Dagur - 28.02.1995, Qupperneq 7
Þriðjudagur 7. febrúar 1995 - DAGUR - 7
Handknattleikur - úrslitakeppnin:
KA átti aldrei möguleika
gegn sterkri Stjörnunni
Stjömumenn mættu mjög
ákveðnir til leiks í gærkvöldi
þegar KA sótti þá heim í úrslita-
keppninni í Nissandeildinni í
handknattleik. KA átt alltaf á
brattann að sækja og náði aldrei
að sýna sinn rétta styrk, hvorki í
sókn né vörn. Leikurinn var æsi-
spennandi framan af, staðan í
Ieikhléi var 12:10 heimamönn-
um í vil, en þegar líða fór á seig
Stjarnan fram úr og vann ömgg-
an og sanngjarnan sigur, 29:24.
Annar leikur Iiðanna verður í
KA-heimilinu á miðvikudag og
vinni KA þá verður þriðji leik-
urinn í Asgarði á föstudags-
kvöldið.
„Við vorum algerlega á hælun-
um allan leikinn. Ég veit ekki
hvað var að en mér fannst eins og
HANDKNATTLEIKUR:
Úrslitakeppni 8-lið:
Stjaman-KA
Valur-Haukar
UMFA-FH
29:24
23:22
20:14
27:26
KÖRFUKNATTLEIKUR:
Únalsdeild:
Skallagrímur-Þór 105:103
Haukar-Njarðvík 93:114
Keflavík-Tindastóll 99: 76
ÍR-Grindavik 95: 88
Valur-KR 79: 93
ÍA-SnæfelI 96: 80
Staðan:
A-riðill:
Njarðvík 31 30 1 3126:2536 60
Skallagrúnur 311813 2518:2443 36
Þór 31 1714 2953:2850 34
Haukar 31 1021 2575:2702 20
ÍA 31 823 2693:2990 16
Snæfell 31 2292430:3155 4
B-riíBII:
ÍR
Grindavík
Keflavík
KR
Tindastóll
Valur
31 24 7 2797:2589 48
3123 8 2970:2569 46
31 20112967:2784 40
3115 162593:2589 30
31 10212451:267120
31 9 22 2593:2788 18
BLAK:
l.deild karlu:
Þróttur R-KA
HK-Þróttur N
ÍS-Stjarnan
Staðan:
ÞrótturR
HK
KA
Stjarnan
ÍS
Þróttur N
l.deild kvenna:
HK*Þróttur N
ÍS-KA
Staðan:
Víkingur
HK
fS
ILr*
3:0
3:0
1:3
1715 249:1449
17 14 3 44:1744
1710 733:3533
17 51228:3728
17 51223:3923
17 21512:4712
3:0
3:0
1312 137: 937
14 8 629:2729
13 7 627:2127
14 6 8 23:32 23
14 11314:4114
okkur vantaði hungrið sem þarf og
spuming er hvort menn hafi hrein-
lega trúað því að vió gætum þetta.
Við vitum nú hvað við gerðum
vitlaust og verðum bara aó fara
lengri leiðina að þessu. Þetta er
alls ekki búið,“ sagði Patrekur Jó-
hannesson, leikmaður KA og fyrr-
um Stjömumaður.
KA skoraði fyrsta markið í
gærkvöldi en skoraði síðan ekkert
í átta og hálfa mínútu og Stjaman
komst í 3:1. KA jafnaði 3:3 og þá
komu aftur þrjú Stjömumörk í
röð, 6:3. Enn jafnaði KA, 6:6, og
síðan var jafnt á öllum tölum upp í
10:10. Stjaman gerði þá tvö mörk
í röð og leiddi í leikhléi 12:10.
