Dagur - 20.01.1995, Side 11
Föstudagur 20. janúar 1995 - DAGUR - 11
lega í upphafí nýs árs og varð að
gangast undir erfióa aðgerð þá
vissu þeir sem til þekktu að tví-
sýnt var um árangur og svo fór, að
þetta mikla hraustmenni sem á ár-
um áður vílaði ekkert fyrir sér,
varð að lúta í lægra haldi fyrir al-
mættinu og er farinn í þá ferð,
sem fyrir öllum liggur fyrr eða
síðar. Við vitum að atorkumaóur-
inn Hólmi hefði illa sætt sig við
það að vera rúmliggjandi á stofn-
un, þess vegna er auðveldara að
sætta sig við, að hann fékk að fara
ferðina óhjákvæmilegu með þeirri
reisn, sem alla tíð einkenndi hann.
Vissan um, að samhent og hjálp-
fús börn hans myndu sjá um móð-
ur sína, eiginkonu hans og lífs-
förunaut, hefur örugglega létt hon-
um róðurinn síðustu dægur þessa
lífs. Enda eru afkomendurnir blíð-
lynt, ósérhlífíð og hugulsamt fólk,
rétt eins og alla foreldra dreymir
um.
Hólmsteinn var svo gæfusam-
ur, ungur maður, að hitta á skips-
fjöl á leið til Ameríku unga konu,
Margréti Sveinbjörnsdóttur, sem
alla tíð síðan hefur staðið sem
klettur við hlið hans. Þau sem
voru að ferðast til fyrirheitna
landsins á ólíkum försendum, ann-
að til aó fræðast um niðursuðu á
vegum KEA og hitt til að setjast
að til frambúóar í Ameríku. Or-
lögin gripu óvænt inn í vegna
þess, að Margréti var meinað um
landvistarleyfi fyrir vestan. Þar
misstu Bandaríkjamenn af góðum
borgara og Akureyringum grædd-
ist að sama skapi mikil kosta-
manneskja, þar sem hún fer. Þessi
sjóferð færði þau saman og síðan
hafa þau siglt um lífsins ólgusjó
án þess að steyta á skeri né lenda í
stærri brotsjóum enda samhent í
sókninni og tilbúin að lcita vars
eða snúa í örugga höfn áður en í
óefni var komið.
Fyrst í stað bjuggu ungu hjónin
í Eiðsvallagötu 24 hjá foreldrum
Hólmsteins en byggðu síðan
glæsilegt hús við Bjarmastíg á
Akureyri þar sem þau ólu upp
börnin fjögur, Erlu, Hugrúnu,
Hólmstein og Margréti. Ohætt er
að fullyrða að Bjarmastígur 5 var
eitt glæsilegasta einbýlishús, sem
reist var á Akureyri á þessum tíma
hafta og skorts á nauðsynlegu
byggingarefni. Þetta kom þó ekki
í veg fyrir að í hverju barnaher-
bergi var komið fyrir inn í skáp
vaski og spegli svo ekki þyrfti að
slást um bununa fyrir svefninn,
þegar þrífa þurfti andlit og hendur
samtímis hjá öllum hópnum. Enda
var þrifnaóur í fyrirrúmi hjá þeim
hjónum og góðir sióir ástríkra
uppalenda. Þetta hús var vandað
að allri gerð og þar bjó vandað
fólk. Þar var gott að koma og
leika vió börnin, þiggja veitingar
húsmóðurinnar og finna hlýjan
andann er þar ríkti innan veggja.
Hólmi var þó sjaldnast heima
enda umsvif hans mikil vió stofn-
un fyrirtækisins, sem hann byggði
upp nánast meó berum höndum og
af eigin hugviti. Hugljúft er þó aó
minnast hinna fjölmörgu ' fjöl-
skylduboða þar sem ánægjan
skein úr hverjum hans skarpa and-
litsdrætti, er hann leit yfir barna-
hópinn eóa bauð upp á góógæti
sem sjaldan sást annars.
Hió mikla starf, sem hann vann
í sínu bæjarfélagi, verður seint
þakkað og aldrei metið að verð-
leikum. Hólmsteinn stofnaði á
krepputímum fyrirtæki, Möl og
sand, sem hefur í gegnum árin
borið dugnaði hans og festu
áþreifanleg merki, orðió eitt öfl-
ugasta byggingarfyrirtæki utan
Reykjavíkur. Urlausnir hans á
tæknivanda, þegar tól og tæki nú-
tímans, vökvatékkar, rafdrif og
tölvuvogir voru ekki einu sinni
draumur, báru hugviti hans gott
vitni, þungavinnuvélar og steypu-
fyrirtæki margs konar er léttu
störfin hannaði hann og lét smíóa.
