Dagur - 20.01.1995, Qupperneq 6
6 - DAGUR - Föstudagur 20. janúar 1995
.. .hagsmunir í húíi
Tvö mál hafa einkennt fréttaflutning
frá Akureyri og umræðu á meðal
bæjarbúa að undanfömu. Þótt að um
tvö málefni sé aö ræóa hafa þau
fallið í einn farveg í meðförum
fréttamanna og í hinni almennu um-
ræðu. Annað þessara málefna er
hvort mögulegt sé að flytja höfuö-
stöðvar Islenskra sjávarafurða hf. til
Akureyrar og auka þannig atvinnulíf
og efla viðskiptaumhverfi í bænum
og á Norðurlandi en hinsvegar hvort
Akureyrarbær eigi að selja hlutabréf
sín í Utgerðarfélagi Akureyringa hf.
og létta þannig á skuldum bæjarins
auk þess að skapa framkvæmdafé á
tímum erfiðleika í atvinnulífi. Mál-
efni þessi koma fram á sama tíma
og því er auðvelt að tengja þau sam-
an og gera að einu máli eins og víða
má heyra; bæói í fjölmiðlum og hjá
fólki á förnum vegi.
Ahugi bæjaryfirvalda á Akureyri
á flutningi Islenskra sjávarafurða hf.
norður vaknaði er ljóst var að fyrir-
tækið yrði að flytja úr núverandi
húsnæói á Kirkjusandi í Reykjavik.
Þessi áhugi bæjaryfirvalda er mjög
eðlilegur. Mikil stöðnun hefur ríkt í
atvinnulífi í bænum síóustu árin. Sú
stöðun hcfur ekki aðeins leitt af sér
4% til 6% atvinnuleysi að jafnaði
heldur hefur hún einnig dregið úr
möguleikum til þjónustu og al-
mennan kraft úr bæjarfélaginu og
bæjarbúum. Oft hefur verið rætt um,
bæði af hálfu fyrrverandi og núver-
andi bæjarfulltrúa, að breyta þessu
stöðnunarástandi og finna og efla
nýja atvinnumöguleika. Leita þurfi
nýrra leiða til nýsköpunar og stofn-
unar fyrirtækja og einnig að kanna
meó öllum ráóum hvort flytja megi
virka atvinnustarfsemi til bæjarins.
Annað stærsta
fyrirtæki landsins
Með hugsanlegri staósetningu Is-
lenskra sjávarafurða hf. á Akurcyri
er búió að koma auga á vænlegan
möguleika fyrir atvinnu- og við-
skiptalíf í bænum. Islenskar sjávar-
afurðir hf. cru annað stærsta fyrir-
tæki landsins þegar miðað er við
veltu en umsvif þess námu á 19da
milljaró króna á árinu 1993. Þess er
einnig að geta aö um sérhæfóan út-
flutningsaðila er að ræóa er stundar
sölu á helstu framleiðsluafurðum
þjóðarinnar. Sem stcndur vinna um
60 manns hjá fyrirtækinu og því
fylgir margvísleg þekking á útflutn-
ingsstarfsemi og viðskiptasambönd
sem menn alla sér á lengri tíma í
markaðs- og sölustörfum.
Margir starfsmanna eiga
rætur á landsbyggðinni
Þótt ákveðnir erfiðleikar séu ætíö
samfara því að flytja stóra vinnu-
staói búferlum; að ekki sé talað um
að fara með þá á milli landshluta,
var fljótt ljóst að nokkur áhugi var
fyrir hcndi af hálfu forvígismanna
og starfsmanna Islenskra sjávaraf-
urða hf. að kanna hvaða möguleikar
felist í flutningi fyrirtækisins til Ak-
ureyrar. Margir starfsmanna þess
eiga rætur á landsbyggóinni; í hin-
um ýmsu plássum við sjávarsíðuna
og tengjast útvegsstarfsemi með
einum eða öðrum hætti. Þótt í tilviki
sem þessu séu allir starfsmenn tæp-
ast tilbúnir að flytja með vinnuveit-
anda sínum í annan landshluta, má
gera ráð fyrir að verulegur hluti
starfsfólks myndi koma norður með
Islenskum sjávarafurðum hf.