Stjaman jók muninn strax í
þrjú mörk í sinni fyrstu sókn og
KA náði aldrei að jafna leikinn
eftir það. Minnstur varð munurinn
eitt mark, 15:14, en þá settu
heimamenn á fullt og gestimir
náðu aldrei að svara almennilega
fyrir sig eða loka á sóknarmenn
Stjömunnar. Sóknarleikur KA var
tilviljunarkenndur og vöm heima-
manna sterk. Vöm KA hefur oft
leikið betur. Lokatölur urðu 29:24
og mætast liðin öðru sinni á Akur-
eyri nk. miðvikudag.
Erlingur lék best KA-manna í
fyrri hálfleik en engin reis upp úr
meðalmennskunni í þeim síðari.
Valdimar var þó ömggur í víta-
köstunum. Sigurður Bjamason lék
vel fyrir Stjömuna en bestur á
vellinum var Konráð Olavson.
„Ég bjóst við þeim fastari. Þeir
voru á hælunum allan tímann en
við spiluðum sterka vöm og agað-
an sóknarleik. Auk sóknarleiksins
gerðu hraðaupphlaupin hjá okkur
gæfumuninn. Það verður erfitt að
fara norður og við þurfum að leika
mjög vel til að vinna þá þar. Við
unnum þá fyrir norðan fyrr í vetur,
lékum þá mjög vel og við ætlum
að endurtaka þann leik á miðviku-
daginn,“ sagði Konráð Olavson.
SV
Mörk Stjörnunnar: Konráö 9/4, Sigurð-
ur 6, Filippov 5, Skúli 5, Magnús 3 og
Einar 1. Ingvar varði 13 skot og Ellert 2.
Mörk KA: Valdimar 9/7, Erlingur 4,
Valur 3, Patrekur 3, Leó 2, Alfreð 2 og
Jóhann 1. Sigmar varði 11 skot og
Bjöm 2.
Dómarar: Egill Már og Öm Markús-
synir. Hafa dæmt betur.
Alfreð Gíslason og lærisveinar hans í KA náðu sér aldrei á strik i Garða-
bænum og þeirra bíður nú crfitt hlutskipti annað kvöld.
Körfuknattleikur - úrvalsdeild:
Þórsarar óánægðir með dómarana
- Skallagrímur sigraði í framlengdum leik
Þór tapaði mikilvægum stigum í
baráttunni um 2. sæti A-riðils
úrvalsdeildarinnar í körfuknatt-
leik þegar liðið tapaði fyrir
Skallagrími á sunnudagskvöld-
ið. Þórsarar virtust hafa sigurinn
í hendi sér og góða forustu þegar
að dómarar leiksins létu til sfn
taka og Þórsarar misstu taktinn.
Heimamenn komust yfir og sigr-
uðu 105:103 eftir framlengdan
leik. Eftir venjulegan leiktíma
var staðan 97:97.
Gríðarleg stemmning var fyrir
leiknum og hátt í 600 manns voru
mættir til að hvetja Borgnesinga
áfram. Þórsarar byrjuðu betur og
voru grimmir í hvem bolta, sér-
staklega í vöminni. Þeir komust í
8:2 en heimamenn tóku góðan
sprett og komust yfir, 12:8. Krist-
inn Friðriksson skoraði ekki fyrr
en um 14 mínútur vom liðnar af
leiknum og næstu fjórar mínútum-
ar setti hann niður 14 stig. Bjöm
Sveinsson stóð sig einnig mjög
vel og var kominn með 14 stig
fyrir hlé og staðan 53:40 fyrir Þór
þegar blásið var til leikhlés.
Heimamenn byrjuðu síðari háf-
leikinn af mikilli grimmd og söx-
aðu forskotið niður í sex stig en
með góðum kafla komust Þórsarar
í 15 stiga fomstu, 66:51. í kjölfar-
ið fylgdi kafli þar sem Þórsarar
eyddu meiri kröftum í að mót-
mæla dómum en að spila sinn
bolta og heimamenn náðu munin-
um niður í 10 stig, 58:68. Það sem
eftir var leiks var mikil barátta en
Þórsarar höfðu frumkvæðið með-
an Kristinn var í stuði. Hann setti
niður sína sjöttu þriggja stiga
körfu þegar um þrjár mínútur voru
eftir en fékk skömmu síðar sína 5
villu, í stöðunni 93:86 fyrir Þór.
