Dagur - 28.02.1995, Síða 10
10 - DAGUR - Þriðjudagur 28. febrúar 1995
ENSKA KNATTSPYRNAN
SÆVAR HREIÐARSSON
Arsenal á uppleið
Blackbum jók forskot sitt um
eitt stig um helgina þegar liðið
gerði markalaust jafntefli við
Norwich á sama tíma og Man-
chester United tapaði fyrir Ever-
ton. Arsenal virðist vera að ná
sér á strík og færíst upp töfluna
á meðan nágrannarnir í Totten-
ham hikstuðu gegn Wimbledon.
Peter Beardsley tryggði New-
castle sigur á Aston Villa með
tveimur glæsilegum mörkum og
Liverpool vann í Sheffield. A
sunnudaginn gerðu síðan Nott-
ingham Forest og QPR marka-
laust jafntefli.
BLACKBURN-NORWICH 0-0
Sveiflukenndur leikur í Blackbum
þar sem heimamenn fengu gullið
tækifæri til að auka forustu sína í
deildinni um þrjú stig en tókst það
ekki. Blackbum byrjaði leikinn af
miklum krafti og á 12. mínútu var
bakvörðurinn Graeme Le Saux
nálægt því aó skora en þrumuskot
hans hafnaði í stönginni. Black-
bum sótti fram að hléi og Alan
Shearer fékk upplagt færi en náði
ekki að koma hausnum í boltann
sem skoppaói framhjá. Eftir hlé
snérist dæmið við og Norwich
fékk bestu færin. Tim Flowers
varði glæsilega frá Mike Sheron
og varamaðurinn Jaime Cureton
stakk sér tvisvar í gegnum vömina
en kom boltanum ekki framhjá
Flowers.
Duncan Ferguson tryggði Everton
sigur á meisturunum með failegu
skallamarki.
EVERTON-MAN. UTD. 1-0
Eins og sjónvarpsáhorfendur
fengu að sjá vann Everton verð-
skuldaðan sigur á meisturum
Manchester United. Duncan
Ferguson skoraði eina mark leiks-
ins með skalla á 58. mínútu og
leikkerfi heimamanna gekk upp
þar sem háum sendingum var dælt
á Ferguson og honum ætlað að
skapa vandræði. Andy Cole fékk
bestu færi United en var ýmist
óheppinn eða ómarkviss fyrir
framan markið.
Paul Merson hefur aldrei verið
betri og Arsenal er á uppieið.
ætlaði aó bjarga sér svipaó og í
4:4 jafnteflinu við Aston Villa
þremur dögum áður. Sean Flynn
var þó á öðru máli og strax í
næstu sókn skoraði hann af stuttu
færi fyrir Coventry en gestunum
þótti rrnkil rangstöóulykt í loftinu.
Þremur mínútum fyrir leikslok
innsiglaði Peter Ndlovu síðan sig-
urinn eftir að hafa sloppið í gegn
og aftur fóru vamarmenn Leicest-
er að þefa eftir rangstöðulyktinni
en línuvörðurinn var ekki með
jafn gott lyktarskyn.
C. PALACE-ARSENAL 0-3
Mikið hefur gengið á hjá Arsenal í
vetur og George Graham var loks
Iátinn fjúka sem stjóri liðsins í
síðustu viku. Við það var sem
lukkan snérist liðinu í hag og Ar-
senal er nú á hraðferð upp á við.
Paul Merson er hressari en nokkru
sinni fyrr og hann var maðurinn á
bak við sigurinn á Palace. Hann sá
sjálfur um að skora fyrsta markið
um miðjan fyrri hálfleik eftir vel
útfærða aukaspymu þar sem Mer-
son slapp einn í gegn og renndi í
gegnum klofiö á Nigel Martyn,
markverði Palace. Á 39. mínútu
bætti Arsenal síðan öðm marki
við og að þessu sinni var þaó Mer-
son sem sá um undirbúninginn.
Hann lyfti boltanum yfir vamar-
mann á Chris Kiwomya sem skor-
aði með góðu skoti. Heimamenn
fengu ágætis færi og varamaður-
inn Bmce Dyer taldi sig hafa
minnkað muninn en mark hans
var dæmt af vegna rangstöðu. Það
var síðan Chris Kiwomya sem
tryggði sigur gestanna á 77. mín-
útu og aftur átti Merson allan
heiður að markinu eftir mikinn
sprett með boltann upp allan völl-
inn.