Þekking flyst norður
Þótt mörg störf innan Islenskra sjáv-
arafurða hf. séu sérhæfð og sölu-
starfsemi byggi ætíð aó hluta á per-
sónulegum tengslum sem fólk skap-
ar með sölustörfum þarf vart að
kvíða því að ekki megi fylla þaö
skarð sem ef til vill getur skapast. Á
Akureyri er boóið háskólanám í
rekstrar- og sjávarútvegsfræðum
auk þess sem unnið er að vísinda-
og þróunarstörfum við Háskólann á
Akureyri. Sú stofnun er því kjörin
samstarfsvettvangur atvinnufyrir-
tækis á borð við Islenskar sjávaraf-
uróir hf. og vel hæf til þess að
mennta ungt fólk til starfa við fram-
leiðslu og útflutning sjávarafurða.
Tæpast þarf að kvíða því að fagleg
þckking muni hverfa úr umræddu
útflutningsfyrirtæki þótt það flytjist
norður en starfsmenn er myndu
fylgja því að sunnan gætu að öllum
líkum nýst Háskólanum á Akureyri
sem upplýsinga- og kennslukraftar í
framtíðinni.
Allt að 200 störf og
aukin þjónusta
Atvinnufyrirtæki af þcirri stærð sem
Islenskar sjávarafurðir hf. eru fylgja
ákveðin margfeldisáhrif á annað at-
vinnulíf. Því myndi tilkoma þess til
Akureyrar skapa hátt í 200 störf í
bænum strax á fyrsta starfsári þar.
Hluti þess fólks flytur til bæjarins
en aðrir koma úr öðrum störfum hér
á Akureyri og við þaó losna fleiri
störf. Þegar rætt er um að tilkoma
sérhæfðs útflutningsfyrirtækis, eins
og Islenskar sjávarafuróir hf. eru,
taki ekki nema að litlu leyti fólk af
atvinnuleysisskrá, gleymist gjarnan
að meta þau miklu margfeldisáhrif
sem því fylgja. Þótt það fólk sem nú
er í atvinnuleit á Akureyri gangi ef
til vill ekki beint í störf hjá Islensk-
um sjávarafurðum hf. myndi til-
koma fyrirtækisins skapa umtals-
verðan fjölda starfa í ólíkum starfs-
greinum vegna aukinnar eftirspurn-
ar eftir ýmiskonar þjónustu. Ef
menn ræða í einhverri alvöru um að
gera Norðausturland að sérstöku
matvælaframleiðslu- og útflutnings-
svæði í krafti hreinleika og lítið
spilltrar náttúru er ómetanlegt að
öllugur útflutningsaðili hafi höfuö-
stöóvar sínar í þessum landshluta. I
því sambandi máyelta þeim mögu-
leika fyrir sér að íslenskar sjávaraf-
urðir hf. þurfi ekki aó einskorða
sölustarfsemi sína við fiskafurðir í
framtíóinni heldur megi nýta þau
sambönd og þekkingu sem þar er og
verður að finna í fjölbreyttari mark-
aðsstarfsemi. Tilkoma stórs útflutn-
ingsfyrirtækis á Akureyri myndi
einnig hafa veruleg áhrif á sviði
ferðamála. Starfsemi þess skapar
mikla umferð erlendra viðskiptaað-
ila og tæknimanna á sviði matvæla-
iðju sem koma til með að notfæra
sér þjónustu flugfélaganna, hótela,
veitingastaða og bílaleiga svo nokk-
uó sé nefnt.
Vítamínsprauta í staðnað
atvinnu- og viðskiptalíf
Flutningur Islenskra sjávarafurða hf.
norður myndi virka sem vítamín-
sprauta á staðnað atvinnu- og við-
skiptalíf á Akureyri. Athafnalíf sem
muna má fífil sinn fegurri áður en
fjöldi verkefna hvarf af sjónarsvið-
inu með tilheyrandi gjaldþrotum og
erfiðleikum einstaklinga og íjöl-
skyldna við að sjá sér og sínum far-
borða. Af þessum ástæðum hófu
forráðamenn Akureyrarbæjar
óformlegar viðræður við forsvars-
menn Islenskra sjávarafurða hf.
