Dagur - 30.12.1994, Blaðsíða 18
18 - DAGUR - Föstudagur 30. desember 1994
Hagyrðingar gera upp árið 1994
Að þessu sinni er bryddað upp á þeirri nýbreytni að fá kunna hagyrðinga til að gera
upp árið í vísum. Leitað var til nokkurra valinkunnra hagyrðinga á Norðurlandi og
reyndar víðar og þeir fengnir til að gefa lesendum DAGS sýnishorn af því sem orðið
hefur til hjá þeim á árinu af ýmsu tilefni. Var það skilyrði eitt sett að vísurnar væru í
léttum tón. Þeir sem leggja til vísur að þessu sinni eru Rúnar Kristjánsson á Skaga-
strönd, Sigurður Hansen á Kringlumýri í Skagafirði, Pétur Pétursson, Hjálmar
Freysteinsson, Björn Þórleifsson, Stefán Vilhjálmsson og Gestur Ólafsson, allir frá
Akureyri, Friðrik Steingrímsson í Mývatnssveit og Hákon Aðalsteinsson, sem býr nú
austur á Héraði. Einnig slæðast með vísur frá fleirum. Eru öllum höfundum færðar
sérstakar þakkir. HA
Skóladeilur
Á sl. hausti stóðu Mývetningar í haró-
vítugum deilum sín á milli, sem að
nafninu til voru sagðar snúast um
skólamál. Friðrik Steingrímsson í Mý-
vatnssveit orti:
Fráleitt er égfái séð
að friðardyrnar opni.
Þeir sem blákalt berjast með
börnin sín að vopni.
Sú spuming hefur vaknað hvort
Mývetningar geti hugsanlega samein-
ast um eitthvert málefni. Svar Friðriks
var á þessa leið:
í þeim málum ekkertsé.
Allt er blandað hita.
En ef að þetta skyldi ske
skal ég láta vita.
Framboð Jóhönnu
Sigurðardóttur
Guómundur J. lét þess getið að Svan-
fríður Jónasdóttir væri á leiðinni yfir
til Jóhönnu, enda hefði Olafur Ragnar
selt hana á fæti um áriö þegar hún féll
í varaformannskosningu. Pétur Péturs-
son sá þetta svona:
Þverra tekur komma kœti,
krenkir Ólafgjörðin sú:
Svanfríði hann seldi áfœti,
seyðið afþví lepur nú.
Gestur Olafsson orti:
Þekkirðu Þjóðvaka
það er ný blóðtaka.
Engann má sjóð saka
svona er góð staka.
Margir hafa verið bendlaðir við
flokk Jóhönnu, enda orti Friðrik
Steingrímsson:
Sumir eru á sœti nískir,
sjaldan gott af slíku hlýst.
Þvífýlupokar pólitískir
pláss hjá Jóku eiga víst.
Ólafur Ragnar Grímsson lét hafa
það eftir sér, varðandi mikið fylgi vió
Jóhönnu Sigurðardóttur, að þetta væri
einhver veira sem gengi yfir. Jafn-
framt aó Jóhanna hefði dregió sig á
asnaeyrunum. Þá orti Hákon Aðal-
steinsson:
Flokkur einn með vondum veirum
vekur drauma tálvonar.
Dregur fólk á asnaeyrum
Ólafs Ragnars Grímssonar.
Á skjánum var Árnil
svo asskoti beinn
í afglapa réttlceting sinni.
Svo barnslega saklausl
af brígslunum hreinn
að birti í stofunni minni.
Þegar mál Guðmundar Áma stóó
sem hæst var gengið á Davíð Oddsson
meó þaó hvort þetta endaði ekki með
kosningum. Hann vildi lítió úr þessu
gera og sagóist láta hverjum degi
nægja sína þjáningu, sem Friðrik lagói
útaf þessu á þennan hátt:
Þó að kratar eigi í erjum.
Allt hér stefni í kosningar.
Lætur Davíð degi hverjum
duga sínar þjáningar.
Bimi Þórleifssyni /annst að svo-
kölluð Guðmundar Áma-mál væm
heldur dapurlegur kafli í stjómmála-
sögunni:
Fyrr var talinn krati klár,
knattfimur og dáður,
en er að verða vinafár
vanmetinn og smáður.