COVENTRY-LEICESTER 4-2
Nágrannaslagur í botnbaráttunni
þar sem hart var barist og fjöl-
mörg færi. Ron Atkinson hefur
byrjað vel sem stjóri hjá Coventry
og Sean Flynn kom lióinu yfir á
18. mínútu af miklum eldmóði.
Mike Marsh bætti öðru við á 27.
mínútu en bæði mörkin komu eftir
undirbúning frá fyrirliða Coven-
try, Dion Dublin. Heimamenn
höfðu ömgga fomstu í leikhléi en
leikmenn Leicester komu með
öðru hugarfari til síóari hálfleiks.
David Lowe minnkaði muninn á
64. mínútu með þriója rnarki sínu
á einni viku. Iwan Roberts jafnaði
á 75. mínútu með glæsilegunt
skalla og svo virtist sem Leicester
IPSWICH-SOUTHAMPTON 2-1
Southampton hafði yfirhöndina
allan tímann en átti í erfiðleikum
meó að nýta sér yfirburðina. Neil
Maddison skoraði eina mark fyrri
hálfleiks og kom Southampton yf-
ir með skalla á 38. mínútu. Að
venju var það Matthew Le Tissier
sem átti heiðurinn að markinu.
Ipswich neitaði að gefast upp og á
70. mínútu náði Alex Mathie að
jafna leikinn eftir mikil mistök hjá
Bruce Grobbelaar. Markvörðurinn
skrautlegi freistaði þess að spyma
frá vítateig sínum en hitti boltann
illa og Mathie fékk upplagt færi
sem hann nýtti. Mathie var keypt-
ur til Ipswich frá Newcastle sl.
föstudag fyrir 500.000 pund og er
strax farinn að endurgreiða sínu
nýja félagi. Ipswich hungraði í öll
stigin og 77. mínútu skoraói
gamla kempan Lee Chapman sig-
urmarkið með skalla. Þetta var
fyrsta mark hans fyrir Ipswich og
það nægði liðinu til aö komast
upp úr botnsætinu.
MAN. CITY-LEEDS 0-0
Leikmenn Manchester City velta
því eflaust fyrir sér hvernig þeim
tókst að klúðra þessum leik gegn
bitlausu liði Leeds. Heimamenn
sköpuðu sér aragrúa marktækifæra
en sennilega féllu þau í skaut leik-
manna sem ekki eru vanir að
skora. Bakvörðurinn Terry Phelan
komst í tvígang í dauðafæri en
misnotaði bæöi. Brian Deane
komst næst því að skora fyrir
Leeds en hjólhestaspyma hans fór
beint á markvörð City. Heima-
menn héldu áfram að sækja og
undir lokin slapp vamarmaðurinn
Keith Curle í gegnum vöm Leeds
en John Lukic náði að verja skot
hans í stöngina.
NEWCASTLE-
ASTON VILLA 3-1
Þetta var leikur
hinna glæsi-
legu marka og
galdramaður-
inn
Snillingur-
inn Pcter
Beardsley
sýndi að hann
hefur engu
gleymt og
skoraði tvö
falleg gegn Vilia.
Peter Beardsley var í aðal-
hlutverki. Newcastle byrjaði
betur og skoraói fyrsta markið
á 31. mínútu þegar Keith Gille-
spie renndi boltanum út á Barry
Venison sem skoraði með
þrumuskoti efst í homið en þetta
mun vera fyrsta mark kappans fyr-
ir Newcastle. Tíu mínútum síðar
jafnaði Andy Townsend með álíka
þmmuskoti fyrir Aston Villa. Eftir
hlé var komið að þætti Beardsley
og á 55. mínútu kom hann New-
castle aftur yfir. Enn var það
Gillespie sem renndi boltanum út
og Beardsley stillti honum upp áð-
ur en hann sendi hámákvæmt í
homið. Rúmum tíu mínútum síðar
einlék Beardsley á ótrúlegan hátt
framhjá þremur vamarmönnum
Villa og skoraði glæsilegt mark.