þegar ljóst var á síðasta hausti að
fyrirtækið myndi verða að flytja úr
húsnæðinu í höfuðborginni.
*
IS vill eðlilega auka
viðskipti sín
Ljóst er að hluti viöræðna bæjaryfir-
valda á Akureyri við forsvarsmenn
Islenskra sjávarafurða hf. fólst í því
hvort fyrirtækið fái möguleika til
þess að auka viðskipti sín með því
að taka að sér sölustarf fyrir Útgerð-
arfélag Akurcyringa hf. Þar er
vissulega um viðkvæmt mál að
ræða. Útgerðarfélag Akureyringa
hf. hefur lengi átt viðskipti viö
Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna hf.,
hinn stóra útflutningsaðilann á sviði
sjávarafuróa hér á landi. Útgerðarfé-
lag Akureyringa hf. er einnig stærsti
eignaraðili að Sölumiðstöðinni með
tæplega 13% eignaraðild að fyrir-
tækinu. Árum saman voru útflutn-
ingsmál sjávarútvegsins í nokkuð
föstum skorðum; skipt á milii Sölu-
mióstöðvarinnar og Sjávarafuróa-
deildar Sambands íslenskra sam-
vinnufélaga. Eftir að Sambandið
hætti starfsemi voru Islenskar sjáv-
arafurðir hf. stofnaðar á grunni sjáv-
arafurðadeildarinnar og viðskipta-
sambanda hennar. Aó undanförnu
hefur þetta viðskiptaumhverfi nokk-
uð verið að breytast. Stórir útvegs-
aðilar hafa flutt viðskipti á milli
söluaðila og ný útflutningsfyrirtæki
hafa verið að eflast. I því sambandi
má nefna Seif hf. á Grandagarði í
Reykjavík auk minni fyrirtækja.
Auðvelt er aó skilja áhuga forráða-
manna Islenskra sjávarafurða hf.
fyrir viðskiptum við Útgeróarfélag
Ákureyringa hf. og að þeir láti hann
í ljósi í viðræðum við bæjaryfirvöld
á Ákureyri. Raunar væri óeðlilegt ef
þeir legðu ekki mikla áherslu á það
mál. Engar ákvarðanir hafa enn ver-
ið teknar hvað þessi viðskipti varð-
ar, hvort sölustarfsemi Útgerðarfé-
lagsins muni alfarið flytjast til ís-
lenskra sjávarafurða hf. komi fyrir-
tækið til bæjarins eða hvort slíkt
muni verða á lengri tíma. Líklegt er
að um viðskipti þcssara fyrirtækja
vcrði að ræða flytjist Islenskar sjáv-
arafurðir hf. norður enda leggja for-
svarsmenn þess höfuðáherslu á það
mál.
Evrópumarkaður einnig
mikilvægur
Dregin hefur verið í efa hæfni Is-
lenskra sjávarafurða hf. til þess að
selja afurðir Útgerðarfélags Akur-
eyringa hf. á sama hátt og Sölumið-
stöð hraðfrystihúsanna hf. hefur gert
og bent á að ekki sé um hagsmuni
Útgerðarfélagsins að ræóa að velja
sér nýjan söluaðila. Hefur fram-
kvæmdastjóri Útgerðarfélagsins
meðal annars vióraó þær hugmyndir
í blaðagrein nýverið. Eflaust gengur
honum gott eitt til en hann lítur þó
fyrst og fremst á málið frá sjónar-
hóli Sölumiðstöðvarinnar, sem eðli-
Þórður Ingiinarsson.
