Dagur - 20.01.1995, Side 15
Föstudagur 20. janúar 1995 - DAGUR -15
IÞROTTIR
5ÆVAR HREIÐARSSON
KA í úrslit annað árið í röð
- eftir sigur á Gróttu í bikarnum í gærkvöldi
KA-menn eru komnir í úrslit
bikarkeppni HSÍ annað árið í röð
eftir auðveldan sigur á Gróttu í
gærkvöldi. Jafnræði var með lið-
unum framan af en KA hafði yfir
10:7 í leikhléi. KA hafði mikla
yfirburði í seinni hálfleik og vann
leikinn 25:16. KA mætir íslands-
meisturum Vals í úrslitaleik bik-
arkeppninnar í Laugardalshöll 4.
febrúar nk.
„Leikurinn var eins og við var
að búast. Þetta var basl í byrjun en
síðan sprungu þeir í síðari hálf-
leik. Mér líst mjög vel á að mæta
Val í úrslitum en það er ljóst að
við verðum að leika betri sóknar-
leik en við höfum verið að gera
undanfarið og halda áfram að
leika sterka vörn. Við þurfum allir
að ná toppleik ef við ætlum að ná
að leggja þá að velli,“ sagði
Patrekur Jóhannesson, leikmaður
KA, eftir leikinn í gærkvöldi.
KA átti í miklum vandræðum
með að finna taktinn framan af
leiknum í gær. Gróttumenn komu
vel stemmdir og böróust af mikl-
um krafti. Heimamenn höfðu yfir
7:5 eftir rúmlega tuttugu mínútna
Körfuknattleikur - úrvalsdeild:
Stólarnir sterkir
- sigruðu Snæfell í Stykkishólmi
Tindastóll vann sannfærandi
sigur á Snæfelli í Stykkishólmi í
gærkvöld, 88:75. Leikurinn var
fálmkenndur og leikmenn
beggja liða gerðu þó nokkuð af
mistökum. Fyrri hálfleikur var
jafn og staðan 43:43 í leikhléi en
eftir það tóku Stólarnir völdin.
Handknattleikur:
íkvöld
í kvöld ki. 20.00 verður mik-
ilvægur leikur í toppslag 2.
dcildar karla í handknattleik.
Þórsarar taka á móti Eyja-
mönnum í íþróttahöllinni á
Akureyri og má búast við að
Þórsarar fái meiri keppni frá
þeim heldur en síðustu
tveimur andstæðingum sín-
um, Fjölni og Kcflavík.
Leikur þessi var á dagskrá
sl. föstudag en var frestað
vegna veðurs. Þórsarar hafa
fengið nægan tíma til undir-
búnings fyrir þennan leik og
má segja að síðustu tvo leiki
hafi þeir notaó til að fínpússa
leikkerfi sín.
Jafnræði var með liðunum all-
an fyrri hálfleik og var nánast
jafnt á öllum tölum. Heimamenn
léku harðan varnarleik og leik-
mönnum Tindastóls gekk illa að
hrista þá af sér.
Eins og venjulega voru Hólm-
arar ákveðnir í að næla i sín fyrstu
stig í deildinni en samkvæmt
venju klikkuðu þeir um miðjan
seinni hálfleikinn og eftir að jafnt
var 55:55, sigu gestirnir framúr í
rólegheitum. Ahorfendur kipptu
sér því ekkert upp við þetta og það
sem eftir lifði leiks jókst forskotið
jafnt og þétt.
Sá maður sem kom hvað mest
á óvart var Amar Kárason sem
spilaði mjög vel og var maður
leiksins. Torrey John tróð oft með
tilþrifum og skemmti áhorfendum
en Arnar skilaði sínu hlutverki
fullkomnlega, bæði í vöm og
sókn. Páll Kolbeinsson kom öðru
hvoru inná og prjónaði sig þá í
gegnum vörnina.
Stig Snæfells: Ray Hardin 18, Karl Jóns-
son 17, Tómas Hermannsson 10, Daði
Sigurþórsson 9, Hjörleifur Sigurþórsson
8, Atli Sigurþórsson 8, Leifur Sveinsson
3, Jón Þór Eyþórsson 2.