Hrannar Hólm, þjálfari Þórs, mót-
mælti kröfuglega og fékk á sig
tæknivíti. Heimamenn skomðu úr
fjómm vítaskotum og héldu bolt-
anum þannig að munurinn var
fljótur að jafnast. Þórsarar höfðu
yfir þar til 20 sekúndur voru til
íeiksloka að Alexander Ermo-
linski náði að jafna 97:97 og
framlengja þurfti leikinn.
í framlengingunni söknuðu
Þórsarar Kristins sárlega og Kon-
ráð Óskarsson fékk sína fimmtu
villu í byrjun framlengingar. Þaó
var síðan þjálfari Skallagríms,
Tómas Holton, skoraði sigurstig-
in, 105:103.
Kristinn Friðriksson var besti
maður vallarins og raðaöi niður
stigunum. Sandy Anderson var
einnig gífurlega grimmur undir
körfunni, sérstaklega í vöminni,
og heimamenn réðu ekkert við
hann. Þá lék Bjöm Sveinsson
einnig mjög vel. Hjá Skallagrími
var Tómas Holton bestur en Alex-
ander var einnig sterkur.
Gangur leiksins: 2:8, 12:12, 29:29,
34:37, 36:46, 40:53 - 49:55, 51:62,
51:66, 58:68, 62:74, 82:90, 87:93,
94:95, 97:97 - 100:99, 102:103,
105:103.
Stig Skallagríms: Alexander Ermo-
linski 27, Tómas Holton 26, Gunnar
15, Ari Gunnarsson 13, Sveinbjöm
Sigurðsson 7, Henning Henningsson 7,
Grétar 6.
Stig Þórs: Kristinn Friðriksson 33,
Sandy Anderson 23, Bjöm Sveinsson
17, Konráð Óskarsson 15, Einar Val-
bergsson 9, Birgir Öm Birgisson 6.
Dómarar: Kristinn Albertsson og Ein-
ar Einarsson. Vom mjög slakir.
Knattspyrna:
Nýr útlendingur til Leifturs
Leiftursmenn hafa enn styrkt lið
sitt fyrir baráttuna í 1. deildinni
næsta sumar. Nú hefur verið
gengið frá samkomulagi við
júgóslavneska leikmanninn Ne-
bojsa Corovic um að hann leiki
með liðinu næsta sumar.
Corovic þessi er 26 ára vamar-
maður sem lék með Spartak Su-
botica í vetur en Leiftursmenn
fengu einmitt Slobodan Milisic frá
því félagi fyrir síðasta sumar. Mil-
isic reyndist mjög vel og telja Ól-
afsfiröingar hann besta vamar-
mann íslands í dag. Corovic lék
með Milisic í gömlu Júgóslavíu
og hann fékk góð meðmæli hjá
fyrrum félaga sínum. Leifturs-
menn hafa átt í viðræðum við
hann um nokkurð skeið en félag
hans, Spartak Subotica, vildi ekki
leyfa honum að fara fyrr en nú.
Corovic er örfættur og mun að
öllum líkindum leika vinstra meg-
in í vöminni en getur einnig spilað
á miðjunni. Hann er væntanlegur
til Ólafsfjarðar um miðjan mars.
„Við emm búnir að sjá mynd-
bandsspólu af honum og þetta á
að vera góður spilari. Staðreyndin
er sú að við emm ekki með stóran
hóp og það er okkar helsta vanda-
mál,“ sagði Þorsteinn Þorvalds-
son, fomaður knattspymudeildar
Leifturs, en hann taldi þó að nú
væri lokamynd komin á hópinn.
Leiftursmenn spiluðu tvo æf-
ingaleiki í Reykjavík um helgina
og náðu mjög góðum úrslitum. Á
laugardaginn spilaði liðið gegn
Val og sigraði 2:1 og á sunnudag-
inn var IR lagt með sama mun í
aftakaveðri.