Vantrauststillögu stjómarandstöð-
unnar í kjölfarið svaraði Davíð Odds-
son svona:
Þetta er bara þras og raus,
þrugl og marklaust blaður,
að mestu leyti makalaus
málatilbúnaður.
' V. /
Vegna máls Guómundar Áma orti
Hákon Aðalsteinsson í oróastað Dav-
íðs Oddssonar fofsætisráðherrp:
Vantraust hangiryfir oss
illa dœmið stendur.
Þetta er okkur þungur kross
þessu veldur Gvendur.
Lítið ersem léttirgeð
lukkan tæp í hendi.
Svona er að sitja með
syndirnar frá Gvendi.
Og þegar Guðmundur Ámi sagði
af sér datt Hákoni þetta í hug:
Þjóðin mörgum þakklát væri
á þessum tímum spillingar.
Effleiri myndufinna snæri
og fara að dœmi Guðmundar.
Kratavísur
Kratar hafa gert margt á árinu, að mati
Hákons Aðalsteinssonar:
Kratar hafa framkvœmt flest
semfram af öllum gengur.
Afgangsmannorð ekki sést
í þeim flokki lengur.
Öllum var kunnugtl
hans innrœti fyrr
þau ódœmi eifestast á blað.
Nú gubba vístflestirl
sem gefið er skyr
því glópurinn auglýsir það.
Eftir að Sighvatur, þáverandi og
núverandi heilbrigóisráðherra, hafði
ákveðið hækkun gjalda fyrir heilsu-
vemd sem kallað var sjúklingaskattur,
orti Siguróur Hansen:
Gjörningurinn galla ber
gjöldin hafa hækkað
en kosturinn við kortin er
að krötum hefurfœkkað.
Gjörningur þessi olli miklum deil-
um sem uróu til þess meðal annars, að
fylgi krata mældist lakara í skoðana-
könnunum. Var þessi ákvörðun því
dregin til baka og þá orti Sigurður:
Guðmundur Árni Stefánsson sigldi
krappan sjó.
Það kom á óvart hverfult skyn
því kratar að sér gættu
er þeir sáu eigið kyn
í útrýmingarhœttu.
Ríkisstjórn og Alþingi
Og um þingflokksfund Sjálfstæðis-
flokksins sl. haust orti sr. Hjálmar
Jónsson, varaþingmaður á Norður-
landi vestra.:
Vantraustinu verjast má
og veifa til þess hendi.
Eg skal taka ábyrgð á
Öllum nema Gvendi.
Rúnar Kristjánsson setti þessa
limru saman:
Jóhanna stirð er í störfum
í stjórninni með þessum törfum
sem ryðjast á bása
með röddina hása
en afneita almenningsþörfum.
Þegar alþingismenn rifust um bú-
vörulögin og reyndu aó stemma stigu
við kjötinnflutningi kvaó Kristján
Málari Benediktsson:
Á búvörulögunum reynastgöt.
Letin á þingi er ekki ný.
Ekki máflytja inn asnakjöt,
enda varfyrir nóg af því.
Um deilurnar kringum búvöru-
frumvarpið orti Rúnar Kristjánsson:
Málin eru í hörðum hnút,
hotflnn allurfriður.
Davíð býr við sorg ogsút,
sýnist horast niður.
Jón Baldvin var mjög andvígur
kosningum í haust er leið og þá orti
Rúnar:
Kosningarnar kaus ei nú
krata höfuðljóminn.
Ástœðan var einkum sú
að hann hrœddist dóminn.
Rúnar orti eftir prófkjör sjálfstæð-
ismanna á Nl. vestra í lok nóvember:
Ekki er Villi sáttur sagður,
sárindin í huga rík.
lllt erað vera undirlagður
ógleði í pólitík.
Landavísur
Árió 1993 endaði þannig aó maður í
jólasveinabúningi reyndi aó selja ung-
lingum landa í höfuóborginni. Enginn
vissi hvaða jólasvein maðurinn var að
leika, en Bjöm Þórleifsson orti:
Drykkinn þver og þurr/
er pelans stútur,
þó má börnum vera gleði rótt.
Að þyrstum krökkuml
leitar Landakútur
með lögg að gefa þeim á jólanótt.
Og frá Gesti Ólafssyni í sama dúr:
Þú veist ekki hvað er vandinn,
vandinn erað skilja
að líkast til er það landinn,
landinn sem allir vilja.