Möl og sandur á Akureyri mun
njóta þess um ókomin ár að
grunnurinn var vel byggður og
uppistöðurnar traustar, stjómað af
skynsemi og öryggi, þar sem ekki
var tjaldað til einnar nætur heldur
reynt að sjá fyrir um framtíóina og
ákvarðanatökur ekki unnar í
flaustri. Þessi arfur er enn til stað-
ar í fyrirtækinu og mun skapa
mörgum bæjarbúanum störf um
ókomin ár.
Það var líklega ekki beinlínis
með blákaldan hag fyrirtækisins
fyrir brjósti sem hann réð til sín í
sumarvinnu unga bróóursyni sína
hvem af öðrum, heldur góð-
mennskan og frændræknin, sem
var svo rík í honum. Þar hófu
frændurnir „unglingavinnuna", sín
fyrstu launuðu störf og á Einingar-
taxta, þó efast mætti um réttmæti
þess, að svo vel væri greitt fyrir.
En frændi sætti sig ekki við neitt
droll á mönnum. Það, sem hann
treysti okkur til aö gera, urðum
við að inna af hendi samvisku-
samlega enda ekki látnir í verk,
sem ofbauð neinum okkar líkam-
lega, stælti frekar og þroskaði.
Hann kenndi okkur að bera virð-
ingu fyrir yfirboðara í starfi og
gerði okkur kleift að aura fyrir
veturinn. Hann var einnig óragur
að ráöa til sín í vinnu menn, sem á
einhvern hátt höföu farið út af
sporinu í lífi sínu. Vildi gefa þeim
færi á að rétta sig við, ná tökum á
sjálfum sér og leyfði þeim að
finna, að þeir væru velkomnir
þrátt fyrir sín hliðarspor. Hann
sýndist oft hrjúfur hið ytra en
hjartagæskan leyndi sér ekki hið
innra. Hann var ljúfmenni, sem
barst ekki á í lífinu né gortaði af
eigin ágæti, lét verkin tala og vann
sitt starf hreinskiptinn og sam-
viskusamur alla tíó.
Umhyggja Hólma frænda fyrir
bræðrum sínum var einstök og
missir Jóhanns og Jóns föður okk-
ar er mikill. Þeir nutu hjálpar eldri
bróður, sem ætíð var reiðubúinn
að leggja yngri bræðrum lið hve-
nær sem þörf var á. Hafi hann
þökk fyrir umhyggjuna.
Við viljum votta Margréti,
börnum, tengdabörnum og öllum
aðstandendum okkar innilegustu
samúó. Megi guðs blessun um-
lykja ykkur öll.
Gísli, Egill og fjölskyldur.
Það er með sorg í hjarta sem ég
sest niður og skrifa þessar fáu lín-
ur til minningar um Hólma frænda
minn, Hólma stóra, eins og við
frændsystkinin kölluðum hann til
aðgreiningar frá syni hans með
sama nafni.
Það er með trega í hjarta sem
hugur minn leitar yfir farinn veg.
Minningar eru margar sem ég á
um þennan einstæða föðurbróður
minn. Síðasta minning mín af
Hólma frænda á ég frá sl. sumri
þegar við hittumst á ættarmóti
Sigríðar ömmu og Egils afa. Þaó
var ánægjulegur endurfundur
þriggja bræðra ásamt rnökum,
börnum, tengdabörnum, barna-
börnum og barnabarnabörnum.
Hólmi stóri var sjálfum sér líkur.
Hávaxinn og hárprúður karlmaður
með beint bak og öruggt fas. Úr
augunum skein hlýja og vægt bros
lék um varir hans undir gránandi
skeggi.
Það sem vakti sérstaka gleði
með mér á ættarmótinu, fyrir utan
að sjá aftur allt frændfólk mitt, var
að endurupplifa þá hlýju sem
ávallt ríkti á milli þeirra hjóna,
Margrétar og Hólma. Það var
einnig fögur sjón að sjá bræöurna
þrjá sitja í sátt og samlyndi og
gleðjast hver með öðrum nú eins
og svo oft áður. Þaó gerði mig
stolta sem móóur að dóttir mín
sem ber langömmunafnið sitt,
fékk að upplifa gleðina með að
vera stórfjölskylda, að vera ein í
hópi meðal sinna. Fyrir mér hefur
aðalsmerki þessarar fjölskyldu
alltaf verið samheldni og gagn-
kvæm virðing. Þaö sannaði sig á
ættarmótinu.
Það eru mörg árin síóan Egill
afi og Sigríður amma byggðu hús-
ið við Eiðsvallagötu 24 ásamt son-
um sínum þremur. Húsið sem síð-
ar varð fæðingarstaður og heimili
flestra okkar bræðrabarnanna um
lengri tíma eða skemmri tíma. Á
þremur hæðum skiptu sér þrjár
fjölskyldur og deildu sorg og gleði
jafnt hversdags sem á hátíðisdög-
um. Það er af því sem Hólmi
frændi hefur verið hluti af lífi
mínu allt frá fæðingu. Hann var
virkur í uppeldi mínu með því að
vera hluti af reynsluheimi mínum.
I húsinu við Eiðsvallagötu
hafði hver og einn hlutverk. Sem
elsti sonur og bróðir bar Hólmi
frændi eitt stærsta hlutverkið í
fjölskyldunni. Hlutverk sitt bar
hann með sóma. Kaarlmannleg
reisn og öruggt fas var honum
sennilega í blóð borið á sama hátt
sem hæverskan og yfirlætisleysið.
Það sem mér þótti vænst um í fari
Hólma frænda míns var hæfni
hans til að leiða hjá sér það sem
miður fór hjá okkur krökkunum
og geta hans til að hæla eða hrósa
okkur þegar við gerðum vel.
Það var ekki einungis hlutverk
sitt sem elsti sonur og bróðir sem
Hólmi frændi bar með sóma.
Hann bar einnig nafnið sem við
frændsystkinin gáfum honum með
virðingu. Hólrrii stóri var stór
bæði í hugsun og verki. í hugsun
var Hólmi frændi gjöfull maður,
hlýr í viðmóti, hógvær og yfirlæt-
islaus um eigin hagi. í verki var
hann hugsuður, verkhygginn og
iðjusamur framkvæmdamaður allt
frarn á síðasta dag.
Frá því aö ég man eftir hafa
þau hjónin, Margrét og Hólmi,
verið eitt. Samband þeirra hjóna
var byggt á gagnkvæmri virðingu
og hlýju. Allar götur frá því að ég
var bam til þessa dags tóku þau á
móti mér og systur minni með
opnum faömi og hlöðnu borði af
góðgæti úr eldhúsinu hennar Mar-
grétar sem Hólmi frændi elskaði
að bjóða með sér af.
Hólmi frændi hefur nú kvatt
þennan heim, en minning hans lif-
ir með okkur sem þekktum hann.
Elsku Margrét, Erla, Hugga,
Hólmi og Didda, ég og Sigríður
systir mín, vottum ykkur og fjöl-
skyldum ykkar okkar innilegustu
samúð á þessari sorgarstund.
Fanny frænka.
Birting afmælis- og minningargreina
Athygli lesenda er vakin á því aö Dagur birtir afmælis- og
minningargreinar án endurgjalds.
Æskilegast er aó greinamar berist blaóinu minnst tveimur
virkum dögum fyrir birtingardag eða aó látið sé vita af
væntanlegum greinum í tíma. Þannig þarf grein sem birt-
ast á í þriðjudagsblaði að berast blaóinu fyrir hádegi
föstudag, grein í miðvikudagsblað fyrir hádegi mánudag,
o.s.frv. Helst þurfa greinamar aó vera á tölvutæku formi
og skilyrði er aó handrit séu vélrituð.
Dagur birtir einnig frumort afmælis- og minningarljóð og
gilda sömu reglur um þau og greinamar.
Ritstj.
Helgaitilboð
Hangiframpartar með beini
í bitum kr. 598 kg
Kjúklingur og franskar kr. 995
Hamborgarar 2 stk. með brauði kr. 195
Kynnum Aquarius föstudagtil kl. 19
Útsala í fatadeild
Afgreiðslutímar:
Mánud.-föstud. kl. 10-19.30 • Laugard. ki. 10-18
LÉTTIR k Aðalfundur
^^KUREYR^/ Hestamannafélagsins Léttis
verður haldinn í Skeifunni sunnudag- inn 29. janúar kl. 13.30.
Fundarefni: Venjuleg aðalfundarstörf. Lagabreytingar. Önnur mál.
Stjórnin.
n
1
3
HOTEL KEA
Laugardagskvöldið 21. janúar
Hin frábæra hljómsveit
Geirmundar Valtýssonar 1
...aldrei betri
Laugardagstilboð
Freyðandi humarsúpa
Innbakaðar lambalundir með sveppamauki og madeirasðsu
Grand marnierfrauð ísúkkulaðibolla
Karl Olgeirsson Ieikur fyrir matargesti
Frumsýningargestir athugið
Opnum kl. 18.00 og höldum borðum
á meðan sýningu stendur.
Þorraveislan byrjar í dag
Okkar margrómaði þorramatur í trogum alla helgina
Verð aðeins kr. 990.