Leikmenn Villa réðu ekkert við
snillinginn og sennilega hefðu
þeir þurft byssu til að stöðva Be-
ardsley í þetta skiptið.
SHEFF. WED.-LIVERPOOL 1-2
Sheffield Wednesday byrjaði vel
gegn Liverpool og á 14. mínútu
skoraði hinn stórefnilegi Chris
Bart-Williams með ágætu skoti
eftir undirbúning frá Dan Petr-
escu. Liverpool náði að jafna
þremur mínútum fyrir leikhlé þeg-
ar að John Bames skallaði í netið
eftir homspymu frá Michael
Thomas. Mark Bright taldi sig
hafa komið Wednesday aftur yfir
þegar hann kom boltanum í netið
stuttu síðar en línuvöróur taldi
hann rangstæðan og markið dæmt
af. Þaó var síðan Steve McMana-
man sem skoraði sigurmarkið á
59. mínútu. Eftir mikla pressu að
marki heimamanna fékk
McManaman knöttinn utarlega í
teignum. Hann snéri eldsnöggt á
einn vamarmann áður en hann
skrúfaði boltann í bláhomið.
TOTTENHAM-
WIMBLEDON1-2
Þar kom að því að Tottenham
hikstaði og þrekvaxnir leikmenn
Wimbledon nýttu tækifærið. Það
var Efan Ekoku, sonur höfðingja
frá Nígeríu, sem skoraði fyrsta
markið á 39. mínútu með góðu
skoti utan vítateigs sem hafnaði
neðst í hominu. Þjóðverjinn Jurg-
en Klinsmann jafnaði fyrir heima-
menn á fjórðu mínútu síóari hálf-
leiks með skalla af stuttu færi eftir
að Teddy Sheringham hafði betur
í einvígi við Hans Segers, mark-
vörð Wimbledon. Efan Ekoku var
þó ekki á því að gefast upp en
hann var fyrirliði Wimbledon í
þessum leik í fjarveru Vinnie
Jones. Á 64. mínútu óð Ekoku
upp allan völl og skoraði af miklu
harðfylgi. Tottenham sótti undir
lokin og Klinsmann var nærri því
að jafha en Hans Segers varði
glæsilega hjólhestaspymu Þjóð-
verjans. Undir lokin geróu heima-
menn tilkall til vítaspymu en
dómarinn var á öðm máli og
dæmdi óbeina aukaspymu inn-
v an teigs sem ekki nýttist.
WESTHAM-
CHELSEA1-2
Nágrannaslagur í
London þar sem West Ham byrj-
aói betur og Don Hutchinson kom
liðinu yfir á 11. mínútu með skoti
í þverslána og inn eftir hom-
spymu. Craig Burley náði að jafna
metin á 67. mínútu af stuttu færi
eftir góðan undirbúning frá Gavin
Peacock og á 75. mínútu skoraði
Mark Stein sigurmarkió meó
glæsilegu skoti úr þröngu færi
eftir sendingu frá Burley. Tony
Cottee náöi að koma boltanum í
netið hjá Chelsea undir lokin en
markið var dæmt af þar sem
brotið var á Kevin Hitchcock,
markverði Chelsea, stuttu áð-
ur.
QPR-N. FOREST 1:1
Á sunnudaginn mættust QPR
og Nottingham Forest þar sem
fyrirfram var búist við mikilli
keppni framherjanna Stan Colly-
more og Les Ferdinand. Hvorug-
um þeirra tókst að skora í leiknum
en í staðinn voru það smávaxnir
tengiliðir sem skomðu mörkin,
bæði með skalla. QPR sótti mun
meira og skapaði sér nokkum
fjölda færa en Forest varðist og
nýtti eitt af fáum færum sínum.
Varamaðurinn Ian Woan gaf góða
sendingu fyrir markið frá vinstri
og Steve Stone kastaði sér fram
og skallaði í netið. Heimamenn
sóttu ákaft og Les Ferdinand fékk
gott færi til að jafna sjö mínútum
fyrir leikslok en Mark Crossley
varði skalla hans af stuttu færi.