Stig Tindastóls: Torrey John 25, Amar
Kárason 17, Páll Kolbeinsson 15, Hinrik
Gunnarsson 12, Ómar Sigmarsson 10,
Atli Þorbjömsson 3, Halldór Halldórsson
2, Láms Pálsson 2, Óli Barðdal 2.
Körfuknattleikur - úrvalsdeild:
Patrekur Jóhannesson og félagar
hans í KA eru komnir í úrslit bik-
arsins.
leik en KA gerði fimm mörk í röð
og leiddi 10:7 í leikhléi.
Leikmenn KA komu ákveðnari
til leiks eftir leikhlé, skoruðu hvert
markið af öðru og skyndilega var
staðan orðin 15:8 KA í vil. Eftir-
leikurinn var auðveldur og örugg-
ur sigur KA í höfn, 16:25.
Ami Stefánsson liðsstjóri KA
var að vonum ánægöur eftir leik-
inn. „Mér líst mjög vel á leikinn
gegn Val. Við erum með öflugan
hóp og menn eru reynslunni ríkari
en í fyrra. Við vorum svekktir eft-
ir leikinn gegn FH í fyrra og nú
ætlum við okkur að gera betur.
Valsarar eru góðir en við erum
hungraðir í titil og það hjálpar
okkur,“ sagði Ami. SV
Mörk Gróttu: Kovacevik 5/2, Davíð 3,
Sindri, Einar og Jón 2 hver, Þórður og
Jens 1 hvor. Sigtryggur Albertsson varði
20 skot.
Mörk KA: Valdimar 8/4, Leó Öm 6, Jó-
hann 5, Valur, Patrekur og Atli 2 hver.
Sigmarvarói 15 skot.
Tíu stiga sigur
- Grindvíkinga á Þórsurum
Þórsarar töpuðu fyrir Grindvík-
ingum í úrvalsdeildinni í körfu-
knattleik í gærkvöld með tíu
stiga mun, 101:91. Leikurinn var
hraður og fjörugur og ekki var
mikinn getumun að sjá á liðun-
um og sennilega var það liðs-
breiddin sem færði gestunum
sigurinn.
Þórsarar byrjuðu af krafti,
Kristinn Friðriksson setti niður
fimm fyrstu stigin og heimamenn
höfðu forustuna framan af leik.
Eftir það var sem Þórsarar ætluðu
að skora þrjú stig í hverri sókn á
meðan Grindvíkingar voru þolin-
móðari og komust hægt og bítandi
framúr. Þeir spiluðu hraðan sókn-
arleik og þegar Guðjón Skúlason
hrökk í gang gekk allt upp hjá
þeim. Sandy Anderson var yfir-
burðarmaður hjá Þórsurum og
hafði skorað 21 stig þegar flautað
var til leikhlés en þá var staðan
58:50 fyrir gestina.
Kristinn small í gang í þriggja
stiga skotunum eftir hlé og á tíma-
bili voru Þórsarar nálægt því að
jafna og munaði minnst þremur
stigum. Gestimir settu þá aukinn
kraft í sóknarleikinn og ekki bætti
það stöðu Þórsara að dómaramir
virtust dæma öll vafaatriði Grind-
víkingum í vil. Góóur leikur Krist-
ins og Sandy dugði Þórsurum
skammt því kæruleysið var mikið
inn á milli. Lokastaðan var sem áð-
ur segir, 101:91, fyrir Grindavík.
Stig Þórs: Sandy Anderson 33, Kristinn
Friðriksson 25, Konráð Óskarsson 10,
Einar Valbergsson 8, Hafsteinn Lúðvíks-
son 7, Birgir Birgisson 6, Bjöm Sveins-
son 2.
Stig Grindavíkur: Guðmundur Braga-
son 27, Guójón Skúlason 24, Nökkvi
Jónsson 19, Marel Guólaugsson 11,
Franck Booker 8, Helgi Guðfinnsson 4,
Unndór Sigurðsson 3, Bergur Hinriksson
3, Pétur Guðmundsson 2.
Dómarar: Einar Einarsson og Björgvin
Rúnarsson.
