Dagur - 20.01.1995, Side 1
Landsleikurinn okkar!
• •
3FALDUR
1. VINNINGUR
78. árg.
Akureyri, föstudagur 20. janúar 1995
14. tölublað
Snjóflóð féll á skíðasvæði Siglfirðinga
- skemmdi endastöð skíðalyftu og splundraði lyftuskúr og spenni
Snjóflóð, sem talið er að hafi
fallið á miðvikudagskvöld,
skemmdi endastöð neðri skíða-
lyftunnar á skfðasvæðinu f
Skarðsdal f Siglufirði. Flóðið féll
úr Snóknum norðan við skíða-
svæðið og fór á milli háspennu-
staura á leið niður á skfðasvæðið
þar sem það tók með sér lyftu-
skúr og spenni og þeytti um 150
metra vegalengd yfir gil sunnan
við skíðasvæðið auk þess að
skemma endastöðina.
Lyftuskúrinn er brak eitt en
ekki var í gær hægt að kanna frek-
ari skemmdir á svæðinu vegna
snjóflóðahættu.
Almannavarnarnefnd Siglu-
fjarðar segir fulla ástæðu til að
vara vélsleðamenn vió að vera á
ferð í fjalllendi í Siglufirði vegna
snjóflóóahættunnar þar.
Um kvöldmatarleytið á mið-
vikudag Ieist Almannavarnar-
nefnd Siglufjarðar ekki orðið á
ástandið eftir athugun á snjóalög-
um og var mikill skafrenningur í
Strengsgili og var þá ákveðið aó
láta rýma 23 hús þar neðan við og
gistu íbúar þeirra húsa annars
staðar í bænum um nóttina. Um
kvöldiö féll svo snjóflóð í gilinu
en það náði ekki efstu húsum. Um
hádegisbilió í gær var hættu-
ástandinu aflétt þar sem ekki var
talin snjóflóðahætta við byggð í
bænum og gátu íbúamir þá flutt
aftur til síns heima. Mikill snjór er
á Siglufirði en í gær var þar orðið
hæglætisveður. GG
Snjóflóð
féll á Ólafs-
fjarðarveg
Igærmorgun kom í ljós að
snjóflóð hafði fallið á veginn
milli Dalvíkur og Ólafsfjarðar.
Að sögn lögreglunnar á Dalvík
var vegúrinn lokaður í allan gær-
dag vegna snjóflóðahættu og ein-
hvem tímann á þeim tíma hefur
flóðið fallið. Flóðið er um 85
metra breitt og 2,5 metrar á þykkt
og gekk í sjó fram. Það féll á svo-
kallaðri Sauðaneshæð. Búið er að
opna veginn en lögreglan vill
benda á að um leið og aftur fer að
snjóa skapast snjóflóðahætta á ný
og verður veginum þá lokað. KLJ
Skagastrandarhöfn:
Hafrún HU sökk
vegna ísingar
- trillur sukku á Hólmavík og á Sauðárkróki
Frá skíðasvæði Sigtfirðinga í Skarðsdal, þar sem snjóflóð olli tjóni sl. mið-
vikudagskvöld. Mynd: GG
Hafrún HU-12, sem er 52
tonna bátur á Skagaströnd
í eigu Sigurjóns Guðbjartssonar,
sökk í Skagastrandarhöfn um
níuleytið í gærmorgun. Báturinn
var nýbyrjaður á skelflskveiðum
og var aflanum landað til
vinnslu hjá Meleyri hf. á
Hvammstanga.
Fleiri bátar voru í höfninni en
að sögn hafnarvaróar var enginn
annar bátur í hættu. Vonskuveóur
var í gær við Húnaflóa og um sjö-
leytió voru menn að ferja fólk á
hafnarsvæðinu auk þess sem þeir
fylgdust meö bátunum og þá virt-
ist allt í stakasta lagi. Aðeins
tveimur tímum seinna, eóa um
níuleytió var báturinn sokkinn og
Ólafur Magnússon hallaðist það
mikið aó kominn var sjór inn á
dekk. Gissur hvíti hallast einnig
nokkuð. Þá var kallað út lið til að
berja ísingu af öðrum bátum til að
forða frekara tjóni og var síóan
vakt við höfnina um nóttina. í
höfninni lágu auk Hafrúnar, Ólaf-
ur Magnússon, sem einnig er á
skelfiskveiðum, Amar II, Gissur
hvíti, Ingimundur gamli og Dag-
rún en síðastnefndu þrír bátarnir
fara á rækjuveiðar.
Bátstapar urðu einnig í höfnun-
um á Hólmavík og Sauðárkróki,
og er talið að ofsaveður, snjófarg
og ísing hafi átt þátt í að þeir bátar
sukku.
I gær var veðrið gengið niður á
Skagaströnd, en haugabrim sem
gengur nær óbrotið yfir höfnina en
brimvörn vestan hafnarinnar er
mjög lítil og lítið gagn af henni í
stórvióri eins og því sem geysað
hefur undanfarna daga. Stefnt var
að því að moka snjófarginu af
hafnarsvæðinu, en þar mynduðust
stórar tjarnir í snjónum og var raf-
magnsskúrum m.a. orðið hætt en
ekkert tjón hafði orðið.
„Það er búið að semja við Köf-
unarstöðina að ná Hafrúnu upp, en
ljóst er að báturinn fer ekki á sjó
næstu mánuói og hér er um stór-
tjón aó ræða. Ég var búinn að vera
nokkra daga á skelfiskveiðum og
leggja upp á Hvammstanga og
einnig var ég búinn að leigja skel-
fiskkvóta. Eg fæ auk þess ekki
bætt það tjón sem ég verð fyrir vió
að komast ekki á sjó,“ sagði Sig-
urjón Guðbjartsson, eigandi Haf-
rúnar HU-12. GG
Stórt snjóflóð lagði fjár-
hús í rúst á Vatnsnesi
Amiðvikudagskvöldið eða
aðfaranótt fimmtudags féll
snjóflóð á tvenn íjárhús á bæn-
um Ytri-Ánastöðum í Kirkju-
hvammshreppi á Efra-Vatns-
nesi. í fjárhúsunum voru 150
kindur sem grófust undir flóð-
inu. Auk þess lentu í flóðinu
hross sem voru úti ofan við bæj-
arhúsin. Flóðið er um það bil
einn kflómeter á breidd. Það
kom úr brúnum Breiðarinnar og
liggur fyrir ofan þrjá bæi, Ból-
stað, Ytri-Ánastaði og Syðri-
Ánastaði.
Bólstaður og Syðri-Ánastaðir
eru í eyði en á Ytri-Ánastöðum
búa hjónin Jón Guðmundsson og
Elísabet Eggertsdóttir blönduðu
búi með kýr og kindur ásamt
tveimur sonum sínum Eggert og
Guðmundi.
Að sögn Siguróskar Jónsdóttur
frá Ytri-Ánastöðum lagði flóðió
bæði fjárhúsin og fjárhúshlöðum-
ar á Ytri-Ánastöðum í rúst, allt er
gjörónýtt. I öðrum húsunum lagð-
ist hlaða sem í voru heyrúllur yfir
fjárhúsin og féð sem lenti undir
rúllunum reyndist allt dautt. Hins
vegar tókst að bjarga 70-80 kind-
um en ekki er ljóst hvort einhverj-
ar þeirra kunna að vera svo illa
famar að þeim þurfi að farga. Þá
er ekki ljóst hve mörg hross lentu
í flóðinu en nokkur hafa verið
grafm upp og eru fjögur þeirra
dauð. Ibúðarhúsið á Ytri-Ánastöð-
un stendur á brekkubrún og fjósiö
og fjóshlaðan skammt frá og
sluppu þessi hús við flóðið.
Á Syðri-Ánastöðum skipti
flóðið sér við bæjarvegginn sitt
hvoru megin vió íbúðarhúsið en
eyðilagði fjós.
