaríkjunum sl. sumar. Sigmundur fjallar ítarlega um úr- slitakeppnina og segir frá þeim köpp- um sem þar koma mest við sögu og einstökum atburðum sem settu svip sinn á keppnina, auk þess sem hann rekur gang leikjanna og úrslit þeirra. Hann fjallar einnig um undankeppnina og sérstaklega um þátttöku Islendinga í henni en litlu munaði að íslendingar væru í hópi þeirra þjóða sem tóku þátt í úrslitakeppninni. Landsliðsþjálfari Is- lendinga, Asgeir Elíasson, segir einnig frá því hvernig einstaka leikir og at- burðarás keppninnar horfði við hon- um. MINNINO Bókin er ríkulega myndskreytt. HM ’94 er 112 bls. í stóru broti. Verðkr. 1980. Birgir og Ásdís Æskan hefur gefið ut bókina Birgi og Ásdísi eftir Eðvarð Ingólfsson. Birgir og Ásdís hafa verið kærustu- par í tvö ár. Óvænt býðst þeim báóum sumarstarf og íbúð til afnota í litlu þorpi. Þau eru mjög ástfangin og sam- búó þeirra gengur vel - þar til gömul skólaást fer að rugla Birgi í ríminu. Þetta er spennandi saga um ást- fangna unglinga, fyrstu sambúðina og mörg þau vandamál sem henni geta fylgt. Þegar á reynir kemur fyrst í Ijós hve sterkt sambandið er. Eóvarð Ingólfsson var rúmlega tví- tugur þegar hann samdi söguna. Hann hefur ritað átta unglingabækur og hafa margar þeirra orðið metsölubækur. Skáldsaga hans, Meiriháttar stefnumót, hlaut verðlaun skólamálaráðs Reykja- víkur sem besta frumsamda barna- og unglingabókin 1988. Birgir og Ásdís kom fyrst út 1982 og seldist fljótt upp. Hún er sjálfstætt framhald bókarinnar Gegnum bernsku- múrinn. Bókin er 159 blaðsíður í Demi-broti. Anna Þorkelsdóttir teiknaði kápu- mynd. Ofsetþjónustan hf. braut bókina um og myndaói á plötur. Prentsmiðjan Oddi prentaði og batt. Verð kr. 1690. Mannakynni Æskan hefur gefiö út bókina „Manna- kynni - frá öðru fólki og athöfnum þess“ eftir Vilhjálm Hjálmarsson fyrrv. ráðherra. Vilhjálmur hefur kynnst ótal mörgu fólki - „enda hefur það orðið hlutskipti mitt löngum að vera ekki einn á ferð,“ eins og hann getur um í formála. Hann segir í bókinni frá fjölda manns sem liann hefur „átt samleið með, lengur eða skemur, frá barnæsku til efri ára.“ Við sögu koma til að mynda stjórn- málamenn og starfsfólk Alþingis, bændur, bifreióastjórar og biskupar, húsmæður, kennarar, lögreglumenn og sjómenn, útvarpsmenn og oddvitar, fé- lagar í skóla, framreiðslustúlkur og forstjórar - 540 konur og karlar. Frásögn Vilhjálms er sem áður hlý- leg og hugnæm og glettnin er aldrei langt undan. Hún bregður Ijósi á menn og málefni á öldinni, fróóleg og grein- argóð. Mannakynni er 232 bls. Veró kr. 2980. Skjaldborg: Ný frá Sidney Sheldon Sidney Sheldon er upp á sitt allra besta í bókinni Ekkert varir að eilífu, sem bókaútgáfan Skjaldborg hefur gefiö út. Lesandinn er þrifinn í ofsafenginn heim spítala í San Francisco þar sem þrjár konur í læknastétt eru miðpunkt- ur í hinum magnþrungna örlagadansi. Paige Taylor sór þess eið að hún hefði framið líknarmorð en þegar hún erfði milljón dollara frá sjúklingum taldi saksóknari það morð. Kat Hunter ætlaði aldrei aó láta karlmann koma nærri sér, en svo lét hún leiðast út í að taka þátt í veömáli og það varð hennar bani. Honey Taft hefur áhuga á starfi sínu en hún vissi aö hún þyrfti meira en gáfurnar sem Guð hafði gefió henni til þess að komast áfram. Þýðandi bókarinnar er Hersteinn Pálsson og er hún 300 bls að stærð. Verð hennar er 2.480 kr. Lesum meira saman Námsgagnastofnun hefur gefið út bók- ina „Lesum meira sarnan". Þetta er les- bók og hefur Iðunn Steinsdóttir, rithöf- undur, safnað