Skíði - alpagreinar:
Landsliðsmenn í hörkuformi
- Kristinn sigraði á sterku móti og hinir bættu sig allir
Strákarnir í íslenska karlalands-
liðinu í aplagreinum á skíðum
hafa staðið í ströngu undanfarna
viku. í kringum sfðustu helgi
kepptu þeir á fimm mótum og
bættu allir árangur sinn svo um
munar. Kristinn Björnsson frá Ól-
afsfirði var þó mest í sviðsljósinu
en hann sigraði í risasvigi á opna
hollenska meistaramótinu sem
fram fór í Flaschau í Austurríki
og varð Qórði í sviginu.
Kristinn Björnsson hefur aldrci
verið betri.
Kristinn naut góðs af því að vera
annar í rásröðinni í risasviginu og
skaut mörgum sterkum skíðamönn-
um aftur fyrir sig. „Þetta er lang-
besti árangur minn hingað til. Eg
var með 42 punkta á lista og fékk
þama 14,“ sagði Kristinn þegar
Dagur náði tali af honum í Austur-
ríki í gær. Vilhelm Þorsteinsson og
Gunnlaugur Magnússon frá Akur-
eyri og Amór Gunnarsson frá Isa-
firði stóðu sig einnig vel á mótinu.
Vilhelm varð í 18. sæti, tveimur
sekúndum á eftir Kristni. Hann fékk
39 punkta og bætti árangur sinn.
Amór varð í 26. sæti og fékk 51
punkt og Gunnlaugur í 35. sæti með
62 punkta og er það besti árangur
hans til þessa.
Daginn eftir kepptu þeir síðan í
svigi þar sem Kristinn endaði í
fjórða sæti og nældi sér í 20 punkta,
sem er einnig hans besti árangur en
fyrir var hann með 30 punkta í svig-
inu. Vilhelm endaði í 14. sæti og
fékk 40 punkta. Á mánudag og
þriðjudag kepptu þeir síðan í stór-
svigi við erfiðar aöstæður og gekk
ekki jafn vel.
Framundan hjá þeim félögum er
svigmót í dag en þeir undirbúa sig
nú af kappi fyrir Heimsmeistara-
mótið, sem haldið verður í Sierra
Nevada á Spáni í lok mánaðarins.
„Það væri allt í lagi að gera eitthvað
svipað í svigmótinu á föstudag (í
dag). Þá þarf ég annað álíka mót
með í risasviginu til að koma mér
lægra,“ sagði Kristinn. „Þessi ár-
angur skilar sér í betra startnúmeri á
mótum og kemur manni áfram á
sterkari mótum auk þess sem maður
fær meiri umfjöllun og árangurinn
meira metinn,“ sagði Kristinn.
Hann segir mjög gott færi í Austur-
ríki um þessar mundir. „Það er nóg-
ur snjór og frábært færi,“ sagði
Kristinn að lokum og Vilhelm tók
undir það. „Það er óhætt að segja að
þessi dvöl héma hafi skilað sér.
Okkur er búið að ganga mjög vel og
höfum bætt okkur í öllum greinum.
Við emm greinilega allir í hörku-
formi,“ sagði Vilhelm. Hann virtist
ekki allt of bjartsýnn á að Heims-
meistarmótið yrði haldið á áætluð-
um tíma en mikið snjóleysi er í Si-
erra Nevada. „Eins og staðan er í
dag þá hafa þeir eina brekku og það
dugar engan veginn til að halda
bmn, risasvig, svig og stórsvig fyrir
karla og konur. Samkvæmt því sem
við heyrðum síðast þá er verið að
íhuga að fá frestun á mótinu þangað
til í mars,“ sagði Vilhelm. En ef
ekki tekst að halda mótið þá verður
því frestað fram til næsta árs. Strák-
amir munu sennilega halda áleiðis
til Spánar eftir helgi með stuttum
stoppum í Frakklandi og Andorra til
að æfa og keppa. „Þetta er svo
hrikalega langt að fara að við verð-
um að taka þetta í litlum skömmt-
um,“ sagði Vilhelm að lokum.
Vilhelm Þorsteinsson hefur bætt sig
að undanförnu.
cn
QL
>
LL
<
QL
<
QL
LU LL
—i LLi