Samhyggð okkar er einlæg og sterk
- ávarp forseta íslands vegna landssöfnunarinnar „Samhugur í verki“
Landssöfnunin „Samhugur í
verki“, sem íjölmiðlar í
landinu í samvinnu við Hjálpar-
stofnun kirkjunnar, Rauða
krossinn og Póst og síma,
standa fyrir vegna náttúruham-
faranna f Súðavfk sl. mánudag,
hófst með formlegum hætti í
gærkvöld með eftirfarandi
ávarpi forseta íslands, Vigdísar
Finnbogadóttur, til þjóðarinnar:
,,Góðir Islendingar.
Á þungbærum stundum þjöpp-
um við okkur saman heilsteypt
þjóð við andstreymi í landi, þar
sem náttúruöflin hafa birst okkur
grimm og óvægin. Harmar hafa
sótt okkur heim og við finnum
það glöggt sem endranær, þegar
að okkur er höggvið, hve nákom-
in við erum hvert öðru. Átakan-
legur missir og harmur eins verð-
ur missir og harmur þjóðarinnar
allrar. Hvarvetna á Islandi dvelur
hugur manna þessar stundir hjá
þeim sem orðið hafa fyrir miklum
raunum. Samhyggð okkar er ein-
læg og sterk og öll vildum við
eiga ráð til að létta þeim þungar
sorgarbyrðar.
Við stöndum máttvana and-
spænis því sem orðið er og ekkert
fær breytt. En tíminn nemur ekki
staðar, heldur er sá einn kostur
okkar að halda áfram og leita
allra leiða til að milda áföllin og
vemda þá sem fyrir reiðarslagi
hafa orðið. Okkur gefst nú öllum
færi á aó rétta þeim hjálparhönd
og votta þeim samkennd okkar í
landssöfnun sem ber einkunnar-
orðin „Samhugur í verki“. Stuðn-
ingur okkar og einhugur getur á
þann veg veitt þeim, sem að hefur
verið vegið, styrk til að ganga til
móts við komandi tíma.
Með djúpa hryggð í hjarta bið
ég Guð að blessa og styrkja þá
sem hafa þolað sáran missi ást-
vina og Islendinga alla.“
Á Bólstað fór flóðið upp að
vegg á íbúðarhúsinu og sprengdi
vegginn.
Síðdegis í gær höfðu björgun-
arsveitarmenn frá Hvammstanga
nánast lokið við að grafa féð og
hrossin upp og vom skepnumar
hýstar hjá nágrönnum.
Sigurrós sagði að þetta svæði
hefði aldrei verið talið snjóflóða-
svæði en fyrir um það bil tuttugu
árum féll snjóflóð á sama stað,
það var mun minna en í því fórust
þó nokkur hross. KLJ
Landssöfnunin
„Samhugur í verki“
Landssöfnunin „Samhugur í
verki“, sem fjölmiðlar standa
að í samvinnu við Hjálparstofnun
kirkjunnar, Rauða kross íslands
og Póst og síma, til styrktar Súð-
víkingum sem eiga um sárt að
binda eftir náttúruhamfarirnar sl.
mánudag, hófst formlega í gær-
kvöld og henni verður fram hald-
ið í dag. Áður en söfnunin hófst
formlega í gær höfðu þegar safn-
ast um 15 milljónir kr.
Fólk getur hringt í símanúmer
landssöfnunarinnar og tilgreint fjár-
upphæð sem er sett á greiðslukort
eða heimsendan gíróseðil. Þá verð-
ur hægt að leggja inn á sérstakan
bankareikning söfnunarinnar hjá
öllum bönkum og sparisjóðum.
Símanúmer söfnunarinnar er
800-5050 (grænt númer) en banka-
reikningurinn er nr. 1117-26 800 í
Sparisjóði Súðavíkur. Tekið verður
við framlögum í símamiðstöðinni
kl. 10-22 í dag, á morgun og
sunnudag. Auk þess verður tekið
við framlögum á bankareikning
söfnunarinnar frá 20. janúar til 3.
febrúar. óþh