Slæmt væri fyrir Ak-
ureyri ef tilfinningar
og pólitískt umrót
yrðu til þess að spilla
því tækifæri til efl-
ingar atvinnulífs sem
nú er til umræðu. Ef
svo fer má spyrja
hvað Akureyringar
vilji gera til eflingar
atvinnulífs í framtíð-
inni.
lega vill verja viðskiptasambönd sín
á Akureyri. Ef litið er til starfssögu
íslenskra sjávarafurða hf. þau ár
sem fyrirtækið hefur starfað og for-
vera þess er ljóst að það er fullgild-
ur jafnoki annarra sölufyrirtækja á
sviói sjávarafurða hér á landi. Með
starfsemi dótturfyrirtækjanna; Ice-
land Seafood Corporation í Banda-
ríkjunum og Iceland Seafood Ltd. í
Evrópu hafa Islenskar sjávarafurðir
hf. skapað sér traust vióskiptasam-
bönd beggja vegna Atlantshafsins.
Þótt Bandaríkjamarkaður sé ís-
lenskri útvegsstarfsemi mikilvægur
nú og komi til með að verða það í
framtíðinni þá veróur einnig aó
meta mikilvægi hins evrópska
markaóar nú þegar Island hefur
gerst aðili að Evrópska efnahags-
svæóinu.
Vaxtakostnaður Akureyr-
arbæjar sambærilegur við
rekstur leikskólanna
Þá er komið að hinu málinu sem
fallið hefur í sameiginlegan farveg
fréttaflutnings og umræðna á Akur-
eyri að undanfömu en það er hugs-
anleg sala hlutabréfa Akureyrarbæj-
ar í Útgerðarfélagi Akureyringa hf.
Umræður um sölu hlutabréfanna
fóru af stað í tengslum við fjárhags-
áætlun Akureyrarbæjar fyrir nýlega
byrjað ár. Á undanförnum árum
hefur verið bent á að sala á eignum
bæjarins, þar á meðal hlutabréfin í
Útgerðarfélaginu, muni auka bæn-
um framkvæmdafé auk þess að
minnka skuldir og létta af fjár-
magnskostnaði. Vaxtagreiðslur bæj-
arsjóðs Akureyrar eru áætlaðar um
47 milljónir króna á þessu ári.
Vaxtagreiðslur Framkvæmdasjóðs
Akureyrarbæjar eru áætlaðar 54,6
milljónir. Samanlagt þýðir þetta
rúmar 100 milljónir króna í vaxta-
greiðslur eða álíka upphæð og kost-
ar að reka alla leikskóla bæjarins og
skóladagheimili. Af þessum ástæð-
um og einnig með hliðsjón af erfiðri
stöðu atvinnulífsins í bænum hefur
bæjarstjórn nú rætt hugmyndir um
að selja af eignum bæjarins þar sem
hlutur hans í Útgerðarfélaginu er
ekki undanskilinn. Ætíð má deila
um hvort hagkvæmt eða nauðsyn-
legt er fyrir sveitarfélög að eiga
stóra hluta í atvinnufyrirtækjum.
Hvað sem skoðunum manna á því
líður má benda á að efling atvinnu-
lífs getur meðal annars verið fólgin í
því að losa fjármuni með sölu á
eignarhlutum í vel reknum fyrir-
tækjum og nýta þá til þess að auðga
atvinnustarfsemi með öðrum hætti.
Þetta sjónarmið hafa bæjaryfírvöld á
Akureyri nú til íhugunar auk þess að
sala eigna myndi létta verulega á
þeim fjármagnskostnaði, sem skap-
ast hefur á undanfömum árum þegar
Akureyrarbær hefur þurft aö taka
fjármuni að láni til að hjálpa stórum
og fjölmennum vinnustöðum af stað
að nýju eftir áföll í hinu erfiða ár-
ferði að undanrförnu.
Miklir hagsmunir í húfl
Útgerðarfélag Akureyringa er traust
fyrirtæki sem sýnt hefur góða af-
komu. Af þeim ástæðum þykja
hlutabréf í því eftirsóknarverð þegar
um fjárfestingarkosti er að ræða.
