Dagur - 30.12.1994, Qupperneq 2
2 - DAGUR - Föstudagur 30. desember 1994
FRETTIR
Opnunartími verslana
KEA eftir áramót
Mánudaginn 2. janúar
Hrísalundur: Opið frá kl. 18.00-19.30.
(Lokað í kjallara)
Nettó: Lokað
Sunnuhlfð: Lokað v/breytinga í nokkra daga.
Byggðavegur 98: Opið frá 16.00-22.00.
Þriðjudaginn 3. janúar
Hrísalundur kjallari: Opið 13.00-19.30.
as:
Alþingi
íslendinga
Frá stjórnarskrárnefnd
Alþingis
Stjórnarskrámefnd Alþingis gefur þeim, sem þess
óska, kost á að koma með skriflegar athugasemdir við
frumvarp til stjórnskipunarlaga um breytingu á stjórnar-
skrá lýðveldisins íslands, nr. 33/1944, með síðari
breytingum, 297. mál. Meginefni frumvarpsins er tillög-
ur til breytinga á VII. kafla stjórnarskrárinnar sem m.a.
hefur að geyma mannréttindaákvæði hennar. Frum-
varpiö liggur frammi í skjalaafgreiðslu Alþingis að
Skólabrú 2, Reykjavík.
Óskað er eftir að athugasemdirnar berist skrifstofu
Alþingis, nefndadeild, Þórshamri við Templarasund,
150 Reykjavík, eigi síðar en 20. janúar 1995.
0^ Menntasmiðja
5 kvenna
........ ' áAkureyri
Nám sem auðgar líf þitt
Skóli fyrir konur sem eru án launaðrar atvinnu.
Námið er í tveimur áföngum.
Fyrri áfangi hefst 25. jan. og lýkur 17. mars og sá seinni
hefst 27. mars og lýkur 26. maí nk.
Kennt verður á virkum dögum frá kl. 9.00-15.00.
Hugmyndafræði Menntasmiðjunnar byggir á reynslu frá lýð-
háskólum og kvennadagháskólum á Norðurlöndum og nám-
skeiðum sem þróuó hafa verið fyrir konur hér á landi.
Námsþættir verða tengdir saman í eina heild og reynt að
koma til móts við þarfir hverrar og einnar konu annars vegar
og hópsins hins vegar. Mikil áhersla verður lögð á þjálfun
samskipta og skapandi starf. Einnig verður boöið upp á ráð-
gjöf.
Gert er ráð fyrir eftirtöldum námsþáttum í náminu:
Hagnýtum fræðum s.s. íslensku, erlendum tungumálum,
bókhaldi, tölvufræði o. fl. Sjálfsstyrkingu og markmiðs-
setningu, samfélagsfræðum, líkamsrækt, listsköpun og
umhverfisvernd.
Hámarksfjöldi nemenda er 20 konur.
Námið er konum að kostnaðarlausu og konur sem hafa at-
vinnuleysisbætur halda bótum sínum á meðan á náminu
stendur.
Nánari upplýsingar gefa starfskonur Menntasmiðjunnar í
síma 27255 kl. 9.00-12.00 virka daga.
Umsóknarfrestur er til 13. janúar.
Umsóknum skal skila á sérstökum eyðublöðum sem liggja
frammi hjá Vinnumiðlunarskrifstofunni Gránufélagsgötu 4 og
hjá Menntasmiðjunni Hafnarstræti 95, 4. hæð.
Vinsamlegast sendið umsóknir til:
Menntasmiðju kvenna á Akureyri, pósthólf 85, 602 Akureyri.
Kynning veröur á starfsemi Menntasmiðjunnar 5.
janúar nk. kl. 17.00 í húsnæði Menntasmiöjunnar
að Hafnarstræti 95, 4. hæð.
Þær konur sem hug hafa á að sækja um skólavist
eru hvattar til að mæta.
Við undirskrift sorpflutningasamnings f.v.: Gunnar Örn Harðarson, rckstrarstjóri Gámaþjónustunnar hf., Jónas
Vigfússon svcitarstjóri í Hríscy, Kristján Snorrason oddviti Arskógshrcpps, Þorstcinn K. Björnsson tæknifræðingur
Ólafsfjarðarbæjar, Jörundur Þorgeirsson rekstrarstjóri Gámaþjónustu Norðurlands hf., Sveinbjörn Steingrímsson
bæjartæknifræðingur á Dalvík og Benóný Óiafsson framkvæmdastjóri Gámaþjónustunnar hf. Mynd:Robyn
Fjögur sveitarfélög viö utanverðan Eyjafjörð gera samning
um sorpflutninga til ársins 1999:
Sorpsamlag Eyjafjarðar mun
bjoða út urðun a Glerárdal
Fulltrúar Hríseyjarhrepps, Ár-
skógshrepps, Dalvíkur og Olafs-
fjarðar skrifuðu í gær undir
samninga við Gámaþjónustu
Norðurlands hf. um sorpflutn-
inga til ársins 1999. Árið 1992
stóðu þessi sveitarfélög að Hrís-
eyjarhreppi undanskildum en að
Svarfaðardalshreppi meðtöldum
að útboði og var þá gengið til
samninga við Gámaþjónustu
Norðurlands hf.
