Dagur - 13.05.1995, Qupperneq 2
2 - DAGUR - Laugardagur 13. maí 1995
FRÉTTIR
Fiskiðjusamlag Húsavíkur:
„Hagsmunir FH eru settir númer eitt
og þess vegna er okkar boð betra"
- segir Hermann Hansson, stjórnarformaður IS
„Okkur finnst mjög eðlilegt að
íyktir máisins séu með þessum
hætti þegar við horfum á hvernig
þetta ber að. Við vorum beðnir að
koma þama inn með meira hluta-
fé en það voru ekki við sem vor-
um að þvinga það fram að fá að
koma með meiri peninga, það var
beinlínis óskað eftir því við okk-
ur,“ sagði Hermann Hansson,
stjómarformaður ísienskra sjáv-
arafurða, aðspurður áiits á tillögu
meirihlutans í bæjarráði Húsa-
víkur um að taka tilboði ÍS í
hlutafé Fiskiðjusamlagsins.
„Vió veröum við ýtrustu kröfum
heimamanna á Húsavík og okkur
þætti afar skrýtið ef menn væm
ekki sáttir við það,“ sagði Her-
mann. Aðspurður um muninn á til-
boðum IS og SH sagði Hermann:
Heilsufariö í apríl:
Færri með flensu
í mánaðarlegri skýrslu Heilsu-
gæslustöðvarinnar á Akureyri fyr-
ir apríl kemur fram að flensa hef-
ur verið mikið á undanhaldi á
svæðinu. Talsvert færri influensu-
tilfelli greindust í aprfl en mars,
eða 44 á móti 153.
Undanfama daga segir Friðrik
Vagn Guöjónsson, yfirlæknir, þó
talsvert hafa borðið á því að fólk
leiti til Heilsugæslustöðvarinnar
með einkenni lík flensu. „Við höf-
um ekki tekið próf úr þessu þannig
að við vitum ekki nákvæmlega hvað
er á ferðinni. Þetta er flensulíkur
vírus getum við sagt, með hita,
beinverkjum og kvefi en sennilega
er hér á ferðinni einhver annar stofn
en þessi sem var í vetur."
Flestir leituðu sem fyrr til
Heilsugæslustöðvarinnar vegna
kvefs og hálsbólgu, eða 369, 108
vegna magasjúkdóma, 28 með
sterptókokkahálsbólgu, 15 með
lungnabólgu, 14 með kláðamaur, 6
vegna hlaupabólu og einn vegna
matareitrunar af völdum baktería.
HA
Árgangur '58
úr Gagnfræðaskóla Akureyrar
Nú eru 20 ár líðin síðan víð útskrífuðumst og ætlum
víð í tílefni þessara tímamóta að hittast 27. maí.
Allír með og rífjum upp líðnu árín.
Upplýsingar og skráning:
Kristín, s. 24824
Soflía, s. 25186
Birgír, s. 25540
Híldur, s. 21906
ívar, s. 21060
eftir kl. 19 á kvöldin.
[S U MA
l'OUVATNI |
FORELDRAR! FORELDRAR!
Innritun er hafin
í sumarbúðirnar að Hólavatni
Dvalarflokkar sumarsins fyrir börn 8 ára og eldri verða:
Drengir Tímabil Dagar Verð
1.fl. 6. júní-13. júní 7 dagar 13.800,-
2. fl. 15. júní-22. júní 7 dagar 13.800,-
Stúlkur 3. fl. 24. júní-1. júlí 7 dagar 13.800,-
4. fl. 4. júlí-11. júlí 7 dagar 13.800,-
5. fl. 14. júlf-21. júlí 7 dagar 13.800,-
6. fl. 24. júlí-31. júlí 7 dagar ■I3.800,-
Unglingaflokkur 12-15 ára, blandaður: 7. fl. 8. ágúst-13. ágúst 5 dagar 9.900,-
Rútugjald er innifalið í dvalargjaldinu.
Innritunargjald er kr. 3.000,- og er óafturkræft en dregst frá
dvalargjaldinu.
Innritun fer fram í félagsheimili KFUM og K, Sunnuhlíð 12,
mánudaga og miðvikudaga kl. 17.30-18.30 í síma 26330 og
utan skrifstofutíma í síma 23929 hjá Önnu og 22066 hjá
Addý sem einnig veita allar nánari upplýsingar.
Sumarbúðirnar Hólavatni.
„Það koma minni peningar frá okk-
ur og þaö eru fleiri en ein ástæða
fyrir því. Við erum hluthafar nú
þegar og eigum forkaupsrétt á
genginu 1. Við erum því að ganga
inn í skilmálana eins og þeir eru.
Það getur SH ekki og tilboð þeirra
er því yfirboð til að þrengja sér inn
í umræðuna. Fyrir utan það að við
erum hluthafar og eigum þennan
skýlausa rétt hefur fortíðin eitthvað
að segja í málinu og það sem við
höfum verið að vinna með FH
varóandi ýmiskonar sérvinnslu og
þróunarverkefni. Það er alveg ljóst
að ef FH mundi skipta um sölufyr-
irtæki mundu þessi verkefni fara;
þar með talin pökkun fyrir Covee í
Belgíu, sem er undir vörumerki IS,
Samband of Iceiand. Það liggur al-
veg ijóst fyrir að það verkefni hyríi
úr frystihúsi FH ef þeir seidu í
gegnum annan aðila. Þetta verkefni
er ég sannfærður um aó er talsvert
mikils virði.
Þó peningar séu mikils virói í
lífinu eru þeir ekki allt. I vetur
sögðu fulltrúar minnihlutans á Ak-
ureyri að setja þyrfti hagsmuni ÚA
númer eitt. Það held ég að sé ein-
faldlega verið að gera á Húsavík;
aó setja hagsmuni Fiskiðjusamlags-
ins númer eitt. Þess vegna er okkar
boð betra.“
Aðspurður um breytingu milli
tilboða frá ÍS þannig að fallið væri
frá kröfum um sameiningu útgerð-
ar- og fiskvinnslufyrirtækjanna
sagði Hermann að í útboðsskilmál-
unum kæmi fram hvemig staðið
yrði að sameiningunni og það hefði
orðið sameiginleg niðurstaða^ við-
ræðunefndarinnar og fulltrúa IS að
óþarfi væri að taka það fram aftur í
tilboðinu, þar sem vísað væri til aó
keypt yrði á grundvelli útboðsskil-
málanna. IM
„ Vakna Haukur, vakna þú“
Liðlega 100 nemendur Verkmcnntaskólans á Akureyri voru að dimittera í gærmorgun, og síðan tekur við strangur
próflestur. Þessar hressur stúlkur á náttúrufræðibraut höfðu nýlokið við að heimsækja Hauk Jónsson, aðstoðar-
skólameistara, á sjöunda tfmanum í gærmorgun og bjóða honum góðan dag með hressilegum söng. Mynd: GG
Aðalfundur Kaupfélags Þingeyinga:
Efling félagsvitundar á dagskrá
- nefnd skipuð til tillögugerðar
Á aðalfundi Kaupfélags Þingey-
inga sl. sunnudag lagði Baidvin
Baldursson fram tillögu frá
Kinnardeild þess efnis að skipuð
verði fimm eða sjö manna nefnd
til að athuga og gera tillögur um
á hvern hátt megi efla félagsvit-
und félaga þess og auka þekk-
ingu þeirra á eðli og starfsemi
félagsins, þannig að framtíð þess
verði sem best tryggð efnahags-
lega og félagslega.
Tillagan var samþykkt sam-
hljóða á fundinum, en hepni
fylgdi verkefnaskrá um að athuga
og gera tillögur um eftirfarandi at-
riði:
„1. Hvemig best verði tengdir
hagsmunir félagsins og félags-
manna.
2. Hvort tæknilegt og æskilegt
sé að taka að nýju upp greiðslur í
stofnsjóði félagsmanna.
3. Hvort ekki sé tímabært og
nauðsynlegt aó skilgreina hverjir
eigi félagið, þar með talið mjólk-
urstöð og sláturhús.
4. Hvað annað sé hægt að gera
til aö endurvekja þann félagsanda
sem áður einkenndi félagið.
Nefndin skal hafa samráð og
samvinnu við framkvæmdastjóra
og stjóm félagsins. Nefndin skal
skila tillögum sínum og greinar-
gerð til stjómar félagsins eigi síð-
ar en í febrúar 1996 svo hægt
verði að kynna þær og ræða á
deildarfundum og síðar aðalfundi
félagsins það ár.“ IM
Til sölu jörðin Hlíð
Á jörðinni er tvílyft steinhús klætt að utan, hesthús
ásamt hlöðu, fjárhús með hiöðu ásamt gripahúsi. Jörð-
inni fylgir 6,5 hektarar ræktaðs lands. Kjörin jörð fyrir
hestamenn.
Ýmis skipti koma til greina.
Nánari upplýsingar veitir Ingimai í síma 96-23282.