Dagur - 20.01.1995, Page 2
2 - DAGUR - Föstudagur 20. janúar 1995
FRÉTTIR
Veðrið á landinu á síðasta ári:
Reykvíkingar bökuðu Akureyringa
- sólskinsstundir í Reykjavík mældust 427 fleiri en á Akureyri
Veðurstofa íslands hefur nú sent
frá sér tölur um veðrið á síðasta
ári. Þar kemur margt fróðlegt
fram, en athyglisverðustu tíð-
indin eru ef til vill þau að árið
var óvenju sólríkt í Reykjavík,
hið sólríkasta frá 1979 og voru
sólskinsstundir í Reykjavík 427
fleiri en á Akureyri. Að jafnaði
njóta Reykvíkingar hins vegar
sólár í ríflega 200 fleiri klukku-
stundir á ári en Akureyringar.
Sólskinsstundir á Akureyri
mældust 1026 og er það í tæpu
meðallagi, en sólskinsstundir í
Reykjavík mældust 1453, sem er
187 stundum yfir meðallagi.
Arið var hins vegar heldur
kaldara í Reykjavík en meðaltal
áranna 1961-1990 segir til um, 4,1
stig sem er 0,2 stigum undir með-
allagi, en heldur hlýrra á Akureyri
en vanalega, 3,4 gráður sem er 0,2
gráðum yfir meðallagi. Urkoma á
Akureyri 1994 var nánast sú sama
og í meðalári, 498 mm, en fremur
þurrt var í Reykjavík ef miðað er
við meðaltal þar, 735 mm og er
það u.þ.b. 92% meðalúrkomu.
Ef stiklað er á stóru yfir árið þá
voru fyrstu mánuðir þess nokkuð
umhleypingasamir, þó mjög hag-
stæður kafli hafi komið í febrúar.
Mars var hins vegar kaldur og
óhagstæður. Einnig var fremur
kalt í apríl, en þá var óvenju sól-
ríkt, sérstaklega í Reykjavík þar
apríl var sá sólríkasti frá
Nú erfrost ogfönn en á eftir vetri kemur vor með sól ogyl.
sem
1935. Maí var góðviðrasamur og
fremur hlýr og var óvenju hæg-
viðrasamt mikinn hluta mánaðar-
ins.
Fremur kalt var í júní, sérstak-
lega norðanlands, en júlí var hlýr
og mildur. Síðari hluti sumars var
einnig hægviðrasamur og var
vindhraði lengst af undir meðal-
Grímseyingar að
verða olíulitlir
Prófkjör framsóknarmanna
á Norðurlandi vestra:
Páll Pétursson talinn
öruggur með 1. sætið
Langvarandi slæm veður hafa
haft það í för með sér að Gríms-
Hofsós:
Hættuástand
íhöfninni
í gærkvöld og fyrrinótt var mjög
slæmt verður á Hofsósi eða eins
og Jón Guðmundsson sveitar-
stjóri sagði í Degi í gær: „Það er
snarvitlaust veður.“
Hættuástand skapaðist í höfn-
inni en Jón sagði að björgunar-
sveitarmenn og eigendur báta
hefðu verið á vakt við höfnina í
fyrrinótt, einn bátur hefði
skemmst og einn maður meiðst á
hendi. „Þaó er óhætt aö segja að
þaó var mildi að ekki fór verr,
mennimir voru hætt komnir á
tímabili þegar sjó braut fyrir vam-
argaróinn,“ sagði Jón. KLJ
□ □
íþróttaskóli
bamanna
(3ja-6 ára)
hefst laugqrdaginn
21. janúar í íþróttahúsi
Glerárskóla.
Skráning í Hamri
í síma 12080.
eyingar eru að verða olíulitlir.
Olía gegnir lykilhlutverki fyrir
eyjuna, því hús eru hituð upp
með olíu og rafmagnið kemur
frá díselrafstöð. Að sögn Bjarna
Magnússonar, hreppstjóra, eru
um viku birgðir eftir fyrir raf-
stöðina og einnig eru um 10
tonn í öðrum tanki, sem hægt er
að ná ef á þarf að halda. Nokk-
uð er misjafnt hversu miklar
birgðir eru í einstökum húsum.
„Þetta hafa verið dæmalaus ill-
viðri allan desember og það sem
af er janúar. Það er margsinnis bú-
ið aó tala um að fá olíuskip og það
hefur meira aö sega komið hingað
en orðið frá að hverfa," sagði
Bjarni. Olíuskip liggur nú á Poll-
inum við Akureyri og verður sent
til Grímseyjar við fyrsta tækifæri.
Sæfari hefur ekki heldur komist til
Grímseyjar í nokkurn tíma, en
mun einnig koma þegar færi gefst.
Bjami sagist hafa séð um raf-
stöðina frá því um 1960 og aðeins
einu sinni hafi það komió fyrir að
hann hafi orðið olíulítill. HA
Um kl. 22 í gærkvöld var taln-
ing langt komin í opnu prófkjöri
framsóknarmanna á Norður-
Iandi vestra. Engar opinberar
tölur voru gefnar upp varðandi
stöðuna, en skv. heimildum
RÚV var orðið ljóst að Páll Pét-
ursson, alþingismaður á Höllu-
stöðum, hafði borið sigurorð af
Stefáni Guðmundssyni, alþing-
ismanni á Sauðárkróki, í barátt-
unni um að leiða listann.
Gríðarleg þátttaka var í próf-
kjörinu og talió að um 3000
manns hefðu kosið. Talsverður
hiti var búinn að vera í prófkjörs-
baráttunni og varóandi fram-
kvæmd atkvæðagreiðslunnar og
ljóst að þar eru menn ekki á eitt
sáttir. Búist var við að talningu
myndi ljúka um miðnættið og í
helgarblaði Dags verður greint ít-
arlega frá úrslitum prófkjörsins,
ásamt viðbrögðum frambjóðenda.
HA
Ólafsfjarðarkaupstaður 50 ára:
Hátíðarfundur
29. janúar nk.
- öllum bæjarbúum og gestum boðið
til kaffidrykkju
Ólafsfjarðarkaupstaður átti 50
ára kaupstaðarafmæli 1. janúar
sl. Af því tilefni verður haldinn
hátíðarfundur Bæjarstjórnar
Ólafsfjarðar sunnudaginn 29.
janúar nk. klukkan 14.00. Að
honum loknum verður bæjarbú-
um og gestum boðið til kaffi-
drykkju.
Maður fórst í snjó-
flóði í Reykhólasveit
Nú er ljóst að fimmtán manns
hafa látið líflð í náttúruham-
förum liðinna daga. Fjórtán
létu lífið í snjóflóðum í Súða-
vík og tæplega áttræður mað-
ur lét lífið í snjóflóði sem féll á
útihús við bæinn Grund í
Reykhólasveit sl. miðviku-
dagskvöld.
Feðgar á Grund voru að gefa
skepnum þegar snjóflóóið
skreið fram. Björgunarsveitar-
menn komust við illan leik á
slysstað, enda var veóur afar
slæmt, og tíu tímum eftir að
snjóflóðið skall á útihúsunum
fundust mennimir. Eldri maður-
inn var látinn en sonur hans var
fluttur með þyrlu Landhelgis-
gæslunnar til Reykjavíkur. Líð-
an hans var eftir atvikum í gær.
óþh
Á fundinum verður borin upp
tillaga um aó bjóða starfsmönnum
Ólafsfjaróarbæjar upp á námskeið
á vegum Rannsóknastofnunar Há-
skólans á Akureyri til að auka
þjónustuna við bæjarbúa og sam-
skiptaaðila hans og verður notast
við námsefni sem hefur verið not-
að við Altœka gœðarstjórnun.
Þegar hefur verið farið yfir efniö
með starfsfólkinu og leitað eftir
viöbrögðum og hafa viðbrögðin
verið mjög jákvæð og mun þetta
námskeió verða meginverkefni af-
mælisársins, en áætlunin nær til
fjögurra ára.
Á sumri komandi veröur útihá-
tíð í Ólafsfirði í tilefni afmælisins
og mun forseti Islands, frú Vigdís
Finnbogadóttir, þá heiðra Ólafs-
firðinga með nærveru sinni.
Skipulagning þeirrar dagskrár er
þegar hafin. GG
í sólinni
lagi, allt fram í miðjan nóvember,
er aftur fór að bera á umhleyping-
um. September var þurr og sólrík-
ur þó hiti væri ekki fjarri meðal-
lagi. Fremur kalt var í október, en
ekki veðrasamt. Þá var úrkomutíð
fyrir norðan, en tiltölulega þurrt
syðra. Nóvember var hinn sólrík-
asti í Reykjavík frá 1965. Desem-
ber var nokkuó umhleypingasam-
ur, en hiti var ekki fjarri meóal-
lagi.
Tvívegis á árinu 1994 ollu
snjóflóð miklu tjóni. Þann 5. apríl
féll mikið snjóflóð á skíða- og úti-
vistarsvæði Isfirðinga. Það eyði-
lagði milli 30 og 40 sumarbústaði,
olli stórefelldu tjóni á skíðamann-
virkjum og ræktuðum svæðum,
auk mannskaða. Þann 18. desem-
ber eyðilagðist íbúðarhús á Súða-
vík í snjóflóði. HA
Akureyri:
■ Bæjarráð staðfesti í gær
samstarfssamning milli fram-
kvæmdanefndar HM-95 í
Reykjavík og skipulagsnefndar
HM-95 á Akureyri.
■ Bæjarráó hefur hafnað fors-
kaupsrétti að togaranum Súlna-
felli EA-840. Kaupfélag Ey-
firðinga hefur selt skipió til
Rifs hf. I Hrísey, án veiðiheim-
ilda.
■ Á fundi bæjarráðs var lagður
fram til kynningar verktaka-
samningur sem bæjarstjóri hef-
ur gcrt við Andra Teitsson,
rekstrarráðgjafa, um könnun á
áhrifum þess á starfsemi Út-
gerðarfélags Akureyringa hf.
ef afurðasala félagsins færist úl
íslenskra sjávarafurða hf.
■ Á fundi bæjarráðs voru lögð
fram tvö bréf, þar sem lýst er
áhuga á kaupum á hlutabréfum
í ÚA og óskað efúr vióræóum
við bæjaryfirvöld þar um. Ann-
að bréfið er frá Lífeyrissjóði
Norðurlands og hitt frá Fjár-
fesúngafélaginu Skandia hf.
■ Valgerður Bjamadótúr kom
á fund bæjarráðs og gerði
ásamt Jóni Bjömssyni, grein
fyrir ýmsum tillögum um verk-
efni, sem framkvæmdanefnd
fyrir reynslusveitarfélagið Ak-
ureyri, hefur hug á að sækja
um til verkefnisstjómarinnar í
Reykjavík.
■ Bæjarráói hefur borist erindi
frá Húsnæóissamvinnufélaginu
Búseta á Akureyri, þar sem
Akureyrarbæ er boðið til við-
ræöna um samstarf á svipaðan
hátt og fyrirhugað er í Reykja-
vík, þ.e. kaup á búseturétú í
íbúðum scm nýttar yrðu sem
lciguíbúóir. Bæjarráó sam-
þykkú að fela félagsinálastjóra,
hagsýslustjóra og forstöðu-
manni húsnæðisskrifstofunnar
að ræða við Búseta-menn um
málið.
■ Bæjarráð gerir ekki athuga-
semd við að félagsmálaráð taki
upp kvöldþjónustu, enda rúm-
ist kostnaóur innan ramma
fjárhagsáæúunar ráðsins.
É Á fundi bæjarráðs, las bæj-
arstjóri samúðarkveóju, sem
hann hefur sent fyrir hönd bæj-
arstjómar, úl hreppsnefndar
Súðavíkurhrepps vegna snjó-
flóðanna þar 16. janúar sl.