Sorpið verður flutt upp á Gler-
árdal eins og hingað til en frá 1.
janúar nk. tekur Sorpsanilag Eyja-
tjaróar við urðun á Glerárdal af
Ákurcyrarbæ. Aðild að Sorpsam-
laginu eiga öll sveitarfélög vió
Eyjafjörð frá Ólafsfirði að Grýtu-
bakkahreppi að Hálshreppi meó-
töldum. I janúarmánuói mun
Sorpsamlag Eyjatjarðar bjóða urð-
unina á Gierárdal út og er stefnt
að því aó verktaki muni taka við
verkinu um mánaðarmótin janú-
ar/febrúar.
Kostnaóur sveitarfélaganna viö
uröun var á árinu 1994 mjög mis-
jafn, t.d. kr. 1.200.000 hjá Dalvík-
urbæ en 900 þúsund hjá Ólafs-
fjarðarbæ. Reiknað er með aó urð-
un fari fram á Glerárdal næstu 5
til 10 árin en þegar er hafin leit að
nýjum urðunarstað á vegum
nefndar sem til þess hefur verið
kjörin. Þaó sorpmagn sem farió
hefur frá ofangreindum sveitarfé-
lögum til uróunar á Glerárdal á
þessu ári er um 100 þúsund rúm-
metrar á ári en garóaúrgangur og
timbur er ekki flutt til Akureyrar
heldur er fargað í sveitarfélögun-
um. GG
Sjö togarar á veiðum um jólin:
Sjómannasamtökin vilja
tengja inniveru um jól
og áramót kjarasamningum
Sjómannasamtökin hafa lagt
áherslu á það í undanfarandi
kjarasamningum að togarar,
bæði ísftsks- og frystitogarar,
séu samfellt í landi frá 20. des-
ember til 3. janúar líkt og er með
loðnu- og rækjuskip sem ísa afl-
ann um borð. Það eru þó
eingöngu togarar sem eru að
fiska í sölutúr erlendis sem mega
vera úti um hátíðarnar.
Konráð Alfreósson, formaður
Sjómannnafélags Eyjafjarðar og
Leiðrétting
Ranglega var skýrt frá því í
DEGI í gær að Kirkjusandur
hf., eignarhaldsfélag Lands-
bankans hefði keypt togarann
Stokksnes eftir gjaldþrot Borg-
eyjar hf. á Hornafirði.
Togarinn var seldur Kirkju-
sandi hf. í nauðasamningum fyrir-
tækisins, síóan leigður Samhcrja
hf. og að lokum seldur Stokksnesi
hf. scm Samherji hf. á hlut í ásamt
þremur öðrum eyfirskum fyrir-
tækjum. Reynt var að halda togar-
anum heima í héraði, en það tókst
ekki. GG
varaformaður Sjómannasambands
Islands, segir aö það megi nokk-
urri furðu sæta í minnkandi kvóta
að útgerðir haldi skipum sínum úti
um jól og áramót. Kjarasamningar
sjómanna sem geróir voru í haust
voru felldir og eru því lausir.
Sambandsstjórn Sjómannasam-
bandsins hefur fariö þess á leit við
aöildarféiögin aó þau afli sér verk-
fallsheimildar og legðu fram nýja
kröfugerð, en meginhluti félag-
anna hcldur aðalfund nú milli jóla
og nýárs. Formannafundur verður
haldinn 10. til 15. janúar nk. og
þar verður mörkuð lína um fram-
hald kjarasamningaviðræðna.
Verkfall í fiskiskipaflotanum
kann hugsanlega að bresta á um
rniðjan febrúarmánuð en það þarf
að boða meó 21 dags fyrirvara.
Um jólin voru sjö íslenskir tog-
arar á veiðum hér við land. Þaó
voru allir togarar Skagfiróings hf.,
Drangey SK-1 sem selur í Hull 9.
janúar; Hegranes SK-2 sem selur í
Bremerhaven 11. janúar; Skafti
SK-3 sem selur í Hull 4. janúar og
Skagfirðingur SK-4 scm selur í
Bremerhaven 9. janúar. Einnig
Grandatogarinn Engey RE-1 sem
selur í Bremerhaven 2. janúar;
Breki VE-61, eign Vinnslustöðv-
arinnar hf. í Vestmannaeyjum,
sem selur í Bremerhaven 5. janúar
og Sveinn Jónsson KE-9, eign
Kefivíkings hf. í Sandgerði, sem
selur 4. janúar nk. í Bremerhaven.
Aðfaranótt þriójudags og þann
dag héldu svo 80 skip á veiðar af
öllu landinu, þó sýnu fæst af Vest-
fjörðum, en þau verða öll inni fyr-
ir hádegi á gamlársdag. GG
Dagur kemur næst út þriðju-
daginn 3. janúar. Auglýsing-
ar í það blað þurfa að berast
eigi síðar en kl. 11 mánudag-
inn 2. janúar.
Frá og með áramótum
hækkar mánaðaráskrift að
Degi um 88 krónur, úr 1228
krónum í 1316 krónur. Meó
14% virðisaukaskatti verður
mánaðaráskriftin því 1500
krónur. Lausasöluveró blaðs-
ins verður óbreytt, 125 krónur.