Engum þarf að koma á óvart þótt
ýmsa fýsi að festa kaup á hlutabréf-
um Akureyrarbæjar í Útgeróarfélag-
inu verði þau boðin til sölu, annað-
hvort öll eða hluti þeirra. Einnig er
Ijóst að hugmyndir um að flytja Is-
lenskar sjávarafurðir hf. til Akureyr-
ar ýta undir áhuga ýmissa afla um
kaup á hlutabréfum fyrst umræða
um sölu þeirra er komin fram á
sama tíma. Aöilar tengdir Sölumið-
stöð hraófrystihúsanna hf. vilja ná
meirihlutaeign í Útgerðarfélaginu
með það fyrir augum að tryggja
áframhaldandi viðskipti við hana.
Fjárfestar á Akureyri og bæjarbúar
almennt hafa eðlilega hug á aö
halda aflakvóta og vinnslustarfsemi
Útgerðarfélagsins í bænum og
tryggja með því atvinnu fyrir bæjar-
búa og tekjur til bæjarfélagsins í
heild. Málið hefur verið lagt upp á
þann hátt í fréttum og umræða
manna á meðal er nú með þeim blæ
að sala hlutabréfa Akureyrarbæjar í
Útgeröarfélagi Akureyringa hf. sé
forsenda þess að íslenskar sjávaraf-
urðir hf. flytji starfsemi sína til Ak-
ureyrar. Svo er ekki, heldur leggja
forystumenn Islenskra sjávarafurða
hf. áherslu á viðskipti við það.
Eins og bent er á hér að framan
eiga hugmyndimar um flutning Is-
lenskra sjávarafurða hf. og sölu
hlutabréfa í Útgeröarfélagi Akureyr-
inga hf. sinn upprunann hvor. Verói
af flutningi á viðskiptum Útgerðar-
félagsins frá Sölumiðstöðinni yfir til
Islenskra sjávarafurða hf. í tengslum
við hugsanlegan flutning fyrirtækis-
ins norður hafa bæjaryfirvöld á Ak-
ureyri möguleika til að stýra þeim
breytingum án þess að þurfa að selja
hlutabréfin í hendur annarra aðila. Á
meðan bærinn á meirihlutaeign í Út-
gerðarfélaginu er slík ákvörðun í
raun bæjaryfirvalda. Af þeim ástæð-
um láta þau nú kanna hvaða áhrif
slíkar breytingar auk þess að breyta
eignarhaldi á fyrirtækinu geti haft á
starfsemi þess í framtíðinni. Niður-
stöður þeirrar könnunar munu án
efa veróa hafóar til hliösjónar þegar
ákvarðanir verða teknar í þessu
mikilvæga máli fyrir Akureyringa.
Á þann hátt eru fagleg vinnubrögð
ástunduð í þessu máli í stað tilfinn-
inga sem einkennt hefur hina al-
mennu umræðu að undanfömu.
Slæmt væri fyrir Akureyringa ef til-
finningar og pólitískt umrót yrðu til
þess að spilla því tækifæri til efling-
ar atvinnulífs sem nú er til umræðu.
Ef svo fer má spyrja hvað Akureyr-
ingar vilji gera til eflingar atvinnu-
lífs í framtíðinni. Flutningur Is-
lenskra sjávarafurða hf. norður
varðar ekki einungis hagsmuni
þeirra er á Akureyri búa heldur allra
Norðlendinga. í þessu máli em því
miklir hagsmunir í húfi sem ekki má
fórna á altari tilfinninga eða pólit-
ískra væringa.
Þórður Ingimarsson.
Höfundur er blaðamaður á Akureyri.
LfTTi
: .
Vinningstölur
miövikudaginn:
18.01.1995
VINNINGAH
6 af 6
a
5 af 6
bónus
m
5 af 6
4 af 6
m
3 af 6
+bónus
FJÖLDI
VINNINGA
8
208
669
UPPHÆÐ
A HVERN VINNING
44.050.000
2.906.174
27.150
1.660
220
fjjVinningur: er tvöfaldur næst
Aðaitölur:
BÓNUSTÖLUR
®(§)©
Helldarupphæð þessa viku
47.665.834
á ísi.: 3.615.834
UPPLYSINQAR, SlMSVARI 91- 68 1311
LUKKULlNA 99 10 00 • TEXTAVARP 451
UIB1 MGO rvmRV«B» UM PRENTVILLUR