Áfram hélt pressan og þremur
mínútum síðar kom loks jöfnunar-
markið. Ferdinand náði að skalla
boltann framhjá Crossley og fyrir
mitt markið þar sem Simon Bark-
er var fyrstur að átta sig og skall-
aði í netið.
l.DEILD
Það leit ekki vel út fyrir Þorvald
Örlygsson, Lárus Orra Sigurðsson
og félaga þeirra í Stoke þegar aó
Hamilton kom WBA yfir á 24.
mínútu. Rúmum tíu mínútum síð-
ar jafnaði Keith Scott og Paul Pe-
schisolido bætti tveimur mörkum
við í síðari hálfleik. Tranmere hélt
efsta sætinu með 4:1 sigri á Bum-
ley þar sem Pat Nevin og John
Aldridge voru meðal markaskor-
ara. Middlesbrough náði aóeins
markalausu jafntefli á sunnudag-
inn gegn Millwall. Hollenski úlf-
urinn John De Wolf var í miklu
stuði og tryggói liði sínu, Úlfun-
um, 4:2 sigur á Port Vale með
glæislegri þrennu. Steve Bull
skoraði fjórða mark Wolves.
Urslit:
Úrvalsdeild: Blackburn-Norwich 0:0
Covenlry-Leicester 4-2
C. Palace-Arsenal 0-3
Everton-Man. Utd. 1-0
Ipswich-Southampton 2-1
Man. City-Leeds 0-0
Newcastle-Aston Villa 3-1
Sheff. Wed.-Liverpool 1-2
Tottenham-Wimbledon 1-2
Wcst Ham-Chclsea 1-2
QPR-N. Forest 1:1
Urvalsdeild: Bristol City-Luton 2-2
Notts County-Reading 1-0
Oldham-Sheff. Utd. 3-3
Port Vale-Wolves 2-4
Portsmouth-Grimsby 2-1
Soutbend-Sunderland 0-1
Swindon-Barnslcy 0-0
Tranmere-Burniey 4-1
WBA-Stoke 1-3
Derby-Bolton 2:1
Millwail-Middlcsbrough 0:0
Staöan:
Úrvalsdeild:
Blackburn 30 20 6 4 63:26 66
Man.Utd. 3019 6 5 53:22 63
Newcastle 29 15 9 5 50:3154
Líverpool 28 14 9 5 48:23 51
N.Foresl 3013 8 942:33 47
Leeds 2811 10 7 35:28 43
Tottenhain 2812 7 9 46:4043
Arsenal 30101010 35:32 40
Sheff.Wed. 3010 91139:4039
Wimbledon 2911 6 12 35:50 39
Aston Vllla 31 9111146:4538
Coventry 30 91011 33:47 37
Chelsea 28 9 910 37:39 36
Norwich 29 9 91127:33 36
Man.City 29 9 91137:44 36
Everton 30 81012 30:39 34
QPR 27 8 81140:46 32
Southampton 28 613 9 40:4631
C. Palace 29 7 9 13 21:3130
WestHam 29 8 5 16 27:39 29
Ipswich 29 6 518 31:58 23
Lcicester 29 4 8 17 31:54 20
1. delld:
Tranmere 3317 8 854:36 59
Middlesbr. 31 16 8 7 44:2656
Bolton 3215 9 8 53:35 54
Sheff.Utd. 33 1411 8 56:38 53
Wolves 3116 5 10 56:43 53
Reading 3315 810 37:2953
Grimsby 331212 9 50:4248
Watford 31 1211 835:29 47
Barnsley 31 13 71141:3946
Luton 3212 81245:45 44
Oldham 3211 10 1145:43 43
Derby 3111 91137:33 42
Millwall 30 1011 9 37:36 41
Portsmouth 32 10 10 12 37:46 40
Stokc 30 10 10 10 32:35 40
Charlton 3110 91243:4739
Sunderland 32 8 15 9 32:31 39
PortVale 30 10 8 12 37:40 38
WBA 33 10 7 16 29:42 37
Southend 33 10 6 17 32:6036
Bristol City 33 9 816 32:45 35
Swindon 30 8 9 13 36:49 33
Notts County 33 7 8 18 36:48 29
Burnley 30 6 9 15 29:48 27