saman lestextum í bók- ina og fléttað þá saman í eina heild. Bókin fjallar um Matta sem dvelur saumarlangt hjá frænku sinni á Tanga. Þar kynnist hann Beggu og Þóru. Sam- an leika þau leikrit, fara í ýmsa leiki og kynnasl þjóðsögum og ævintýrum. Bókin er einkum ætluð til samlestr- ar í bekk og hentar börnum sem hafa náð valdi á lestri. Áður hefur komið út bókin „Lesum sarnan” sem byggð er upp á sama hátt en ætluð yngri börn- um. „Lesum meira saman“ er ríkulcga myndskreytt. Flestar myndirnar eru eftir Hlín Gunnarsdóttur en auk hennar eru myndir eftir Onnu Cynthiu Lcplar og Guómund Thorsteinsson (Mugg), einnig eru barnateikningar í bókinni. Bókinni fylgir vinnubók eftir Ragn- heiði Gestsdóttur og Ragnheiði Her- mannsdóttur. I henni eru fjölbreytileg verkefni en megináherslan er lögð á skapandi vinnu nemenda í tengslum við texta lestrarbókarinnar. „Lesum meira saman“ er 96 bls. en vinnubókin er 48 bls. Kristin fræði - Brauð lífsins Námsgagnastofnun hefur gefið út bók- ina Kristin fræði - Brauö lífsins eftir Iðunni Steinsdóttur, kennara og rithöf- und, og Sigurð Pálsson, kennara og guðfræðing. Þessi bók er sú fyrsta sem út kemur í nýjum íslenskum námsefn- isflokki í kristnum fræðum fyrir yngsta stig og miðstig grunnskóla en undan- farin ár hefur einkum verið notaöur þýddur norskur bókaflokkur. Bókin er einkum ætluð 10 ára börnum. Kristin fræði - Brauð lífsins er 108 bls. Kennsluleiðbeiningar eru 56 bls. Kristinn S. Egilson Fæddur 12. október 1974 - Dáinn 27. nóvember 1994 Hann er farinn. Eitt andartak og Tinni er ekki lengur á meðal okk- ar. Osjálfrátt hvarflar hugurinn aftur til þess tíma þegar við vorum öll saman í Bamaskóla Akureyrar. Lífið var sannarlega gott í þá daga og okkur fannst að svona hlyti það að verða um alla framtíð. Mitt á meðal okkar var svo Tinni. Þessi hógværi en samt ofurlítið glettni drengur sem vildi öllum vel. Allt- af hreinn og beinn. Ekkert fals, engin læti, bara hann sjálfur. Einn sólbjartan maímorgun fyrir sjö ár- um héldum við svo hvert sína leið á vit unglingsáranna og skildum að allt er breytingum undirorpið. Það kemur sú stund í lífi okkar allra að við verðum sem lítið sandkorn á svartri strönd í hafróti lífsins. Ef til vill berumst við burt út á óravíddir hafsins, ef til vill ekki. Nú er Tinni farinn en minn- ing hans lifir á meðal okkar. „Hún varðar okkar leið á lífsins göngu- för til lokadags er þrýtur fjör.“ Vinum og ættingjum sendum við innilegar samúðarkveðjur. Bekkjarsystkini úr Barnaskóia Akureyrar. Hví var þcssi beður búinn, barnið kœra, þér svo skjótt? Svar afhimni heyrir trúin hljóma gegnum dauðans nótt. Það er kveðja: „Kom til mín!“ Kristur tók þig heim til sín. Þú ert blessuð hans í höndum, hólpin sál með Ijóssins öndum. (B. Halld.) Elsku Tinni minn! Við trúum því aö sá sem öllu ræður hafi ætlað þér annað og meira hlutverk hjá sér á æðra til- verustigi. Við þökkum fyrir aó hafa fengið að þekkja þig, gæsku þína og gleði. Minningin um þig mun lifa meó okkur um ókomin ár. Elsku Solla og Sveinbjörn. Góður Guð styrki ykkur, börn ykkar og aóra ástvini Tinna í þeirri miklu sorg sem þið nú þurf- ið aó ganga í gegnum. „Skoðaðu hug þinn vel, þegar þú ert glaður, og þú munt sjá að aðeins það sem valdið hefur hryggð þinni gerði þig glaðan, þegar þú ert sorgmœddur, skoð- aðu þá aftur huga þinn og þú munt sjá að þú grcetur vegna þcss sem var gleði þín. “ (Spámaðurinn - Kahlil Gibran). Steinþór, Elfa og Úlfar.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.