Mál Guðmundar Árna
Eftir fréttamannafund Guómundar
Áma Stefánssonar, þar sem hann var
að hvítþvo sínar athafnir, varð þetta til
hjá Friðrik Steingrímssyni í Mývatns-
sveit:
Rúnar Kristjánsson á þessa limru
og þá næstu:
Þó Sighvatur lifl ekki í logni
er lítil hœtta að hann bogni.
En verði hann œr
og vitinufjær
þá má alltafsenda hann að Sogni.
Gamanið kann nú að kárna
því krötunum deilurnar sárna.
Þó Össur sig bœti
þá eru samt lœti
á galeiðu Guðmundar Árna.
Hjálmar Freysteinsson horfói á í
sjónvarpi þegar Jón Baldvin og stuðn-
ingsmenn voru að fagna sigri yfir Jó-
hönnu á landsfundinum í júní:
Jón Baldvin vinina vissa á,
er varla í hœttu að missa þá.
Þeir lofa og tilbiðjann,
leiðann og styðjann
eflæturann Bryndísi kyssa þá.
Ókunnur höfundur um skyrauglýs-
ingu Jóns Baldvins:
Framboð Jóhönnu Sigurðardóttur
kcmur talsvert við sögu.
Oddur Halldórsson varð frægur
maður.
Siðfcrðismál presta voru talsvert í frcttum á árinu.
Gott úr málum gera ber,
gröft úr kýlum skera ber.
Sigur-Pálmann séra ber
sæll og hress sem vera ber.
Gestur Ólafsson lagói þessa til:
Ætlun mín er ekki Ijót
er sú hugsun fyrsta
í kosningunum að koma á fót
kvennamannalista.
Svo var mikið fjallaó um ESB og
gífurlegan áhuga Jóns Baldvins á
inngöngu þar. Bjöm Þórleifsson orti
þá þessa vísu, og hann á einnig tvær
næstu:
Á leiðum vanda loks ég sé
lausn sem hentar Fróni.
Aðild strax að ESB
en aðeins handa Jóni!
Svo fann Alþingi upp á því aó
minnka mætti drykkju landsmanna
um 25%, en hugmyndir vantaði um
aðferðirnar:
Vort háa þing ei lœtur sér það lynda,
hve landinn virðistflösku sinni trúr,
en notkun rakadrægra dömubinda
mun duga til að þurrka nokkrar
frúr.
Alþingi fékkst vió mörg flókin
vandamál, m.a. vemdun dýra í fmm-
varpi sem kallað var villidýrafrum-
varpió. Þaó var þó ekki kennt við
flutningsmenn sína:
Fylgir margur vandi verndunl
villtra dýra.
Úrrœði ég eitt vil skýra,
það œtti að leggja þau í spíra.
Ymsir erlendir stjómmálamenn
hafa heimsótt landið en heita mis
skemmtilegum nöfnum. Hjálmar
Freysteinsson sá viðtal við einn í sjón-
varpi:
Bhutros Bhutros-Gali
er brattur og drjúgur í tali
og sperrtur að sjá.
Spyrja því má:
Er hann undan Hannibali?
Sveitarstjórnar-
kosningar sl. vor
Þegar leið á vorió fannst Birni Þór-
leifssyni allur fréttaflutningur leiðin-
legur vegna komandi sveitarstjómar-
kosninga:
Meðflóðmælgi ogfagurgala
frambjóðendurnir mala
svo senda þeirfax
ogfréttir til Dags
sem atkvæðum œtla að smala
Pétur Pétursson lagði þessa limru
til, en um ónefnt borgarstjóraefni
kvað ókunnur höfundur fyrir kosning-
arnar:
Svo mjúk verði afhonum myndin
er milljónum kastað í vindinn.
Þess bíða menn helst
að sjá hvort hann selst
jafn vel eins og vængjuðu bindin.
Rúnar Kristjánsson á Skagaströnd
orti mars vegna breyttra framboós-
skipana í Reykjavík:
Hœgri klíkan hræðslugjörn
haldinfári mörgu,
mœldi núll á Markús Örn
móti Ingibjörgu.
Markús Örnfrá völdum vék,
vildi fara íhvelli.
íhaldið þar leikinn lék
sem leggur það að velli.
Um bandalag Sjálfstæóismanna og
Framsóknarmanna í sveitarstjómar-
kosningunum í vor, á Skagaströnd,
orti Rúnar: