Dagur - 13.05.1995, Page 3

Dagur - 13.05.1995, Page 3
FRETTIR Laugardagur 13. maí 1995 - DAGUR - 3 Sveitarstjórn Skútustaðahrepps krefst úrbóta á veginum yfir Mývatnsheiði: Hugsanaskekkja í vegaáætlun Vegfarendur um Mývatnsheiði hafa ekki komist hjá því að taka eftir því bágborna ástandi sem vegurinn þar er í, því frá því að snjóa leysti hefur vegurinn verið nánast ófær vegna aurbleytu. Þetta vandamál er ekki einungis tengt vorinu því burðarlag veg- arins er Ieir sem veðst upp í rigningu, gerir veginn stór- hættulegan og á köflum nánast ófæran fólksbflum. Um er að ræða tvo vegarkafla, samtals um 5 km á einum íjölfarnasta vegi landsins og t.d. þá leið sem ekið er með ferðamenn sem koma með skemmtiferðaskipum til Akureyrar. Ekki er gert ráð fyrir vegabótum samkvæmt vega- áætlun næstu fjögur árin. Sveitarstjóm Skútustaðahrepps samþykkti sl. fimmtudag svo- hljóðandi ályktun: „Sveitarstjóm samþykkir að skora á vegageró- ina, samgönguráðherra og þing- menn kjördæmisins að bregðast þegar við ófremdarástandi sem ríkir í samgöngum um Mývats- heiði. Undanfarin ár hefur vegur- inn hvað eftir annað orðið hættu- legur og jafnvel lokast vegna aur- bleytu. Sveitarstjóm bendir á að aðeins 5 km af leióinni valdi þessu ástandi. Ljóst er að nota- gildi nýs vegar yfir Fljótsheiði takmarkast mjög ef Mývatnsheiði er ófær yfirferðar. Ekki þarf að tí- unda það tjón sem ástand vegarins veldur íbúum og ferðaþjónustu á svæðinu svo og samgöngum milli Norður- og Austurlands." - segir Sigurður Rúnar Ragnarsson, sveitarstjóri Akureyri: Bæjarmála- punktar ■ Á bæjarráðsfundi á fimmtudag var lagt fram bréf frá Kaupþingi Norðurlands hf. þar sem greint er frá ákvörðun stjómarinnar um aukningu á hlutafé félagsins og hluthöfum boðinn forkaupsréttur að bréf- um í hlutfalli við hlutafjáreign þeirra. Bæjarráð samþykkti að leggja til að forkaupsrétti verði hafnað. ■ Lagt var fram bréf frá Líf- eyrissjóði Noróurlands hf. þar sem boðað er til aðalfundar sjóðsins 20. maí nk. í bréfinu er greint frá því að Akureyrar- bær sé meðal þeirra atvinnu- rekenda, sem rétt eiga á að til- nefna einn fulltrúa í fulltrúaráð sjóðsins til eins árs og cr óskað eftir að svo verði gert. Bæjar- ráð samþykkti að tilnefna Val- garð Baldvinsson bæjarritara í fulltrúaráðið. ■ Lagt var fram bréf frá Eim- skipafélagi íslands hf. þar scm fjallað cr um aðstöðu félagsins vió Akureyrarhöfn, stækkun á lóð þess og lengingu á viðlegu- kanti á sunnanverðri Oddeyri. Bæjarráó samþykkti að vísa cr- indinu tii skipulagsnefhdar og hafnarstjómar. ■ Bæjarráó samþykkti aó fela bæjarstjóra aó senda Sauó- krækingum heimboð ásamt dagskrá, þar scm á dagstund yrói farið yfir ýmis sameigin- leg mál þessara svcitarfélaga, sem æskilegt væri að hafa sam- ráó og samstarf um. Til fundar- ins vcrði boðið bæjarfulltrúum ásamt nokkrum forystumönn- um atvinnulífsins á Sauðár- króki. Sigurður Rúnar Ragnarsson, sveitarstjóri í Mývatnssveit, segir að nú sé mönnum nóg boðið og það gangi hreinlega ekki upp að vegurinn verði svona næstu fjögur árin. „Ég held að það sé hugsana- skekkja í vegaáætlun, kannski af pólitískum ástæðum. Fljótsheiðin var tekin fram fyrir Mývatnsheiði, að ég hef heyrt gegn tillögu Vega- gerðarinnar. Ef menn fara að hugsa málió þá er þetta eins og að byggja hús og byrja á þakinu. Nýr vegur yfir Fljótsheiði hefur tak- markað notagildi ef ekki er hægt að komast yfir Mývatnsheiöina, því þegar svo stendur á þarf öll umferð sem á sín endimörk eða uppsprettu í Mývatnssveit eða austar að fara Kísilveginn og notar því ekki Fljótsheiðina,“ sagði Sig- urður Rúnar. Hann bætti því við að sveitar- stjóm teldi sig ekki vera með neina frekju þegar úrbóta er kraf- ist. Um er að ræða tvo kafla, sam- tals um 5 km, sem eftir er aó byggja upp. Á milli malbiksenda í Reykjadal og við Hclluvað í Mý- vatnssveit eru um 11 km. „Menn gera sér almennt ekki fulla grein fyrir því hvaða tjón er af þessu. Menn finna það auðvitað á sjálf- um sér þegar þeir þurfa að nota veginn hvað það er erfitt, en tjónið felst ekki síður í ímyndinni sem þetta svæði fær. Það er komið upp í huga manna að það sé varla þess virði að leggja það á sig að fara austur í Mývatnssveit.“ Sigurður sagist ekki treysta sér til að segja til um hvort menn muni taka sig saman í andlitinu og bæta veginn. „Það er búið að negla fjárhagsáætlunina, en okkur fínnst þetta svo brýnt að menn verði aó bregðast við og ef menn vilja ekki breyta vegaáætlun verð- ur að taka þetta af viðhaldsfé eða einhverju slíku. Það er ekki hægt að horfa fram á næstu fjögur ár svona,“ sagði Sigurður Rúnar Ragnarsson. HA Norðurland: Grasleppuvertiðin aðeins half- drættingur á við síðasta ár - rækjubátar Grásleppuvertíðin á Norðaust- urlandi sem hófst 20. mars sl. hefur gengið mjög illa það sem af er, en hún stendur til 20. maí nk. Aflinn er aðeins um helm- ingur þess sem hann var árið 1994. Þá fékk Sturla Hjaltason á Raufarhöfn, sem er með Gunn- þór ÞH-75, og fleiri sem með honum verka grásleppu 417 tunnur af hrognum en nú er afl- inn aðeins liðlega 200 tunnur. Aflinn hefur verið um 1 til 1,5 tunna í drætti en á stærstu bátun- um, þar sem þrír eru á, hefur aff inn verið um 7 tonn upp úr sjó. í hverja tunnu fara um 130 kg upp úr sjó. Á Raufarhöfn hafa um 15 bátar verið á grásleppuveiðum en tveir þeirra eru hættir og er annar þeirra kominn á þorskanet en hinn á línu, en flestir krókabátamir fara væntanlega á línu eða handfæri, en kvótabátamir á þorskanet. Það skapast af tíðarfarinu hversu lengi hinir bátamir verða á grásleppu- veióunum en ekki má vera mikið að veðri þegar verið er með netin svo nærri landi sem raun ber vitni á grásleppu, jafnvel alveg upp í landsteinum. Sturla Hjaltason segir ástæðu þessarar dræmu veiði vera ofveiði og mikinn kulda í sjónum en rækjuveiðisjómenn hafi t.d. látið að því liggja að djúpsjórinn sé miklu kaldari nú en á síðustu ár- um. Á hafísárunum hafi hins veg- aö fá töluvert af grásleppuseiðum ar oft verið mokveiði á grásleppu svo böndin berist óneitanlega aó ofveiðinni. „Við höfum verið að fá fréttir af því að rækjubátar á djúpslóð hafi verið aó fá töluvert af grá- sleppuseiðum sem ekki þarf kannski aó koma á óvart því rækjuveiðin hefur stóraukist mið- aö við mörg sl. ár. Sömu sögu er að segja af grásleppuveiðum á öðrum slóðum, bæói norðan- og austanlands. Minni afli veldur engri verð- hækkun en við sömdum um 1.500 þýsk mörk til innlendu verksmiðj- anna og 1.600 þýsk mörk á því magni sem selt hefur verið með milligöngu Kjartans Friðbjamar- sonar til Danmerkur. Okkar hrogn hafa verið seld til Strýtu hf. á Ak- ureyri," sagði Sturla Hjaltason á Raufarhöfn. Aðalsteinn Helgason, fram- kvæmdastjóri Strýtu hf., segir enga sölusamninga hafa verið gerða og verksmiðjan því ekki þurfa að fá ákveóið magn af hrognum. Það magn sem tekið hefur verið á móti á þessu vori sé hins vegar miklu minna en gert var ráð fyrir, jafnvel helmingi minna og það sé slæmt mál. „Við vonumst til aó fá sem mest af þeim hrognum sem enn hafa ekki verið seld. Veióin fyrir sunnan er víða mjög góð, eins og t.d. við Akranes og Grindavík og í Breiðafirði voru fyrstu netin ekki lögð fyrr en 10. maí. Þar er útlit fyrir ágætan grásleppuafla á þessu vori. Við kaupum aðeins hér fyrir norðan til þess að verið sé að kaupa hæfilegt magn og staðið við það sem seljendunum er lofaó, en þá getur það gerst að maður fái alltof lítið af hrognum. Oll hrognin verða unnin í 50 og 100 gramma glös og á haustmán- uðum veróur öll framleiðsla Strýtu hf. komin í neytendapakkn- ingar þ.e. beint á borð neytenda, einnig rækjan,“ sagði Aðalsteinn Helgason, framkvæmdastjóri Strýtu hf. GG Tryggvi í Svartárkoti: Flytur áburð til upp- græðslu við Kráká „Hér er enn mlkili snjór, þó hann sé auðvitað mikið búinn að síga og lflta taka mikið,“ sagði Tryggvi Harðarson, bóndi í Svartárkoti í Bárðar- dal. Sauðburður er að byija í Svartárkoti og Tryggvi sagði alveg ljóst að fé verður ekki sett út á næstunni og bjóst hann við að þurfa að gefa því fram í miðjan næsta mánuð. „Þetta er meó mesta snjó sem ég man eftir og veturinn búinn að vera mjög lciöinlegur. Hann setú allt á kaf svo snemma, upp úr miðjum októ- ber. Ég er hins vegar ekkert svatsýnn á aó ekki geti ræst úr þessu. Seinniparturinn af vor- inu gæti oróió góóur.“ Tryggvi er einnig grenja- skytta en sagðist líúnn tíma hafa haft U1 að sinna þeim veiðum að undanfömu og að- eins náó einni tófu. Þó væri greinilegt að nóg væri af henni og mikið væri af slóöum. Þessa dagana er Tryggvi aó ljúka vió að flytja áburð til uppgræðslu fyrir Landgræðsl- una austur yfir Svartárvatnið, áleiðis að Kráká. Þar eru miklir sandar sem verið er að græða upp og hefta sandfok, en sand- ur sem berst í Kráká fer síóan í Laxá og skemmir hrygningar- stöðvar laxins. „Þetta cr allt á efUr áæUun sökum óUóar, en kuldamir hafa auðvitað bjargað því að enn er hægt að stunda þessa flutninga,“ sagði Tryggvi. Hann flytur áburðinn á dráttarvél eða jcppa á ís yfir Svartárvatn, en hann segir að enn sé um meters þykkur ís á vatninu, og síóan áfram á snjó á áfangastað. í sumar fer hann síðan með dráttarvél og áburð- ardrcifara á staðinn. HA Skriðjókull eða....? Víða er enn mikill snjór í bygggð. Þorvaldsdaisá í Árskógshreppi hafði graf- ið undan þessari snjódyngju sem við það var að springa fram eins og skrið- jökull. Mynd: GG Akureyri - Ziirich Akureyri - Álasund Úrval Útsýn hefur þá ánægju að bjóða upp á beint flug frá Akureyri í sumar. Álasund 24. júní - kr. 26.180,- * Ziirich vikulega frá 10. júní-19. ágúst kr. 27.040,-* Ráðhústorgi 3 URVAL-UTSYN ÍSbsooo 6) 3 <= *o

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.